Skessuhorn - 04.03.2015, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að
leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/
in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan
15 á mánudögum. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu-
pósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (at-
hugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstu-
degi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum
og fær vinningshafinn bókagjöf frá Skessuhorni.
52 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnarorðin voru: „Sá er sæll er góðs biður.“
Vinningshafi er: Gréta Sigrún Gunnarsdóttir, Tinda-
flöt 1 á Akranesi. mm
Upp-
stytta
Vigtaði
Kjáni
Skapa
Ískraði
Tók
Vein
Kúst
Blóm
Svalir
Sytra
Hrúga
Bók
Þreyta
Ögn
Rusl
Átt
Dá
Hnoðaði
Eins
um Ð
Átt
Svar-
dagi
Olát-
ungur-
inn
12 15 3
Ábreiða
Skaði
Blaðra
9 Heim-
ilisfang
Rjóð
Samið
Rask
Tuð
Leðja
Bóla
Kona
Ólátast
Neista
2
Grasey
Viðsk.
Sigla
18 6
Reisn
Berg-
málar
Hör
Lag
16
Hljóma
Stríðni
Athygli
Pípa
Kram
Flýtir
7 Bardagi
Loka
Harð-
æti
Í kirkju
Konu
Sæng
Sk.st.
Utanum
Sérstök
Alda
Kven-
fugl
Sterkur
1
Hryggur
Rugl
Sterkja
Tölur
Pallur
Sak-
lausa
Mjöð
Aldinn
Sam-
heldni
13
Tréílát
Eign
Önd
Rot
Lita
Hrærð
Bjór
19 Kusk
Drjóla
4
Skran
Tónn
11 Ofn
Tíndi
Karl
Iðka
Öldu-
gjálfur
Angan
Þrjótur
Fugl
17 10
Frá
Væl
Not
Undrar
Óskar
Áhöld
Skák
5 8 14
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
Vetrarstilla í Hólminum
Eins og Vestlendingar þekkja hef-
ur tíðin verið með eindæmum rysj-
ótt í vetur. Sífelldir umhleyping-
ar fá okkur því til að kíkja út strax
þegar um hægist eins og þegar þessi
mynd var tekin um helgina í Stykk-
ishólmi. Allt verður einhvern veg-
inn fallegra, svo ekki sé talað um
þegar jafnvel sólin heiðrar okkur
með ásýnd sinni. Myndina tók Ey-
þór Benediktsson.
mm
Sokkarnir frá Trico þykja með þeim slitsterkustu og bestu
Á Akranesi hefur verið starf-
andi sokkaverksmiðja allt frá árinu
1952. Það er verksmiðjan Trico
sem frá þeim tíma hefur verið leið-
andi í textí liðnaði á Íslandi. Marsi-
bil Sigurðardóttir er framkvæmda-
stjóri Trico en hún kom til starfa í
verksmiðjunni árið 1992 þegar hún
gerðist einn hluthafa. Um árabil
hefur hún verið aðaleigandi og ver-
ið í forsvari fyrir fyrirtækið. Hún
segir að síðustu árin hafi starfsem-
in snúist nær eingöngu um að fram-
leiða sokka en á árum áður var einn-
ig framleiddur hitaþolinn undir-
fatnaður fyrir stóriðjur. Hitaþolnu
sokkarnir eru framleiddir áfram og
er stór hluti af framleiðslunni. Þeir
eru framleiddir fyrir öll stóriðjuver-
in í landinu og einnig seldir til iðju-
vera í Bretlandi og Þýskalandi. Þá
eru öryggissokkarnir einnig fram-
leiddir fyrir Landhelgisgæsluna
og mörg slökkvilið í landinu. „Svo
erum við með aðra sérhæfða fram-
leiðslu sem er drjúgur þáttur í okk-
ar framleiðslu. Það eru sokkar fyr-
ir stoðtækjafyrirtækið Össur undir
gervifætur og einnig hnéhlífar. Þessi
þjónusta við Össur hafi verið um-
talsverð,“ segir Marsibil.
