Skessuhorn - 04.03.2015, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Skoða að
efla tengsl
ungmennaráðs
AKRANES: Bæjarráð Akraness
samþykkti á fundi sínum síðast-
liðinn fimmtudag að fela bæjar-
stjóra að útfæra nánar hvernig
efla megi tengsl ungmennaráðs
og stjórnsýslunnar á Akranesi,
sérstaklega í málum sem snerta
ungmennin beint. Tilefni sam-
þykktarinnar var að bæjar-
stjórnarfundur unga fólksins
18. nóvember síðastliðinn skor-
aði á bæjarráð að skoða í fullri
alvöru að veita ungu fólki að-
komu að nefndum bæjarins sem
áheyrnarfulltrúum með tillögu-
rétt. Í tilefni þessa mættu á fund
bæjarráðs Sindri Snær Alfreðs-
son, formaður ungmennaráðs
og Anna Mínerva Kristinsdóttir
varaformaður.
–þá
Umferð drógst
saman
LANDIÐ: Umferðin á völdum
mælipunktum á hringveginum
dróst saman um fimm prósent
í febrúar miðað við sama mán-
uð í fyrra. Á vef Vegagerðar-
innar segir að fara þurfi aftur til
ársins 2010 til að finna viðlíka
samdrátt. Umferðin í nýliðnum
febrúar reyndist einnig minni
en í febrúar 2013. Mestu munar
um mikinn samdrátt á umferð-
armestu svæðum landsins, en
mestur mældist samdrátturinn
um Suðurland eða 6%. Aukn-
ing varð aftur á móti um Norð-
ur- og Austurland. Miðað við
tvo fyrstu mánuði ársins hef-
ur umferðin dregist saman um
2,6%, miðað við sama árstíma á
síðasta ári. Mest hefur umferð-
in dregist saman um Suðurland
eða um 3,5%, en aftur á móti
hefur orðið mikil aukning um
Austurland eða um 7,7%. Það
svæði hefur lítið vægi í heildar-
umferðinni á landinu öllu, segir
á vef Vegagerðarinnar.
–þá
Björgvin í stað
Hjördísar
HVALFJ.SV: Hjördís Stefáns-
dóttir hefur óskað eftir lausn frá
störfum sem fulltrúi Hvalfjarð-
arsveitar í stjórn SSV. Á fundi
sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveit-
ar í síðustu viku var lagt fram
erindi hennar um það. Sveit-
arstjórn samþykkti að tilnefna
Björgvin Helgason sem fulltrúa
Hvalfjarðarsveitar í stjórn SSV
og Ásu Helgadóttur varamann.
–þá
Kaupstaðurinn
kaupir málverk af
Baska
AKRANES: Á fundi bæjarráðs
Akraness síðastliðinn fimmtu-
dag var tekið fyrir erindi frá
Bjarna Skúla Ketilssyni, Baska,
þar sem hann býður Akranes-
kaupstað málverkið „Þrett-
ándinn á malarvellinum“ til
kaups. Bæjarráð samþykkti að
kaupa málverkið og fól bæjar-
stjóra að ganga frá kaupunum.
Fjárhæðinni, 216.000 krónum,
verður ráðstafað af liðnum óviss
útgjöld.
–þá
Átta þúsund
án atvinnu á
landinu
LANDIÐ: Samkvæmt
Vinnumarkaðsrannsókn
Hagstofu Íslands voru að
jafnaði 186.400 á aldrin-
um 16-74 ára á vinnumark-
aði í janúar 2015, sem jafn-
gildir 80,3% atvinnuþátt-
töku. Af þeim voru 178.200
starfandi og 8.100 án vinnu
og í atvinnuleit. Samanburð-
ur mælinga í janúar 2014 og
2015 sýnir að þátttaka fólks
á vinnumarkaði jókst um
eitt prósentustig og fjölgun
vinnuaflsins var um 5.000
manns. Starfandi fólki fjölg-
aði um 9.200 manns og hlut-
fallið jókst um þrjú pró-
sentustig. Atvinnulausum
fækkaði um 4.300 manns og
hlutfall atvinnuleysis minnk-
aði um 2,5 stig.
