Morgunblaðið - 22.06.2019, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Félagsvef-urinnFacebook
var í upphafi tæki
til þess að nem-
endur við ákveðna
háskóla í Bandaríkjunum
gætu átt samskipti, en er nú
orðið eitt umfangsmesta og
valdamesta fyrirtæki heims.
Samkvæmt gögnum fyrir-
tækisins Statista voru virkir
notendur Facebook á fyrsta
fjórðungi þessa árs 2,38 millj-
arðar manna. Nú hyggjast
forráðamenn Facebook hasla
sér völl á fjármálasviðinu með
nýjum gjaldmiðli, rafmynt-
inni líbru, og verða greiðslu-
og fjármagnsmiðlun heims-
ins.
Forráðamenn Facebook
litu í upphafi á sköpunarverk
sitt sem gjöf til heimsins, til
bóta og batnaðar fyrir mann-
kyn, líkt og um góðgerðar-
stofnun væri að ræða.
Sú var þó ekki raunin.
Facebook hefur malað gull og
oftar en ekki er uppspretta
auðsins vinna annarra, sem
lítið fá fyrir sinn snúð. Um
það eru fjölmiðlar besta dæm-
ið. Umferð notenda Facebook
snýst að miklu leyti um efni,
sem hinir ýmsu fjölmiðlar búa
til. Út á þessa umferð fær
Facebook gríðarlegar auglýs-
ingatekjur á meðan þeir sem
unnu verkið berjast í bökkum.
Notendur Facebook eru þó
meginuppspretta teknanna.
Einhvern tímann gekk brand-
ari um mannætu sem flaug á
fyrsta farrými. Henni var
réttur matseðill, leist ekki á
hann og spurði: „Gæti ég
nokkuð fengið farþegalist-
ann.“
Lifibrauð Facebook er not-
endalistinn. Notendur setja
stanslaust inn upplýsingar
um sjálfa sig og þær notar
Facebook til þess að greina
hegðun þeirra og útbúa mat-
seðil fyrir auglýsendur þann-
ig að hver og einn nái til lík-
legra viðskiptavina.
Facebook á sér vissulega
jákvæðar hliðar. Rúmlega
þrjátíu þúsund Íslendingar
skiptast á upplýsingum í sér-
stökum hópi áhugamanna um
garðyrkju og nú mun vera
kominn afmarkaður hópur
áhugamanna um lúsmý, sem
ugglaust á eftir að draga að
sér fjölda manns.
En Facebook getur líka
verið rotþró því að þar eru
einnig öllu skuggalegri krók-
ar og kimar, svívirðilegar
árásir og einelti og jafnvel
hryðjuverk í beinni útsend-
ingu. Stjórnendur Facebook
spyrja hvernig í ósköpunum
þeir eigi að geta haft eftirlit
með því hvað notendur setja
inn á vefinn og það er ekki
fráleit spurning,
en hins vegar get-
ur það ekki verið
án ábyrgðar að
skaffa hryðju-
verkamönnum
vettvang, sem um þriðjungur
jarðarbúa notar, til að básúna
hryllingsverk sín.
Og þá er það nýja rafmynt-
in. Líbra hefur fengið blendin
viðbrögð. Hugmyndin er sú að
myntin verði studd einhvers
konar myntkörfu með blöndu
hefðbundinna gjaldmiðla, en
að baki býr þó sú hugsun að
líbran verði mynt heimsins og
tæki þá við af hlutverki doll-
arans. Greiðslukortafyrir-
tækin Visa og Mastercard
hafa þegar stokkið um borð.
Þau líta væntanlega svo á að
bolmagn og áhrif Facebook
vegi þyngra en væntanlegt
högg, sem hefðbundin við-
skipti þeirra kynnu að verða
fyrir, og betra sé að vera með
frá upphafi.
Stórir markaðir verða
reyndar utan seilingar. Face-
book er bannað í Kína og raf-
myntir eru bannaðar á Ind-
landi. Þar búa tvær
fjölmennustu þjóðir heims
með samanlagt tvo og hálfan
milljarð manna.
Ódýr leið til að geyma og
flytja fé kæmi sér sérstaklega
vel fyrir fátækt fólk og vega-
laust. Talsmenn Facebook
halda því fram að hinir vega-
lausu tapi árlega um 25 millj-
örðum dollara (3,1 billjón
króna) í gjöld fyrir peninga-
færslur. Það myndi vissulega
muna um það ef þeir, sem
minnst hafa á milli handanna,
hefðu aðgang að ódýrri eða
ókeypis bankaþjónustu og
handhægri leið til að flytja fé.
Þá vaknar hins vegar sú
spurning hvort þessi nýja raf-
mynt yrði ekki um leið skálka-
skjól til að þvo og flytja illa
fengið fé og auðvelda skatt-
svik. Ekki að það hafi gengið
vel hingað til, en það þarf
meira en yfirlýsingar Face-
book til að öðlast fullvissu um
að líbran verði ekki stærsta
afland sögunnar. Reynslan af
eftirliti félagsvefsins með
sjálfum sér er ekki traust-
vekjandi.
