Morgunblaðið - 22.06.2019, Page 40

Morgunblaðið - 22.06.2019, Page 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019 SAMSTARFSAÐILI HVAR SEM ÞÚ ERT Hringdu í 580 7000 eða farðu á sumarhusavorn.is KÖRFUBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Körfuknattleikskappinn Tryggvi Snær Hlinason leitar sér nú að nýju félagi en samningi hans við spænska stórliðið Valencia var rift í vikunni. Íslendingurinn stóri og stæðilegi hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn en hann byrjaði að æfa körfubolta árið 2013. Árið 2017 skrifaði hann undir fjögurra ára samning við þáverandi Spánar- meistara í Valencia en Tryggvi er einungis 21 árs gamall og gaf meðal annars kost á sér í nýliðavali NBA- deildarinnar síðasta sumar. „Þessi viðskilnaður við Valencia kom mér aðeins á óvart en að sama skapi þá skildi ég við félagið í sátt og samlyndi. Um mitt síðasta tíma- bil voru þeir jákvæðir upp á fram- haldið að gera en svo kom eitthvað upp á, þeirra megin, sem verður til þess að ég er laus allra mála hjá fé- laginu og það er bara þannig,“ sagði Tryggvi í samtali við Morg- unblaðið í gær. Tryggvi er lítið að stressa sig á hlutunum og reiknar með því að finna sér nýtt lið á næstu vikum. Líður vel á Spáni „Ég hef rætt við einhver lið en það er ekkert fast í hendi og þessar viðræður hafa ekki farið langt, þetta eru meira bara þreifingar á milli manna. Ég reikna sjálfur með því að vera búinn að finna mér nýtt lið eftir mesta lagi mánuð. Umboðs- maðurinn minn er að vinna í þess- um málum fyrir mig, við ræðum saman daglega, og ég er opinn fyrir nánast öllu eins og staðan er í dag. Liðin eru að klára sín mál með nú- verandi leikmannahópum sínum og næstu vikur fara í það að finna sér nýja leikmenn, þannig að ég bíð bara rólegur og er ekki að stressa mig á hlutnum.“ Miðherjinn öflugi eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Obradoiro í efstu deild Spánar þar sem hann skoraði 3,5 stig að meðatali og tók 2,5 frá- köst í 33 leikjum fyrir félagið. „Markmiðið er að spila áfram á erlendri grund og ég reikna fast- lega með því að ég sé ekki á heim- leið. Við þurfum hins vegar að bíða og sjá hvernig málin hjá mér þróast en ég er ekki að drífa mig að taka neina ákvörðun. Ég hef í raun ekki gefið neitt færi á mér gagnvart ís- lenskum liðum. Það eru einhverjir sem vilja vita hvað planið hjá mér sé en fólk gerir sér grein fyrir því að markmið mitt er að spila áfram úti. Mér líður mjög vel á Spáni og ég er sjálfur mjög spenntur fyrir því að halda áfram að spila í efstu deild Spánar. Æfingalega séð er ég sáttur með mína frammstöðu á leik- tíðinni en það komu augnablik í ákveðnum leikjum vetrarins þar sem maður hefði viljað geta gert aðeins betur. Heilt yfir er ég hins vegar sáttur með tímabilið.“ Tryggvi Snær á að baki 33 lands- leiki en hann spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2016. Mikil stígandi hefur verið í leik hans með landslið- inu síðan hann fór út í atvinnu- mennsku árið 2017. Allt á uppleið „Ég finn það sjálfur að ég er að bæta mig jafnt og þétt og þetta er á ákveðinni uppleið hjá mér. Það er alltaf gaman að hitta landsliðið og það er góður staður fyrir mann að koma á til þess að sjá muninn á sjálfum sér á milli verkefna. Að sama skapi er maður aldrei full- komlega sáttur og markmiðið er að sjálfsögðu að halda áfram að bæta sig sem körfuboltamaður og verða betri með hverjum deginum sem líður.“ Landsliðsmaðurinn segir að at- vinnumennskan hafi ekki komið sér neitt sérstaklega á óvart enda van- ur erfiðisvinnu í Svartárkoti í Þing- eyjarsveit þar sem hann er uppal- inn. „Þetta er ekki erfiðara en ég átti von á en þetta er klárlega öðruvísi umhverfi en maður er vanur. Að hafa ákveðna reynslu utan körfu- boltans er mjög mikilvægt og það hefur hjálpað mér mikið á mínum ferli. Maður er mættur í sveitina núna að taka aðeins á því og það er alltaf gaman að koma norður. Þetta er aðeins öðruvísi vinna en inni á körfuboltavellinum en lífið sem at- vinnumaður í körfubolta er hins vegar ljúft og maður getur ekki kvartað mikið. Þegar allt kemur til alls