–mm
Þríhliða
viðræður um
landfyllingu
AKRANES: Á fundi bæjar-
ráðs Akraness síðastliðinn
fimmtudag var kynnt svar-
bréf Faxaflóahafna vegna
óska um viðræður vegna um-
fangsmikillar landfyllingar
við Akraneshöfn sem greint
hefur verið frá í Skessu-
horni. Verkið tengist mikl-
um uppbyggingaráformum
HB Granda á Akranesi. Gert
er ráð fyrir að landfylling-
in taki yfir sex til sjö hekt-
ara lands (jafngildir tæplega
níu fótboltavöllum). Áætlað
er að gerð landfyllingarinnar
muni kosta um eða yfir tvo
milljarða króna. Faxaflóa-
hafnir samþykktu ósk Akra-
neskaupstaðar um að hefja
þríhliða viðræður Faxaflóa-
hafna, Akraneskaupstaðar
og HB Granda vegna verk-
efnisins.
–þá
Við Lyngholt í Hvalfjarðarsveit varð bílvelta síðasta þriðjudag. Beita þurfti
klippum á bílinn. Ljósm. jvv.
Meiðsli á fólki í
fjórum umferðaróhöppum
Alls urðu sjö umferðaróhöpp í
umdæmi Lögreglunnar á Vest-
urlandi í liðinni viku. Þar af urðu
fjögur umferðarslys; við Dýrastaði
og Fornahvamm í Norðurárdal,
við Lyngholt í Hvalfjarðarsveit
og við Skriðuland í Saurbæ í Döl-
um. Meiðsli urðu á fólki í þessum
óhöppum en flest minniháttar. Á
föstudag gerðist það við Dýrastaði
að ökumaður á suðurleið þurfti
að víkja út í kant vegna bifreið-
ar sem vikið var illa við mætingu.
Lenti bifreiðin þá í snjóruðningi
og við það missti ökumaður stjórn
á bílnum sem að fór útaf og valt
heilan hring og hafnaði á hjólun-
um. Ökumaður slapp með skrám-
ur og þakkaði það notkun örygg-
isbeltis. Daginn áður hafði svipað
verið uppi á teningnum við Forn-
ahvamm, bifreiðar að mætast og
annarri vikið illa. Missti ökumaður
hinnar bifreiðarinnar bíl sinn útaf
eftir að hafa lent út í snjóruðningi.
Ökumaður og farþegi voru flutt á
heilsugæslustöðina í Borgarnesi til
skoðunar.
Við Skriðuland í Saurbæ í Dala-
byggð fauk fulllestaður flutninga-
bíll með aftanívagni útaf í óveðri
aðfaranótt síðastliðins miðviku-
dags er hann fékk öfluga vindhviðu
á sig. Krapi var einnig á veginum.
Ökumaðurinn hlaut höfuðhögg
þegar stýrishúsið skall á vagninum
og var fluttur á heilsugæslustöð-
ina í Búðardal til skoðunar. Brjóta
þurfti rúðu í stýrishúsinu til að ná
ökumanninum út. Um tíu tíma
tók að ná bifreiðinni upp á veg-
inn og var Vestfjarðavegur lokaður
um tíma á meðan. Starfsmenn KM
þjónustunnar og fleiri komu að
björgun tækjanna. Bíllinn var mik-
ið skemmdur og var sluttur burtu á
tengivagni. Annar bíll sótti svo aft-
anívagninn.
Bílvelta varð síðdegis þriðjudag-
inn 24. febrúar við Lyngholt í Hval-
fjarðarsveit og beita þurfti klippum
á bílinn til að ná ökumanninum út.
Ökumaðurinn hlaut sár á höfði og
farþegi meiddist á hendi. Var fólk-
ið flutt á sjúkrahúsið á Akranesi til
skoðunar og aðhlynningar. Öku-
maður hlaut sár á höfði og farþegi
meiddist á hendi.
Þá fékk maður sem var að störf-
um í grjótnámu nærri Grundar-
tanga grjót á sig og hlaut opið fót-
brot. Var maðurinn fluttur á sjúkra-
hús í Reykjavík.
Tveir ökumenn voru teknir fyr-
ir akstur undir áhrifum fíkniefna og
einn fyrir ölvun við akstur í liðinni
viku.
þá/mm
Flutningabíllinn sem fór útaf við Skriðuland í Saurbæ aðfararnótt sl. miðvikudags.
Ljósm. kik.