Til stendur að líbran fari í
umferð á næsta ári. Enn er
ógerningur að segja til um
hvernig til muni takast, en
með tilkomu hennar gæti
Facebook hæglega orðið
stærsta fjármálafyrirtæki
heims með öllum þeim ítökum,
sem því fylgja. Þekkt eru orð
Hobbes um stigmagnandi
spillingarmátt valdsins. Þessi
þróun getur því ekki verið
annað en áhyggjuefni hvað
sem líður öllum yfirlýsingum
um góðan ásetning.
Áform Facebook um
rafmynt ættu að
vera áhyggjuefni}
Mikið vill meira
N
ú þegar langt er liðið á júní og
þingi frestað fram í lok ágúst þá
er augljóst að spyrja: hvað gera
þingmenn þá? Til að byrja með
er loksins einhver tími til þess
að sinna fjölskyldu og tengdum verkum en þó
það séu ekki þingfundir eða nefndarfundir þá
klárast þingstörfin aldrei. Á liðnu þingi hlaut
t.d. einungis eitt af þingmálum mínum af-
greiðslu með atkvæðagreiðslu í þinginu. Öll
önnur mál annaðhvort komust ekki á dagskrá
eða dóu í nefnd, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
til þess að hljóta þaðan afgreiðslu. Í heildina
eru þetta 14 frumvörp til laga og 5 þingsálykt-
unartillögur, 19 mál. Af þeim eru þá 18 sem
þarf að endurvinna m.t.t. umsagna og leggja
fram aftur, þar sem frumvarpi um styttingu
vinnuviku var vísað til ríkisstjórnarinnar til ít-
arlegra samráðs við aðila vinnumarkaðarins. Ég hlakka til
þess að ganga á eftir ráðherra með spurningum um það
hvernig það verk þokast áfram.
Af þessum þingmálum Pírata fengu 3 mál afgreiðslu, 12
mál föst í nefnd og 32 bíða eftir að komast til umræðu.
Mörg þeirra mála hafa áður verið lögð fram og jafnvel ver-
ið nálægt því að komast út úr nefnd á fyrri þingum en
kvótasetning meirihluta á fjölda þingmannamála stendur
þar í vegi fyrir góðum málum, einfaldlega af því að Píratar
voru með það mörg góð mál á meðan þingmannamál ann-
arra flokka voru ekki nægilega tilbúin til þess að vera af-
greidd úr nefnd, þá komust þau ekki til afgreiðslu. Af því
að það verður að „skipta jafnt“. Það er ekkert
endilega mat meirihlutans á því að mál sé ekki
tilbúið, það getur verið sá aðili sem lagði fram
málið sem er ekki tilbúinn til þess að leyfa því
að fá afgreiðslu. Það er ekkert endilega óeðli-
legt, þar sem við vinnslu málsins koma fram
góðar athugasemdir sem þarf að bregðast við,
en það sem kom mér á óvart var hversu fáum
málum aðrir flokkar eru tilbúnir til þess að
hleypa í afgreiðslu til þess að betrumbæta ís-
lenskt samfélag. Sitt sýnist hverjum auðvitað
um hvað sé gott mál og hvað ekki, en það er
a.m.k. hægt að hleypa málum úr nefnd þegar
málin klárast þar. Það er nefnilega allt of al-
gengt að meirihluti nefndarinnar segi nei, en
sé svo ekkert tilbúinn til þess að segja hvað
vanti upp á til þess að klára umfjöllun nefnd-
arinnar um málið.
Næstu níu vikur fara því í að endurvinna þau mál sem
þarfnast uppfærslu, klára að útfæra hugmyndir að nýjum
málum sem hafa setið á hakanum í þinglokum, fara með
strákinn á fótboltamót, hlýða skipun um þriggja vikna hlé
og vesenast í garðinum einhversstaðar þar inn á milli. Já,
og skrifa þessa og nokkrar fleiri greinar í sumar. Ég býst
við að skrifa eitthvað um þær athugasemdir sem forseti
þingsins hafði um þingstörfin þegar þingi var frestað, þar
sem hann velti fyrir sér m.a. málfrelsi þingmanna.
Gleðilegt sumar. bjornlevi@althingi.is
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
Hvað gera þingmenn þá?
Höfundur er þingmaður Pírata.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Andsvör settu mikinn svip áhinn reglulega þingveturá Alþingi, en honum laukí fyrrakvöld. Helgast það
af málþófi þingmanna Miðflokksins
um þriðja orkupakkann. Þeir fluttu
ræður hver á eftir öðrum, daga og
nætur, og fóru síðan í andsvör við
félaga sína svo ekkert hlé yrði á
málþófinu.
Á lista yfir þá þingmenn sem
oftast og mest hafa talað á 149. lög-
gjafarþinginu hafa Miðflokksmenn
raðað sér í fjögur efstu sætin. Þrír
af þessum þingmönnum töluðu
lengur í athugasemdum (and-
svörum) en ræðum, sem er fáheyrt.
