Morgunblaðið - 20.06.2019, Síða 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
DVERGARNIR R
NAGGUR
H: 120 cm
PURKUR
H: 60 cm
TEITUR
H: 80 cm
ÁLFUR
H: 30 cm
Frábær hönnun, styrkur og
léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoðið
nýju
heimas
íðuna
islands
hus.is
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Halló! Ísland er á línunni,“ svarar
austurríski barítónsöngvarinn Flori-
an Boesch eldhress þegar blaðamað-
ur hringir í hann árla morguns í
miðri vinnuviku, klukkan sjö að ís-
lenskum tíma en níu í Vínarborg þar
sem Boesch býr með fjölskyldu
sinni. Röddin er djúp, eins og við var
að búast af þessum látúnsbarka sem
þykir einn fremsti barítónsöngvari
heims.
Blaðamaður spyr hvort veðrið sé
gott í Vín og Boesch svarar því til að
það sé dásamlegt. „Kirsuberin eru
fullþroskuð í garðinum mínum,“
segir hann seiðandi og hægri röddu
og blaðamann grípur mikil og
skyndileg löngun í kirsuber.
Dökk og hlý rödd
Boesch kemur fram á tónlistar-
hátíð píanóleikarans Víkings Heið-
ars Ólafssonar, Reykjavík Mid-
summer Music (RMM), sem hefst í
Eldborgarsal Hörpu í kvöld með
opnunartónleikum. Þar verður
Boesch í fríðum flokki flytjenda og á
efnisskránni eru þrjú verk. Fyrstur
er hinsti ljóðaflokkur Jóhannesar
Brahms, Fjórir alvarlegir söngvar,
sem þykir fagur og tregafullur og
hæfa vel dökkri og hlýrri rödd
Boesch. Næst er verk Sjostakovits,
Píanótríó nr. 2, og að lokum Minning
um Flórens eftir Tsjækofskíj. Annað
kvöld syngur Boesch svo á tón-
leikum sem nefnast Skrifast á -
Hommage, kemur fram undir lok
þeirra og flytur ljóðaflokk Schu-
manns en blæbrigðarík, djúp og per-
sónuleg túlkun hans á ljóðasöngvum
19. aldarinnar hefur skipað honum í
röð eftirsóttustu ljóðasöngvara
heims, eins og segir á vef RMM,
rmm.is.
Boesch þreytti frumraun sína á
Schubertiade-tónlistarhátíðinni í
Schwarzenberg í Austurríki árið
2002, þegar hann var 31 árs, og í
kjölfarið fór ferill hans á flug. Hann
kemur reglulega fram í tónleikasöl-
um á borð við Wigmore Hall, Musik-
verein og Concertgebouw og hefur
unnið með mörgum af virtustu sin-
fóníuhljómsveitum heims undir
stjórn heimskunnra hljómsveitar-
stjóra. Þá hefur hann einnig sungið í
óperum, nýverið titilhlutverkið í
Wozzeck eftir Alban Berg og hljóð-
ritun Boesch og Malcolm Martineau
á Malarastúlkunni fögru eftir Schu-
bert var tilnefnd til Grammy-
verðlaunanna 2015, svo fátt eitt sé
nefnt af glæsilegri ferilskrá Boesch.
Áhrifamikill Ali
Víkingur og Boesch kynntust þeg-
ar þeir komu fram á tónlistarhátíð í
Konzerthaus í Vínarborg í fyrra.
Víkingur bauð honum þá að koma
fram á RMM og þáði Boesch boðið
með þökkum. Blaðamaður nefnir að
Víkingur hafi sagt í nýlegu viðtali í
Morgunblaðinu að hann væri aðdá-
andi Boesch og Boesch segir þá að-
dáun gagnkvæma. „Við fundum fyrir
því að við ættum samleið í tónlist-
inni,“ segir Boesch. „Hann kannaðist
við upptökurnar mínar og ég hans og
við berum jafnmikla virðingu og
dáumst jafnt hvor að öðrum.“
–Víkingur nefndi í sama viðtali að
þið hefðuð á hátíðinni boðið upp á
ansi sérstakt atriði, í því spilaði hann
etýðu númer 2 eftir Philip Glass og
þú söngst við hana ljóðlínu eftir
hnefaleikakappann Múhameð Ali.
