Skessuhorn - 04.03.2015, Side 15
15MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Auglýsing um lýsingu deiliskipulags
Skáleyjar í Hvammsfirði
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti þann 17. febrúar 2015 að auglýsa lýsingu á nýrri deiliskipulagstillögu
skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lýsing deiliskipulagstillögunar felur í sér eftirfarandi:
Skáley er staðsett á innanverðum Hvammsfirði nærri Dagverðarnesi í Dalabyggð. Í Skáley eru engar nýtanlegar
byggingar lengur og er fyrirhugað að byggja frístundarhús og bátaskýli ásamt bryggju fyrir heilsársnotkun.
Meginmarkmið deiliskipulagsins er að fá gistimöguleika í Skáley með byggingum sem verður gert í sátt við
landslag, jarðmyndanir, lífríki og menningarminjar.
Lýsing ásamt fylgigögnum verður til sýnis í Stjórnsýsluhúsinu Búðardal á opnunartíma frá og með 27. febrúar til
og með 27. mars 2015
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við lýsinguna.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 27. mars 2015 og skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og
byggingarfulltrúa, Miðbraut 11, 370 Búðardal.
Búðardal 26. febrúar 2015,
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags og byggingarfulltrúi
Höfum hækkað verð fyrir innlagt
hrossakjöt tímabundið um 16%
til að sinna mikilvægum
erlendum kaupanda.
Nánari upplýsinga á vef SS og í stöð SS á
Selfossi í s. 480 4100.
Bændur athugið!
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2014
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudaginn 12. mars
Föstudaginn 13. mars
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Nýtt ungbarnablað á
íslensku frá Rauma
Opið:
Mánud. – föstud. kl. 9 – 18
Laugardaga kl. 11 - 15
Grensásvegi 46, 108 Reykjavík - Sími 511 3388
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Nafn: Sandra Sif Sæmundsdóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Ein-
hleyp, búsett í póstnúmeri 108 í
Reykjavík en alin upp í Saurbæ í
Dölum.
Starfsheiti/fyrirtæki: Verkamaður
á loðnuvertíð í HB Granda.
Áhugamál: Ljósmyndun, dýr,
ferðalög og fleira. Vel að merkja
sinni ég engu áhugamála minna
neitt sérlega vel.
Vinnudagurinn: Mánudagurinn
2. mars.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú gerð-
ir? Ég vaknaði kl. 22:00 kvöld-
ið áður og borðaði „morgunmat“.
Ég vinn bara næturvaktir svo sólar-
hringurinn er gersamlega á hvolfi.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Eina dós af skyr.is og svo drakk ég
vatn.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég ók af stað um hálfri
klukkustund fyrir miðnætti. Ég
reyni alltaf að vera mætt minnst
korteri fyrir vinnu til að geta kíkt
aðeins í kaffi og klætt mig í gallann
í rólegheitum.
Hvað varstu að gera kl. 10? Ég
var að raða hrognapönnum í frysti-
skápana ásamt samstarfsfélaga mín-
um.
Hvað varstu að gera í hádeginu?
Vaktin mín kláraðist akkúrat á há-
degi þennan daginn svo ég nýtti
tækifærið og skrapp til Reykjavík-
ur og sótti mér fleiri föt, fartölvuna
mína og fleira slíkt. Ég hafði staðið
16 tíma vaktir alla vikuna fram að
þessum degi svo fjögurra tíma auka
frí var nokkuð kærkomið.
Hvað varstu að gera kl. 14? Ég
var í baði. Sjóðandi heitu baði sem
losaði um vöðvabólgu.
Hvenær hætt og hvað var það
síðasta sem þú gerðir? Þegar ég
hætti í hádeginu var ég við færi-
bandið í frystingunni að pakka
frosnum hrognum í kassa.
Hvað var í kvöldmat og hver eld-
aði? Vöfflur með glassúr, rjóma,
banönum, jarðarberjum og súkk-
ulaðikurli. Valný í eldhúsinu bakaði
þessar gómsætu vöfflur í kaffitím-
anum. Vegna þess hve sólarhring-
urinn er skakkur hjá mér reyndist
þetta verða kvöldmaturinn minn.
Hvað stendur upp úr eftir dag-
inn? Hvað það lá vel á öllum í
vinnunni og mikið um vinnustaða-
grín sem er nauðsynlegt til að stytta
stundirnar því vinnan er nokkuð
einhæf.
Dag ur í lífi...
Verkamanns á loðnuvertíð
Fjölmenni kynnti sér sprotafyrirtæki í
úrvinnslu landbúnaðarvara
Matarmarkaður Búrsins var hald-
inn á fyrstu hæð félagsheimilisins
Hörpu í Reykjavík um liðna helgi.
Óhætt er að segja að fólk hafi tekið
því fagnandi þegar bændur og aðr-
ir framleiðendur af landsbyggðinni
komu til að kynna og selja vörur
sínar. Engum blöðum er um það að
fletta að mikil nýsköpun er að eiga
sér stað í úrvinnslu landbúnaðaraf-
urða og ekki hvað síst eru það litlu
einyrkjarnir og sprotafyrirtækin
sem eru að sýna hvað mestar fram-
farir. Hvort sem það voru afurð-
ir dýra eða jurta, greinilegt var að
margt nýtt er að verða til. Af Vest-
urlandi má nefna að þarna sýndu
vörur sínar félagar í Ljómalind í
Borgarnesi; Mýranaut, Hundastapi
og Anna Dröfn í Kví Kví, Geitabú-
ið á Háafelli var með fjölbreytt-
an bás og þá var hægt að kaupa ís
og aðra vöru frá Erpsstöðum. Að-
spurður sagði Þorgrímur bóndi og
mjólkurfræðingur á Erpsstöðum að
aðsóknin hafi verið mjög góð og
mikil sala í bás þeirra. Sömu sögu
höfðu aðstandendur Ljómalindar
og Háafells að segja.
mm/ Ljósm. mm/hb
Umferð um Hvalfjarðargöng
eykst ár frá ári
Umferðin í Hvalfjarðargöngum
hefur aukist álíka mikið undanfar-
in tvö ár eða um 2,7% árið 2014
og 2,5% 2013. Sólarhringsumferð-
in var 5.312 ökutæki í fyrra, sem
svarar til aukningar um nær 150
ökutæki að jafnaði á sólarhring frá
fyrra ári. Tekjur af veggjaldi 2014
námu 1.136 milljónum króna,
sem er aukning um 4,1% frá fyrra
ári. Spölur, sem á og rekur Hval-
fjarðargöng, birti ársuppgjör 2014
í Kauphöll Íslands síðastliðinn
föstudag vegna sextánda fjárhags-
árs félagsins. Hagnaður eftir skatta
nam 445 milljónum króna á rekstr-
arárinu 2014 en var 355 milljónir
króna 2013. Hagnaður eftir skatta
á fjórða ársfjórðungi 2014 nam 56
milljónum króna en var 38 millj-
ónir króna á sama tímabili 2013.
Rekstrarkostnaður án afskrifta var
335 milljónir króna í fyrra en var
329 milljónir króna 2013. Kostn-
aður jókst vegna viðhalds, raf-
magns og launa en lækkaði vegna
trygginga. Fram hefur komið að
innheimta veggjalda muni standa
a.m.k. til ársins 2018, en henni á
að ljúka þegar Spölur hefur greitt
öll lán sem á mannvirkinu hvíla og
mun þá skila göngunum í hendur
íslenska ríkisins.
þá