Skessuhorn - 11.02.2015, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
Skattframtöl / bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta og skattframtöl fyrir
einstaklinga og fyrirtæki.
Lilja Halldórsdóttir - Viðurkenndur bókari
LH bókhald ehf
LHbokhald@gmail.com Finndu okkur á facebook
Upplýsingar í síma 897 5144
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Sjö tugir útskrifaðir úr öllum
deildum Háskólans á Bifröst
Síðastliðinn laugardag voru 70 nem-
endur útskrifaðir úr öllum deild-
um Háskólans á Bifröst við hátíð-
lega athöfn í Hriflu, hátíðarsal skól-
ans. Vilhjálmur Egilsson rektor ósk-
aði útskriftarnemum til hamingju
með áfangann og hvatti nemendur
til að leggja rækt við Bifrastargild-
in og að þekkja muninn á metnaði
og græðgi. Einnig þakkaði hann öll-
um þeim sem lögðu sitt af mörkum
til samfélagsins í Norðurárdalnum,
nemendum og starfsfólki skólans,
hollvinum, fulltrúaráði og stjórn.
Útskriftarverðlaun hlutu Anna
Ólöf Kristjánsdóttir á viðskipta-
sviði, Sigtryggur Arnþórsson á lög-
fræðisviði og Kristján Snæbjörnsson
á félagsvísindasviði. Í meistaranámi
hlutu útskriftarverðlaun þeir Gestur
Snorrason á viðskiptasviði, Gunnar
Óskarsson á lögfræðisviði og Guðni
Tómasson á félagsvísindasviði. Að
auki fengu eftirfarandi fjórir nem-
endur felld niður skólagjöld á haus-
tönn í tilefni af framúrskarandi
námsárangri: Svanberg Halldórs-
son á viðskiptasviði, Björn Líndal
Traustason og Lilja Björg Ágústs-
dóttir á lögfræðisviði og Tjörvi
Schiöth á félagsvísindasviði. Þá voru
veitt verðlaun fyrir sumarönn 2014
og hlutu þrír nemendur felld niður
skólagjöld: Elva Pétursdóttir á við-
skiptasviði, Björn Líndal Traustason
á lögfræðisviði og Tjörvi Schiöth á
félagsvísindasviði.
Í ávörpum fulltrúa allra útskrift-
arhópa kom fram mikil ánægja með
að hafa valið Háskólann á Bifröst.
Verkefnaálag væri vissulega mik-
ið en það væri gott vegarnesti fyrir
framtíðina. Talað var um mikla sam-
kennd á meðal nemenda og að Há-
skólinn á Bifröst væri góður skóli til
að öðlast framúrskarandi menntun.
Traust
Vilhjálmur Egilsson rektor vék að
því í útskriftarræðu sinni hversu
mikilvægt traust er í daglegu lífi og
í öllu okkar starfi. Sama gildi um
traust í samfélaginu. Hann benti á
hversu ómögulegt samfélag verður
ef ósamkomulag og vantraust er um
alla hluti. Sérhvert samfélag þurfi á
stöðugleika að halda þar sem mála-
miðlanir hafa verið gerðar og sam-
komulag ríkir um flest mál þótt líka
sé nauðsynlegt að tekist sé á um af-
markaða þætti til að hreyfa samfé-
lagið áfram.
Skólinn í sókn og nýjar
námsbrautir kynntar
Vilhjálmur vék einnig að þeirri sókn
sem Háskólinn á Bifröst er í. Sókn-
in hófst með breyttu viðkiptalíkani
fyrir Háskólagáttina haustið 2013
og hefur verið haldið áfram síðan.
Síðastliðið haust voru 618 nemend-
ur við nám í skólanum og fjölgaði
um 20% í skólanum milli ára. Nú á
vorönn hófu 45 nýir nemendur nám
við skólann og stefnt er að því mark-
miði að yfir 700 nemendur verði í
námi við Háskólann á Bifröst næsta
haust. Sem dæmi um þá sókn sem
Háskólinn á Bifröst er í munu þrjár
nýjar námslínur líta dagsins ljós frá
og með hausti 2015 á félagsvísinda-
sviði; BA í stjórnmálahagfræði, BA
í boðskiptum og almannatengslum
og BA í byltingafræði.
Sameining háskóla verð-
ur að vera sókn fyrir alla
Að endingu vék Vilhjálmur í
ræðu sinni að sameiningaráform-
um menntamálaráðherra á rekstri
Landbúnaðarháskóla Íslands, Há-
skólans á Hólum og Háskólans á
Bifröst. „Nú hefur Háskólanum á
Bifröst verið sýnt það traust af hálfu
menntamálaráðherra að hann er að
setja í gang vinnu með okkur ásamt
Háskólanum á Hólum og Landbún-
aðarháskóla Íslands. Við lítum ekki
svo á að verið sé að kasta björgunar-
hring til Háskólans á Bifröst. Okkar
áætlanir til framtíðar ganga út á öfl-
ugan og vaxandi skóla og við sjáum
ekkert óyfirstíganlegt standa í vegin-
um fyrir okkur. Stofnanir Háskólans
á Bifröst hafa samþykkt að taka þátt
í þessari vinnu sem ráðherrann er að
setja af stað. Markmiðið er að finna
betri sóknarfæri fyrir alla skólana.
Háskólinn á Bifröst tekur þátt á
grunni styrkleika og við erum full
sjálfstrausts. Við reiknum líka með
því að sameinaður skóli munu nýta
vörumerki allra skólanna áfram eins
og best kemur út. Við munum ekki
taka þátt í neinu nauðungarhjóna-
bandi og viljum ekki fara saman með
einhverjum sem telur að hann sé að
taka niður fyrir sig. Við sjáum hins
vegar ýmsa sóknarmöguleika í stöð-
unni þegar til framtíðar er horft og
það er okkar skylda að láta reyna á
hvort samstaða næst um málið“.
mm
Vilhjálmur Egilsson útskrifaði sjötíu manns úr öllum deildum Háskólans á Bifröst.
Stærðir 38-52
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my style
Kíktu við í netverslun tiskuhus.is
54 54 300 SMIÐJUVEGUR 7 KÓPAVOGUR
Eina glerverksmiðjan á landinu með vottaða framleiðslu
GLER RENNIHURÐIR Á FRÁBÆRU VERÐI
Sparar pláss
Öruggt og traust
Einfalt í uppsetningu
Eigum tilbúnar til afgreiðslu
strax vegghengdar agila 50
rennihurðabrautir með hertu
8mm sýruþveignu gleri og
verði 99.500 kr
S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r
www.skessuhorn.is
Karlakórinn Söngbræður söng við útskriftina undir stjórn Viðars Guðmundssonar og við undirleik Heimis Klemenzsonar.