Morgunblaðið - 20.06.2019, Síða 65
Áhugaverð nálgun
Jólasýning Borgarleikhússins er
Vanja frændi eftir Anton Tsjékhov í
þýðingu Gunnars Þorra Péturs-
sonar og leikstjórn Brynhildar Guð-
jónsdóttur sem frumsýnd verður á
Stóra sviðinu 11. janúar 2020 á af-
mæli Leikfélags Reykjavíkur.
„Þetta verk hefur lengi verið á óska-
listanum hjá okkur. Persónulega
finnst mér þetta besta verk Tsjék-
hovs þar sem það býr yfir bæði
miklum húmor og örvæntingu. Per-
sónur verksins borða og drekka all-
an daginn á sama tíma og þær eru
síkvartandi. Það er eitthvað við
þessar aðstæður sem kallast sterk-
lega á við samtímann, einhver deka-
dens sem er gaman að rannsaka.
Þetta er fólk sem maður kennir til
með á sama tíma og það er algjör-
lega í ruglinu,“ segir Kristín og tek-
ur fram að spennandi verði að sjá
verkið í túlkun Brynhildar.
„Hún setti upp Ríkharð þriðja hjá
okkur í vetur sem var einstakt ferli.
Áður en sú sýning var frumsýnd
vorum við farin að ræða hvaða leik-
riti hún myndi næst leikstýra, en
hún hefur mestan áhuga á að takast
á við klassísk verk,“ segir Kristín og
rifjar upp að mikill áhugi hafi verið
meðal leikstjóra um að fá að leik-
stýra Ríkharði þriðja eftir að til-
kynnt var á starfsmannafundi að til
stæði að setja það upp. „Mikill fjöldi
reyndra leikstjóra lýsti yfir áhuga á
að leikstýra verkinu og gerði grein
fyrir nálgunaraðferð sinni. Hug-
mynd Brynhildar var hins vegar sú
nálgun sem okkur fannst áhuga-
verðust. Það er ekki sjálfgefið að
reynd leikhúsmanneskja geti sest í
leikstjórastólinn og látið hugmyndir
sínar ganga upp. Þess vegna var
ennþá meira gefandi að sjá þetta
ganga upp. Það er stórkostlegt fyrir
okkur að eiga leikstjóra á þessum
mælikvarða sem er kona, því hennar
lestur á Ríkharði var allt annar en
karlkyns kollega hennar,“ segir
Kristín og bendir sem dæmi á að
hlutverk kvennanna í Ríkharði
þriðja séu oft skorin talsvert niður
en Brynhildur hafi valið að skoða
titilpersónuna út frá samskiptum
hans við konurnar.
„Leikmynd Barkar Jónssonar
fyrir Vanja frænda verður væntan-
lega frekar abstrakt og óstaðbundin
þótt hún verði á köflum nútímaleg,
en búningar Filippíu Elísdóttur
munu vísa í períóduna,“ segir Krist-
ín. Leikhópinn skipa Valur Freyr
Einarsson, sem leikur titilhlut-
verkið, Hilmir Snær Guðnason, Jó-
hann Sigurðarson, Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir, Katrín Halldóra
Sigurðardóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir og Halldór Gylfason.
Nýtt verk eftir Tyrfing
Helgi Þór rofnar nefnist nýtt leik-
rit eftir Tyrfing Tyrfingsson í leik-
stjórn Stefáns Jónssonar sem frum-
sýnt verður á Nýja sviðinu í febrúar.
Um er að ræða fimmta verkið eftir
Tyrfing sem Borgarleikhúsið setur
upp en hann var hússkáld leikhúss-
ins 2014-15. „Nýja verkið fjallar um
eitraða karlmennsku, en kveikjan að
verkinu voru viðtöl sem Tyrfingur
tók við unga karlmenn um hlutverk
þeirra í lífinu og samviskubitið og
togstreituna sem þeir upplifa marg-
ir hverjir yfir því að taka sér pláss í
samfélaginu og sýna tilfinningar,“
segir Kristín og tekur fram að verk-
ið sjálft sé þó ekki heimildarleikhús í
hefðbundnum skilningi. „Verkið
gerist á útfararstofu feðga sem
Bergur Þór Ingólfsson og Hilmar
Guðjónsson leika,“ segir Kristín og
tekur fram að líkt og fyrri verk
Tyrfings gerist það í Kópavogi.
