Skessuhorn - 04.03.2015, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Landið er og verður
103.000 ferkílómetrar
Í fjölmiðlum und-
anfarna daga hef-
ur mikið verið rætt
um nýjar mæling-
ar á flatarmáli og
strandlínu Íslands.
„Því miður hef-
ur umfjöllunin ein-
kennst af nokkr-
um rangfærslum og misskilningi
sem rétt er að leiðrétta. Fyrir það
fyrsta þá hefur því verið haldið fram
að samkvæmt upplýsingum Land-
mælinga Íslands sé flatarmál lands-
ins 103.000 km2. Sú tala er ein-
ungis námundun á flatarmáli lands-
ins og það flatarmál sem notað hef-
ur verið í kennslubókum og tölfræði
um áratuga skeið,“ segir Magn-
ús Guðmundsson forstjóri Land-
mælinga Íslands. Hann segir að öll
gögn LMÍ séu aðgengileg og ókeyp-
is á vef stofnunarinnar. Strandlína
IS 50V gagnagrunns stofnunarinn-
ar hefur verið notuð af fyrirtækinu
Loftmyndum ehf. til að sýna fram
á misræmi við loftmyndir/strandl-
ínu fyrirtækisins. „Með því að skoða
þau sömu gögn þ.e. IS 50V, er á ein-
faldan hátt hægt að sjá að flatarmál
Íslands er 102.592 km2 og hefur
landið því stækkað samkvæmt nýj-
ustu tölum Loftmynda ehf. en ekki
minnkað eins og haldið hefur verið
fram í fjölmiðlum undanfarið.“
Uppruni strandlínu Landmælinga
Íslands í gagnagrunninum IS 50V
er af gervitunglamyndum frá árinu
2002 og síðar og miðast strandlínan
við hæstu sjávarstöðu. Það gæti út-
skýrt mun á flatarmáli þeirra gagna
og annarra gagna. „Órökstuddar
fullyrðingar um að strandlína Land-
mælinga Íslands byggi á misgömlum
og ónákvæmum gögnum á því ekki
við rök að styðjast.
Það er hins veg-
ar ágætt að benda
á að nauðsynlegt
er að tilgreina við
hvað mælingar á
strandlínu er mið-
að, svo sem hæstu
sjávarstöðu, með-
alsjávarhæð eða stórstraumsfjöru.
Það er a.m.k. ljóst að ekki er nóg að
miða hana við stöðu sjávar eins og
hún er á loftmynd hverju sinni.“
Samkvæmt þeim gervitungla-
gögnum sem Landmælingar Ís-
lands hafa notað er strandlína Ís-
lands um 6.087 km löng, á algeng-
asta ferðakorti af Íslandi er lengd-
in um 5.344 km og samkvæmt nýj-
um gögnum Loftmynda ehf. er þá
lengdin 6.542,4 km. Öllum ætti þó
að vera ljóst að lengd strandlínu er í
raun háð aðferðinni við mælinguna
og mælikvarðanum. Tæki einhver
sig t.d. til og færi með málband eft-
ir strandlínunni í kringum hvern
stein sem liggur í flæðamálinu væri
strandlínan miklu lengri. Kortagerð
er alltaf einföldun á raunveruleikan-
um sem byggir á mismunandi gögn-
um og vinnuaðferðum og gæti rétt
lengd strandlínu því alveg eins ver-
ið 1.000 km, 10.000 km eða 20.000
km.
„Óskandi væri að að umræða um
landupplýsingar og kortagerð á Ís-
landi byggi á faglegri forsendum en
svo, að stöðugt sé verið að slá upp
tölum um nýjar hæðir fjalla eða
stækkun/minnkun lands þegar ljóst
er að í síbreytilegri náttúru Íslands
er enginn einn sannleikur og eng-
in ein rétt mæling,“ segir Magnús
Guðmundsson.
mm
Metnaðarfull leiksýning Grundaskóla
Síðastliðinn laugardag frumsýndi
Grundaskóli á Akranesi leikritið
Úlfur Úlfur fyrir fullum sal í Bíó-
höllinni. Það er greinilegt að allir
hafa lagt hart að sér sem komu að
þessari sýningu. Útkoman er væg-
ast sagt glæsileg. Verkið fjallar um
ævintýrapersónur á bókasafni sem
eru orðnar heldur þreyttar á slæmu
ástandi. Engin bók er lánuð út og
gestir ganga framhjá safninu án
þess að gefa því gaum eða líta þar
inn. Þá kemur til sögunar ný ævin-
týrapersóna, Elsa, sem frískar upp
á safnið. Sviðsmyndin er glæsileg
og greinilega mikið af hæfileikarík-
um nemendum í skólanum.
