Skessuhorn - 04.03.2015, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Helgi Gissurarson, fyrrverandi bústjóri á Mið-Fossum í Andakíl í Borgarfirði:
„Allt mitt líf er tilviljanir“
„Ég fæddist í Hafnarfirði en flutti
sjö eða átta ára gamall með foreldr-
um mínum til Ástralíu. Það var í
kreppunni í kjölfar þess þegar síld-
in hvarf um 1968. Við bjuggum í
Perth í Vestur Ástralíu, foreldrar
mínir og við systkinin – þrír strák-
ar, tvær stelpur og mamma ólétt.
Það var ævintýri að koma til Ástr-
alíu. Fjölskyldan talaði enga ensku
og fyrst þurfti að leysa úr því hvar
við ættum að búa. Nokkrir Íslend-
ingar sem bjuggu þarna tóku á móti
okkur og við eignuðumst loks ein-
býlishús. Pabbi var lærður bólstrari
og fékk vinnu við það. Svo fór hann
að vinna hjá Alcoa og var það síð-
an alla tíð.“
Við sitjum í hesthúsinu á Hvann-
eyri. Helgi Gissurarson er að byrja
að rekja sögu sína. Það er frásögnin
af hestastráknum sem lagði upp frá
Ástralíu og endaði í Andakíl.
Hestastrákur í Ástralíu
Sem ungur drengur var Helgi á
góðum aldri til að flytja þvert yfir
hnöttinn. Hann var ekki mikið fyr-
ir skólalærdóm og fyrst var erfitt að
ná tökum á enskunni. „Ég var les-
blindur, en uppgötvaði það ekki fyrr
en löngu síðar þegar ég var orðinn
fullorðinn,“ útskýrir hann.
Helgi fór að vinna um leið og
hann gat. „Ég hékk í hesthúsum
sem krakki nýkominn til Ástralíu.
Það var ágætt því maður gat ekk-
ert talað enskuna þá. En hestarnir
skildu mig. Þetta var í bæ skammt
suður af Perth-borg sem heitir
Armadale. Síðan fór ég þaðan og
yfir í annað hesthús sem var nokk-
uð langt að heiman þar sem við
fjölskyldan bjuggum í Perth. Þar
lærði ég margt, var meðal annars
með smáhesta og hindrunarstökk-
hesta. Þarna var reiðskóli og ég
keppti svolítið í hindrunarstökk-
inu. Svo fór ég þaðan 12 ára gam-
all til að vinna hjá manni sem ég
hafði kynnst sem átti skeiðhesta eða
kerruhesta. Veðreiðar með þeim er
geysilega vinsælt sport í Ástralíu.
Ég lærði þarna að verða þjálfari fyr-
ir kerruhesta og var kerruknapi. Ég
keppti sem sagt í þeirri íþrótt í Ástr-
alíu og vann mínar fyrstu kappreið-
ar. Ég lærði mikið um hesta þarna
úti. Síðar hef ég meðal annars eft-
ir þessa reynslu gert mér grein fyrir
því að hestamennskan er mikið og
heilbrigt forvarnarstarf fyrir alla.
Ekki síst börn og unglinga. Þarna í
þessari hestavinnu var ég eiginlega
þar til ég fór til Íslands.“
Ílentist óvænt á Íslandi
Þáttaskil urðu í lífi Helga þeg-
ar hann varð 18 ára. Ísland kall-
aði. „Árið 1978 bauð frændi minn
mér að koma til Íslands í heimsókn.
Hann var þá að byggja hús austur á
Norðfirði. Ég fékk boðið með að-
eins tveggja daga fyrirvara og dreif
mig af stað án þess að hugsa mig
mikið um. Bróðir minn var líka að
fara til Íslands að hitta konu sem
hann hafði kynnst. Ég hafði eigin-
lega bara búið í hesthúsi í sex ár. Ég
ætlaði að vera á Íslandi í þriggja mán-
aða fríi. Þegar ég kom hingað aftur
var ég búinn að gleyma íslenskunni
og talaði bara ensku. Íslenskan var
þó einhvers staðar í kollinum á mér
frá því í barnæsku og rifjaðist brátt
upp. Ég skildi þó ekki alltaf allt sem
Íslendingar sögðu. Oft fannst mér
það hljóma eins og þeir væru allt-
af að rífast sín á milli þegar þeir töl-
uðu. Skildi ekki orð en heyrði tón-
inn og hljómfallið. Mér fannst þetta
rosalegt ruddamál,“ segir Helgi og
hlær dátt við endurminninguna.
