Skessuhorn - 04.03.2015, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Leikdeild Ungmennafélagsins
Skallagríms frumsýnir á föstudags-
kvöldið leikstykkið „Barið í brest-
ina – Gamanleikrit með söngvum,“
eftir Guðmund Ólafsson. Sýnt
verður í félagsheimilinu Lyng-
brekku sem leikdeildin hefur ein-
mitt tekið á leigu næstu tvö árin.
„Leikritið gerist á stofnun sem er
sambyggð heilsugæslustöð og elli-
heimili. Stjórnendur hennar áttu
að kaupa magaskoðunartæki fyr-
ir stofnunina en ákváðu frekar að
eyða fénu til að styrkja knattspyrnu-
lið bæjarins með því að kaupa leik-
mann frá Færeyjum. Þegar leikritið
gerist er svo ráðherrann sem barð-
ist fyrir fjárveitingu til tækisins að
koma í heimsókn til að sjá það og
þá eru góð ráð dýr,“ segir Gunnar
Björn Guðmundsson.
Blaðamaður Skessuhorns var
viðstaddur eina af síðustu æfingum
leikritsins í Lyngbrekku á mánu-
dagskvöldið og óhætt er að segja að
þar hafi verið mikið fjör. Alls taka
tæplega 30 þátt í þessari skraut-
legu sýningu og fólk fer á kostum
í túlkun sinni á hinum ýmsu pers-
ónum leiksins. Það er svo krydd-
að með sönglögum sem allir kann-
ast við. „Þetta leikrit hefur verið
sýnt á nokkrum stöðum og gengið
ákaflega vel. Það hefur verið mik-
il ánægja með það,“ segir Guð-
mundur. Verkið var upphaflega
sýnt í Ólafsfirði. Fyrir ári síðan var
það sett uppi í félagsheimilinu Ara-
tungu í Biskupstungum og alls sýnt
12 sinnum fyrir fullu húsi.
Sjálfur hefur Gunnar víðtæka
reynslu sem leikstjóri þar sem hann
hefur komið að stórum verkefn-
um. Hann leikstýrði kvikmyndinni
Astrópíu sem frumsýnd var 2007.
Hann er ekki óvanur gamanleikj-
um og var t.d. leikstjóri áramótas-
kaupanna í sjónvarpinu 2009 til
2012. „Það er búið að vera frábært
að vinna að þessari sýningu. Hóp-
urinn sem leikur í henni er mjög
sterkur og vel þjálfaður. Frumsýn-
ing verður á föstudagskvöld klukk-
an 20:30. Það verður hægt að panta
miða í síma 846-2293 og á vefn-
um midi.is. Við getum lofað góðri
sýningu. Það verður mikið sprell,“
sagði Gunnar leikstjóri í samtali við
Skessuhorn. mþh
Mikill fjöldi fólks kynnti sér náms-
tilboð við háskóla á Íslandi á Há-
skóladeginum svokallaða sem
haldinn var í Reykjavík síðastlið-
inn laugardag. Þar bauðst fólki að
heimsækja húsakynni Háskóla Ís-
lands og Háskólans í Reykjavík.
Auk fulltrúa námsgreina við þessa
skóla voru landsbyggðarháskólarn-
ir þrír, þar sem tveir eru á Vestur-
landi, einnig með kynningarbása
þar sem fólk á þeirra vegum upp-
lýsti gesti og gangandi um skólana
og starfsemi þeirra. Þessir skólar
eru Landbúnaðarháskóli Íslands,
Háskólinn á Bifröst og Háskólinn
á Hólum.
„Það gekk rosalega vel. Fjölmargt
fólk kom til okkar. Það var áhuga-
samt og spurði mikið um skólann.
