Skessuhorn - 04.03.2015, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Þótt ég drekki drjúgum enn - dufla ég ekki lengur
Vísnahorn
Eitt af þessum nauðsynja-
verkfærum nútímans sem
enginn vissi að hann vant-
aði fyrr en fyrirbrigðið var
fundið upp, eru bifreiðar. Bifreiðar eru náttúr-
lega tæki sem enginn getur án verið en samt
sem áður! Það er sameiginlegt með bifreiðum
og karlmönnum að hvort tveggja þarfnast við-
halds. Það er samt ekki mjög mikið af sérhæfð-
um stofnunum til viðhalds og andlegra end-
urbóta á karlmönnum en aftur töluvert af bif-
reiðaverkstæðum sem ætluð eru þeim málm-
tólum til hagsbóta. Eins og stundum gerist er
þjónusta þessara fyrirtækja misjöfn og eitthvað
hefur Jónas Jónsson frá Grjótheimi ekki ver-
ið ánægður með þjónustuna hjá Bifreiðaverk-
stæðinu Stilli er hann kvað:
Enga snilli eg hef spurt,
en okurvillur líðast.
Fékk með illu illa smurt
inn á Stilli síðast.
Það er ekki alltaf á einhverju guðsbarnamáli
sem hagyrðingar ljóða hver á annan og eins
þó prestar eigi í hlut. Séra Jón Guðnason síðar
skjalavörður, ljóðaði eitt sinn á Jóhannes úr
Kötlum:
Ljóðdísar þú hrepptir hlut,
hlaust hann samt í meinum.
Leir í stafni, leir í skut,
lengi er von á einum.
Jóhannes svaraði:
Þú hefur lengi á lífs þíns dröfn
ljóðdís haft að frillu.
Loksins henni leystist höfn,
lengi er von á illu.
Sjálfur hef ég aldrei komið til þessara fjöl-
frægu og undurfögru útlanda. En það er nú
allt í lagi, fullt af fólki þar samt þannig að þetta
bjargast nú allt án mín. Mér er þó nær að halda
að Jón Ingvar Jónsson hafi verið staddur í Þjóð-
verjalandi þegar hann kvað:
Raunaleg streymir hún Rín,
rök eins og skjólfötin mín.
Wissen Sie was ich meine?
Hún silast með sull sitt hjá Bonn,
á sekúndu mörg þúsund tonn.
,,Ég hef þetta eftir Heine“.
Þarna í úttlandinu ku vera fögur og ræktar-
leg landbúnaðarhéruð og framleitt heilmikið af
Landa eða einhverju Gambraglundri sem þeir
drekka sér til heilsubótar enda vatnið ódrekk-
andi og mjólkin dýr. Þó eru menn þar að fram-
leiða mjólk alveg eins og hérna á skerinu. Á
fyrstu dögum kúasæðinga hérlendis voru það
helst ráðunautar sem sáu um þá hlið mála. Á
þeim tímum orti Lárus Þórðarson frá Grund í
Svínadal og þóttu breytingar á orðnar frá fyrri
dögum:
Nú þarf ei við naut að glíma.
Nú er tæknin vakandi.
Nú er bara nóg að síma
og nautið kemur akandi.
Í útlöndum eru víst líka ógurlega stór fjöll og
útsýnið, maður minn! Það gæfi sko gott ef það
kæmi á fasteignasölu í Reykjavík. Þá er bara að
ekki skelli yfir þoku rétt á meðan sölumaður-
inn er að sýna væntanlegum kaupanda íbúðina.
Í óbyggðaferð varð Böðvari Guðlaugssyni að
orði þegar þokan fór að gera sig heimakomn-
ari en gott þótti:
Leiðinda þoka lykur fjallanna kolla
og lúmskast niður smáfellin mosagræn.
Fúll í skapi og rámari en nokkur rolla
raula ég slitur úr heiðinni sultarbæn.
Margt hefur verið brasað og brallað í óbyggða-
ferðum. Sumt siðsamlegt og eftirhafandi. Ann-
að ekki. Ekki man ég hver það var sem orti
undir nafninu Loki en væntanlega hefur hann
verið kominn eitthvað yfir miðjan aldur þeg-
ar hann orti:
Að viði röðull sígur senn,
svona lífið gengur.
Þótt ég drekki drjúgum enn
dufla ég ekki lengur.
Stundum hefur það borið við að hinar svo-
nefndu sprittbremsur hafa farið að láta í sér
ískra þegar gengið hefur verið rösklega um
gleðinnar dyr og einhver ágætur maður gæti
vel hafa látið sér þetta um munn fara eftir fyr-
irlestur hins betri helmings:
Nú er þrotinn máttur minn,
mér að setur ekka.