þá eru vinnubrögðin hins vegar svipuð í körfunni og í sveitinni því þetta snýst jú bara um að leggja hart að sér, sama hvað maður er að gera,“ sagði Tryggvi Snær Hlina- son í samtali við Morgunblaðið. Svipuð vinnubrögð í körfunni og í sveitinni  Tryggvi leitar sér að nýju félagi  Ekki á heimleið eftir þrjú ár í atvinnumennsku Morgunblaðið/Hari Yfirvegaður Tryggvi Snær Hlinason er án félags og tekur lífinu með ró. Kári Árnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, er genginn í raðir upp- eldisfélags síns Víkings í Reykjavík, 15 árum eftir að hann yfirgaf heima- hagana og hélt utan í atvinnu- mennsku. Eftir að hafa leikið með níu félagsliðum í sex löndum verður hinn 36 ára gamli Kári löglegur með Víkingum frá og með 1. júlí og samdi við félagið út tímabilið 2020. Kári lék með Djurgården og Malmö í Svíþjóð, Aarhus og Esbjerg í Danmörku, Plymouth og Rother- ham á Englandi, Aberdeen í Skot- landi, Omonia á Kýpur og Gencler- birligi í Tyrklandi. „Ef rétta tilboðið hefði komið á borðið hefði ég skoðað það. Mér bauðst að spila í Tyrklandi en ég hafði ekki áhuga á því. Mér finnst ég enn eiga góð ár eftir, en í fyrra fannst mér ég geta spilað í sterkari deild í lengri tíma,“ sagði Kári við Morgunblaðið, en á sama tíma í fyrra virtist hann ætla að koma heim en ákvað að taka eitt ár í Tyrklandi. Ekki er þó víst að hringnum sé al- veg lokað, því Kári hefur enn mikinn metnað fyrir íslenska landsliðinu og ætlar sér með í lokakeppni Evrópu- mótsins næsta sumar, komist liðið þangað. Það sé því inni í myndinni að fara út á lán í haust til þess að vera í leikformi. Hvað framtíðin ber í skauti sér þegar samningurinn rennur út kemur svo í ljós. „Við ætlum okkur á EM og þá myndi ég klára tímabilið hérna eftir það. Svo er hægt að taka stöðuna,“ sagði Kári, sem á að baki 77 lands- leiki og viðurkenndi að það væri meiri pressa á sér að spila vel með landsliðinu nú þegar hann er fluttur heim. johanningi@mbl.is Hafnaði Tyrklandi fyrir heimaslóðir  Kári snýr aftur heim 15 árum síðar Morgunblaðið/Eggert Heima Kári Árnason í treyju Vík- ings R. eftir undirskriftina í gær. Inkasso-deild kvenna Augnablik – Tindastóll .......................... 0:1 Murielle Tiernan 31. FH – ÍR..................................................... 6:0 Helena Ósk Hálfdánardóttir 23., 41., Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir 51., Birta Georgsdóttir 59., Aldís Kara Lúðvíksdótt- ir 62., Anna Bára Másdóttir (sjálfsmark) 66. Afturelding – Þróttur R. ....................... 1:0 Margrét Regína Grétarsdóttir 29. Rautt spjald: Gabríela Jónsdóttir (Þrótti) 38. Fjölnir – Grindavík ................................ 0:0 Staðan: Þróttur R. 5 4 0 1 19:4 12 ÍA 5 3 2 0 8:2 11 FH 5 3 1 1 16:7 10 Tindastóll 5 3 0 2 14:12 9 Grindavík 5 2 2 1 5:5 8 Afturelding 5 2 1 2 7:7 7 Haukar 5 2 0 3 5:4 6 Augnablik 5 2 0 3 5:6 6 Fjölnir 5 0 2 3 3:11 2 ÍR 5 0 0 5 2:26 0 2. deild kvenna Álftanes – Grótta..................................... 0:2 Staðan: Völsungur 4 4 0 0 9:4 12 Grótta 5 3 1 1 11:3 10 Fjarð/Hött/Leikn. 4 2 0 2 12:4 6 Álftanes 4 2 0 2 11:5 6 Hamrarnir 3 1 0 2 3:6 3 Sindri 3 1 0 2 2:9 3 Leiknir R. 5 0 1 4 1:18 1 3. deild karla Reynir S. – Álftanes................................ 0:0 KH – Einherji.......................................... 0:2 Staða efstu liða: KV 7 6 0 1 17:8 18 Kórdrengir 7 5 2 0 17:6 17 KF 7 5 1 1 16:6 16 Vængir Júpiters 8 5 0 3 13:9 15 Reynir S. 8 3 3 2 12:10 12 Sindri 7 3 1 3 15:13 10 Einherji 8 3 1 4 10:10 10 Álftanes 8 2 3 3 12:13 9 Ameríkubikarinn C-riðill: Úrúgvæ – Japan...................................... 2:2 Luis Suárez 32. (víti), José Giménez 66. – Koji Miyoshi 25., 59. Staðan: Úrúgvæ 4, Síle 3, Japan 1, Ekva- dor 0.  Gunnar Andrésson, sem hætti sem aðalþjálfari karlaliðs Gróttu í hand- knattleik fyrir tveimur árum, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins. Grótta féll úr efstu deild í vor og í kjölfarið var Arnar Daði Arnarsson ráðinn nýr þjálfari. Hann fær nú Gunnar sér við hlið. Fyrrum aðal- þjálfari aðstoðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.