Mér skilst að alls hafi um fimm þús-
und manns komið á Háskólatorg-
ið þar sem við vorum þennan dag
enda var gott veður,“ sagði Bára
Sif Sigurjónsdóttir kynningarstjóri
Landbúnaðarháskólans að deginum
loknum. Umsóknarfrestur í Land-
búnaðarháskólann rennur út 5. júní
næstkomandi. Það eru þegar farn-
ar að berast umsóknir. „Við frá há-
skólunum erum nú á ferðalagi um
landið að kynna skólana. Við vor-
um að koma úr framhaldsskólanum
á Laugum og nú erum við á leiðinni
á Sauðárkrók. Svo Höfn, Egilsstaði,
Akureyri, Ísafjörð og á Selfoss. Það
má nálgast nánari upplýsingar um
þetta allt á heimasíðu Landbúnað-
arháskólans (lbhi.is),“ þar sem hún
var stödd norðanlands í vikunni.
Bifröst með nýjungar
Svipaða sögu er að segja frá Bif-
röst. „Það var stöðugur straumur til
okkar. Fólk hafði sérstaklega mik-
inn áhuga á nýjum námslínum sem
við erum að bjóða nú svo sem BA í
stjórnmálahagfræði, BA í miðlun og
almannatengslum og BA í byltinga-
fræði. Þetta má allt kynna sér á síðu
skólans bifrost.is. Umsóknarfrest-
urinn fyrir skólavist á Bifröst er 15.
júní. „Við erum með frest tíu dög-
um síðar en opinberu háskólarnir.
Það eru strax byrjaðar að koma um-
sóknir og þetta lítur vel út,“ segir
Brynjar Þór Þorsteinsson markaðs-
stjóri Háskólans á Bifröst.
Báðir háskólarnir á Vesturlandi
taka svo þátt í framhaldi á Háskóla-
deginum þar sem heimsóttir verða
framhaldsskólar úti á landi. Þann
19. mars verða þeir í Menntaskóla
Borgarfjarðar milli kl. 9.30 og 11.00
og síðan í Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga milli kl. 13 og 14.30.
mþh
Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarð-
arsveitar í síðustu viku var sam-
þykkt að fela oddvita og sveitar-
stjóra að ræða við fulltrúa Akranes-
kaupstaðar um möguleika samstarfs
um staðarval og uppbyggingu skila-
réttar vestan Akrafjalls. Málið hafði
áður komið til umfjöllunar í sveit-
arstjórn Hvalfjarðarsveitar. Reyn-
isrétt hefur í nokkurn tíma þótt of
lítil og því skoða menn uppbygg-
ingu nýrrar réttar og jafnvel á nýj-
um stað.
þá
Undanfarnar vikur virðist sem
mjög hafi tekið að þrengja í búi
lágfótu. Vísbendingar eru um að
allt of mikið sé orðið af tófunni og
viðgangur hennar kominn langt út
fyrir skynsamleg og eðlileg mörk. Í
kjölfar umhleypingatíðar sækir tóf-
an því í vaxandi mæli til byggða í æt-
isleit og er þá auðveld bráð slyngra
tófuskytta. Nótt eina í síðustu viku
skaut Snorri Jóhannsson refaskytta
tólf tófur á bæjarhlaðinu á Sig-
mundarstöðum í Þverárhlíð. Lagt
var út hræ fyrir tófuna einungis 25
metra frá fjárhússdyrunum og voru
því hæg heimatökin þegar sú stutt-
fætta kom í útiljósin. Fjórar tófur
hafði Snorri áður skotið á sama stað
í janúar. Að sögn Einars Guðmanns
Örnólfssonar bónda á Sigmund-
arstöðum er fjölgunin í refastofn-
inum orðin mjög áberandi. Hann
segir að ekki líði það kvöld, ef hann
aki niður sveit, að hann sjái ekki að
minnsta kosti eina tófu og oft fleiri
í ljósunum frá bílnum. Áður sáu
menn rjúpur í sama mæli á þessum
stöðum, en ekki lengur. „Tófur eru
út um allt og greinilegt að mjög er
tekið að þrengja að hjá þeim. Þeg-
ar ég var að alast upp fóru menn
inn á afrétti til að vinna á tófunni.