„Þeir feðgar eru hálfgerðir fúskarar
í þessum bransa, enda pabbinn mik-
ill braskari. Atburðarásin fer af stað
þegar dóttir manns sem feðgarnir
eru að jarða kemur í heimsókn til að
fara yfir allt sem viðkemur útför-
inni. Sonurinn, sem er líksnyrtir, og
stúlkan fella hugi saman,“ segir
Kristín, en með hlutverk stúlkunnar
fer Þuríður Blær Jóhannsdóttir.
„Verkið gengur mjög langt í
ákveðnum brútalisma í anda Söruh
Kane,“ segir Kristín og bendir á að
fá af leikskáldum nýrrar kynslóðar
hafi notið jafn mikillar hylli og Tyrf-
ingur. „Verk hans hafa hlotið veg-
legar kynningar á leiklistarhátíðum
í Evrópu, sem er mjög ánægjulegt,“
segir Kristín og bendir á að Borg-
arleikhúsið hafi látið þýða verk hans
yfir á ensku og fleiri tungumál í því
skyni að kynna Tyrfing erlendis.
„Við erum hluti af evrópsku verk-
efni sem nefnist Fabula Mundi, sem
gengur út á að kynna leikskáld milli
landa, og Tyrfingur hefur verið eitt
fjögurra leikskálda sem við höfum
verið að kynna. Svo ánægjulega vill
til að á næsta leikári mun eitt virt-
asta leikhús Hollendinga, Toneel-
groep Oostpool, sviðsetja Kartöflu-
æturnar þar í landi. Það hefur
jafnframt tryggt sér sýningarrétt á
nýja leikritinu,“ segir Kristín og
bendir á að góðir þýðendur séu
mikilvægir í þessu samhengi. „Tyrf-
ingur fann þýðanda í Hollandi, þar
sem hann býr, sem nær stílnum
hans. Svo nú virðist boltinn vera far-
inn að rúlla, sem er frábært.“
Sprúðlandi skemmtilegheit
Í febrúar verður Gosi eftir Carlo
Collodi í nýrri leikgerð eftir Ágústu
Skúladóttur frumsýndur á Litla
sviðinu. Haraldur Ari Stefánsson fer
með titilhlutverkið og af öðrum leik-
urum nefnir Kristín Halldór Gylfa-
son og Kötlu Margréti Þorgeirs-
dóttur. „Okkur hefur lengi langað til
að setja upp klassískt ævintýri fyrir
yngri áhorfendur á Litla sviðinu.
Auðvitað eru til margar útgáfur af
þessu ævintýri, en Ágústa hyggst
vinna leikgerð sína upp úr uppruna-
legu sögunni, sem er dekkri en
Disney-útgáfan. Grunnspurningin
sem við höfum áhuga á snýst um
það hvernig einstaklingi er tekið
sem er öðruvísi en allir aðrir auk
þess sem sannleikurinn er áhuga-
vert þema í verkinu,“ segir Kristín
og tekur fram að reikna megi með
sprúðlandi skemmtilegri sýningu
þar sem tónlist leiki stórt hlutverk í
frásagnaraðferðinni. Leikmynd og
búninga hannar Þórunn María Jóns-
dóttir og Elín Sigríður Gísladóttir
gerir grímur sem verða áberandi í
sýningunni.
Seinna samstarfsverkefni leikárs-
ins verður frumsýnt á Nýja sviðinu í
febrúar, en það er uppsetning Kven-
félagsins Garps á Er ég mamma
mín? eftir Maríu Reyndal í leik-
stjórn höfundar. „Þetta er sami hóp-
ur og stóð að gerð sjónvarpsþátt-
anna Mannasiðir og leikritsins Sóley
Rós,“ segir Kristín, en leikarar upp-
færslunnar eru Sólveig Guðmunds-
dóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson.