Ekki á morgun, heldur hinn
hætti ég að drekka.
Það er nú samt alltaf þannig að eftir óbyggða-
ferðir sem og annað slark tekur hvunndagurinn
við með sínu lífsbasli. Misánægjulegu eins og
oft verður en lítið annað að gera en láta sig hafa
það. Að loknum alveg nógu löngum vinnudegi
sagði Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum:
Brags við þvætting þagna hlýt,
þeim er ei stætt að ríma,
sem eftir mætti mega skít
moka að hættutíma.
Stundum er talað um endurkomu Krists en
allt er það nú samt mjög óljóst orðað og reynd-
ar óvíst að við þekktum hann aftur. Jafnvel þó
hann kæmi með merkispjaldi og þaðan af síð-
ur að nokkur tæki mark á honum. Um þá hluti
kvað Ármann Þorgrímsson:
Þó við Kristi þykjumst trú
og þráum heitt að fá´ann,
ef hann kæmi aftur nú
enginn vildi sjá´ann.
Það er varla hægt að ætlast til þess að þeir
sem ekki þekkja annað en hafa rafmagn til allra
hluta geri sér grein fyrir þeim breytingum sem
urðu á lífsháttum fólks við tilkomu þess. Von
að fólk yrði fegið að fossarnir gerðu nú loksins
gagn frekar en hlunkast þetta niður í algjöru
tilgangsleysi. Þegar Valdimar Benónýsson kom
til Reykjavíkur þótti honum mikið um allt það
sem rafmagnið vann þar en var gert með hand-
eða hestafli fyrir norðan:
Þúsund hrossa gildi gaf
glæsiblossinn rjóði:
Tæknihnossið alið af
úrvals fossastóði.
Aldraður bóndi sem flutt hafði til Reykjavík-
ur var spurður að því hvort hann hefði feng-
ið eitthvað að gera. Svarið var; ,,Æ það get ég
varla sagt. Ég er að dútla þetta hálfan daginn
frá átta til fimm“. Um annan önnum kafinn
mann kvað Albert Jóhannsson:
Ei þótt reri út á sjó
önnum kafinn var hann.
Alla daga ýsur dró
eða hrúta skar hann.
„Menn eiga að hafa vit á að vera í góðu skapi,“
sagði Dúddi heitinn á Skörðugili og væri bet-
ur að fleiri mundu temja sér þá lífsreglu. Teitur
Hartmann lýsti sínum aðstæðum svona:
Lífs míns hef ég fleyi fleytt
framhjá luktum sundum.
Kátleg hugsun breiðir breitt
bros á varir stundum.
Ekkert heftir andans flug,
enda skal þess njóta.
Manni dettur margt í hug
meðan aðrir hrjóta.
Gæti þó verið að Guðríður í Austurhlíð hafi
verið farin að eldast þegar hún orti þessa haust-
legu vísu:
Svellar að skörum, sölnar stör
svifar í förin hrímið.
Styttast svörin, stirðna kjör
staðnar á vörum rímið.
Ætli við látum þessu svo ekki lokið með vísu
Eyjólfs í Sólheimum sem gæti svosem átt við
fleiri:
Ósköp þreytast augun mín,
ellin tekur völdin.
Þó ég hafi sálarsýn
sé ég illa á kvöldin.
Með kærri þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Logi Bjarnason myndlistarmaður
opnaði sýninguna Morphé í Safna-
húsi Borgarfjarðar sl. laugardag.
Sýningin, sem er fyrsta einkasýning
Loga, er í Hallsteinssal og verður
opin til 13. apríl. Verkin á sýning-
unni tengjast Borgarnesi og unnin
út frá einu áhugasviði myndlistar-
mannsins sem er hlaup. Íþróttir og
myndlist virðist ólíkleg blanda en
Logi leggur stund á tilraunakennda
myndlist og samtímalist. Eftir nám
við Myndlistarskólann í Reykjavík
og Listaháskóla Íslands nam Logi í
þrjú ár við Städelschule í Frankfurt
í Þýskalandi og er með M.A. gráðu
frá þeim skóla. Hann er fluttur aft-
ur til Íslands og er virkur innan
listageirans, situr í stjórn Nýlista-
safns Íslands og Myndhöggvara-
félagsins í Reykjavík. Hann hefur
tekið þátt í mörgum samsýningum,
bæði hérlendis og erlendis og hef-
ur þá hugsjón að það sé ekki hvað
þú sérð í myndlist sem skiptir öllu
máli. Það sem liggur að baki verk-
inu skiptir meiru, spurningin: „Af
hverju er verkið?“
Verkið sem ber nafn sýningarinn-
ar Morphé, og þýðir form á grísku,
ber þess vitni að Logi er að miðla
líkamlegri áreynslu inn í samtíma-
listina. Þar vinnur hann verk sem
er unnið eftir kortlagningar hlaupa-
leiða hans um Borgarnes og er afurð-
in verk einhversstaðar á milli skúlp-
túrs og myndlistar. Margir kann-
ast kannski við að sjá álíka mynstri
miðluðu með reglulegum hætti á
síðum samfélagsmiðla eftir hlaupat-
úra tæknivæddra hlaupagarpa. Með
þessum hætti blandar Logi samtíma
Borgarness inn í listina. Annað verk
á sýningunni er Chroma Treximo og
þýðir litahlaup. Það verk er unnið úr
steypu sem Logi kallar efni Borgnes-
inga. Í steypuna hefur hann þrykkt
íþróttafötum sínum og fyllir með lit.