Nú kemur hún hins vegar sjálf til
byggða, nánast inn í forstofu hjá
manni,“ segir Einar.
Ýmsir fleiri hafa verið að vinna
á tófunni auk Snorra Jóhannsson-
ar. Þannig segir Einar að Guð-
jón Kjartansson bóndi á Síðumúla-
veggjum sé búinn á síðustu tólf
mánuðum að skjóta 17 tófur þegar
hann hefur verið á gangi í klettun-
um á landareign sinni. Þá hafi eft-
ir áramótin verið skotnar a.m.k. sex
tófur frá útihúsunum í Örnólfsdal.
Við smalamennsku nokkru sunnar
í héraðinu síðasta haust sáu bænd-
ur í Flókadal sjö tófur á ferð sinni
á tiltölulega litlu svæði. Þannig má
því segja að krökkt sé af tófu í ætis-
leit vítt um Borgarfjörð og senni-
lega um allt land.
Ójafnvægi í náttúrunni
Snorri Jóhannesson á Augastöð-
um hefur stundað grenjavinnslu til
áratuga, en segist hættur því fyr-
ir hið opinbera en grandar tófu af
landareign sinni og fyrir aðra land-
eigendur sem til hans leita. Hann
segir ýmsar ástæður fyrir þess-
ari miklu fjölgun tófunnar og að í
sjálfu sér þurfi hún ekki að koma á
óvart. Eftirlitslausum eyðijörðum
hafi t.d. fjölgað og því finni refur-
inn sig öruggari niður á láglendi.
Þá hafi sparnaður hins opinbera
við launagreiðslur til veiðimanna
orðið til þess að sveitarfélögin hafi
slegið slöku við grenjaleit sem aft-
ur hefur orðið til þess að tófan hef-
ur náð að fjölga sér óáreitt og tekið
sér bólfestu á stöðum þar sem hún
sást ekki áður. „Hún kemst víða um
óáreitt og er því flutt til byggða, svo
einfalt er það,“ segir Snorri. Hann
segir þetta ófremdarástand og að
búið sé af mannavöldum að skapa
mikið ójafnvægi í náttúrunni. „Hið
opinbera ver nú háum fjárhæðum
í ýmsar rannsóknir lærðra vísinda-
manna á tófunni, t.d. hvað hún éti
sér til viðurværis. Við vitum það
hins vegar ágætlega og krefst því
ekki dýrra rannsókna að mínu mati.
Það þarf að auka markvisst grenja-
veiðar á ný. Öðruvísi kemst ekki
aftur á það jafnvægi sem við viljum
hafa í náttúrunni,“ segir Snorri Jó-
hannesson á Augastöðum.
mm
Það er mikið fjör á sviðinu í þessari
sýningu. Fleiri myndir af þessari
uppsetningu Leikdeildar Skallagríms
verða settar á vef Skessuhorns í
vikunni.
Líf og fjör í Lyngbrekku
Gunnar Björn Guðmundsson segir leikurum til á æfingu í Lyngbrekku á
mánudagskvöld.
Það er mikið spilað og sungið í leikritinu. Tónlistarstjóri er Steinunn Pálsdóttir.
Hún spilar á píanó og með henni eru tveir gítarleikarar.
Lágfóta í ætisleit færir sig í
vaxandi mæli til byggða
Fé rekið til Reynisréttar sem þykir of lítil miðað við fjárfjölda á svæðinu. Akranes í
baksýn. Ljósm. mm.
Samstarf um skilarétt
vestan Akrafjalls
Mikill áhugi á háskólunum
Háskólinn á Bifröst býður upp á ýmsar nýjungar á nýju skólaári.
Það var erill á bás Landbúnaðarháskólans á Háskóladeginum. Þar voru meðal
annarra Ragnar Frank Kristjánsson og Björn Þorsteinsson rektor að kynna náms-
framboð skólans.