Leiðin lá sem sagt til Norðfjarð-
ar. Þar fékk Helgi strax vinnu. „Ég
var líka pínulítið í hestum en fór
svo á sjóinn á togara. Þar vorum við
hópur af strákum í kringum tvítugt.
Maður þénaði afskaplega vel og því
ekki í myndinni að snúa aftur heim
til Ástralíu. Ég var togarasjómaður í
mörg ár en fór svo yfir á loðnuskip.
Mikið aflaskip sem var Börkur NK.
Svo var ég í Reykjavík á sumrin og
vann þá í hestum bæði þar og í Mos-
fellsbæ. Ég var að temja og járna og
sinna ýmsu öðru. Til dæmis járnaði
ég einsamall sem þótti hálfgerð ný-
lunda þá. Svo fór ég alltaf austur í
uppgripin á loðnunni á veturna.“
Þarna þróuðust mál með þeim
hætti að Helgi ílentist á Íslandi og
hér er hann enn rúmum 30 árum
síðar. „Foreldrar mínir og systk-
ini búa enn í Ástralíu. Tveir bræð-
ur mínir búa þó hér á landi. Pabbi
og mamma fluttu reyndar aftur til
Íslands og voru hér í nokkur ár en
fóru svo út aftur. Þau hafa öll kom-
ið hingað í heimsóknir, systur mínar
eru giftar Íslendingum úti og bróðir
minn ástralskri konu. Þau eru ekkert
á leið aftur til Íslands.“
Vildu í sveit og lentu á
Mið-Fossum
Þar kom þó að Helgi hætti á sjónum.
Hann hafði kynnst Rósu Emilsdótt-
ur. Árið 1994 settust þau að í Mos-
fellsbæ. Með tímanum eignuðust
þau saman tvær dætur, þær Sigrúnu
Rós og Gyðu. „Þarna var uppgripa-
tími og allir virtust vera að flytja á
höfuðborgarsvæðið. Einn daginn
ákváðum við að okkur langaði til að
flytja út í sveit, á sveitabæ. Við synt-
um þannig á móti straumnum. Ég
fór að vinna fyrir fyrirtæki sem heit-
ir Reykjagarður og framleiddi kjúk-
linga. Þeir voru með starfsemi á Ás-
mundarstöðum austur við Hellu og
voru að stækka við sig.“
Hestamaðurinn og sjóarinn Helgi
Gissurarson var þar með kominn í
alifuglabransann. Hann skyldi starfa
þar það sem eftir lifði aldarinnar.
„Ég hafði aðeins verið í tvo mánuði
hjá Reykjagarði þegar Bjarni Ásgeir
Jónsson einn helsti eigandi fyrirtæk-
isins hringdi í mig þar sem ég var
staddur í réttum norður í Skagafirði.
Bjarni sagði mér að hann væri búinn
að kaupa jörð. Mið-Fossa í Andakíl í
Borgarfirði. Hann vildi að ég kæmi
og liti á jörðina með það í huga að
þar yrði sett upp kjúklingabú. Við
komum við þarna á leið suður og
leist mjög vel á. Í framhaldinu fór-
um að undirbúa flutninga að Mið-
Fossum. Þetta var 1998. Ég fór strax
í að gera útihúsin klár fyrir kjúk-
linga.“
Náttúrhamfarir töfðu hins veg-
ar óvænt uppbygginguna á Mið-
Fossum. „Stórir jarðskjálftar með
upptök á Suðurlandi skullu á í júní
árið 2000. Það varð tjón á Ásmund-
arstöðum þar sem búr og fleira
skemmdust. Ég fór þangað til að
bjarga verðmætum. Frekari upp-
bygging á Mið-Fossum var eigin-
lega stöðvuð á meðan.“
Lagaflækjur og
vangaveltur
„Síðan fór þessi atvinnuvegur að
stækka. Móar á Kjalarnesi urðu
mjög umsvifamikill rekstur svo
dæmi sé tekið. Bjarni Ásgeir seldi
loks Reykjagarð. Mið-Fossar höfðu
verið metnir inn í þann pakka, það
er fyrirtækið Reykjagarð. Það má
segja að eignarhaldið á Mið-Fossum
hafi farið svolítið á flakk við þetta og
næstu misseri einkenndust af laga-
þrætum milli þeirra sem töldu sig
eiga Mið-Fossa. Ég varð atvinnulaus
en bjó áfram á Mið-Fossum. Við
komum á fót hestaleigu á Indriða-
stöðum í Skorradal og héldum reið-
námskeið í skemmunni á Mið-Foss-
um. Það þótti nú stór reiðhöll þá.
