Skessuhorn - 04.03.2015, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Fjör á opnum dögum í FVA
Líf og fjör var í Fjölbrautaskóla Vest-
urlands í síðustu viku, þegar skólinn
stóð fyrir hinum árlegu opnu dög-
um. Á opnum dögum stendur nem-
endum til boða að taka þátt í margs
konar námskeiðum, hlusta á fræð-
andi fyrirlestra eða fara í ferðir í
stað hefðbundinnar kennslu. Dag-
skráin var með fjölbreyttu sniði, líkt
og undanfarin ár og stóðu nemend-
ur að auki fyrir nokkrum viðburðum
á kvöldin, svo sem félagsvist, Pub
Quiz og skemmtilegu kaffihúsa-
kvöldi þar sem haldin var Gettu bet-
ur keppni á milli nemenda og kenn-
ara ásamt tónlistaratriðum. Opn-
um dögum lauk svo með árshátíð
nemendafélagsins og balli á Gamla
Kaupfélaginu.
Opnu dagarnir þóttu vel heppn-
aðir í ár þrátt fyrir að ýmsir við-
burðir hafi fallið niður vegna veð-
urs á miðvikudeginum, þar á meðal
nokkrar ferðir og námskeið þar sem
leiðbeinendur komust ekki á Akra-
nes. En nóg var um að vera þrátt
fyrir það. Efnt var til keilumóts, fót-
boltamóts, badmintonmóts og pútt-
móts, haldið hnefaleikanámskeið,
nemendur lærðu brauðbakstur,
zumba, hot yoga og fengu kennslu
í táknmáli svo eitt sé nefnt. Þá hélt
Vilhjálmur Birgisson erindi um rétt-
indi og skyldur á vinnumarkaði fyr-
ir nemendur. Í ár var var stærsti fyr-
irlesturinn „Ber það sem eftir er“
þar sem Þórdís Elva Þorvaldsdótt-
ir fjallaði um netnotkun, hefndark-
lám og „sexting“. Auk þess var með-
al annars haldin kennsla í origami,
kassaklifri og sigi, förðun, skraut-
skrift, brjóstsykurgerð, rússnesku og
pizzugerð. Opnum dögum lauk síð-
an með árshátíð nemendafélags skól-
ans á fimmtudagskvöldinu og fengu
nemendur árshátíðarfrí á föstudeg-
inum. Meðfylgjandi eru nokkrar
myndir sem Linda Dröfn Jóhannes-
dóttir kennari við FVA tók á opnum
dögum.
grþ
Ungur skurðlæknir úr Borgarnesi nýfluttur heim frá Svíþjóð
Um nokkurt skeið hafa það þótt tíð-
indi ef læknar flytja aftur heim til Ís-
lands eftir vinnu og nám erlendis,
alltjent var það þannig fyrir lækna-
verkfall og nýgerða samninga við
lækna. Á dögunum hóf störf á hand-
lækningadeild Heilbrigðisstofnun-
ar Vesturlands á Akranesi Árni Þór
Arnarson, en hann er nýfluttur heim
frá Svíþjóð. Árni Þór hefur ákveðið
að búa í Borgarnesi en þar ólst hann
upp frá þriggja ára aldri. Árni lauk
kandídatsnámi frá Landsspítala Há-
skólasjúkrahúsi árið 2007 og starfaði
í tæp þrjú ár á LSH áður en hann hélt
til sérfræðináms í skurðlækningum
til Svíþjóðar. Þar hafði hann starf-
að í fjögur ár á sjúkrahúsi í Kristi-
anstad í Suður-Svíþjóð þegar hann
ákvað að flytja aftur heim. Spurður
hvort nýgerðir kjarasamningar við
lækna hafi haft þar áhrif, svarar Árni
Þór að svo hafi ekki verið. Hann
hafi áður verið búinn að ákveða að
koma heim og ýmsar ástæður legið
fyrir þeirri ákvörðun. Þó ekki sú að
álagið á sjúkrahúsinu í Kristianstad,
sem er svipaðrar stærðar og LSH, sé
líklega öllu meira en á sjúkrahúsinu
á Akranesi. „Hérna á sjúkrahúsinu
fékk ég mjög góðar móttökur þeg-
ar ég kom. Ég mætti mikilli hlýju og
hér skynja ég mjög gott andrúms-
loft. Ég held að fólki líði vel á þess-
um vinnustað,“ sagði Árni Þór þeg-
ar blaðamaður Skessuhorns spjallaði
við hann á dögunum.
