Skessuhorn - 04.03.2015, Page 23
23MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Rótarýdagurinn í Hjálmakletti
Rótarýdagurinn var haldinn há-
tíðlegur laugardaginn 28. febrú-
ar af Rótarýklúbbum um land allt.
Rótarýklúbbur Borgarness hélt upp
á daginn með því að standa fyr-
ir opnum fundi í Hjálmakletti. Yf-
irskrift fundarins var; „menntun
- saga – menning.“ Fundarstjórn
var í höndum Margrétar Vagns-
dóttur frá Rótarýklúbbi Borgarness
og ýmsir aðilar héldu erindi. Fyrst-
ur var Magnús B. Jónsson, verð-
andi umdæmisstjóri íslenska rótarý-
umdæmisins. Magnús flutti erind-
ið „Rótarý, heima og heiman“ og
fræddi viðstadda um sögu og tilgang
Rótarýhreyfingarinnar. Gætt hefur
misskilnings um eðli Rótarý, að það
sé leyniklúbbur karla, en staðreynd-
in er sú að Rótarý eru alþjóðleg
samtök karla og kvenna sem standa
fyrir mannúðar- og menningastarfi,
stuðla að sem bestu siðgæði í öllum
starfsgreinum og hvetja til góðvild-
ar og friðar í heiminum. Hreyfing-
unni er ætlað að vera starfsgreina-
samband og hafa allt að fimm að-
ila úr hverjum starfsvettvangi innan
sinna raða. Meðlimir hittast viku-
lega og snæða saman ásamt því að
hlýða á fræðsluerindi um ýmis mál.
Langstærsta verkefni hreyfingarinn-
ar undanfarin ár hefur verið barátt-
an gegn lömunarveiki (e. End Pol-
io). Rótarýhreyfingin á Íslandi hef-
ur einnig styrkt ellefu einstaklinga
til framhaldsnáms í friðarmálum og
er aðeins eitt annað land í heimin-
um sem hefur viðlíka árangur.
Mennta heimsborgara
með rætur í sveitinni
Næstur steig á stokk Vilhjálmur Eg-
ilsson rektor Háskólans á Bifröst
sem flutti erindi um framtíð háskóla
á Íslandi. Þar fór hann meðal annars
yfir fyrirsjáanlega fjölgun eldri borg-
ara og bætta heilsu á eldri árum. Þar
þurfi háskólarnir að taka við sér og
koma til móts við þær þarfir þegar
fólk hefur lokið störfum á vinnu-
markaði en hefur enn fulla heilsu og
áhuga á að takast á við nýjan starfs-
vettvang. Vilhjálmur talaði um að
tækniþróun og tæknibreytingar séu
í raun það eina sem hafi breyst hinu
stóra sögulega samhengi, öll stríð
og kreppur hafi komið fyrir áður í
mannkynssögunni á öðrum tíma og
á öðru leiksviði, með öðrum sögu-
persónum. En í grunninn sé allt-
af verið að kljást við mannlegt eðli
og breytingin sé á tæknisviðinu. Það
sé því mikilvægt að mennta kenn-
ara til að vera í framlínu miðlun-
ar og tækniframþróunar. Þar sé hin
raunverulega fjárfesting. Sem fyrr sé
það metnaður Háskólans á Bifröst
að mennta heimsborgara með ræt-
ur í sveitinni.
Veruleiki ‘
daglaunamanna
Heiðar Lind Hansson sagnfræð-
ingur tók við af Vilhjálmi og flutti
fundargestum erindi úr Sögu Borg-
arness, sem Egill Ólafsson heitinn,
frændi Heiðars, hafði ráðgert að
flytja þennan dag. Egill vann að rit-
un 150 ára sögu Borgarness en varð
bráðkvaddur í janúar síðastliðnum.
Heiðar Lind staðfesti við fundar-
gesti að samið hefði verið um að
hann tæki við og lyki verki frænda
síns. Að þeirri tilkynningu lokinni
flutti Heiðar Lind bráðskemmti-
legt erindi og gaf fundargestum
innsýn inn í veruleika daglauna-
manna í byrjun tuttugustu aldar sem
þurftu að sanna fyrir hreppsnefnd
með hvaða hætti þeir hygðust sjá sér
og sínum farboða, því ómaga vildi
hreppsnefndin ekki á sitt forræði.
Önnur var sagan af framtakssemi
einstaklinga sem tóku sig saman og
boruðu brunn til að fá rennandi vatn
í sín hús og í næsta nágrenni. Að
lokum sagði Heiðar Lind frá fyrir-
ætlunum sem ekki gengu eftir um að
fá sjúkrahús í Borgarnes. Gaman er
að velta vöngum yfir því hver staðan
væri ef byggt hefði verið sjúkrahús í
Borgarnesi á sínum tíma.
