Skessuhorn - 04.03.2015, Page 21
21MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Stjórnarkjör 2015
Samkvæmt lögum Stéttarfélags Vesturlands ber að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
um kjör stjórnar. Þetta ár ber að kjósa í stjórn sem hér segir:
Til 2ja ára: formann, ritara og 1. meðstjórnanda.
Framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vesturlands árið 2015, ásamt meðmælum
a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna, ber að skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands,
Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2a, merkt formanni kjörstjórnar, Guðrúnu Helgu Andrésdóttur,
fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 17. mars 2015.
Hvert það framboð er gilt sem fram kemur innan þess tíma og hefur skriflegt samþykki
þeirra sem framboðslistann skipa.
Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að leggja fram eftirfarandi lista
vegna stjórnarkjörs 2015. Komi ekki fram fleiri listar teljast þeir sem trúnaðarráð
hefur gert tillögu um sjálfkjörnir:
Formaður: Signý Jóhannesdóttir, Kvíaholti 3, 310 Borgarnes, til 2ja ára
Ritari: Baldur Jónsson, Borgarbraut 37, 310 Borgarnes, til 2ja ára
1. meðstj.: Jónína Heiðarsdóttir, Múlakoti, 311 Borgarnes, til 2ja ára
Borgarnesi, 25. febrúar 2015
Kjörstjórn Stéttarfélags Vesturlands S
K
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Stéttarfélag Vesturlands
auglýsir eftir skrifstofustjóra
Stéttarfélag Vesturlands óskar að ráða skrifstofustjóra í
tímabundið starf, allt að 14 mánuðum. Viðkomandi þarf
að geta hafið störf ekki seinna en 1. júní nk. Aðalstöðvar
félagsins eru í Borgarnesi en starfsstöðvar í Búðardal og á
Innrimel í Hvalfjarðarsveit.
Skrifstofustjóri skal meðal annars hafa umsjón með:
fjármálum, innheimtu, bókhaldi, þjónustu félagsins, tölvu-
og upplýsingakerfum, upplýsinga- og samskiptamálum við
erlenda starfsmenn á félagssvæðinu og samskipti félagsins
sem þarfnast tungumálakunnáttu. Einnig annast með formanni
túlkun kjarasamninga, útgáfumál, heimasíðuskrif, fræðslumál,
rekstur starfsstöðva félagsins og annað er varðar starfsemi
stéttarfélagsins.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun eða önnur góð undirstöðumenntun, •
sem nýtist í starfi.
Tungumálakunnátta: enska/eitt norðurlandamál.•
Reynsla á sviði stjórnunar, reksturs og bókhalds æskileg.•
Kunnátta og reynsla í notkun hefðbundinna •
upplýsingakerfa.
Frumkvæði, sjálfstæði og leikni í framsetningu rit- og •
talmáls.
Færni í samskiptum og samvinnu.•
Áhugi á starfsemi stéttarfélaga og hag félagsmanna •
þeirra.
Allar nánari upplýsingar veita Signý Jóhannesdóttir, formaður
Stéttarfélags Vesturlands, símar: 430 0432 eða 894 9804,
netfang: signy@stettvest.is og Sjöfn Elísa Albertsdóttir
skrifstofustjóri, símar 430 0432 eða 860 2660, netfang:
sjofn@stettvest.is .
Umsóknum sem greina menntun, starfsreynslu og hæfni
skal skila í síðasta lagi 24. mars 2015 til skrifstofu
Stéttarfélags Vesturlands, Sæunnargötu 2 a,
310 Borgarnesi.
SK
E
SS
U
H
O
R
N
2
01
5
Íþróttahúsið við Vesturgötu
Körfuknattleiksfélag Akraness
1. deild karla
Fimmtudaginn 5. mars kl. 19:15
ÍA - Hamar
Sunnudaginn 8. mars kl. 16:00
ÍA - KFÍ
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!
