Skessuhorn - 04.03.2015, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Loðnuvertíðin
gengur vel
AKRANES: „Það er full
vinnsla í fiskimjölsverksmiðj-
unni hjá okkur hér á Akranesi.
Það sem af er vertíð höfum við
tekið á móti 12 þúsund tonnum
af hráefni. Veiðarnar ganga vel.
Faxi RE tók fullfermi í tveimur
köstum sem hann er nú að landa
á Vopnafirði. Í nótt eða fyrra-
málið eigum við von á Ingunni
eða Lundey til löndunar hér á
Akranesi. Jafnvel gæti farið svo
að bæði skip kæmu hingað. Ing-
unn er í dag að fiska ásamt fleiri
skipum út af Ölfusárósum. Ann-
ars hafa flest skipin verið vestur
af Reykjanesi undanfarna sólar-
hringa,“ segir Almar Sigurjóns-
son rekstrarstjóri fiskimjöls-
verksmiðja HB Granda þegar
rætt var við hann í gær. Almar
segir að unnist hafi bæði hratt
og örugglega úr þeirri loðnu
sem hafi borist til Akraness. Öll
hjól snúast á fullu. „Hráefnið
er ferskt og afurðin sömuleið-
is. Það er hrognavinnsla á Akra-
nesi og bæði frysting og hrogn
á Vopnafirði. Síðan eru fiski-
mjölsverksmiðjurnar keyrðar
bæði hér á Akranesi og Vopna-
firði.“ -mþh
Gríðarleg fjölg-
un ferðamanna í
janúar
LANDIÐ: Gistinætur á hót-
elum landsins í janúar voru
161.400 sem er 35% aukning
miðað við janúar 2014. Gisti-
nætur erlendra gesta voru
87% af heildarfjölda gistinátta
í mánuðinum en þeim fjölgaði
um 41% frá sama tíma í fyrra.
Gistinóttum Íslendinga fjölg-
aði hins vegar um 3%. Flestar
gistinætur á hótelum í janúar
voru á höfuðborgarsvæðinu eða
127.500 sem er 31% aukning
miðað við janúar 2014. Næst-
flestar voru gistinætur á Suð-
urlandi eða um 15.900. Á sam-
anlögðu svæði Vesturlands og
Vestfjarðar voru 5.190 gisting-
ar í mánuðinum. Erlendir gest-
ir með flestar gistinætur í janúar
voru; Bretar 59.700, Bandaríkja-
menn með 25.500, og Þjóðverj-
ar með 7.700 gistinætur. -mm
Nú er mikilvægara en oftast áður að
stuðningsfólk karlaliðanna af Vest-
urlandi í Dominosdeildinni í körfu-
bolta, Skallagríms og Snæfells, styðji
vel við lið sín. Bæði lið eru að spila
á heimavelli annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld.
Sunnanáttir eru í kortunum næstu
daga. Á fimmtudag er spáð hvassri
suðvestanátt og éljum en að létti
til á austanverðu landinu. Frostlaust
með suðurströndinni og á Austfjörð-
um annars hiti í kringum frostmark.
Á föstudag er útlit fyrir suðaust-
an storm með slyddu eða rigningu,
einkum sunnan- og vestanlands
og kólnandi þegar líður að kvöldi.
Á laugardag og sunnudag er síðan
spáð suðvestan hvassviðri og jafn-
vel stormi með éljum en úrkomulítið
NA-lands. Frost víða 0 til 6 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hvernig sjónvarpsefni finnst
þér útsending frá Edduverðlaun-
um?“ Langflestum líkaði ekki það
efni, „afleitt“ sögðu 39,96% og „frek-
ar slappt“ 32,45%. „Þokkalega gott“
var svar 12,8%, „frábært“ 3,53% og
11.26% höfðu ekki skoðun á því eða
sáu ekki téða útsendingu.
Í þessari viku er spurt:
Í hvaða málaflokk er brýnast að
auka fjárveitingar ríkissjóðs?
Áhugaleikfélög og menningarfélög
af ýmsu tagi eru víða og að gera frá-
bæra hluti. Aðdáunarvert að á þess-
um tímum gefi fólk sér ómældan
tíma til æfinga og uppsetningar á
leikverkum, söng, bókahátíðum og
annarri skemmtan til að auka gæði
og flóru menningar á svæði okkar.
Nefna má metnaðarfulla sýningu
nemenda Grundaskóla á Akranesi,
Gleðileika í Borgarnesi, nýafstaðna
bókmenntahátíð í Hólminum, frum-
sýningar um næstu helgi í Lyng-
brekku og Landnámssetri, sýningar
MAR í Frystiklefanum í Rifi og m.m.
fleira. Fórnfúst fólk á menningarsviði
er Vestlendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Ríkiskaup hafa auglýst eftir upp-
lýsingum er tengjast áformum um
hringtengingu ljósleiðara á Snæ-
fellsnesi. Í fyrsta áfanga er kall-
að eftir upplýsingum með það
að markmiði að kanna sannanleg
áform markaðsaðila um eigin upp-
byggingu og rekstur á markaðs-
legum forsendum á næstu þrem-
ur árum. Ef engar sannanlegar og
ábyggilegar upplýsingar um slík
áform berast þá hyggst fjarskipta-
sjóður veita styrk til umrædds verk-
Ægir Þór Þórsson, leiðsögumað-
ur í Vatnshelli á Snæfellsnesi, er
auk vinnu sinnar félagi í björgun-
arsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ.
