Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019
SMÁRALIND – KRINGLAN
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Myndlistarsýningin Hlutbundin
þrá eða Object of Desire eins og
hún heitir á ensku, var opnuð í
Institute of Contemporary Art í
Singapúr í gær, 21. júní, og mun
standa yfir til 24. júlí. Sýningin
mun svo ferðast til Íslands á
næsta ári og verður opnuð í lok
mars í Gerðarsafni í Kópavogi.
Íslenska myndlistarkonan Dag-
rún Aðalsteinsdóttir leiddi saman
átta listamenn frá Íslandi og
Singapúr fyrir sýninguna en auk
Dagrúnar taka þátt í henni Weixin
Quek Chong, Guðlaug Mía Ey-
þórsdóttir, Styrmir Örn Guð-
mundsson, Sæmundur Þór Helga-
son, Daniel Hui, Luca Lum og
Guo-Liang Tan.
Dagrún bjó í Singapúr þegar
hún stundaði meistaranám í
myndlist þar í landi og segir sig
lengi hafa langað að stofna til
samstarfs milli listamanna frá
Singapúr og Íslandi.
Lyfta hvert öðru upp
„Það sem listamennirnir eiga
sameiginlegt er að leggja áherslu
á samstarf við aðra listamenn
bæði til að starfrækja rými og við
að skipuleggja sýningar og við-
burði,“ segir Dagrún. „Sú tilhneig-
ing að búa til vettvang til þess að
lyfta hvert öðru upp er það sem
dró mig að þessum listamönnum.
Allur undirbúningur hefur ein-
kennst af þessu viðmóti sem er
svo gefandi fyrir alla.“
Titill sýningarinnar, Hlutbundin
þrá, vísar til ritgerðar eftir þýsku
listakonuna Hito Steyerl sem ber
nafnið A thing like you and me. „Í
þeirri ritgerð skoðar Steyerl þátt-
töku mannsins í að skapa myndir
og að veita þeim umboð,“ segir í
fréttatilkynningu um sýninguna.
Nýjar og spennandi brautir
„Ritgerð Hito Steyerl varð
kveikjan að frekari rannsóknar-
vinnu um virkni mynda og hluta,“
segir Dagrún. „Það leiddi mig
áfram á nýjar og spennandi braut-
ir, að lesa mér til um efnishyggju
og þá sérstaklega nýleg skrif sem
eru að reyna að ögra þeim gefnu
hugmyndum um að maðurinn sé í
þeirri stöðu að geta skilgreint og
stjórnað sínu hlutbundna um-
hverfi.“
Öll verkin frekar ólík
Undir þessum innblæstri bauð
Dagrún listamönnunum sem taka
þátt í sýningunni „að skapa verk
sem skoða verðmæti og stigveldi
þess sem felst í því að vera hlutur
eða mynd.
Sýningin er tilraun til þess að
skapa gagnkvæma virkni milli
hluta og einstaklinga, þar sem
listaverkin eru blanda af „hlut og
viðfangi“,“ segir í tilkynningu.
Á sýningunni má finna klippi-
myndir, skúlptúra, vídeóverk og
innsetningar.
„Öll verkin eru frekar ólík en
eru með mismunandi hætti að fást
við hugmyndir um hlut og viðfang,
og einnig okkar eigin hlutgerv-
ingu. Verkin skoða hvernig við bú-
um til hugmyndir um ákveðna
hluti og gefum þeim merkingu,
einnig hver eða hvað hefur eig-
inleika til þess að vera viðfang
sem skapar sína eigin virkni,“ seg-
ir Dagrún og bætir við: „Sýningin
er tilraun til þess að búa til vett-
vang til þess að skoða hvenær
hlutir geta orðið að viðfangi og
öfugt.“
Hópurinn Frá vinstri: Melanie Pocock sýningarstjóri hjá ICA, Daniel Hui, Luca Lum, Styrmir Örn Guðmundsson, Dagrún Aðalsteinsdóttir sýningarstjóri,
Sæmundur Þór Helgason og Guðlaug Mía Eyþórsdóttir. Á myndina vantar listamennina Weixin Quek Chong og Guo-Liang Tan frá Singapúr.
Gjörningur Úr verki Styrmis Arnar Guðmundssonar, Líffæraflutningur.
Hugmyndir um hlut og viðfangsefni
Myndlistarsýningin Hlutbundin þrá opnuð í Institute of Contemporary Art í Singapúr Í Gerðar-
safni næsta vor Dagrún Aðalsteinsdóttir leiddi saman átta listamenn frá Íslandi og Singapúr
Listmálarinn Rut Rebekka opnar
málverkasýninguna Grjót og gróður
í Grafíksalnum í Hafnarhúsinu í dag
kl. 14. Í málverkunum beinir hún
sjónum að hinu blíða og í senn
hrjóstruga landslagi Íslands, mest í
fjallshlíðum, brekkum og giljum, í
mismunandi birtu og litasamspili,
eins og því er lýst í tilkynningu.
Þetta er 22. einkasýning Rutar
sem hefur stundað myndlist í 45 ár
og þá að mestu leyti í Reykjavík.
Verk eftir hana má finna í opinber-
um safneignum bæði hér á landi og
erlendis og hefur hún á ferli sínum
m.a. sýnt á á Kjarvalsstöðum, í
Hafnarborg, í Norræna húsinu,
Gallerie Gammel Strand í Kaup-
mannahöfn, Hamar Kunstforening í
Noregi og Piteaa Kunstforening í
Svíþjóð og tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum bæði á Íslandi og er-
lendis. Hún stundaði listnám í Mynd-
listaskóla Reykjavíkur og Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands auk
þess að sækja námskeið í Skidmore
College. Þá hefur hún einnig unnið í
vinnustofum í Danmörku, Sveaborg í
Finnlandi og Kjarvalsstofu í París og
verið gestakennari í myndlist við
Skidmore College í New York.
Sýningin verður opin frá kl. 14 til
17.30 fimmtudaga til sunnudaga og
seinasti sýningardagur er 7. júlí.
Blítt og hrjóstrugt
landslag Íslands
Í Grafíksalnum Rut Rebekka opnar málverkasýningu í Grafíksalnum.