Tíðbrá - 01.11.1928, Side 32
30
TÍÐBRÁ
Vér munum hafa eftirlit með félögunum, til þess að af-
stýra slíkum vandræðum, einkum sökum þess, að for-
seti yðar, og aðrir boðberar vorir, hljóta framvegis, því
oftar sem lengra líður, að gjörast farvegir fyrir sam-
band milli vor og heimsins, samband, sem vér vonum
að smámsaman fari í vöxt á komandi árum. Hinir
vitru menn gefa boðberum vorum gaum, en enginn
skyldi eitt augnablik sýna þeim fyrirlitningu, sem eigi
hlusta. Þeirra tími að heyra er enn ókominn; eiga þeir
síður heima i félagsskap vorum fyrir það? Og jafnvel
þó skylda þeirra væri að gefa gaum, en þeir vanræktu
hana, þá munið ætíð, að mildi, og ekkert annað, laðar
menn að sannleikanum, en aldrei verða menn unnir
með ofbeldi eða fyrirlitningu. Vér vonum að þurfa ekki
að draga úr sambandinu milli vov og yðar sökum þess,
að einhverjir, af vanhugsuðum ákafa og heimskulegri
illgirni, settu reglur um það, hvað þeir kölluðu „góða
félagsmenn“ í voru félagi. Látum engan rétttrúnað
(orthodoxy) komast inn í 1‘élagsskap vorn. Góða fé-
laga eða að minsta kosti félaga, sem vér virðum, teljum
vér alla þá, sem gjöra sér far um að lifa bróðurlegu
lífi, hverjar svo sem skoðanir þeirra eru um oss eða
annað, sem að viðkemur félaginu. Það eina, sem vér
óskum að sé sameiginlegt með öllum félagsmönnum er,
að þeir viðurkenni fyrsta atriðið í stefnuskrá vorri,
bræðralagið, sem er skilyrði þess, að þeir verði teknir
inn í fordyr musteris vors. En hafi þeir játað skilyrð-
inu, þá er það heiðarleg skylda þeirra að viðurkenna
fult skoðanafrelsi fyrir aðra, engu siður en að krefjast
þess, réttilega, fyrir sjálfa sig'; á því verður bræðralag
að byggjast. Vér bjóðum skoðanamismun velkominn, sé
sltoðunum haldið fram i bróðurlegum anda, með hæ-
versku, víðsýni og frjálslyndi, hversu fast sem þær eru
varðar. Félag' vort hefir rúm fyrir öll trúarbrögð og all-
ar skoðanir, hversu andstæðar, sem þær lcunna að virð-
ast, að því tilskyldu, að andstæðingarnir berjist i bróð-
erni, þó þeim finnist þeir neyddir til að leiða saman
hesta sína. Hafa félagsmenn vorir enn ekki látið sér