Skessuhorn - 04.03.2015, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Sólbakka 2, Borgarnesi - 437 1400 - ljomalind.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Verkefnastjóri
Sveitamarkaðurinn Ljómalind í Borgarnesi óskar
eftir starfskrafti í hlutastarf frá og með 1. apríl.
Um er að ræða 8-12 klst. vinnu á viku auk sumarvinnu.
Líklegt er að starfshlutfallið muni aukast með tímanum.
Á meðal verkefna er afgreiðsla í búðinni, þrif, vinna
við bókhald, skrif á heimasíðu, markaðsmál og
annað sem fellur til við rekstur sveitamarkaðar.
Við leitum að þjónustuliprum aðila með góða samskiptahæfni
sem verður að geta unnið sjálfstætt og með hópi fólks.
Áhugasamir hafi samband við ljomalind@ljomalind.is
eða við Önnu Dröfn í síma 8653899.
Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Akraneskaupstað:
Störf flokkstjóra (100% og 50% störf) við Vinnuskólann, •
fyrir 20 ára og eldri.
Starf ve• rkstjóra við almennt viðhald og umhirðu á opnum
svæðum, fyrir 20 ára og eldri.
Störf • við almennt viðhald og umhirðu á opnum svæðum,
fyrir 18 ára og eldri.
Nánari upplýsingar um fyrrgreind störf er að finna á heimasíðu
Akraneskaupstaðar, www.akranes.is en þar skal jafnframt sækja
um störfin rafrænt á þar til gerðum eyðublöðum.
Umsóknarfrestur er til og með 18. mars.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Sumarstörf hjá
Akraneskaupstað
Samþykkt breyting á deiliskipulagi
Stofnanareits, Heiðarbraut 40, Akranesi
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi þann
24. febrúar 2015, breytingu á deiliskipulagi Stofnanareits
vegna Heiðarbrautar 40. Tillagan var auglýst samkvæmt
1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir
bárust og hefur þeim sem gerðu athugasemdir verið
send umsögn bæjarstjórnar.
Sú breyting var gerð frá auglýstri tillögu að hámarksfjölda
íbúða er fækkað úr 26 í 18. Bílastæðum er fjölgað úr 17 í 20.
Byggingarreitur vestan við núverandi hús er felldur niður.
Byggingarreitur austan við núverandi hús verður tvær
hæðir í stað þriggja.
Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá
birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar
í B-deild Stjórnartíðinda.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Fjölbrautaskóli Vesturlands
AFREKSÍÞRÓTTIR
Afreksíþróttasvið við FVA er hugsað fyrir nemendur sem hafa stundað afreksíþróttir í
töluverðan tíma og vilja hafa aukið svigrúm til að stunda íþrótt sína.
Íþróttagreinar sem eru í boði:
knattspyrna
sund
golf
körfubolti
badminton
keila
Almennt eru æfingar á skólatíma 3x í viku auk annarrar fræðslu er tengist íþróttaiðkun.
Nemendur sækja rafrænt um skólavist á bóknámsbraut en sérstakt umsóknarblað er fyrir
afreksíþróttasviðið á www.fva.is eða á skrifstofu skólans.
FRÁBÆR KENNSLUAÐSTAÐA – AKRANESHÖLL – JAÐARSBAKKALAUG
Nánari upplýsingar um nám á brautum er að finna á vef skólans www.fva.is
Þrír ungir Skagamenn, þeir Björn
Þór Björnsson, Jóhannes Þorkels-
son og Snorri Kristleifsson hafa
fest kaup á vefnum Úrslit.net, sem
er úrslitaþjónusta þar sem knatt-
spyrnuáhugamenn geta fylgst með
gangi mála í nær öllum knatt-
spyrnuleikjum sem spilaðir eru hér
á landi. Blaðamaður tók hús á þeim
Birni og Snorra og spjallaði við þá
um aðdraganda kaupanna. „Hug-
myndin um góða, snjallsímavæna
úrslitaþjónustu fyrir áhugamenn
um íslenska knattspyrnu hafði
blundað í okkur í allnokkurn tíma.
Þegar við sáum Úrslit.net auglýst
til sölu ákváðum við að grennslast
fyrir um málið og náðum á endan-
um samkomulagi um kaupverð við
fyrri eigendur. Með kaupum á síð-
unni varð sú hugmynd að veruleika
og sparar okkur gífurlega mörg
spor í ferlinu,“ segja þeir Björn og
Snorri. Kaupin gengu í gegn síð-
astliðinn föstudag og um kaup-
verð vilja þeir ekkert gefa upp „Við
greiddum sanngjarnt verð fyrir vef-
inn og fjármögnuðum kaupin úr
eigin vasa.“
Aðspurðir um ástæður kaupanna
tilgreina þeir að fyrst og fremst hafi
þá einfaldlega langað að prófa slík-
an rekstur en auðvitað sjái þeir líka
möguleika á að geta haft einhverj-
ar tekjur af honum. „Þetta verð-
ur rekið með sölu auglýsinga og
við eigum ekki von á að vefurinn
færi okkur mikið ríkidæmi,“ seg-
ir Snorri og brosir og Björn tek-
ur undir það. „En við eigum held-
ur ekki von á að tapa á rekstrinum,
alls ekki. Þetta er vefur sem nær
allir íslenskir knattspyrnuáhuga-
menn þekkja, við þurfum því ekki
að standa í því að koma honum á
framfæri, það er mikill kostur.“
bæta þeir við. Þeir segja vefinn hafa
verið vel rekinn af fyrri eigendum
og eins að kerfið sem snúi að úr-
slitum og tölfræði sé mjög gott, fátt
þurfi að bæta þar. „Vefurinn virk-
aði ekki nógu vel í snjallsíma og
það ætlum við að bæta. Hann verð-
ur áfram aðgengilegur og notenda-
vænn og snjallsímaútgáfan verður í
sama stíl,“ segja þeir. Stefnt er að
því að snjallsímaútgáfan verði kom-
in í gagnið fyrir fyrstu umferð efstu
deildar karla nú í sumar.
Um þjónustuna sjálfa segja þeir
hana byggja á því að gífurlega öfl-
ugu tengslaneti sé haldið úti um allt
land. „Við munum manna alla leiki
í sumar í efstu deildum karla og
kvenna og í næstefstu deild karla.
Síðan verðum við með tengiliði
hjá félagsliðum neðri deilda þann-
ig að staða allra leikja verður upp-
færð eins fljótt og auðið er,“ segir
Björn og bætir því við að þeir sjái
fram á að fara sjálfir á eins marga
leiki og þeir mögulega geta. „Lík-
lega mun megnið af okkar frítíma
fara í að sinna þessu verkefni, þetta
verður mikil vinna en skemmtileg,“
segir Snorri. kgk
Björn Þór Björnsson og Snorri Kristleifsson, tveir nýrra eigenda Úrslit.net.
Þrír ungir Skagamenn kaupa Úrslit.net