Ægir Þór kveðst hafa verið við
vinnu sína í Vatnshelli á laugar-
daginn og þar hafi verið töluverð
umferð ferðafólks. „Til mín kom
spænskt par sem var uppgefið og
rennandi blautt. Vatnshellir er ná-
lægt Djúpalónssandi sem er eitt
helsta aðdráttarafl ferðamanna á
Snæfellsnesi. Þetta unga par hafði
staðið í fjörunni þegar alda greip
þau og dró stúlkuna út að minnsta
kosti yfir eina öldu. Maður hennar
vinnur sem strandvörður á Spáni.
Fór hann á eftir henni og náði
með erfiðismunum að koma henni
í land enda öldugangurinn með
meira móti þessa dagana,“ segir
Ægir Þór. Hann segir að parið hafi
þurrkað sig í hellinum og skipt um
föt, auk þess að jafna sig nokkuð
eftir þennan mikla og erfiða sund-
sprett. Hélt síðan áfram för sinni.
„Maðurinn hafði á orði að hann
hefði aldrei séð aðstæður sem þess-
ar þar sem þessar risa-öldur virtust
birtast úr engu, eitthvað sem hann
þekkir ekki frá heimalandi sínu.
Taldi hann sig þarna vera á örugg-
um stað. Það er eflaust vegna þess
hve sjórinn dýpkar snögglega rétt
fyrir utan sem öldurnar rísa svona
snögglega,“ segir Ægir Þór.
Hann ákvað eftir að síðasti hóp-
urinn var farinn úr Vatnshelli á
laugardaginn að kíkja á aðstæður
á Djúpalónssandi og sjá þær með
eigin augum. „Þá sé ég annað par
sem stendur í fjörunni. Ekki leið
nema um mínúta frá því ég kom
á staðinn þar til sjórinn greip þau
einnig,“ segir hann. Ægir Þór tók
myndir á símann sinn en hann seg-
ir að litlu hafi mátt muna að þau
gætu ekki staðið upp áður en næsta
alda kom aðvífandi, enda erfitt að
fóta sig í mölinni sem skríður fram
og til baka með öldunum. „Það fór
þó vel hjá þeim þar sem þau kom-
ust mjög fljótlega upp úr flæðar-
málinu.“ Ægir Þór segir að merk-
ingar séu á svæðinu, en ljóst er að
þær eru ófullnægjandi.
mm
Áform um hringtengingu ljósleiðara á Snæfellsnesi
efnis. Snæfellsnes er tengt landsneti
fjarskipta með einfaldri ljósleiðara-
tengingu. Til að auka öryggi fjar-
skipta á Snæfellsnesi er fyrirhugað
að tvöfalda tenginguna með ljós-
leiðarastrengjum sem færu aðra
leið en núverandi strengir þann-
ig að til verði hringtenging. Bil-
un í streng við Haffjarðará í lok
síðasta árs, sem olli sambandsleysi
vítt og breitt um Snæfellsnes, kall-
aði á hörð viðbrögð, meðal annars
frá forsvarsmönnum sveitarfélaga á
svæðinu. Þeir sætta sig ekki við að
atvinnulíf geti lamast og fjölmiðlar
og ýmis þjónusta liggi niðri sökum
þess að kerfið sé ekki nógu traust.
Í umræddir auglýsingu Ríkis-
kaupa er auglýst eftir annars veg-
ar aðila eða aðilum sem sannanlega
ætla að koma á tvöföldun ljósleið-
aratenginga á Snæfellsnesi á næstu
þremur árum, eða hæfum aðila eða
aðilum til að taka að sér að byggja
og reka til framtíðar tvöföldunina
með opinberum stuðningi, komi
til þess að enginn ætli að gera
það án opinbers stuðnings. Aðil-
ar sem óska eftir opinberum stuðn-
ingi skulu uppfylla tilteknar kröf-
ur um fjarskiptaleyfi, fjárhagslegan
styrk, reynslu af uppbyggingu og
rekstri sambærilegra kerfa, raun-
hæfa verkáætlun og fleira. Tvöföld-
unin skal tengja saman símstöðvar
frá Hörðubóli í Dölum til Stykkis-
hólms. Leið ljósleiðarastrengs skal
vera um láglendi og nærri þjóðveg-
um á leiðinni. Í auglýsingunni seg-
ir einnig að nýta skuli hagkvæma
samlegð með öðrum fyrirhuguðum
jarðvinnu- og veituframkvæmd-
um á leið nýja ljósleiðarastrengs-
ins. Verkinu skal lokið eigi síðar
en árið 2016 og helst árið 2015 sé
þess kostur. Ljósleiðarakerfið skal
þannig byggt að einnig verði hægt
að nota það til að tengja með ljós-
leiðara heimili og fyrirtæki sem eru
á leið strengsins, þótt tenging við
slíka staði sé ekki hluti þessarar tvö-
földunar. þá
Ferðamenn hætt komnir í
ölduróti á Djúpalónssandi
Ægir Þór segir að aðvaranir á skiltum
við Djúpalónssand þurfi að vera
ákveðnari. Þar segir lítið sem ekkert
um þá hættu að öldurnar geta gripið
fólk með þessum hætti. Þar er helst
bent á að ekki skuli synda í sjónum og
þess háttar.
Par erlendra ferðamanna í flæðarmálinu á Djúpalónssandi.
Skömmu eftir að myndin var tekin þreif aldan þau með sér út
og mátti litlu muna að fólkið kæmist ekki í land að nýju. Fólkið berst við að komast upp á þurrt land að nýju.
Faxi RE bíður löndunar í
Akraneshöfn árla morguns í
síðustu viku.