Hvernig datt ykkur þetta í hug?
Boesch segir alls ekkert grín hafa
verið á ferðinni. „Múhameð Ali er ein
aðdáunarverðasta manneskja tutt-
ugustu aldarinnar,“ segir söngvar-
inn og að ljóðlínan sem hann söng sé
einkar áhrifamikil.
„Stundum þegar ég hlusta á tón-
list fer ég að syngja aðra laglínu. Ég
kann vel að meta tónlist Philip Glass
en langar alltaf að gera eitthvað við
hana. Þegar ég heyrði etýðu númer 2
fór ég að syngja við hana og velti fyr-
ir mér hvaða texti myndi falla vel að
henni. Í kjölfarið valdi ég texta eftir
Múhameð Ali sem fjallar um svart
og hvítt,“ segir Boesch og fer með
textann fyrir blaðamann: „Ég vakn-
aði í morgun og leið vel og svörtum.
Ég fór fram úr svarta rúminu mínu,
fékk mér svart kaffi, fór í svarta
sloppinn minn, hlustaði á svörtu
uppáhaldsplöturnar mínar, fór í
svörtu jakkafötin mín, svörtu skóna
og út um svörtu dyrnar mínar. Og
sjá, hvítur snjór.“
Ekki bundinn af hefðum
Boesch lýkur ljóðalestrinum með
kúnstpásu, leyfir blaðamanni að
melta texta Ali nokkur augnablik og
bendir svo á að píanó sé með svört-
um og hvítum lyklum og að texti Ali
sé bæði djúpur, merkingarþrunginn
og pólitískur. Þeir Víkingur hafi ekki
æft atriðið heldur aðeins rætt það
áður en þeir hrintu því í framkvæmd.
Boesch segir það hafa sýnt vel
hversu opinn og næmur Víkingur sé
þegar kemur að túlkun og flutningi á
tónlist. „Hann er ekki bundinn af
neinum venjum eða hefðum og þann-
ig er frábær tónlist í mínum huga og
stórkostlegir tónlistarmenn. Tónlist-
in á ekki að hefta okkur heldur opna
hug okkar og hjálpa okkur að kanna
hana,“ segir Boesch. Þetta viðhorf
skili sér í flutningi Víkings á verkum
eftir Bach, Schumann eða Beethov-
en, svo dæmi séu tekin.
Boesch er einmitt að fara að
syngja verk eftir Schumann og Bach
í Hörpu og líka Brahms og hann er
spurður að því hvort þeir Víkingur
hafi valið verkin í sameiningu. „Við
áttum nokkur Whatsapp-samtöl, ég
var í Berlín, í leigubíl og hér og þar
og við ræddum hvað við gætum gert
saman, hvað væri áhugavert. Aðal-
verkið í samstarfi okkar á hátíðinni
hans verður Liederkreis op. 39 eftir
Schumann og svo dálítill Bach. Við
stefnum að því að vinna saman að
verkefni þar sem þessi tvö tónskáld
verða mikilvæg og þetta er því
ákveðin prufukeyrsla fyrir það.“
Ekki samruni heldur samtal
Boesch segir Schumann hafa farið
einstaka leið í verkum sínum fyrir
rödd og píanó. „Að mínu mati lítur
hann ekki svo á að rödd og píanó eigi
að renna saman heldur frekar tala
saman, að í verkunum eigi að vera
samtal hugmynda, heimspeki og
innihalds,“ útskýrir Boesch. Það eigi
sérstaklega við í hinum þekktu ljóða-
flokkum tónskáldsins.