Það eru þeir Gunnar Sturla Her-
varsson og Einar Viðarson sem fara
með leikstjórn. Þeir eru einnig höf-
undar verksins ásamt Flosa Einars-
syni, tónlistarstjóra. Sandra Óm-
arsdóttir er danshöfundur og bún-
ingahönnuður er Eygló Gunnars-
dóttir.
Sýningin er fyrir alla aldurshópa
og verður sýnd þar til sunnudaginn
8. mars. Þetta er verk sem enginn
ætti að láta fram hjá sér fara.
eo/ Ljósm. Gunnar Viðarsson.
Nemendur ánægðir með frumsýninguna.
Höfundar verksins þeir Einar Viðars-
son, Gunnar Sturla Hervarsson og Flosi
Einarsson.
Félagarnir Úlfurinn og Gosi.
Nemendaferð hóps úr Borgarnesi til Finnlands
Grunnskólinn í Borgarnesi tek-
ur þátt í Erasmus+ verkefni sem er
hluti af evrópsku menntaáætlun-
inni. Verkefnið heitir „Water aro-
und us“ og fjallar um vatn í víð-
um skilningi. Löndin sem taka þátt
í þessu verkefni með okkur eru
Portúgal, Spánn, Finnland, Lett-
land og Þýskaland.
Við vorum valin til að fara til
Finnlands og taka þátt í vinnu með
krökkum frá samstarfslöndunum.
Með okkur fóru kennararnir Helga
Stefanía Magnúsdóttir, sem stýrir
verkefninu, og Inga Margrét Skúla-
dóttir. Við vorum í Finnlandi dag-
ana 8. – 14. febrúar. Við gistum í
heimahúsum, öll hjá okkar „eig-
in“ fjölskyldum. Við lögðum af stað
klukkan 3:30 frá Borgarnesi þann 8.
febrúar. Fyrst lá leið okkar til Osló
svo þaðan til Helsinki. Svo fórum
við með lest þaðan til Lappeenr-
anta þar sem við hittum fjölskyld-
urnar „okkar“. Þetta ferðalag tók
allt í allt um 19 klukkutíma.
Lappeenranta er með stærri
borgum í Finnlandi og liggur ná-
lægt rússnesku landamærunum. Í
borginni er mikill trjáiðnaður svo
og verslun og þjónusta. Verslun
hefur minnkað undanfarið vegna
slæms gengis rúblunnar í Rússlandi
þar sem Rússar komu mikið yfir
landamærin til að versla.
Samstarfsskólinn okkar í Lap-
peenranta heitir Lauritsala koulu
og eru um 700 nemendur í þeim
skóla. Hlutverk okkar var með-
al annars að vera með kynningu á
Íslandi, Borgarfirði og skólanum
okkar fyrir nemendur og kennara
frá hinum þátttökulöndunum.
Þessa viku sem við vorum þarna
kynntumst við mörgum skemmti-
legum krökkum og lærðum hell-
ing.
Fyrsta daginn skoðuðum við
Lappeenranta og gengum á stærsta
vatni Finnlands. Við fengum líka
tækifæri til að prófa hina hefð-
bundnu „sánu“ sem finnst í Finn-
landi. Síðan fórum við í bæ sem er
í rúmlega eins og hálfs tíma akst-
ursleið sem heitir Kotka og er
við Eystrasaltið. Síðasta daginn
í Lappeenranta kepptum við í að
gera ísskúlptúr og enduðum dag-
inn á diskókeilu. Við skoðuðum
líka rannsóknastofu sem skoðar og
mælir vatn, og ýmis önnur söfn.
Síðan enduðum við ferðina á því
að verja deginum í Helsinki og hitt-
um þar gamlan kennara sem kenndi
okkur í 8. bekk.
Við erum ævinlega þakklátt fyrir
þessa ferð og er þetta upplifun sem
mun ekki gleymast í bráð.
Hafrún Hafliðadóttir, 10. bekk
Inga Lilja Þorsteinsdóttir, 10. bekk
Þorgeir Þorsteinsson, 10. bekk
Merki verkefnisins sem fjallar um vatn;
„Water around us.“
Allur hópurinn sem var úti í Finnlandi.
Þarna eru greinahöfundar og kennararnir í ferðinni að stærsta vatni Finnlands,
vatninu Saimaa.
Hafrún og Inga með gestgjöfum sínum.
Þorgeir í góðra vina hópi.