Ingimar Sveinsson var þá kennari í
hestagreinum á Hvanneyri og nýtti
aðstöðuna á Mið-Fossum. Honum
þótti gott að komast þar inn enda
engin inniaðstaða til hestamennsku
á Hvanneyri. Þarna má segja að
hestaævintýrið á Mið-Fossum hafi
byrjað,“ segir Helgi. Þetta gerðist
þó ekki án þess að menn tækju ýmis
hliðarspor á þeirri vegferð.
Helgi útskýrir áfram: „Það risu
deilur um Mið-Fossa. Bjarni Ásgeir
taldi að jörðin hefði ekki tilheyrt
Reykjagarðsfyrirtækinu og vildi fá
hana aftur. Þetta voru miklar laga-
flækjur. Þarna kom svo Ármann Ár-
mannsson útgerðarmaður til sögu.
Hann átti forkaupsrétt að Mið-
Fossum eftir að hafa keypt hluta af
jörðinni áður en Bjarni Ásgeir og
Reykjagarður keyptu húsin og hinn
hluta jarðarinnar. Ármann nýtti
þennan forkaupsrétt og keypti jörð-
ina. Við Ármann vorum aðeins farn-
ir að kynnast þarna. Hann hringdi í
mig og var þá á leið til Kína að sækja
togarann Helgu RE sem hann hafði
látið smíða þar. Ég hitti hann þrem-
ur mánuðum síðar þegar hann kom
heim úr þeim leiðangri. Þá spurði
Ármann mig um það hvort ég hefði
einhverjar hugmyndir um hvernig
mætti nýta jörðina? Ég hafði auðvi-
tað unnið í kjúklingaræktinni og var
kunnugur hugmyndunum um kjúk-
lingabú á Mið-Fossum. Ég ræddi
þær hugmyndir við Ármann.“
Vildu gera Borgarfjörð að
miðstöð kjúklingaræktar
Úr varð að rykið var dustað af
gömlu hugmyndunum. „Hann fór
í að kosta endurbætur á húsakost-
inum til að kjúklingarnir gætu flutt
inn. Þá var hins vegar skyndilega
sett á reglugerð. Vegna smitvarna
sögðu fyrri reglur að lágmarksfjar-
lægð milli kjúklingabúa skyldi vera
þrír kílómetrar. Á Hvanneyri var út-
ungunarstöð fyrir kjúklinga og vega-
lengdin að Mið-Fossum var lengri
en þetta. Nú var þessum reglum hins
vegar óvænt breytt. Vegalengdin
varð að vera minnst fimm kílómetr-
ar. Mið-Fossar féllu undir þetta. Þar
með féllu áætlanir um kjúklingabú
þar um sjálfar sig.“
Helgi segir að þarna hafi menn
haft uppi mikil plön um að gera
Borgarfjörð að einu helsta kjúklinga-
framleiðslusvæði Íslands. „Bjarni
Ásgeir sá fyrir sér að reisa stórt kjúk-
lingasláturhús og -vinnslu í Borgar-
nesi og flytja starfsemina á Hellu
þangað. Nær höfuðborgarsvæð-
inu og burt af jarðskjálftasvæðinu.
Reykjagarður keypti lóðir þar sem
Landflutningar eru í dag. Síðan yrði
kjúklingaræktun á mörgum bæjum
á Vesturlandi sem framleiddu fyrir
Helgi með gæðingi sínum; fyrstu verðlauna stóðhestinum Biskupi frá Sigmundarstöðum.
Helgi og dætur hans og Rósu Emilsdóttur. Þær eru Sigrún Rós á hægri hönd Helga
og Gyða til vinstri. Myndin er tekin á Hvanneyri þar sem þau halda hesta sína.
Veðhlaupahestar í Ástralíu. Helgi fyrir miðju á þessari mynd þar sem hann situr
verðlaunahryssuna Region Queen sem aflaði eigendum sínum hundruða milljóna
ástralskra dollara í tekjur af veðreiðum.
Helgi á Fjalari frá Hemlu sem hann átti
um margra ára skeið. Þarna eru þeir
félagar staddir á Reykjavíkurtjörn í
ársbyrjun 1997.