Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 1
Hillan Giggar og semur 23. JÚNÍ 2019SUNNUDAGUR Tónlistar-maðurinn Flónihefur nóg aðgera í sumar ogtreður bæðiupp á Secret Solsticeog á Þjóð-hátíð. 2 Hissa á sólinniFerðamenn streyma til landsins til að skoðaíslenska náttúru en fæstir áttu von á sól og hita. 8 6 Sumarsæla ádiskinn þinn fersk og spennandisalöt slá í gegn. 20 L A U G A R D A G U R 2 2. J Ú N Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  145. tölublað  107. árgangur  ÞRÓA LYF ÚR ÞÖRUNGUM GEGN PSORIASIS FULLKOMIÐ LJÓÐ ER ÓLÝSANLEGT LAVINIA GREENLAW 42BLÁA LÓNIÐ 20 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Tónlistarhátíðin Secret Solstice hófst í Laugardalnum í gær, búist er við að á annan tug þúsunda gesta sæki hátíðina heim í ár og mynduðust nokkrar raðir við opnun hennar. Meðal þeirra sem stigu á svið í gær voru Pusha T, Pussy Riot, Jói Pé og Króli og margir fleiri. Í dag verða Black Eyed Peas, Högni og Hatari á meðal þeirra sem skemmta hátíðargestum. Kátir hátíðargestir nutu tónlistar í sólskini og blíðu Morgunblaði/Arnþór Birkisson  Gömul ljós- mynd eftir Ólaf K. Magnússon, ljósmyndara Morgunblaðsins til áratuga, gegndi lykilhlut- verki í viðgerð á listaverkinu Hvítu fiðrildin eftir Ásmund Sveinsson í vor. Verkið hafði legið lengi undir skemmdum þegar Sveinn Markús- son, málmsmiður og handverks- maður, var fenginn til að gera það upp og án myndarinnar, sem tekin var 1968, hefði verkefnið orðið mun strembnara. „Það vantaði til dæmis alveg einn vindfangara á verkið; hann var al- veg horfinn. Ég fann hins vegar ál- snefil í sárinu og vissi þannig að hann hefði verið úr áli. Hinir vind- fangararnir tveir eru úr ryðfríu stáli. Þá voru vængirnir orðnir tærðir og illa farnir, þannig að ég smíðaði nýja eftir gömlu vængj- unum, nýja jafnvægisstöng með blýlóðum og var gamla blýið hans Ásmundar steypt með,“ segir Sveinn meðal annars um það sem gera þurfti. Rætt er við hann um viðgerðina í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins og myndir birtar en Árni Sæberg ljós- myndari fylgdist með ferlinu frá upphafi til enda. Gömul ljósmynd í lykilhlutverki við viðgerð á listaverki Gagn Sveinn rýnir í ljósmynd Ólafs K.  Um síðustu helgi var um 15-19 tonna farmur, þar af ein grafa, fluttur í rúmlega fimmtíu ferðum á gúmmíbát frá varðskipinu Tý í fjör- una við Hornbjargsvita. Tilefnið er framkvæmdir sem Ferðafélag Ís- lands er að ráðast í við vitann. Skipherra á varðskipinu sagði verkið hafa verið „ekkert vesen“ þrátt fyrir að það hafi tekið um það bil sólarhring. »10 Fimmtíu ferðir með yfir fimmtán tonn Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „FME er búið að hafa samband við mig og telur að við sitjum áfram í stjórninni þar til stjórnarfundur hafi verið haldinn hjá VR. Maður kærir sig auðvitað ekki um að sitja í óþökk fólks en það er alvarlegt ef verið er að brjóta lög,“ segir Ólafur Reimar Gunnarsson, formaður stjórnar Líf- eyrissjóðs verslunarmanna. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær ákvað fulltrúaráð VR að afturkalla umboð fjögurra stjórn- armanna stéttarfélagsins í Lífeyris- sjóði verslunarmanna. Spurningar hafa vaknað um lög- mæti ákvörðunar fulltrúaráðsins. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins eru nokkrir aðilar að skoða lögmæti ákvörðunarinnar. Komið hefur fram að Fjármálaeftirlitið skoðar nú stjórnarskiptin. Hafa fulltrúar FME rætt við Ólaf Reimar og Guðrúnu Hafsteinsdóttur, vara- formann stjórnar. Ólafur kveðst telja að FME vinni að greinargerð um málið en það fékkst ekki staðfest í gær. Þá segir Ólafur að fráfarandi stjórn hafi leitað álits lögfræðings. Það liggi vonandi fyrir í næstu viku. Guðrún Hafsteinsdóttir sagði í samtali við Morgunblaðið að lög- fræðingur Lífeyrissjóðs verslunar- manna væri að skoða réttmæti ákvörðunarinnar. „Ég get einnig staðfest að við erum að láta óháðan sérfræðing í félagarétti skoða hvort hægt sé að gera þetta með þessum hætti sem gert var.“ „Fullkomlega lögleg“ aðgerð „Fjármálaeftirlitið hlýtur að eiga að haga sínu eftirliti þannig að hags- munir neytenda séu varðir. Þegar það bregst, eins og nú er raunin, stígum við inn og látum til okkar taka,“ sagði í yfirlýsingu frá VR í gær. Yfirlýsingin er svar við „föður- legri áminningu“ FME til VR um að stjórnarmönnum í lífeyrissjóðum sé óheimilt að beita sér fyrir því að sjóðirnir séu nýttir í öðrum tilgangi en þeim sem skýrt er frá í lögum. VR telur að aðgerðin hafi verið „fullkom- lega lögleg“. Ennfremur sagði að áhersla hefði verið lögð á vaxtalækk- un í nýgerðum lífskjarasamningum sem í fælist mikil kjarabót. „Þegar stjórnarmenn VR í lífeyrissjóðnum standa að ákvörðun sem gengur þvert gegn þessari sátt og mikil- vægu stefnu VR og hækkar vexti á íbúðalánum, þrátt fyrir að vextir á markaði hafa lækkað, situr VR ekki þögult hjá,“ sagði í yfirlýsingu VR. Skoða lögmæti ákvörðunar VR  FME og lögfræðingar í startholunum  VR stendur á sínu MLýsa óánægju með … »4 Morgunblaðið/Eggert Hús verslunarinnar Átök um stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Möguleiki er á að hvítabjörn fylgi hafísbreiðu sem var 25 sjómílur, eða rúma 46 kílómetra, utan við Kögur í gærmorgun og þokast að öllum lík- indum nær landi. „Áður fyrr voru birnir að koma þegar það var mjög mikill ís sem var kominn nánast alveg upp í land- steina. Eftir 2008 fórum við að lenda í því að birnir kæmu af þveröfugum ástæðum, af því að þeir lentu í vand- ræðum vegna þess að ísþekjan er í raun að bráðna undan þeim.“ Hvítabirnir geta synt allt að 200 kílómetrum svo að ef björn er á ís- breiðunni ætti hann að eiga auðvelt með að ná Íslandi á sundi. »2 Morgunblaðið/Ófeigur Hvítabjörn Þeir geta fylgt hafís. Ísbjörn á leiðinni?  Fara á sund vegna loftslagsbreytinga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.