Skessuhorn - 04.03.2015, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Er þér farið að lengja
eftir vorinu?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Stykkishólmi)
Páll Guðmundsson:
Já, það fer að líða að því. Þessi
vetur hefur verið erfiður, ekki
síst til sjávarins.
Ólafur Birgir Kárason:
Já, ég hlakka til þegar fótoltinn
byrjar í sumar.
Sigurður Hjartarson:
Já, það mætti fara að koma því
þetta er búið að vera frekar leið-
inlegt, hefur þó sloppið bærilega
þar sem veðurhæðin hefur ekki
verið svo mikil hérna hjá okkur.
Edda Sóley Kristmannsdóttir:
Já, eiginlega, vorið er nú besti
árstíminn finnst mér.
Helga Guðmundsdóttir:
Æ-i, það væri nú gott að það
færi að vora. Veturinn er búinn
að vera hálfleiðinlegur.
Fimmtudaginn 19. febrúar var
haldið fjórgangsmót á vegum
hestamannafélagsins Grana á Mið-
Fossum í Borgarfirði. Keppt var í
tveimur flokkum og voru skráning-
ar í kringum 20 í hvorum flokki fyr-
ir sig og riðin voru bæði A og B úr-
slit í báðum flokkum. Fór þetta allt
vel fram og þakkar Grani áhorfend-
um fyrir komuna og þátttakendum
fyrir góða þátttöku. Næsta Grana-
mót mun verða fimmtudaginn 19.
mars á Mið-Fossum.
Helstu úrslit voru þessi:
Verðlaunahafar í A-úrslitum
í 2. flokki.
6. Moa Enqist og Skáli frá Skáney
(unnu sér rétt í A-úrslitum)
7. Íris Ragnarsdóttir Pedersen og
Gnýfari frá Ósi
8. Erla Rún Rúnarsdóttir og Fagra-
nótt frá Borgarnesi
9. Harpa Sigríður Magnúsdóttir og
Sólon frá Krækishólum
10. Gunnhildur Birna Björnsdóttir
og Sómi frá Skáney
11. Hera Sól Hafsteinsdóttir og
Gefjun frá Skáney
B-úrslit 1. flokki
6. Máni Hilmarsson og Prestur frá
Borgarnesi (unnu sér rétt í A-úr-
slitum)
7. Aníta og Yrma frá Skriðu
8. Axel Örn Ásbergsson og Sproti
frá Hjarðarholti
9. Gyða Helgadóttir og Fiðla frá
Breiðumörk 2
10. Svavar Jóhannsson og Saga
11. Haukur Bjarnason og Birtingur
frá Skáney
A-úrslit 2. flokki
1. Sigríður Ása Guðmundsdóttir og
Almar frá Syðri-Völlum 6,30
2. Rósa Emilsdóttir og Gnýr frá
Reykjarhóli 6,13
3. Móa Enqvist og Skáli frá Skáney
6,03 (komu uppúr B-úrslitum)
4. Berglind Ýr Ingvarsdóttir og
Blesi frá Lundum 5,90
5. Sara Lind Sigurðardóttir og
Hvönn frá Syðri-Völlum 5,73
6. Helgi Baldursson og Neisti frá
Grindarvík 5,23
A-úrslit 1. flokki
1. Halldór Sigurkarlsson og Hrafn-
katla frá Snartatungu 7,10
2. Einar Reynisson og Muni frá
Syðri-Völlum 6,73
3. Máni Hilmarsson og Prestur frá
Borgarnesi 6,70 (komu uppúr B-
úrslitum)
4. Sigrún Rós Helgadóttir og Kaldi
frá Hofi 1 6,67
5. Sigvaldi Lárus Guðmundsson
Sparta frá Skógskoti 6,53
6. Klara Sveinbjörnsdóttir 6,47.
-fréttatilkynning
Árleg folaldasýning var haldin í
Söðulsholti á sunnudaginn. Aldrei
þessu vant var veðrið til friðs. 37
folöld voru skráð og sáust mörg fal-
leg tilþrif. Þá er alltaf gaman að spá
og spekulera hvaða stóðhestar eru
að koma vel út úr sýningum sem
þessum. Þarna mátti m.a sjá nokkur
afkvæmi undan Langfeta frá Hofs-
stöðum, Ölni frá Akranesi, Sólon
frá Skáney, Hersi frá Lambanesi og
Goða frá Bjarnarhöfn. Veitt voru
verðlaun fyrir efstu þrjú í hvor-
um flokki og völdu áhorfendur svo
þann grip sem þeim fannst standa
upp úr sem var að þessu sinni Svala
frá Söðulsholti undan Sólon frá
Skáney og Hildi frá Sauðárkróki.
Dómarinn á folaldasýningunni var
Valberg Sigfússon.
Efstu þrjár í merarflokknum
1. Svala frá Söðulsholti undan Sól-
on frá Skáney og Hildi frá Sauðár-
króki. Eig/rækt. Einar Ólafsson.
2. Rauðhetta frá Stykkishólmi und-
an Kolbeini frá Hárlaugsstöðum og
Hrefnu frá Smáhömrum. Rækt/eig.
Eiríkur Helgason.
3. Hamradís frá Ólafsvík und-
an Hrímni frá frá Ósi og Flugu
frá Bjarnarhöfn. Eig/rækt. Jónas
Gunnarsson.
Þrjú efstu hestfolöldin
1. Þristur frá Minni-Borg undan
Langfeta frá Hofsstöðum og Lyft-
ingu frá Minni-Borg. Eig/rækt.