Úr verður heillandi blanda grófleika
og litadýrðar sem hefur áhugaverða
sögu um á bak við sig.
Fjölmargir lögðu leið sína á opnun
sýningarinnar og er greinilega mikill
áhugi í Borgarnesi fyrir list. eha
Logi og verkið Chroma Treximo sem er unnið úr steypu og hlaupafötum.
Áreynslan í listinni
Skálmöld Einars er næsta frumsýning
í Landnámssetrinu
Föstudaginn 6. mars klukkan 20
verður Skálmöld Einars Kárasonar
frumsýnd á Sögulofti Landnáms-
setursins í Borgarnesi. Fyrir jólin
kom út skáldsagan Skálmöld eft-
ir Einar en hún er fjórða og síð-
asta bókin í bókaflokki hans sem
byggður er á Íslendingabók Sturlu
Þórðarsonar. Skálmöld er þó
efnislega fyrst í röðinni og fjallar
um uppgang Sturlu Sighvatsson-
ar og dramatísk örlög hans, föður
hans og bræðra og endalokin með
Örlygsstaðabardaga. Skálmöld
er skrifuð sem eintöl fjölda pers-
óna, karla og kvenna, sem upp-
lifðu þennan viðburðaríka tíma. Í
sýningunni segir Einar þessa sögu
eins og hann setur hana fram í
bókinni en hann stendur ekki einn
á sviðinu heldur hefur hann dóttur
sína Júlíu Margréti sér til fullting-
is. Saman segja þau feðgin söguna
með mismunandi röddum. Þessi
stórkostlegu örlög, ris og fall fjöl-
skyldu á Sturlungaöld.
Allt frá frumsýningu á sýn-
ingu Benedikts Erlingssonar Mr.
Skallagrímsson sem frumsýnd var
við opnun Landnámsseturs í maí
2006 hafa sýningar þar sem höf-
undur flytur sitt eigið, efni oft-
ast einn, notið mikilla vinsælda.
Mr. Skallagrímsson var sýnd fyrir
fullu húsi í þrjú ár og næsta sýning
Brák eftir Brynhildi Guðjónsdótt-
ur sló líka eftirminnilega í gegn.
Báðar hlutu þessar sýningar tvenn
Grímuverðlaun – fyrir besta hand-
rit og besta leik í aðalhlutverkum.
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir
hjá Landnámssetrinu segir að þau
kalli þetta form gjarnan „Hinn tal-
andi höfund,” því í öllum tilfellum
fer flytjandinn með sitt eigið efni.
„Sýningarnar á Söguloftinu eru nú
að nálgast annan tuginn og meðal
flytjenda hafa verið Gísli Einars-
son sem samdi sýningu sem hann
kallaði Mýramanninn, Gunnar
Þórðarsson sem sagði sögurnar á
bak við lögin sín og flutti nokkur
þeirra, Jón Gnarr og Ari Eldjárn
með skemmtisögur, Þór Tulinius
sem sagði sögu Þorgeirs Ljós-
vetningagoða og kristnitökunnar
í sýningunni Blótgoðar svo aðeins
nokkur dæmi séu tekin. En það er
Einar Kárason sem á metið, hann
hefur fjórum sinnum áður stigið á
stokk og flutt efni eftir sjálfan sig
á Söguloftinu. Einu sinni reynd-
ar með KK með sér enda var hann
þar að segja sögu KK sem flutti lög
sem innblásin voru af atburðum í
lífi hans. Og nú er “hinn talandi
höfundur“ sem sagt kominn aft-
ur með dóttur sinni Júlíu Margréti
til að segja okkur nýjustu skáld-
sögu sína Skálmöld,“ segir Sigríð-
ur Margrét.
mm
Einar Kárason og dóttir hans Júlía Margrét stíga nú á svið Söguloftsins.