„Þetta er hugmynd sem heillaði
okkur mjög mikið. Um er að ræða
fjölskyldusögu sem gerist á tveimur
tímabilum. Annars vegar þegar
kvenréttindabaráttan er að taka
flugið á áttunda áratugnum og
eiginkonan í verkinu ákveður að
hætta að sjá um allt á heimilinu og
eiginmaðurinn verður nokkuð ráða-
laus. Hins vegar í samtímanum þar
sem dóttir þeirra hjóna tekst á við
aðrar samfélagsbreytingar sem lúta
að hlutverkum kynjanna. Sömu leik-
arar leika hvor tveggja hjónin.“
Verk um vald og valdaleysi
Oleanna eftir David Mamet í þýð-
ingu Kristínar Eiríksdóttur og leik-
stjórn Hilmis Snæs Guðnasonar
verður frumsýnd á Nýja sviðinu í
mars. „Það er auðvitað mikið
ánægjuefni að Ólafur Darri Ólafsson
snúi aftur til starfa hjá okkur og
spennandi fyrir áhorfendur að sjá
hann aftur á sviði. Hann hafði sam-
band við okkur og lýsti yfir áhuga á
að fá að takast á við hlutverk há-
skólakennarans,“ segir Kristín, en
með hlutverk nemandans fer Vala
Kristín Eiríksdóttir.
„Í ljósi alls sem gerst hefur í
kringum #metoo fannst okkur þetta
mjög áhugavert efni. Verkið fjallar
um vald, valdleysi og aðstöðumun
persónanna tveggja í verkinu,“ segir
Kristín og bendir á að leikskáldið
setji það í hendur áhorfenda að
túlka það sem gerist í samskiptum
persónanna. „Okkur finnst það
áhugaverð rannsóknarspurning
hvernig persónur verksins upplifa
hlutina og aðstöðumun þeirra með
ólíkum hætti.“
Skoða Bubba í okkur
Níu líf er vinnutitill á leikriti Ólafs
Egils Egilssonar sem byggt er á ævi
Bubba og segir jafnframt sögu
þjóðarinnar, en sýningin verður
frumsýnd á Stóra sviðinu í mars í
leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur
sem leikstýrði síðast Ati haustið
2015. „Ég reyndi lengi að streitast á
móti því að leikstýra þessari sýn-
ingu, því það er alveg full vinna að
vera leikhússtjóri og mér hefur
fundist ég fá mikla listræna útrás í
því starfi. Jafnframt er til mikið af
leikstjórum sem mig langar að
rækta, þannig að mér hefur ekki
fundist það forgangsatriði að ég
væri sjálf að leikstýra,“ segir Krist-
ín og rifjar upp að þau Ólafur Egill
hafi unnið saman að uppsetningu
Fólksins í kjallaranum og Svari við
bréfi Helgu, en Kristín leikstýrði að
jafnaði tveimur sýningum á ári í
Borgarleikhúsinu frá 2008 þar til
hún var ráðin leikhússtjóri.
„Við Ólafur Egill vinnum mjög vel
saman. Þegar við vorum byrjuð að
tala saman um uppsetningu Níu lífa
og velta upp nálgunarleiðum í frá-
sagnaraðferðinni var mig fljótlega
farið að dreyma verkið á nóttunni og
ég var farin að fá endalausar hug-
myndir. Ég fann að ég var orðin
inspíreruð af efniviðnum eins og
leikstjóri og á endanum þurfti ég
bara að játa mig sigraða. Að feng-
inni reynslu sem leikstjóri veit ég að
þegar það kemur svona rosalega
skýr löngun til að segja sögu þar
sem myndir og draumar leita á
mann, þá er rétt að taka það verk-
efni að sér,“ segir Kristín og rifjar
upp að þau Bubbi hafi þekkst lengi.