Sigurbjörn G. Magnússon
2. Faxi frá Ólafsvík undan Ugga
frá Bergi og Sýn frá Ólafsvík. Eig/
rækt. Stefán Kristófersson.
3. Burkni frá Borgarlandi und-
an Klaka frá Skagaströnd og Vig-
dísi frá Borgarlandi. Eig/rækt. Ásta
Sigurðardóttir.
iss
Vorið nálgast, ískyggilega hægt
samt, í hulu þessara umhleypinga
sem við ábúendur Íslands höfum
þurft að upplifa. Allt tekur enda
stendur einhvers staðar, gott er að
hafa það í huga og segja það jafn-
vel fyrir framan spegilinn á morgn-
ana til að halda geðheilsunni. Það
mun koma betri tíð. Meira að segja
gosið náði skilaboðunum því það er
loks hætt, nú geta ofurjeppar þeyst
af stað til að skoða gosstöðvarn-
ar nema ferðaþjónustuaðilar vita
líklega ekki hvar gosstöðvarnar er
að finna því enginn hefur fengið
að fara þangað nema útvaldir, þar
fremstir í flokki fréttamenn og ljós-
myndarar Skessuhornsins. Reynd-
ar stalst einhver forríkur útlend-
ingur til að leigja þyrlu og lenda við
gíginn sjálfan, til þess eins að taka
„sjálfu“ af sér og eldfjalli en það er
annað mál.
Veturinn sem nú stendur yfir
hefur verið ákvarðanafælnasti vet-
ur sem ég man eftir. Annað hvort
er búið að vera frost og vindur eða
hiti og slabb. Ég fagna reyndar öll-
um veðrabreytingum, það er eflaust
þreytandi að hata veðráttu á Íslandi
til lengdar, er það yfir höfuð hægt?
Ég þekki reyndar nokkra slíka Don
Kíkóta, sem sjá sumarið í hillingum
allt haustið, veturinn og vorið, tala
í sjö mánuði um hversu mikið skíta-
veður sé í þessu „pleisi“. Svo fara
þeir á nokkra ísrúnta og allt í einu
er sumarið búið. Aðspurðir, samt
oftar að fyrra bragði, hefja þeir til
máls andúð sína á veðurfari okkar
fögru eyju, okkur veðurlunduðu til
mikils leiða. Á ég að hafa samvisku-
bit yfir því að þeim finnst leiðinlegt
veður, ég bara spyr?
En eitt er satt, ég bíð alltaf eftir
sumarhitanum. Ekki útaf óþoli fyr-
ir harkalegri veðráttu heldur vegna
þess að það styttist óðum í stang-
veiðitímabilið. Já, ég viðurkenni
það, ég er gjörsamlega innfelld-
ur og „húkkaður“ af veiðigyðjunni
sem rithöfundurinn Björn Blöndal
skrifaði eitt sinn um. Ég stend mig
stundum að því að fara í bílskúrinn
og athuga með búnaðinn, athuga
hvort eitthvað sé horfið frá fyrri at-
hugun. Faðma stangarrekkann og
tel flugurnar, ber á línur og hreyfi
við hjólunum svo legurnar festist al-
veg örugglega ekki. Reyndar hef ég
ekki gengið svo langt að klæða mig í
vöðlur til að athuga leka en næstum
því. Sérstaklega hefur þetta ágerst í
þeirri tíð sem gengið hefur yfir okk-
ur, að ég hef látið hugann reika við
uppáhaldsveiðistaði mína, séð fisk
vaka í hugarskotum og jafnvel fund-
ið tökuna þegar fiskurinn tekur. Oft
er þetta áður en undirritaður sofnar,
þá hverfur hugurinn til hlýrri staða,
grösugri bakka, lognstillts vatnsins
eða gleymi mér algerlega í niðn-
um af ánni sem verður örugglega
heimsótt í sumar. Í einu tölublaði
af Veiðimanninum, man ekki ár-
ganginn, var birt saga af manni sem
stóð stjarfur og óferjandi í skrifstofu
sinni vitandi af veiðitímabilinu sem
óðum var að koma. Ég skil vel þann
mann, þetta er tilfinning sem sem
einungis veiðimenn skilja. Þeg-
ar þetta er skrifað þann 1. mars er
ágætt veður, þó blundar sú vitn-
eskja í undirrituðum að páskahretið
mun líklegast koma. Það hlýtur að
vera, það er nafn í íslenskum orða-
forða yfir páskaveðrið. Reyndar eru
sjö nöfn yfir hretin sem munu dynja
yfir okkur fljótlega. Það er páska-
hret, hrafnahret, sumarmálshret,
kóngsbænadagshret, krossmessu-
kast, hvítasunnukast og þegar menn
og dýr eru alveg að fara að fá kast
yfir þessu öllu saman kemur far-
dagahretið í byrjun júní. Þá loks-
ins opnar Norðurá og skipulagðir
ísrúntar um landið hefjast, sumar-
ið loks alkomið (nema það rigni) og
við getum öll varpað öndinni létt-
ar. Reyndar kemur haustið mjög
fljótlega í kjölfarið og bölmóðurinn
byrjar að nýju.
Með kveðju.
Axel Freyr Eiríksson, Borgarfirði
Pistill
Hretin og draumar um árniðinn ljúfa
Fjórgangsmót Grana var haldið á Mið-Fossum
Verðlaunahafar í A-úrslitum í 2. flokki.
Sigurvegarinn í hestaflokknum; Þristur frá Minni-Borg.
Folaldasýning í Söðulsholti
Sigurvegarinn í merarflokknum; Svala frá Söðulsholti.