Skessuhorn - 04.03.2015, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Hagstæð vöru-
skipti í janúar
LANDIÐ: Í janúarmán-
uði voru fluttar út vörur frá
landinu fyrir 50,6 milljarða
króna og inn fyrir 43,4 millj-
arða króna fob (46,5 millj-
arða króna cif). Vöruskiptin
í janúar, reiknuð á fob verð-
mæti, voru því hagstæð um
7,2 milljarða króna, sem er
nær sami afgangur og í janú-
ar 2014 á gengi hvors árs.
–mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
21. - 27. 2014.
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu:
Akranes 6 bátar.
Heildarlöndun:
2.782.603 kg.
Mestur afli: Faxi RE:
2.734.743 kg í tveimur lönd-
unum.
Arnarstapi 9 bátar.
Heildarlöndun:
114.427 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
34.777 kg í tveimur löndun-
um.
Grundarfjörður 6 bátar.
Heildarlöndun:
227.683 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
65.302 kg í einni löndun.
Ólafsvík 18 bátar.
Heildarlöndun:
440.543 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
71.847 kg í fimm löndunum.
Rif 13 bátar.
Heildarlöndun:
376.161 kg.
Mestur afli: Saxhamar SH:
86.714 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur 5 bátar.
Heildarlöndun: 75.752 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
48.270 kg í tveimur löndun-
um.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Faxi RE – AKR: 1.439.734
kg. 22. febrúar
2. Faxi RE – AKR:
1.304.009 kg. 24. febrúar
3. Tjaldur SH – RIF:
81.565 kg. 21. febrúar
4. Hringur SH – GRU:
65.302 kg. 25. febrúar
5. Örvar SH – RIF:
63.062 kg. 23. febrúar
mþh
Kennarar felldu
vinnumat
LANDIÐ: Framhaldsskóla-
kennarar í ríkisreknum fram-
haldsskólum og Tækniskólan-
um felldu á föstudaginn nýtt
vinnumat. Vinnumatið var
hinsvegar samþykkt í Verzl-
unarskóla Íslands og Mennta-
skóla Borgarfjarðar í Borgar-
nesi. Kjarasamningur félags-
manna í Félagi framhalds-
skólakennara og Félagi stjórn-
enda í framhaldsskólum eru
því lausir frá og með síðasta
föstudegi og því kemur ekki
til þeirra launahækkana sem
framundan voru. Þetta á þó
ekki við félagsmenn FF og FS
er starfa í Verzlunarskóla Ís-
lands og Menntaskóla Borg-
arfjarðar.
–mm
Nýjum fyrir-
tækjum fjölgar
LANDIÐ: Nýskráningum
einkahlutafélaga síðustu tólf
mánuði, frá febrúar 2014 til
janúar 2015, hefur fjölgað um
4% samanborið við tólf mán-
uði þar á undan. Alls voru
2.010 ný félög skráð á tíma-
bilinu. Mest er fjölgun ný-
skráninga í flokknum „Sér-
fræðileg, vísindaleg og tækni-
leg starfsemi,“ 36% á síð-
ustu tólf mánuðum. Gjald-
þrot einkahlutafélaga síðustu
tólf mánuði, frá febrúar 2014
til janúar 2015, drógust sam-
an um 12% samanborið við
tólf mánuði þar á undan. Sam-
tals voru 811 fyrirtæki tek-
in til gjaldþrotaskipta á tíma-
bilinu. Gjaldþrotum í flokkn-
um fasteignaviðskipti hefur
fækkað mest, eða um 33% á
síðasta ári.
–mm
Munntóbaks-
notkun eykur
líkur á áfengis-
fíkn
SVÍÞJÓÐ: Miðaldra not-
endum munntóbaks er tvö-
falt hættara við að verða háð-
ir áfengi en öðrum. Þetta er
niðurstaða nýrrar rannsóknar
við Háskólann í Umeå í Sví-
þjóð. Fréttavefurinn Vísir.is
í Reykjavík greinir frá þessi.
Í fréttinni segir að byggt sé
á gögnum úr heilsufarsrann-
sókn á 21 þúsund einstakling-
um á árunum 1991 til 1997.
Við fyrstu rannsóknina not-
uðu 25% karlanna og tæp 4%
kvennanna munntóbak. Eng-
inn sýndi þá merki um að vera
háður áfengi. Tíu árum síðar
voru 8% munntóbaksnotenda
háð áfengi en 3% hinna.
–mm
Heiðar Lind tekur við ritun sögu Borgarness
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð-
ar 26. febrúar síðastliðinn var Kol-
finnu Jóhannesdóttur sveitarstjóra
falið að ganga frá samningi við
Heiðar Lind Hansson sagnfræð-
ing um að halda áfram ritun sögu
Borgarness. Þá höfðu þegar far-
ið fram viðræður milli hans og rit-
nefndar um sögu Borgarness um
að Heiðar tæki að sér ritunina, við
skyndilegt fráfall Egils Ólafsson-
ar blaðamanns sem var kominn vel
í gang með verkið. Heiðar Lind
mun hafa aðstoðað frænda sinn við
þá vinnu og fannst því ritnefndinni
vel til fundið að fá Heiðar Lind til
að taka við verkinu. Heiðar hefur
að undanförnu unnið að efnisöfl-
un og undirbúningi vegna vænt-
anlegrar ritunar sögu Samskipa.