Þá var komið að söngatriði systr-
anna Theodóru og Birnu Þorsteins-
dætra en jafnframt flutti Theo-
dóra erindi um menningu. Í fund-
arlok afhenti Daníel Ingi Haralds-
son forseti Rótarýklúbbs Borgar-
ness, Ásgeiri Sæmundssyni sjúkra-
flutningamanni Heilbrigðisstofn-
unar Vesturland Lúkas, sjálfvirkt
hjartahnoðbretti, sem Rótarýklúbb-
urinn í Borganesi hefur safnað fyrir
síðustu vikur. Tækið verður til taks í
sjúkrabíl heilsugæslustöðvar HVE í
Borgarnesi. Sjá nánar aðra frétt hér
í blaðinu.
eha
Margir voru viðstaddir Rótarýdaginn í Hjálmakletti.
Eldri borgarar á Akranesi eru
orðnir langþreyttir á því sem þeir
telja vanefndir af hálfu bæjar-
yfirvalda varðandi framtíðarhús-
næði og félagsmiðstöð fyrir starf-
semi þeirra. Síðastliðinn föstudag
var haldinn opinn fundur um mál-
ið. Fulltrúar í viðræðunefnd eldri
borgara, sem hefur haft samskipti
við bæjaryfirvöld á sinni könnu
fyrir hönd Félags eldri borgara á
Akranesi og nágrenni (FEBAN),
boðuðu til þessa fundar. Á honum
voru einnig nokkrir af fyrrverandi
og núverandi bæjarfulltrúum auk
bæjarstjóra Akraness. Mæting á
fundinn fór fram úr björtustu von-
um. Alls komu um 180 manns og
var hvert sæti setið. Þetta er talið
endurspegla vaxandi óþolinmæði
eldri borgara í garð bæjaryfirvalda
á Akranesi.
Löng og erfið saga
Á síðasta kjörtímabili var skip-
aður vinnuhópur þriggja fulltrúa
frá Akranesbæ og tveggja fulltrúa
FEBAN sem átti að vinna að til-
lögum um nýtt húsnæði fyrir eldri
borgara. Ýmsir möguleikar voru
skoðaðir. Niðurstaðan varð að lok-
um sú að á síðasta ári var keypt hús-
næði og stór lóð flutningafyrirtæk-
isins ÞÞÞ við Dalbraut. Húsinu
skyldi breytt í félagsheimili eldri
borgara en fjölbýlishús reist á lóð-
inni. Nýr meirihluti í bæjarstjórn
ákvað síðasta vor að halda fast við
þessa ákvörðun. „Síðan hefur ekk-
ert gerst,“ segir Ólafur Guðmunds-
son sem er fulltrúi FEBAN ásamt
Jóhannesi Ingibjartssyni í nefnd-
inni.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
segir að bæjarfélagið greiði á þessu
ári 128 milljónir króna vegna kaupa
á húsi og lóð ÞÞÞ við Dalbraut. Í
fyrra greiddi bærinn síðan 84 millj-
ónir króna til þessa. Það sé því ekki
rétt að ekkert hafi gerst. „Þessi fjár-
festing er gerð með það í huga að
starfrækja þarna þjónustumiðstöð
fyrir eldri borgara. Fundurinn á
föstudaginn var góður. Að mínu
mati er það eðlilegt að nýkjörnir
bæjarfulltrúar þurfi sinn tíma til að
taka stórar ákvarðanir. Það þarf að
vanda vel til verka varðandi skipu-
lag og hönnun á Dalbrautinni,“
segir Regína Ásvaldsdóttir.
Vildu fá hlutina á hreint
Nýr meirihluti tók við stjórn Akra-
nesbæjar síðastliðið vor. „Niður-
staða þeirra varð sú í júlí í fyrra að
halda áfram fast við þær ákvarðan-
ir sem fyrri meirihluti hafði tekið,“
segir Jóhannes og samsinnir Ólafi í
því að ekkert hafi gerst í málinu síð-
an þá. „Það þarf að fara í ákveðna
deiliskipulagsvinnu og síðan leggja
fé í að hanna húsið svo það henti
starfsemi eldri borgara. Ekki er gert
ráð fyrir neinu slíku á fjárhagsáætl-
un Akraness á þessu ári. Þar af leið-
andi er ekki hægt að sækja um fjár-
muni til Framkvæmdasjóðs aldr-
aðra á næsta ári. Þannig er ljóst að
það stefnir í að ekkert gerist heldur
þá. Það var af þessum sökum sem
við tveir sem tengiliðir FEBAN
við bæinn í þessu máli, ákváðum að
boða til þessa fundar í húsakynnum
félagsins nú á föstudag. Eldri borg-
Listin að segja sögur, sagnalist, nýt-
ur vaxandi vinsælda hér á landi, eins
og víða í löndunum í kringum okk-
ur. Sagðar eru sögur í skólum, boð-
ið er upp á sögustundir fyrir ferða-
menn og sögur eru einnig notað-
ar í tengslum við rekstur fyrirtækja
og stofnana. Stöðugt fleiri bætast í
hóp sagnaþulanna, fólks sem sæk-
ir sér þekkingu og reynslu í því að
segja sögur og fæst við það á ýms-
um vettvangi. Íslenskir sagnaþul-
ir taka virkan þátt í samstarfi nor-
rænna sagnaþula og á ári hverju er
haldið fimm daga norrænt sagna-
þing með námskeiðum, sögustund-
um og samveru. Sagnaþingið verð-
ur haldið á Íslandi í sumar, í Grund-
arfirði dagana 19. til 24. júlí.