Mikill landsbyggðar-
maður
Í spjallinu við Árna Þór kom fram
að hann er mikill landsbyggðarmað-
ur og það sé meðal annars ástæðan
fyrir því að hann sóttist frekar eft-
ir stöðu á Akranesi en á Landsspít-
alanum. „Á námsárunum leysti ég
meðal annars af eitt sumar í Búðar-
dal og var þá líka með móttöku fyrir
sjúklinga á Reykhólum. Það var gott
sumar og ég þroskaðist líka heilmik-
ið á því að þurfa að treysta á sjálf-
an mig,“ segir Árni Þór. Spurður
um ástæður þess að hann ákvað að
flytja heim aftur, sagði hann að þær
væru ýmsar, þó aðallega persónu-
legar. „Börnin mín tvö eru hérna á
Akranesi og mig langaði að vera ná-
lægt þeim. Síðan kom það á daginn
að ég er svo mikill Íslendingur að ég
sá ekki að ég myndi aðlagast sænsku
samfélagi. Það var alltaf þessi sam-
anburður við það sem er hérna á Ís-
landi. Ég held að meðan svo er þá
er maður ennþá Íslendingur. Þeg-
ar samanburðinum sleppir og fólk
jafnvel hættir að fylgjast með frétt-
um hérna heima þá er lítið eftir af
ættjarðarástinni. Ég er líka mik-
ill útivistar- og veiðimaður og fann
mig ekki í því í Kristianstad.“
Bjóst ekki við að flytja í
Borgarnes aftur
Árni Þór er sonur tannlækna-
hjónanna í Borgarnesi; Arnar Jóns-
sonar og Önnu G Ricther. Hann
kom með þeim þriggja ára gamall
í Borgarnes. „Ef einhver hefði sagt
við mig fyrir 15 árum að ég ætti
aftur eftir að flytja í Borgarnes þá
hefði ég ekki trúað því. Ég hafði
engar sérstakar taugar til staðarins
þegar ég var að alast þar upp, fannst
Borgarnes þá mikið frænda- og
frænkusamfélag. Kannski var það
vanþroski hjá mér að hugsa þann-
ig. Það var mjög gaman að flytja
þangað núna og hitta fólk sem ég
hafði ekki séð lengi. Það er tekið
vel og fagnandi á móti mér og ég
efast ekkert um að það verður gott
að búa í Borgarnesi,“ segir Árni
Þór sem er í sambúð með unnustu
sinni Hildi Aðalbjörgu Ingadóttur
sjúkraþjálfara í Borgarnesi. „Ég var
eiginlega lítið í Borgarnesi eftir að
ég fór í Menntaskólann á Akureyri.
Kom þó heim á sumrin og vann í
Loftorku hjá feðgunum Konráði og
Andrési. Núna er ég aftur að rifja
upp gömlu kynni af Borgarnesi og
Borgfirðingum.“
Hér er algjör
paradís í útivist
Árni Þór segist ekki hafa kunnað
nógu vel við sig í Kristianstad og
ekki upplifað það frjálsræði sem
hann hafði kynnst áður. „Þarna er
þéttbýlt og flatt og langt út í óspillta
og villta náttúru ólíkt því sem er
hérna á Íslandi. Ég er mikill sport-
veiðimaður, bæði í stangveiði og
skotveiði. Ég lærði að veiða geddu
þarna við ströndina en var ráðlagt
að borða hana ekki. Það er mik-
il mengun í sjónum þarna og hún
kemur meðal annars frá Rússlandi.
Þegar ég sagði Svíunum að á Íslandi
drykki ég vatn úr næsta læk þá áttu
þeir erfitt með að trúa því. Það er
náttúrlega algjör paradís að stunda
útivist og sportmennsku hérna á Ís-
landi og ekki síst í Borgarfirðinum.
Eitt af því sem ég hlakka mikið til
að gera er að skreppa í veiði í ein-
hverja skemmtilega veiðiá. Ég er
ekkert síður fyrir silungsveiðina en
laxveiðina. Það er munur að hérna
tekur það ekki nema örfáar mínút-
ur að komast út í náttúruna og hér
er loftið hreint og tært,“ segir Árni
Þór Arnarson.
þá
Árni Þór Arnarson skurðlæknir er nýfluttur heim frá Svíþjóð og starfar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi.
Nemendur lærðu meðal annars að baka brauð og pizzur. Hér er
verið að gera brauðið klárt.
Ýmis íþróttamót voru haldin í tilefni opinna daga og haldið var
námskeið í hnefaleikum. Heklaðar dúllur.
Það var kaldur dagur þegar farið var í gönguferð meðfram ströndinni. Til stóð að farið yrði í fjallgöngu á Akrafjall en ferðinni
var breytt vegna veðurs.
Það var öllu hlýrra á Hot yoga námskeiðinu en í gönguferðinni. Keilumótið þótti vel heppnað og skemmtilegt.