Morgunblaðið - 22.06.2019, Qupperneq 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019
W W W. S I G N . I S
Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður │ S: 555 0800 │sign@sign.is
„ÉG HÉLT AÐ ÞIÐ LOKUÐUÐ KLUKKAN SEX!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að geyma mynd af
henni í veskinu og ást
hennar í hjartanu.
ÉG HEF ALDREI ÁÐUR
SETIÐ FYRIRLESTUR UM
DÝRALÆKN INGAR
VILTU
POPP?
UM … NEI
TAKK, ELSKAN
SYNG FYRIR
MAT!
PABBI HENNAR HUNANGS VILL EKKI GEFA ÞÉR LEYFI
TIL AÐ KVÆNAST HENNI NEMA AÐ ÞÚ GETIR SÝNT
FRAM Á AÐ GETA FRAMFLEYTT HENNI! HANN VILL SJÁ
VIÐSKIPTAÁÆTLUN
ÞÍNA Á PRENTI!
EKKI SENDA BOÐSKORTIN!
„ÉG MUNDI EFTIR AFMÆLINU ÞÍNU.
ÉG SMYGLAÐI MEIRA AÐ SEGJA INN
HELÍUMI. ”
verja í gönguferð í Hvalfirði. Svo er
aldrei að vita nema ég haldi af-
mælisveislu í haust.“
Fjölskylda
Sonur Eyrúnar er Bjartur Ein-
arsson, f. 1.10. 2008.
Systkini Eyrúnar eru Brynja
Björk Magnúsdóttir, f. 31.5. 1976,
lektor í sálfræði, búsett í Reykja-
vík, og Ásdís Magnúsdóttir, f. 3.4.
1989, sjúkraþjálfari, búsett í
Kópavogi.
Foreldrar Eyrúnar eru hjónin
Ásta Ásdís Sæmundsdóttir, f. 7.5.
1951, kennari og starfaði lengst af í
Seljaskóla, meðal annars sem deild-
arstjóri sérkennslu, og Magnús
Björnsson, f. 20.3. 1951, rafmagns-
iðnfræðingur og starfaði lengst af á
heilbrigðistæknideild Landspítala.
Þau eru búsett í Reykjavík.
Eyrún
Magnúsdóttir
Ragnheiður Ingibjörg Jónsdóttir
húsmóðir á Hvalgröfum
Brynjúlfur Haraldsson
kennari og bóndi á Hvalgröfum
á Skarðsströnd
Magdalena Septemborg Brynjúlfsdóttir
húsmóðir á Reykhólum og í Rvík og vann ýmis störf
Ásta Ásdís Sæmundsdóttir
kennari í Reykjavík
Sæmundur Björnsson
búfræðingur við Tilraunastöð
landbúnaðarins á Reykhólum,
starfaði síðar hjá Almenna
bókafélaginu í Rvík og stundaði
ættfræðirannsóknir
Ástríður Sigríður Brandsdóttir
húsmóðir í Hólum
Björn Björnsson
járnsmiður og bóndi í Hólum
í Reykhólasveit
Valgerður Guðbjörg
Björnsdóttir
grunnskóla kennari
í Reykjavík
Guðrún Lára
Skarphéðinsdóttir
grunnskólakennari
og námsráðgjafi í
Reykjavík
Brynjúlfur Sæmundsson
framhaldsskólakennari í Kópavogi
Berglind
Björnsdóttir
grunnskólakennari
og íþróttakennari á
Blönduósi
Björn Sæmundsson
bifreiðarstjóri í
Reykjavík
Valgerður Jónsdóttir
húsmóðir á Bergstaðastræti
Haraldur Skúlason Norðdahl
tollvörður, bjó á
Bergstaðastræti í Rvík
Guðrún Haraldsdóttir Norðdahl
íþróttakennari og húsmóðir á
Eiðum og í Reykjavík
Björn Magnússon
kennari og íþróttakennari við Alþýðuskólann á
Eiðum og skólastjóri barnaskólans, síðar fulltrúi
í menntamálaráðuneyti
Svanfríður Björnsdóttir
húsmóðir á
Hauksstöðum á Jökuldal
Magnús Björnsson
vinnumaður á Fljótsdalshéraði, lengst af á Rangá í Hróarstungu
Úr frændgarði Eyrúnar Magnúsdóttur
Magnús Björnsson
rafmagnsiðnfræðingur í Rvík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Knöttur þessi kann að vera.
Klakkur oft sá þunga ber.
Líkamspartur loks er vera.
Lítill fiskur þetta er.
Baldur Hafstað sendi þetta svar
og tók fram að lausnin væri í eign-
arfalli í fyrri hluta lokaorðsins:
Gátan snjalla mætti mér;
nú mun ég alla daga
muna, uns lalla úr heimi hér,
að hnöttur er ballarlaga.
Guðrún Bjarnadóttir svarar:
Böllur eitt sinn hnöttur hét.
Því heiti klakks má flíka.
Böll á Adam æðstur lét.
Er hann fiskur líka?
Svar mitt:
Böllur knöttur kann að vera.
Klakkur merkir böllur hér.
Verir á sér böllinn bera.
Böllur lítill fiskur er.
Þá er limra:
Séra Fúsi á Felli
á freistinga hálu svelli
oft syndugur féll
og sínum þann skell
kenndi brotlegum belli.
Og nú kemur ný gáta eftir Guð-
mund:
Morgunsólin, mild og hlý,
mjúku ljósi stafar
um gluggann minn og gáta ný
gerð er nú án tafar:
x
Þarna forðum Þórir bjó.
Þegnar fyrrum nefndu skóg.
Orðið haft um handvömm er.
Hæð sem lítinn gróður ber.
Sigrún Grímsdóttir sendi lausn á
gátunni í síðustu viku. Því miður
misritaðist vísan og er beðist vel-
virðingar á því. Rétt er hún svona:
Á færið mitt ég fiska lítið
fer að þessu á minn hátt,
hugsun skýr er helst í bítið
held að gátan merki DRÁTT.
Þessi staka Péturs Stefánssonar
er skemmtileg og sönn:
Gleðin um mig hríslast hrein,
hress er ég og dreyminn,
líkt og fugl á grænni grein
sem galar út í heiminn.
Ármann Þorgrímsson gerir sér
það að yrkisefni að tveir hvalir hafa
verið fluttir frá Kína til Íslands!!!
Oft við höfum afrekað
ýmislegt á flónsku sviði
en alltaf tekst að toppa það
teljumst enn í sigurliði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margt ber við á Ballará