Skessuhorn - 04.03.2015, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 10. tbl. 18. árg. 4. mars 2015 - kr. 750 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/reglulegur_sparnadur
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Er þér annt
um hjartað?
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Hvíldarstólar
Tau- eða
leðurklæddir
Opið virka daga 13-18
20%
afsláttur
Síðastliðinn föstudag var vægast
sagt mokafli hjá bátum sem réru frá
Snæfellsbæ. Þessi góðu aflabrögð
eru talin vita á gott nú þegar hill-
ir undir vor með loðnugöngum upp
að Snæfellsnesi og þorskurinn býr
sig undir hrygningu. Þennan dag
komust menn loks á sjó frá höfn-
um í Snæfellsbæ eftir langan ótíð-
arkafla. Þeir urðu ekki fyrir von-
brigðum. Aflinn var afar góður hjá
þeim í öll veiðarfæri. Sem dæmi má
nefna dragnótarbátinn Egill SH
sem fékk risastórt hal af stórum
og vænum þorski; alls 42 tonn. Að
sögn fróðra manna mun þetta vera
mesti afli sem vitað er til að íslensk-
ur dragnótarbátur hafi fengið í einu
kasti.
Sjá nánar frétt á bls. 12.
Ljósm. af
Egill SH kemur að landi með 57 tonn
sem er langstærsti dragnótarróður í
sögu bátsins.
Egill setti
Íslandsmet
Lögreglan á Akranesi fékk góða gesti í liðinni viku þegar nokkur börn af leikskólanum Vallarseli kíktu við og fengu að skoða
stöðina. Fengu þau meðal annars að skoða fangaklefana og setjast upp í lögreglubíl. Þessum unga manni leiddist það ekki
eins og glöggt má sjá á ánægjusvipnum. Ljósm. jho.
Á fundi sveitastjórnar Hvalfjarðar-
sveitar í síðustu viku var samþykkt
byggingarleyfi fyrir Hvalstöðina
um byggingu 270 fermetra við-
byggingar við kjötvinnsluna í hval-
stöðinni í Hvalvirði. Um er að ræða
stálgrindarhús með yleiningum.
„Það verður ekki stundaður hval-
skurður á Akranesi í sumar. Vinnsl-
an færist inn í Hvalfjörð,“ segir
Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson,
stöðvarstjóri Hvals hf. í Hvalfirði, í
samtali við Skessuhorn. Með þessu
er ljóst að vinnslu hvalkjöts á Akra-
nesi er lokið hvað sem síðar verður.
Hún á sér áratuga langa sögu, nán-
ast jafn langa og hvalstöðvarinnar
sem hefur verið rekin með hléum
síðan árið 1948.
Hvalskurður á Akranesi hef-
ur skapað tugi starfa yfir sumar-
tímann. Líklega verður bætt við
stöðugildum í hvalstöðinni til að
mæta aukinni vinnslu þar, en óljóst
á þessari stundu hve mörg störf
það gætu orðið. Síðustu vertíð-
ar hefur hvalskurður verið stund-
aður í húsakynnum HB Granda
á Akranesi. Það er hluti hins svo-
kallaða Heimaskagahúss sem not-
að hefur verið til þessa. Þetta hús-
næði er á öðrum árstímum notað
fyrir fiskvinnslu svo sem frystingu
loðnuhrogna þar sem mjög strang-
ar reglur gilda. Það hefur löngum
verið ljóst að kjötvinnsla færi ekki
saman við fiskvinnslu í einu og
sama húsnæðinu þó hvort tveggja
væri stundað á ólíkum árstímum.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveit-
ar hefur einnig samþykkt tilmæli
í bókun umhverfis,- skipulags og
náttúruverndarnefndar til land-
eiganda að láta deiliskipuleggja
svæði hvalstöðvarinnar til atvinnu-
reksturs. Þónokkrar framkvæmd-
ir hafa staðið yfir við hvalstöðina í
vetur og fjöldi manna haft þar at-
vinnu við endurbætur og uppbygg-
ingu. Meðal annars hefur verið
byggt nýtt og fullkomið hús fyr-
ir búningaaðstöðu og aðstöðu fyr-
ir starfsmenn til að hægt væri að
fylgja nútíma kröfum og reglum
sem tengjast því að þarna er stund-
uð matvælavinnsla. Af þeim fram-
kvæmdum má sjá að hvalveiðar
verða áfram stundaðar sem fyrr þó
vinnslu verði nú hætt á Akranesi.
mþh
Hvalur stækkar kjötvinnslu í Hvalfirði og
hættir hvalskurði á Akranesi
Mynd af Hvalstöðinni tekin í síðasta mánuði. Nýja húsið fyrir kjötvinnsluna
mun rísa í sundinu fyrir miðri mynd næst núverandi kjötvinnslu. Framkvæmdir
eru þegar hafnar enda þarf húsið að standa tilbúið fyrir hvalvinnslu í júní næst-
komandi.
Kjötskurði verður nú hætt í Heima-
skagahúsinu þar sem þessi mynd var
tekin árið 2009.