Skessuhorn - 04.03.2015, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Undanfarna daga hafa starfsmenn
Faxaflóahafna unnið að því að yfir-
fara festingar og keðjur sem halda
uppi dekkunum sem liggja utan á
bryggjunum í Akraneshöfn. Eins og
veður hefur verið undanfarið á Vestur-
landi þá er ekki alltaf jafn kræsilegt
að standa í útivinnu en sumir láta
það ekki á sig fá. Þessi mynd var tekin
af starfsmönnum Faxaflóahafna á
Sementsbryggjunni svokölluðu síðast-
liðinn fimmtudag.
mþh
Síðastliðinn föstudag var vægast
sagt mokafli hjá bátum sem réru frá
Snæfellsbæ. Þessi góðu aflabrögð
eru talin vita á gott nú þegar hill-
ir undir vor með loðnugöngum upp
að Snæfellsnesi og þorskurinn býr
sig undir hrygningu. Þennan dag
komust menn loks á sjó frá höfn-
um í Snæfellsbæ eftir langan ótíð-
arkafla. Þeir urðu ekki fyrir von-
brigðum. Aflinn var afar góður hjá
þeim í öll veiðarfæri. Sem dæmi
má nefna dragnótarbátinn Egill
SH sem fékk risastórt hal af stórum
og vænum þorski; alls 42 tonn. Að
sögn fróðra manna mun þetta vera
mesti afli sem vitað er til að íslensk-
ur dragnótabátur hafi fengið í einu
kasti. Egill tók aðeins tvo köst í
þessum róðri. Hið fyrra skilaði 15
tonnum og svo kom risakastið sem
gaf tonnin 42. Eftir þennan róður
landað Egill SH því um 57 tonnum
sem er langstærsta einstaka löndun
bátsins til þessa á dragnótaveiðun-
um.
Aðrir dragnótarbátar frá Snæ-
fellsbæ fengu líka góðan afla þenn-
an dag. Sveinbjörn Jakobsson SH
var með 35 tonn. Í einu kastinu
hjá þeim á Sveinbirni fengust 20
tonn. Gunnar Bjarnarson SH var
með 27 tonn. Steinunn SH fékk 21
tonn. Frá Rifi réru tveir dragnóta-
bátar. Var Mattías SH með 35 tonn
og Rifsari SH með 28 tonn. Eins
og gefur að skilja voru róðrar ekki
langir þennan gjöfula dag og bát-
arnir komu snemma inn til lönd-
unar.
Fiskast vel í öll
veiðarfæri
Netabátar hafa einnig aflað afar vel.
Sumir hafa orðið að leita til hafn-
ar tvisvar sama daginn til löndunar.
Bárður SH var með 62 tonn í fimm
löndunum. Arnar SH og Katrín SH
voru einnig með góðan afla. Smá-
bátar hafa heldur ekki farið var-
hluta af þessari mokveiði. Á sunnu-
dag landaði línubáturinn Kristinn
SH 24 tonnum í Ólafsvík. Þessi afli
fékkst á 48 bala. Það gera hálft tonn
á balann sem telst afar góður afli.
Að sögn Þórðar Björnssonar hafn-
arvarðar í Snæfellsbæ þá hefur leið-
inleg tíð gert sjómönnum erfitt fyr-
ir. Þegar hægt er að róa vegna veð-
urs er afli bátanna þó undartekn-
ingarlaust mjög góður.
af
Sjávarútvegsfyrirtækið HB Grandi
hafði 33,2 milljarða heildartekjur
á rekstrarreikningi síðasta árs.
Hreinn hagnaður eftir fjármagns-
liði og afskriftir var 5,6 milljarð-
ar króna. Eignir félagsins í árslok
voru 56,4 milljarðar, skuldir námu
22,7 milljörðum og eigið fé var
33,7 milljarðar. Eiginfjárhlutfall-
ið í árslok 2014 var 60% en nam
61% í lok ársins 2013. Meðalfjöldi
ársverka árið 2014 var 920 en var
828 árið 2013. Laun og launatengd
gjöld námu samtals 9,7 milljörðum
samanborið við 9,4 milljarða árið
2013.