„Píanóið útskýrir alltaf eitthvað
annað en röddin, gerir athugasemd
við textann. Það má alltaf finna
ákveðna skoðun í píanóleiknum og
ég verð í því sambandi að nefna sér-
staklega píanóleik Víkings því hann
býr yfir þeim hæfileika að geta tjáð
sig með hljóðfærinu. Píanóleikur
hans er ákaflega tjáningarríkur. Sú
hlið á flutningnum er auðvitað hug-
læg en ég skil hana vel og þegar ég
hlusta á Víking leika á píanóið heyri
ég texta, innihald, frásögn, skoðanir
og að margar ákvarðanir eru teknar
innan tungumáls tónlistarinnar sem
skila sér í ríkri frásögn og mælsku.
Þessi gæði í píanóleik tel ég vera
mjög sjaldgæf og þeirra hef ég leitað
meðal píanóleikara lengi vel. Þar af
leiðandi hefur mig lengi langað að
flytja lög Schumanns með Víkingi
þar sem mér leikur mikil forvitni á
að vita hvað hann hefur að segja.“
Ljósmynd/Lukas Beck
Ekki samruni heldur samtal
Austurríski barítónsöngvarinn Florian Boesch kemur fram á tónlistarhátíð Víkings Heiðars
Ólafssonar, Reykjavík Midsummer Music, sem hefst í dag Einn eftirsóttasti ljóðasöngvari heims
Látúnsbarki Florian Boesch
þykir með fremstu barítón-
ljóðasöngvurum samtímans.
Samsýning um tuttugu meðlima í
FÍSL, Félagi íslenskra samtíma-
ljósmyndara, verður opnuð í Hlöð-
unni á Korpúlfsstöðum á morgun,
föstudag, klukkan 18. Sýningin
nefnist ISO 2019 og er þetta í þriðja
skipti sem FÍSL stendur fyrir slíkri
sýningu félaga en þær fyrri voru
settar upp á Ísafirði og á Höfn.
Meðal sýnenda eru margir kunn-
ir myndlistarmenn sem og aðrir
sem hafa nýlega kvatt sér hljóðs en
eiga það sameiginlegt að hafa eink-
um unnið með ljósmyndamiðilinn.
Þar á meðal má nefna Spessa,
Charlottu Hauksdóttur, Braga Þór
Jósefsson, Nina Zurier, Friðgeir
Helgason, Kristínu Hauksdóttur,
Helga Skútu, Báru Kristinsdóttur,
Maríu Kjartansdóttur, Björn Árna-
son, Stuart Richardson og Sissu.
Á sýningunni eru fjölbreytileg og
forvitnileg verk sem eiga það eitt
sameiginlegt að vera unnin á síð-
ustu tveimur árum og sýna því hvað
listamennirnir eru að fást við.
Sýningin ISO 2019 er opin á
laugardögum og sunnudögum kl.
13 til 17 og lýkur 7. júlí.
Samsýning FÍSL á Korpúlfsstöðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einn sýnenda Charlotta Hauksdóttir.
Boðið verður
upp á tónleika í
röðinni Sumar-
jazz í Salnum í
Kópavogi í dag,
fimmtudag, og
hefjast þeir
klukkan 17.
Sigga Eyrún,
Þórdís Gerður
og Karl Olgeirs-
son flytja gömul og ný lög úr leik-
húsi, kvikmyndum og af vinsælda-
listunum, í djassútsetningum fyrir
selló, píanó og söng. Meðal annars
flytja þau lög eftir Cole Porter,
Kurt Weill, Marc Shaiman – úr
Mary Poppins Returns – og Tom
Waits. Einnig verður frumflutt ný
vögguvísa eftir Karl.
Tónleikarnir eru í forsal Salar-
ins og húsið verður opnað klukkan
16.
Á tónleikaröðinni Sumarjazz í
Salnum eru alls sex síðdegistón-
leikar nú í júní og í ágúst og er
tilefnið tuttugu ára afmæli Sal-
arins.
Aðgangur er ókeypis að tónleik-
unum.
Sumardjass hljómar í Salnum í dag
Karl Olgeirsson