Lúkas kominn í Borgarnes
Fyrir rétt rúmu ári hófu Sigurð-
ur Már Sigmarsson neyðarflutn-
ingamaður hjá sjúkraflutningun-
um á Akranesi og Guðjón Hólm
Gunnarsson aðstoðarvarðstjóri hjá
Neyðarlínunni söfnun fyrir sjálf-
virku hjartahnoðbretti til að hafa í
sjúkrabílum Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands. Skemmst er frá því að
segja að söfnun þeirra félaga gekk
vel og fékk glimrandi viðtökur.
Þannig eru því hjartahnoðbretti
komin í sjúkrabíla víða á Vestur-
landi. En nú var röðin komin að
Borgarnesi. Haukur Valsson, fé-
lagi í Rótarýklúbbi Borgarness og
sjúkraflutningamaður hjá HVE í
Borgarnesi, hafði frumkvæði að því
að leita til félaga sinna í Rótarý-
klúbbi Borgarness og lagði til við
þá að hafist yrði handa við söfnun
fyrir hjartahnoðbretti til að hafa
í sjúkrabílum HVE í Borgarnesi.
Tóku Rótarýmenn vel í þá tillögu
og frá desemberbyrjun hefur tek-
ist að safna 2,7 milljónum króna til
tækjakaupanna. Endurlífgunar- og
hjartahnoðbrettið Lúkas var afhent
á Rótarýdeginum í Hjálmakletti
í Borgarnesi á laugardaginn. Það
var Daníel Ingi Haraldsson forseti
Rótarýklúbbs Borgarness sem af-
henti Ásgeiri Sæmundssyni sjúkra-
flutningamanni HVE hjartahnoð-
brettið. Ásgeir þakkaði fyrir hönd
þeirra sem starfa á sjúkrabílunum,
Rótarýmönnum og öðrum þeim
sem komu að söfnuninni, kærlega
fyrir hina góðu gjöf.
Lúkas er alsjálfvirkt endurlífg-
unar- og hjartahnoðtæki sem er í
raun bretti sem er brugðið und-
ir sjúkling og svo tæki smellt ofan
á. Tækið stillir sig svo af og beitir
hjartahnoði með réttum þrýstingi í
eins langan tíma og með þarf. Oft
þarf að beita hjartahnoði í langan
tíma og þreytir það bráðaliða mjög
enda þarf mikið átak eigi hnoðið
að koma að gagni. Lúkas hjarta-
hnoðbrettin hafa reynst mikil bú-
bót fyrir sjúkraflutningamenn í
öðrum bæjarfélögum á Vestur-
landi og er að sögn Ásgeirs alger
bylting í þeirra starfi. Með því að
notast við hjartahnoðbrettin þarf
ekki að hætta hnoði á meðan sjúk-
lingur er fluttur á milli staða, inn
og út úr sjúkrabílnum. Sömuleið-
is geti bráðaliðar haldið áfram
öðrum lífgunartilraunum á borð
við öndunaraðstoð eða lyfjagjöf.
Ásgeir segir að tækið sé lipurt og
nett og þar sem pláss sé af skorn-
um skammti í sjúkrabifreiðum þá
sé gott að þurfa ekki lengur að hafa
mann standandi við sjúkrabörurn-
ar að beita hjartahnoði. Hægt sé að
hafa Lúkas tengdan við rafmagn í
bílahleðslutæki, eða notast við raf-
hlöðu. Rótarýklúbbur Borgarness
keypti einnig auka rafhlöðu svo að
Lúkas kemur að miklu gagni í jafn
víðfeðmu sveitarfélagi og Borgar-
byggð. Nú eru sjö slík tæki kom-
in í notkun í sjúkrabílum á Vest-
urlandi og söfnun í Grundarfirði
gengur með ágætum. eha
Lúkas hjartahnoðbrettinu er smellt utan um sjúklinginn og svo stillir tækið sig
sjálfvirkt af áður en það byrjar hnoðun.
Sigurður Már Sigmarsson, Pétur Guðmundsson, Ásgeir Sæmundsson, Haukur Valsson, Unnsteinn Þorsteinsson, Þorgerður
Erla Bjarnadóttir og Daníel Ingi Haraldsson þegar hjartahnoðtækið í Borgarnesi var afhent.