Þátttakendur og kennarar koma
frá öllum Norðurlöndum og Kan-
ada, auk Íslendinga. Boðið er upp
á fimm námskeið, meðal annars um
húmor og alvöru, sagnagerð fyrir
börn, tengsl ævintýranna og eigin
lífs, sögur sem verða til í núinu og
hvernig flétta má saman sögum og
söngvum. Hvert námskeið stendur í
fjóra daga og er ýmist kennt á norð-
urlandamálum, íslensku eða ensku.
Þriðjudaginn 21. júlí verður boð-
ið upp á opið sagnakvöld í Grund-
arfjarðarkirkju, þar sem kennarar á
námskeiðunum segja sögur.
Sagnalistin hefur blómstrað á
Vesturlandi undanfarin ár og er
vonast til þess að heimamenn nýti
sér þetta einstaka tækifæri til að
sækja sér þekkingu og reynslu í
því að segja sögur. Nánari upp-
lýsingar um sagnaþingið og nám-
skeiðin er að finna á www.felags-
agnathula.is.
-fréttatilkynning
Húsfyllir á fundi FEBAN um húsnæðismál aldraðra á Akranesi
arar eru stöðugt að spyrja okkur um
stöðu mála. Við vildum nú taka af
skarið og greina félagsmönnum frá
stöðunni á opnum fundi og jafn-
framt kalla eftir svörum bæjarfull-
trúa og þeirra sem stjórna í dag,“
segja þeir Jóhannes og Ólafur.
Regína Ásvaldsdóttir segir að sett
hafi verið fjármagn til að undirbúa
breytingu á deiliskipulagi í fjár-
hagsáætlun ársins 2015 en ekki til
hönnunar húsnæðisins. Á síðasta
fundi bæjarráðs kom fram að húsið
við Dalbraut verður afhent bænum
1. maí næstkomandi.
Bæjaryfirvöld
bregðast við
Fyrir fundinn á föstudaginn var
bæjarráð búið að taka ákvörðun um
að skipa nefnd um húsnæðismál
eldri borgara á Akranesi þar sem
fulltrúar FEBAN ættu sæti ásamt
fulltrúum bæjarins. Var bæjarstjóra
falið að útbúa erindisbréf fyrir slíka
nefnd og koma í hendur FEBAN.
„Aðsóknin að fundinum fór fram
úr okkar björtustu vonum. Umræð-
ur urðu gagnlegar og málefnalegar.
Þennan sama dag og fundurinn var
haldinn var formanni FEBAN af-
hent bréf bæjarstjóra um að skip-
uð yrði nefnd um þetta mál. Nú á
mánudagsmorgun var svo tilkynnt
hverjir yrðu í nefndinni fyrir hönd
bæjarins. Við verðum svo áfram
fyrir hönd FEBAN. Verk nefndar-
innar verður að undirbúna breyt-
ingu á deiliskipulagi lóðarinnar við
Dalbraut. Það þarf líka að fara yfir
þarfagreiningu varðandi húsnæð-
ið og byrja að huga að því hvernig
það verður innréttað. Húsið hefur
ýmsa kosti. Meðal annars eru mörg
bílastæði þarna og staðsetningin er
góð og miðsvæðis í bænum. Hins
vegar er það á tveimur hæðum og
því þarf að mæta með breytingum
svo sem viðbyggingu fyrir lyftu og
stiga,“ segja Jóhannes Ingibjartsson
og Ólafur Guðmundsson.
Að sögn þeirra félaga þarf nú að
láta verkin tala. Leggja verði fram
áætlun um framkvæmdina, kostn-
aðaráætlun og samþykkt bygginga-
fulltrúa. Að þessu loknu sé hægt að
sækja um framlag úr Framkvæmda-
sjóði aldraðra. „Það er þetta sem við
erum nú að pressa á að verði gert í
ár svo að hægt verði að nýta næsta
ár til framkvæmda,“ segja þeir fé-
lagar Jóhannes og Ólafur.
mþh
Jóhannes Ingibjartsson og Ólafur Guðmundsson eru fulltrúar FEBAN í viðræðum
við Akranesbæ um nýtt húsnæði fyrir starfsemi eldri borgara á Akranesi. Báðir eru
fyrrverandi byggingafulltrúar og hafa mikla þekkingu á byggingamálum.
Fullt var út úr dyrum á fundinum á föstudag sem haldinn var í núverandi
húsakynnum FEBAN.
Frá kvöldvöku á Sagnaþingi á Núpi árið 2011, en þingið er nú haldið í þriðja sinn
hér á landi.
Sagnanámskeið verður í
Grundarfirði í sumar