Skessuhorn - 04.03.2015, Page 19
19MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
„Græðum á því hvað
fáir staðir eru opnir“
-segir Benjamín Frost
á RúBen í Grundarfirði
Þeir eru ekki margir veitingastað-
irnir sem opnir eru daglega frá
morgni og fram undir miðnætt-
ið á Vesturlandi. Einn slíkan er
þó hægt að finna í Grundarfirði.
Það er RúBen. Þar hafa ráðið ríkj-
um frá vorinu 2013 þau Benjamín
Frost og Heiðrún Hallgrímsdótt-
ir. Benjamín er frá Cornwall á suð-
vesturströnd Englands. Hann kom
til Íslands vorið 2006 og hefur búið
í Grundarfirði síðustu sjö árin, var
reyndar eitt ár í Stykkishólmi áður
en hann kom til Grundarfjarð-
ar. Blaðamaður Skessuhorns hitti
Benjamín á dögunum í BúBen.
„Það var dauft hjá okkur í desemb-
er og janúar en strax og kom fram í
febrúar fór að lifna og nú er ferða-
mönnunum bara að fjölga. Það
er mun meira um gesti hjá okkur
núna en var síðasta vetur. Þó það
hafi verið minna um hvali núna þá
er fólk þó að koma og vonast til að
sjá þá. Það er að koma hingað fólk
sem vill sjá norðurljósin og svo
ljósmyndarar og alls kyns ferða-
menn. Við erum að græða á því
hvað fáir staðir eru opnir á Snæ-
fellsnesi,“ segir Benjamín.
Góður fiskur og kjöt-
meti á Íslandi
Aðspurður segir Benjamín að hann
hafi komið hingað á sínum tíma í
gegnum vin sinn Philip Harris-
son sem starfrækti Eddu hótel-
ið á Núpi við Dýrafjörð. „Honum
vantaði matreiðslumann og hafði
samband við mig. Mér fannst bara
fínt að koma hingað og um haust-
ið fór ég svo til Reykjavíkur og
fór að vinna hjá Te & kaffi. Þaðan
lá svo leið mín í Stykkishólm þar
sem ég var að vinna við skipamál-
un hjá Skipavík í eitt ár. Það var
ekkert slæm vinna en ég vildi samt
vinna við það sem ég var lærð-
ur til. Þegar ég fékk vinnu á Hót-
el Framnesi hérna í Grundarfirði
ákvað ég að flytja hingað. Það var
ágætt að vinna á hótelinu og síðan
spennandi að taka við hérna með
Heiðrúnu. Þá var ég búinn að vera
í fimm ár hjá Gísla í Framnesi og
ágætt að breyta til,“ segir Benja-
mín.
– En hvernig finnst honum að
matreiða hérna á Íslandi í saman-
burði við til dæmis England. „Það
er ekki mikið eða fjölbreytt græn-
meti hérna á Íslandi en mjög góður
fiskur og mjög gott lamb. Hrossa-
kjötið er líka mjög gott. Það er fínt
að útbúa úr því file og piparsteik.
Ég matreiði úr hrossakjöti bara
eins og nautakjöti.“
Ekki svo mikil viðbrigði
Benjamín segir að það hafi ekki
verið svo mikil viðbrigði að koma
til Íslands. „Ég er úr sveit. For-
eldrar mínir eru með kindur, lama-
dýr og endur,“ segir hann. Kærast-
an hans Silja Guðnadóttir tekur
undir að það sé ekki mikill munur
þarna á. Þau ætla einmitt að heim-
sækja sitt fólk í Cornwall núna í
marsmánuði. „Heima þá ólst ég
upp við að vera á brimbrettum,
þar eru mjög góðar aðstæður fyrir
svoleiðis sport. Ég hef ekki fund-
ið aðstöðu fyrir það hérna ennþá,
það er kannski mesti munur-
inn á Cornwall og Grundarfirði.
En ég hef farið á snjóbretti á Ís-
landi, á hestbak og svo er ég byrj-
aður í stangveiði,“ segir Benjamín.
Silja kærastan hans sem vinnur
með honum á RúBen tekur und-
ir það með Benjamín að hann uni
sér vel og segir að honum hafi far-
ið sérstaklega mikið fram í íslensk-
unni eftir að hann kom í Grundar-
fjörð. Silja er með honum í veiði-
sportinu. Þau hafa verið að veiða
í Lárósi sem er við vatn skammt
frá Kvíabryggju og einnig hafa
þau verið að veiða í Hraunsfirð-
inum. „Við leitum að veiðisvæð-
um hérna í nágrenninu sem stutt
er að sækja í,“ segir Silja. Spurð-
ur hvort að annars sé ekki nóg að
gera yfir veturinn í þeim hléum
sem ferðamaðurinn sýnir sig lítið
segir Benjamín. „Þetta hefur verið
að aukast og ferðatíminn að lengj-
ast. Svo erum við með dansleiki,
tónleika og pub quiz. Síðan koma
heimamenn líka að horfa á fótbolt-
ann. Það er aldrei minna en ein-
hver slæðingur hjá okkur,“ sagði
Benjamín að endingu.
þá
Benjamín Frost í RúBen ásamt kærustunni, Silju Guðnadóttur.
Fyrirlesturinn stendur
öllum opinn.
Fyrirlestur
Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis auglýsir
fyrirlestur með Arndísi Höllu Jóhannesdóttur í
Endurhæfingarhúsinu Hver, Suðurgötu 57 (Gamla
Landsbankanum) 3. hæð 11. mars n.k. kl. 15:00.
WEST ICELAND
Travel
Ferðast um Vesturland 2015
Your guide to
West Iceland
Útgáfuþjónusta Skessuhorns
Auglýsingapantanir þurfa að berast fyrir 15. mars á netfangið
emilia@skessuhorn.is eða í síma 433-5500.
Um ritstjórn efnis sér Magnús Magnússon magnus@skessuhorn.is og
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is blaðamaður í síma 433-5500.
Blaðið er gefið út í 45.000 eintökum og dreift
víðsvegar um Vesturland, á höfuðborgar-
svæðinu og aðkomuleiðum í landshlutann.
Sem fyrr er blaðið í A5 broti og allt litprentað.