„Þegar ég var 21 árs gaf ég út plötu
og í framhaldinu bauð Bubbi mér að
spila með sér á Litla-Hrauni á að-
fangadag. Ég hef alltaf borið mjög
mikla virðingu fyrir Bubba án þess
að vera eindreginn aðdáandi. Ég
nálgast því viðfangsefnið samtímis
af virðingu og kæruleysi, sem ég
held að sé mikilvægt,“ segir Kristín
og tekur fram að hún sé spennt fyrir
frásagnaraðferðinni.
„Bæði hvernig við ætlum að segja
þessa sögu, því við erum að fara í
gegnum sögu Bubba á sama tíma og
við förum í gegnum sögu þjóðar-
innar. Það verður lítill drengur í
sýningunni sem verður eins og vitni
að öllu því sem gerist. Markmið okk-
ar er að frásagnaraðferðin sé opin,
þannig að allir í leikhópnum eru þau
sjálf og munu öll líka leika Bubba.
Við erum að skoða Bubba og okkur í
honum og hvernig hann endurspegl-
ast í þjóðarsálinni,“ segir Kristín. Í
leikhópnum verða m.a. Jóhann Sig-
urðarson, Björn Stefánsson, Katrín
Halldóra Sigurðardóttir, Rakel
Björk Björnsdóttir, Valur Freyr
Einarsson, Kristín Þóra Haralds-
dóttir og Halldóra Geirharðsdóttir.
Leikmynd gerir Ilmur Stefánsdóttir
og búninga Filippía Elísdóttir.
Breyting á leikhúskortum
Veisla nefnist sýning eftir Dóru
Jóhannsdóttur og Sögu Garðars-
dóttur í leikstjórn Dóru sem frum-
sýnd verður á Litla sviðinu í apríl.
„Það er í raun bara nútímarevía.
Dóra leikstýrði Ræmunni hjá okkur
og setti upp sýningu með nem-
endum leikarabrautar LHÍ sem hét
Bransinn sem var í revíuformi. Ég
var mjög heilluð af því hvernig hóp-
urinn vann verkið. Ég hef saknað
þessa forms í nútímanum. Þetta er
sketsasýning með söngnúmerum – í
raun Skaupið án stjórnmálanna.
Þema sýningarinnar eru veislur, en
Dóra og Saga hafa mikla reynslu af
veislustjórn. Í sýningunni er fjallað
um allt það vandræðalega og stór-
kostlega sem getur fylgt veisluhaldi,
hvort heldur er ættarmóti eða
árshátíð vinnustaðar,“ segir Kristín.
Auk Sögu leika í sýningunni Sig-
urður Þór Óskarsson, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Halldór Gylfason og
Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Prins
Póló sér um tónlistina og leikmynd
og búninga hannar Eva Signý
Berger.
Frá fyrra leikári rata aftur á svið
söngleikurinn Matthildur á Stóra
sviðinu og Jólaflækja á Litla sviðinu.
Af öðrum viðburðum má nefna að
boðið verður upp á þrjár ólíkar
kvöldstundir, Skjáskot með Bergi
Ebba, Um tímann og vatnið með
Andra Snæ og Í ljósi sögunnar með
Veru Illugadóttur. „Þetta eru þrír
hliðarviðburðir sem við bætum inn í
áskriftarkortin okkar,“ segir Kristín
og bendir á að samhliða sé fyrir-
komulagi áskriftarkorta breytt á þá
leið að kortagestir geta valið hvaða
viðburði sem er inn á kortin sín.
„Þar sem nokkuð ólíkt verð er á við-
burðum förum við þá leið að fyrir
kort með fjórum til sjö viðburðum
veitum við 30% afslátt af auglýstu
verði, en fyrir kort með átta við-
burðum eða fleirum veitum við 40%
afslátt,“ segir Kristín að lokum.
okkar“
Morgunblaðið/Eggert
» Við viljum eiga ísamtali við listafólk
og áhorfendur um nýjar
nálganir og ný verk.
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Kragelund stólar
K 406