Tíðbrá - 01.11.1928, Side 21
TÍÐBRÁ
19
Þjónustureglan.
I->ið munuð öll kannast við þjónusturegluna, þó held-
ur hafi verið hljótt um hana síðustu árin. Frú Besant
stofnaði þessa reglu fyrir nokkrum árum, en síðan hefir
fyrirkomulagi hennar verið breytt mörgum sinnum, og
nú síðast á alþjóðafundi, sem haldinn var sumarið
1927 i Ominen á Hollandi. Og reglan á áreiðanlega eftir
að breytast mörgum sinnum enn, enda hlýtur allur fé-
lagsskapur að breytast eftir því, sem tímarnir og þarfir
mannanna breytast.
A teikningu þeirri, er hér birtist má sjá, hvernig
starfinu er fyrir komið. Frú Besant er forseti reglunnar,
sér til aðstoðar hefir hún valið tvo meðstjórnendur.
Gegnum þenna þríhyrning á hinn andlegi kraftur að
streyma ti 1 reglunnar. Sá, sem stjórnar öllu verkinu, er
nefndur Alþjóðaritari. í þann sess hefir verið valinn
ameríkanskur maður, Max Wardall að nafni, framúr-
skarandi áhugasamur og duglegur maður. Þá velur
hann höfuðsmenn, einn fyrir hvert land. Venjulega
starfa fleiri deildir undir hverjum höfuðsmanni, l. d.
í stóru löndunum, ein í hverri borg, þess vegna þarf
hann aftur að velja sér deildarstjóra í hverri borg. -
Starfið getur verið nokkuð mismunandi, eftir þörfum
landanna, en það er talið æskilegt að haga því á sem
líkastan hátt alstaðar. Það hafa verið nefndir sjö flokk-
ar, sem allir áttu að geta sameinast um að vinna i.
Þeir eru : 1. almenningsheill, 2. dýraverndun, 3. heims-
friður o. s. frv., sjá teikn.
Höfuðsmaður og deildarstjórar útnefna síðan flokks-
foringja, sem kallaðir eru Bræður, og i höndum þeirra
hvílir eiginlega alt starfið út á við. — Við höfum hugs-
að okkur að byrja með þessa flokka, eins og þeir eru
á teikningunni, í þeirri von, að reynzlan muni fljótt sýna
okkur, hvar mest þörf er fyrir okkur að vinna og snúa
okkur þá að því sjerstaklega.
Guðspekifélagið er nu orðið 50 ára, og allan þann