HB Grandi hf. gerði út tíu fiski-
skip í árslok. Á árinu var samið
við skipasmíðastöð í Tyrklandi um
smíði á þremur nýjum ísfisktogur-
um. Árið 2013 var samið við sömu
skipasmíðastöð um smíði tveggja
uppsjávarveiðiskipa. Fyrra upp-
sjávarskipið verður afhent í apríl
næstkomandi en það seinna í árs-
lok. Fyrsti ísfisktogarinn verður
væntanlega afhentur upp úr miðju
ári 2016. Árið 2014 var afli skipa
félagsins 50 þúsund tonn af botn-
fiski og 103 þúsund tonn af upp-
sjávarfiski. Fyrirtækið á yfir mest-
um kvóta allra íslenskra fyrirtækja
að ráða. Stjórn HB Granda leggur
til að hluthafar fái greiddar 2.720
milljónir króna í arð af árinu 2014
og að arðurinn verði greiddur út
30. apríl.
mþh
Undirritaður hefur
verið leigusamning-
ur milli Leikdeild-
ar Ungmennafélags-
ins Skallagríms ann-
ars vegar og Borg-
arbyggðar, Ung-
mennafélagsins Egils
Skallagrímssonar og
Ungmennafélagsins Björns Hítdæla-
kappa hinsvegar. Samkvæmt samn-
ingnum mun Leikdeild Umf. Skalla-
gríms leigja félagsheimilið Lyng-
brekku til tveggja ára og sjá um all-
an rekstur hússins á
þeim tíma. Í kjölfar
samningsins sömdu
sveitarfélagið og
Einar Ole Pedersen
um starfslok hans
en Einar Ole hef-
ur verið húsvörð-
ur í Lyngbrekku frá
ársbyrjun 1999. Kolfinna Jóhannes-
dóttir sveitarstjóri færði Einari Ole
blóm og þakkaði honum vel unnin
störf síðastliðin 15 ár.
þá/ Ljósm. borgarbyggd.is
Á stjórnarfundi Faxaflóahafna 20.
febrúar síðastliðinn var lögð fram
greinargerð eftir Bergþóru Bergs-
dóttur um hugsanlega skipaverk-
stöð á Grundartanga. Slík stöð yrði
ekki til nýsmíða á skipum heldur til
viðhalds og viðgerða. Gert er ráð
fyrir að skip yrðu tekin bæði upp
í dráttarbraut og þurrkví sem yrði
230 metra löng, 35 metra breið og
15 metra djúp. Slík kví myndi því
ráða við að taka við flestum íslensk-
um fiski- og flutningaskipum.
Þessum mannvirkjum mætti finna
stað á fimm til tíu hektara iðnaðar-
lóð sem áður var innan marka jarð-
arinnar Klafastaða og er vestan við
stóriðjufyrirtækin á Grundartanga.
Sú lóð hefur þegar verið skipu-
lögð með skipaviðgerðastarfsemi í
huga. Áætlað er heildarkostnaður
við að byggja skipaverkstöðina yrði
á bilinu 7 til 9 milljarðar króna. Í
þeirri tölu er gerð dráttarbrautar og
þurrkvíar sem yrði sprengd ofan í
landið í fjöruborðinu, standsetning
lóðar, lagning gatna, smíði bryggju
og viðlegukants, hleðsla sjóvarnar-
garðs og bygging þjónustuhúsa.
Fyrirtækið Stálsmiðjan-Framtak
hefur þegar sýnt því áhuga að koma
á fót skipaverkstöð á Grundartanga.
Það rekur í dag slippinn í Gömlu
höfninni í Reykjavík. Einsýnt þykir
að sá slippur mun þurfa mikla end-
urnýjun innan næstu tíu til fimm-
tán ára sem yrði kostnaðarsöm en
dráttarbrautirnar þar eru frá árun-
um 1946 og 1957. Auk þessa ger-
ir deiliskipulag gamla hafnarsvæð-
isins ekki ráð fyrir því að þar fari
fram skipaviðgerðir í framtíðinni.