Við blasir að Birgir Þórarins-
son, Miðflokki, þingmaður Suður-
kjördæmis, verður ræðukóngur 149.
löggjafarþingsins. Fram til þessa
hefur Birgir flutt 166 ræður og gert
683 athugasemdir, eða alls 849.
Ræður hans hafa staðið yfir í 1.160
mínútur og athugasemdirnar í 1.251
mínútu. Samtals eru þetta 2.411
mínútur, sem gera rúmar 40
klukkustundir, eða vel á annan sól-
arhring. Næstur kemur Þorsteinn
Sæmundsson, Miðflokki, með 828
ræður og athugasemdir og hefur
hann talað í samtals 2.192 mínútur.
Þriðji er Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Miðflokksins,
sem talað hefur í 1.547 mínútur.
Fjórði er Ólafur Ísleifsson, Mið-
flokki, sem talað hefur í 1.433 mín-
útur. Þorsteinn Víglundsson, þing-
mður Viðreisnar, er í 5. sæti, en
hann hefur talað í 1.242 mínútur.
Fyrirkomulag andsvara
verði endurskoðað
Í ræðu sinni við frestun þings-
ins gerði Steigrímur J. Sigfússon
þingforseti andsvörin að umtalsefni
og sagði: „Við öllum blasir ein-
kennileg framkvæmd andsvara sem
verður að taka til endurskoðunar og
færa í það horf sem til var stofnað í
upphafi við afnám deildanna 1991.“
Alls hafa 120 lög verið sam-
þykkt á þinginu í vetur og 47 álykt-
anir. Búið er að svara 49 munn-
legum fyrirspurnum og 339
skriflegum. Sérstakar umræður
hafa verið 35. Þingforseti vakti at-
hygli á því að borist hafa allmörg
skrifleg svör frá ráðherrum sem
ekki hefur tekist að útbýta vegna
annríkis við vinnslu skjala síðustu
daga. Það verði gert fljótlega um
leið og um hægist, með rafrænni út-
býtingu.
Þinghaldið nú á 149. löggjafar-
þingi hefur þegar staðið í 865
klukkustundir eða þar um bil og
eru enn nokkrir dagar eftir, sagði
Steingrímur J. Sigfússon.
„Þinghaldið hér á landi er
langtum lengra en gengur og gerist
hjá nágrönnum okkar á hinum
Norðurlöndunum og víðast hvar í
lýðræðisríkjum Evrópu. Raunar
sker Alþingi sig algerlega úr hvað
þetta snertir sem þjóðþing, m.a. sé
litið til smæðar þess. Þess vegna er
réttmætt að varpa fram þeirri
spurningu hvort hlutirnir þurfi
áfram að vera svona,“ sagði Stein-
grímur.
Alþingi, 149. löggjafarþingi,
var frestað í fyrrakvöld. Sam-
komulag var um að þingið kæmi
saman á ný miðvikudaginn 28.
ágúst til að ræða og afgreiða þing-
mál sem tengjast hinum svonefnda
þriðja orkupakka. Til stendur að
greiða atkvæði um málið 2. sept-
ember.
Á þingfundinum í fyrrakvöld
færði þingforseti Helga Bernód-
ussyni, skrifstofustjóra Alþing-
is, sérstakar þakkir, en Helgi
mun í sumar láta af störfum
fyrir aldurs sakir. Helgi hef-
ur starfað fast í þinghúsinu
síðan 1983 en var áður í hluta-
starfi í fimm ár. Var Helga
færður blómvöndur af þessu
tilefni og þingmenn fögnuðu
honum með lófaklappi.
Töluðu lengur í and-
svörum en ræðum
„Það er rétt að taka fram að sá
sem hér stendur er sér að fullu
meðvitaður um að hann er ekki
saklaus af strákapörum hér á Al-
þingi, enda hef ég lengi verið í
stjórnarandstöðu, stundum þar
fáliðaður, og hef þurft að láta
mikið fyrir mér fara til að nokkur
maður taki eftir mér.“
Þetta sagði Steingrímur þing-
forseti í fyrrakvöld og uppskar
hlátur í þingsal.
„En það er kannski heldur
enginn almennilega með hreint
sakavottorð í þessum efnum hér
í þessum sal. Ætli það sé ekki
þannig þegar upp er staðið að
meira og minna við öll og þeir
flokkar sem nú eiga fulltrúa á Al-
þingi eiga sér allir sögu í þess-
um efnum þannig að málið er
sameiginlegt viðfangsefni og
verkefni okkar allra.
Við getum ekki látið slíkt
stöðva eðlilega og æski-
lega þróun þingstarfa alla
21. öldina. Við þurfum öll
að standa saman um
virðingu og sóma Alþing-
is en hvort tveggja
getur aðeins ver-
ið áunnið.“
Viðurkennir
strákapör
RÆÐA ÞINGFORSETA
Steingrímur J.
Sigfússon
Morgunblaðið/Hari
Málþóf Miðflokksmenn ræða 3. orkupakkann. Aðrir þingmenn fjarverandi.