Almenni markaðurinn
orðinn erfiðari
Sóknarfærin í sokkaframleiðslunni
segir Marsibil að felist í iðnaðar-
sokkunum og sérhæfðu framleiðsl-
unni. „Við höfum reynt að mark-
aðssetja okkur þar, enda sjáum við
ekki fram á að salan muni aukast á
almenna markaðinum. Það er erfitt
að keppa við ódýra fjöldaframleiðslu
frá Kína en það eru náttúrlega allt
öðruvísi framleiðsla en okkar. Sokk-
arnir frá okkur þykja mjög slitsterk-
ir og endingargóðir,“ segir Marsibil.
Hún segir að sokkaframleiðsla á al-
mennan markað sé þó talsverð hjá
Trico en Marsibil viðurkennir að
sá markaður hafi orðið erfiðari með
hverju árinu. „Það sem gerir okkur
erfitt fyrir er að það er svo fáar búð-
ir sem við getum komið sokkunum
í sölu. Stórmarkaðirnir eru lokaðir,
við komum ekki vöru þar inn, þann-
ig að við fáum ekki einu sinni þar
Sokkaframleiðsla á sér yfir hálfrar aldar sögu á Akranesi
að keppa við innflutninginn. Þá eru
ekki margar verslanir eftir fyrir okk-
ur en við eigum við þó mjög góða
kúnna í þeim verslunum sem við
sendum vöruna til. Til dæmis hef-
ur Einarsbúð hér á Akranesi keypt
af okkur sokka alla tíð og þeir selj-
ast mjög vel þar. Svo er Fjarðarkaup
í Hafnarfirði stór viðskiptavinur,
Hlíðarkaup á Sauðárkróki og reynd-
ar fleiri verslanir úti á landi. Síðan
höfum við verið svolítið í sérfram-
leiðslu eins og á íþróttasokkum og
einnig sérmerktum íþróttasokkum
sem notaðir eru til fjáröflunar fyrir
íþróttafélög. Við höfum þar verið að
framleiða fyrir ÍA og nokkur önn-
ur félög, þar á meðal stærri íþrótta-
félögin í landinu.“
Samstarf við hönnuði
Marsibil segir að Trico sé að vinna
að ýmsum öðrum verkefnum svo
sem í samstarfi við hönnuði. Það séu
framleiddir sokkar fyrir ferðamann-
inn, lundasokkar og vitasokkar, og
alltaf talsverð gerjun í gangi. Þá
komi oft útskriftarnemar úr Verslun-
arskólanum sem eru í frumkvöðla-
starfi með óskir um sérframleiðslu.
„Það er mjög gaman að starfa með
þessu unga fólki. Við höfum alltaf
lagt áherslu á að vera með gott efni
í sokkunum og fáum það frá Þýska-
landi, Frakklandi og Sviss. Ég hef
ekki farið út í að kaupa hráefni frá
ódýrari löndum því ég vil bara vera
með fyrsta flokks hráefni sem auð-
vitað er þá líka dýrt.” Aðspurð seg-
ir Marsibil að vissulega hafi markað-
urinn dregist saman síðustu árin og
það sé meira á brattann að sækja en
áður. „Við erum þó langt í frá af baki
dottinn og þetta er mjög skemmti-
legt að standa í þessu, annars væri ég
sjálfsagt hætt fyrir þó nokkru, enda
búin að standa í þessu lengi.“
Marsibil segir að þegar mest var
hafi átta stafsmenn verið hjá Trico
en núna séu það fjögur og hálft
stöðugildi. Hún segir Trico líklega
einu verksmiðjuna í landinu sem
enn er í hefðbundinni sokkafram-
leiðslu, en tvær aðrar sokkaverk-
smiðjur eru í landinu á Akureyri og í
Vík í Mýrdal. „Hér nýtist allt,” segir
hún og bendir á lykkjur sem klipp-
ast af sokkunum. „Þetta fer í föndr-
ið á dvalarheimilum aldraðra, bæði
hér á Akranesi og í Borgarnesi. Svo
fer talsvert af afgöngum frá okkur til
fatlaðra og leikskólarnir fá keilurn-
ar sem garnið kemur á. Það verður
því ekki til mikið af rusli við þessa
framleiðslu,” segir Marsibil Sigurð-
ardóttir framkvæmdastjóri Trico á
Akranesi. þá
Marsibil Sigurðardóttir aðaleigandi og framkvæmdastjóri Trico við saumaskap. Sigurður Sigurðsson við vélasamstæðuna sem prjónar sokkana.
Lundasokkar og vitasokkar sem framleiddir eru fyrir ferðamanninn.