Af þessum sökum er nú horft til
Grundartanga sem framtíðarsvæð-
is fyrir stórskipaviðgerðir á vestan-
verðu landinu. Í greinargerð Berg-
þóru Bergsdóttur er ekki lagt mat
á rekstrarforsendur hugsanlegrar
skipaverkstöðvar á Grundartanga.
Hún skrifar í lokaorðum að næstu
skref í þessu máli væru að vinna ít-
arlega kostnaðaráætlun, tímaáætl-
un, leita fjármögnunar og kanna
rekstrarforsendur til hlítar. mþh
Nú stendur yfir söfnun fyrir nýju
tæki handa Heilbrigðisstofnun
Vesturlands í Búðardal. Þetta er
svokallaður stafrænn lesari á röntg-
entæki stofnunarinnar þar. „Það er
röntgentæki hér sem er gott og í
fínu lagi. Hins vegar er það þann-
ig að myndir eru teknar á það upp
á gamla mátann. Það eru teknar
myndir á filmu sem síðan þarf að
framkalla áður en hægt er að skoða
þær. Þetta er bæði dýrt og tekur
tíma, bæði í framköllun og svo þarf
að senda myndirnar í pósti suð-
ur þegar þörf er á því að þær séu
skoðaðar af sérfræðingum þar. Með
því að setja svona stafrænan les-
ara á röntgentækið verða mynd-
irnar stafrænar í stað þess að fara
á hefðbundna filmu. Slíkar mynd-
ir er hægt að sjá strax, það er eng-
inn framköllunarkostnaður og það
er hægt að senda þær nánast sam-
stundis með tölvutækni til sérfræð-
inga,“ segir Eyþór Jón Gíslason
sjúkraflutningamaður í Dölum.
Það eru sjúkraflutningamenn,
Lionsklúbbur Búðardals og Rauða-
krossdeildin í Búðardal sem starf-
ar í Dölum og Reykhólasveit sem
standa fyrir söfnuninni. „Við söfn-
uðum nýverið fyrir svokölluðu
Lúkas-hjartahnoðtæki. Sú söfnun
gekk afar vel, reyndar svo glæsilega
að við áttum afgang af fjármunum
þegar Lúkasinn hafði verið keyptur.
Við settum þá peninga í þessa söfn-
un. Stafrænn lesari kostar á bilinu
þrjár til fjórar milljónir króna. Nú
þegar hefur safnast á aðra millj-
ón króna fyrir þessum búnaði. Við
vonumst til að ljúka þessari söfn-
un nú á vordögum. Nú síðast kom
skátafélagið Stígandi hér í Dala-
byggð og færði okkur peningagjöf
í hana. Þessir vösku krakkar lögðu
sig fram og stóðu sig mjög vel í að
safna,“ segir Eyþór. mþh
Einn pokinn af fallegum fiski tekinn inn af 20 tonna hali á Sveinbirni Jakobssyni
SH.
Egill SH setti Íslandsmet á dragnót
Bryggjan var undirlögð af fiskikörum sem voru full af vænum þorski þegar
aflanum var landað úr Agli SH.
Bryggjuviðhald
í kafaldsmuggu,
kulda og trekki
Félagar í Skátafélaginu Stíganda í Dalabyggð þegar þau færðu í síðustu viku
peningagjöf í söfnum fyrir stafrænum lesara við röntgentækið í Búðardal. Að
baki þeim standa Eyþór Jón Gíslason sjúkraflutningamaður og Þórður Ingólfsson
læknir. Ljósm. bae.
Safna fyrir stafrænum lesara
á röntgentækið í Búðardal
Leigusamningur um Lyngbrekku
HB Grandi hagnaðist
um 5,6 milljarða
Myndin sýnir hvar skipaverkstöðinni er hugsuð staðsetning í landi Klafastaða
vestan við núverandi stóriðjufyrirtæki á Grundartanga. Upptökumannvirki
skipaverkstöðvarinnar eru fremst á myndinni.
Ný greinargerð um hugsanlega
skipaverkstöð á Grundartanga