Þar áður var hann blaðamaður á
Skessuhorni en sinnti um tíma fyr-
ir það kennslu við Menntaskóla
Borgarfjarðar. Heiðar Lind er bor-
inn og barnfæddur Borgnesingur
og þekkir prýðilega til sögu byggð-
arlagsins.
þá
Vesturlandssýning verður í Faxaborg í lok mars
Fulltrúar hestamannafélaga á Vest-
urlandi og Hrossaræktarsambandi
Vesturlands hafa ákveðið að efna
til Vesturlandssýningar í reiðhöll-
inni Faxaborg í Borgarnesi. Verður
hún haldin laugardaginn 28. mars.
„Þetta er fimmta árið í röð sem Vest-
urlandssýningin er haldin í Faxa-
borg og mun allt kapp verða lagt
á að sýningin í ár verði sem glæsi-
legust,“ að sögn félaga í undirbún-
ingsnefndinni. Á sýningunni munu
koma fram vestlenskir gæðingar og
dæmi um sýningaratriði eru sýn-
ingar hjá börnum, unglingum, ung-
mennum ásamt fimmgangs- og fjór-
gangshestum, skeiðsýning verður í
boði, töltsýning, kynbótahross verða
sýnd og ræktunarbússýningar ásamt
mörgum fleiri atriðum með góð-
um gestum. Dagskrá verður auglýst
þegar nær dregur.
Þeir sem hafa ábendingar um at-
riði eða hross, sem eiga erindi á sýn-
inguna, sem og ræktunarbú, geta
komið þeim á framfæri við fulltrúa
úr undirbúningshópnum: Þeirra á
meðal eru Ámundi Sig, Benedikt
Þór, Hlöðver Hlöðversson, Heiða
Dís, Linda Rún og Siguroddur. mm
Vestlenskar valkyrjur tóku gæðinga sína til kostanna á sýningunni í fyrra. Ljósm. iss.
Þriðjungs samdráttur í fiski til bræðslu
Fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi
tóku á móti 30% minna af hráefni
í kílóum talið á síðasta árið sam-
anborið við 2013. Í fyrra fengu
verksmiðjurnar alls til sín 430.000
tonn. Árið 2013 nam móttak-
an 621.000 tonnum. Loðnuafl-
inn dróst saman en aukning varð
í kolmunnaveiðum. Hún dugði
þó ekki til að vega á mótinu fall-
inu í loðnunni. Þetta og fleira
kemur fram í samantekt sjávarút-
vegsblaðsins Fiskifrétta yfir hrá-
efnisöflun fiskimjölsverksmiðj-
anna á síðasta ári. Ein fiskimjöls-
verksmiðja er á Vesturlandi. Það
er verksmiðja HB Granda á Akra-
nesi. Í fyrra tók hún á móti 9.379
tonnum af loðnu, 9.132 tonnum
af kolmunna og 5.624 tonnum af
öðru hráefni. Þar er einkum um að
ræða afskurð af karfa frá fiskiðju-
veri HB Granda í Reykjavík sem
bræddur er í nýrri verksmiðju-
einingu á Akranesi og framleitt
fiskimjöl og –lýsi. Hún var tekin
í notkun á síðasta ári. Fiskimjöls-
verkmiðja HB Granda á Akranesi
var í 9. sæti á landsvísu á lista verk-
smiðjanna yfir heildarmóttöku
hráefnis á síðasta ári. Hún tók alls
5,6% af heildinni. Verksmiðja fyr-
irtækisins á Vopnafirði var hins
vegar í öðru sæti, alls með 13,6%
af heildinni eða 58.451 tonn. Efst
á listanum trónir svo Síldarvinnsl-
an á Neskaupstað með 110.215
tonn eða 25,6% af heildinni árið
2014.
mþh
Hoffell II landar loðnu til bræðslu á Akranesi í síðustu viku.
Ungur Borgfirðingur
lést í slysi í Noregi
Tæplega þrítugur karlmaður,
Magnús Kristján Magnússon frá
Hamraendum í Stafholtstungum í
Borgarfirði, beið bana í lestarslysi í
Narvik í Noregi þriðjudagskvöld-
ið 24. febrúar sl. Magnús Kristján
starfaði í Noregi. Hann var fædd-
ur 16. maí 1985, var ókvæntur og
barnlaus en lætur eftir sig norska
unnustu. Slysið átti sér stað klukk-
an 23:07 að staðartíma og varð
skammt hjá lestarstöðinni í Nor-
vik. Norskir fjölmiðlar greindu frá
að ekki væri vitað með vissu hvern-
ig slysið hafi borið að en lögregla
fari með rannsókn þess. Talsmað-
ur norsku lögreglunnar upplýsir
þó að ekki leiki grunur um að eitt-
hvað saknæmt hafi átt sér stað.
mm