Skessuhorn - 04.03.2015, Síða 25
25MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Júlíana – hátíð sögu og bóka fór fram í Stykkishólmi
Júlíana – hátíð sögu og bóka var
haldin í Stykkishólmi um liðna
helgi. Þetta var í þriðja sinn sem
hátíðin er haldin en það er óform-
legur félagsskapur kvenna sem hef-
ur frá upphafi staðið fyrir og skipu-
lagt dagskrána. Hópurinn á „lög-
heimili og varnarþing“ á Hótel
Egilsen. Venjulega hefur dagskrá-
in byrjað á leshring í byrjun nýs
árs og er hann opinn öllum áhuga-
sömum. Í ár var þema hátíðarinn-
ar „minningar“ og var Vonarland-
ið, saga Kristínar Steinsdóttur, les-
in og rædd.
Á setningu hátíðarinnar í Vatna-
safninu fimmtudaginn 26. febrú-
ar komu fram Söngsveitin Blær og
þær Rakel Olsen og Hjördís Páls-
dóttir sem voru með dagskrá sem
þær kölluðu „Guðað á glugga“. Þær
sögðu frá fjórum gömlum íbúð-
arhúsum í Stykkishólmi og fjöl-
skyldum sem þar bjuggu. Einnig
voru afhent verðlaun fyrir verk úr
myndbandasamkeppni sem grunn-
skólanemendur unnu í tengslum
við hátíðina. Á hverri hátíð er veitt
heiðursviðurkenning fyrir fram-
lag einstaklings til menntunar eða
menningarmála. Í ár var Rakel Ol-
sen heiðruð fyrir störf sín að end-
urbyggingu gamalla húsa í Stykk-
ishólmi.
Rithöfundarnir Kristín Steins-
dóttir, Helga Guðrún Johnsson,
Hallgrímur Helgason og Elísabet
Jökulsdóttir voru sérstakir gestir
hátíðarinnar að þessu sinni.
Á föstudeginum var opnuð sýn-
ingin „Ég man“ í Amtsbókasafn-
inu á verkum sem grunnskólabörn
unnu í tengslum við hátíðina. Sögu-
stund fyrir börn var á Hótel Egil-
sen og í Bókaverzlun Breiðafjarðar
las Helga Guðrún Johnson úr bók
sinni, Sagan þeirra, sagan mín.
Einn skemmtilegasti viðburður
Júlíönuhátíðar er kallaður Sögu-
menn í heimahúsum. Að þessu sinni
buðu gestum heim íbúar á Silfur-
götu 3 og Bókhlöðustíg 1. Á Silfur-
götunni sagði Dagbjört Höskulds-
dóttir frá móður sinni, Kristínu
Níelsdóttur frá Sellátri, en hún bjó
í því húsi um skeið, og á Bókhlöðu-
stígnum rifjuðu Jóhannes Finn-
ur Halldórsson og Guðrún Erna
Magnúsdóttir upp ljúfar minning-
ar, ástir og angist, frá þeim árum
sem heimavist fyrir nemendur úr
Dölum og af Snæfellsnesi var starf-
rækt við skólann í Stykkishólmi.
Rithöfundar spjölluðu um verk
sín í Gömlu kirkjunni á laugar-
deginum. Hallgrímur Helgason
sagði frá tilurð bókarinnar, Kon-
an við 1000°, og las kafla úr henni.
Höfðu þeir á orði, sem ekki höfðu
lesið bókina, að líklega væri betra
að ná sér í hljóðbókina með upp-
lestri höfundar heldur en pappírs-
útgáfuna. Kristín Steinsdóttir sagði
frá nokkrum kvenpersónum í bók-
um sínum og Elísabet Jökulsdótt-
ir kallaði erindi sitt „Hvað veit ég
um mömmu?“ Þar fjallaði hún um
eigin ljóð og móður sína, Jóhönnu
Kristjónsdóttur, út frá bók henn-
ar Svarthvítir dagar sem kom út sl.
haust.
Af öðrum dagskrárliðum má
nefna sögugerð á Hótel Egilsen,
lestur ljóða eftir Júlíönu Jónsdóttur
í Norska húsinu og myndasýningu
á Sjávarpakkhúsinu þar sem sýnd-
ar voru ljósmyndir Hinriks Finns-
sonar frá 7. áratugnum af fólki og
mannlífi í Hólminum.
Hátíðinni var svo slitið á Hótel
Egilsen í hádeginu á sunnudegin-
um þar sem boðið var upp á kóte-
lettur í raspi með viðeigandi með-
læti og heitan sveskjugraut með
sykri og rjóma á eftir.
Aðsókn var góð á dagskrárliði og
ekki spillti að veðrið var skaplegt,
bjart en nokkuð kalt. Aðstandendur
Júlíönuhátíðar voru ánægðir með
hvernig tókst til með viðburðina
og vilja þakka þeim fjölmörgu sem
komu að undirbúningi og fram-
kvæmd og ekki síst rithöfundunum
og gestum hátíðarinnar.
Texti og myndir: Eyþór Ben.
Guðað á glugga. Hjördís Pálsdóttir segir frá húsum og íbúum þeirra. Sögnsveitin Blær söng við setningarathöfnina í Vatnasafninu. Gestir á Bókhlöðustíg 1.
Rakel Olsen var veitt viðurkenning fyrir störf að menningarmálum
í Stykkishólmi.
Hallgrímur Helgason fór á kostum í gömlu kirkjunni.
Gréta Sigurðardóttir veitir Sveini Ágústi Óskarssyni, Hauki Páli
Kristinssyni og Einari Bergmann Daðasyni viðurkenningu fyrir
myndbandsverkefni. Á myndina vantar Vigni Stein Pálsson sem líka
var einn verðlaunahafanna.
F.v. Þórhildur Pálsdóttir, Dagbjört Höskuldsdóttir og Ingi Hans
Jónsson.
Dagbjört Höskuldsdóttir.
Ljóð Júlíönu Jónsdóttur voru lesin í Norska húsinu. Þóra Margrét
Birgisdóttir, Ásdís Árnadóttir og Sunna Högnadóttir lásu ásamt
Hjördísi Pálsdóttur.Jóhannes Finnur og Þórunn Sigþórsdóttir gestgjafi á Bóhlöðustíg 1.