Skessuhorn - 04.03.2015, Page 31
31MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Lið SamVest stóð sig vel í
Bikarkeppninni 15 ára og yngri
SamVest, sem er frjálsíþróttasam-
starf sjö héraðssambanda á Vest-
urlandi og Vestfjörðum, sendi lið
til keppni í Bikarkeppni 15 ára og
yngri sem fram fór í Laugardals-
höllinni síðastliðinn sunnudag.
Samanlagt var liðið í sjötta sæti af
átta keppnisliðum. SamVest hlaut
48 stig, tveimur stigum minna en
Breiðablik sem varð í fimmta sæt-
inu. FH sigraði, A-lið ÍR varð í örðu
sætinu, Norðurland í því þriðja og
HSK/Selfoss í fjórða sæti. Sam-
Vest náði að tefla fram keppendum
í öllum greinum nema 1500 metra
hlaupi hjá strákum og fékk því ekki
stig fyrir þá grein.
Liðsmenn SamVest kom að þessu
sinni frá HSH, UDN, UMSB og
HHF, frá Borgarnesi, Borgarfirði,
úr Dölum, Stykkishólmi, Grund-
arfirði, Patreksfirði og Tálknafirði.
Ekkert þeirra sjö sambanda innan
SamVest hefði getað sent eigið lið á
Bikarkeppnina en saman náðu þau
að mynda lið og gefa krökkunum
tækifæri á að keppa við sína jafn-
ingja í stóru frjálsíþróttaliðunum.
Fimm af tíu keppendum SamVest
koma frá stöðum þar sem þau hafa
ekki þjálfara að staðaldri og í keppn-
inni á sunnudag höfðu þau ekki
þjálfara nema í síðustu greinunum
sem voru boðhlaupin. Á starfssvæði
SamVest leggja líka margir foreldr-
ar á sig að keyra langar leiðir reglu-
lega með börnin sín til æfinga og
jafnvel enn lengra í keppnir. Þeir
sem lengsta áttu að fara, krakkar frá
Patreksfirði og Tálknafirði, lentu í
erfiðleikum með að komast heim
á sunnudagskvöld. Þau þurftu að
ganga á milli bíla vegna ófærðar á
Kleifaheiði og komust ekki heim til
sín fyrr en seint og um síðir enda
sátu bílar pikkfastir á heiðinni. Það
er mikið á sig lagt og ólíkar aðstæð-
ur iðkenda í frjálsum íþróttum sem
reyndar í fleiri íþróttagreinum í
landinu.
þá
Níu af tíu í spræku liði SamVest sem keppti í Bikarkeppninni. Sú tíunda í liði SamVest.
Sveit Tryggva vann afgerandi sigur
Sveitakeppni Briddsfélags Akra-
ness lauk síðastliðið fimmtudags-
kvöld, eftir sjö kvölda keppni. Það
var sveit Tryggva Bjarnasonar sem
sigraði örugglega, hlaut 148 stig.
Með honum í sveit voru sem fyrr
Þorgeir Jósefsson, Karl Alfreðsson
og Bjarni Guðmundsson. Í öðru
sæti varð skrapsveit Borgfirðinga,
kennd við hinn unga og efnilega
Heiðar Árna Baldursson frá Múla-
koti. Auk hans spiluðu einu sinni
eða oftar Baldur Björnsson, Flemm-
ing Jessen, Sveinn Hallgrímsson,
Lárus Pétursson, Sveinbjörn Eyj-
ólfsson, Jón Eyjólfsson og Eyjólf-
ur Kristinn Örnólfsson. Borgfirð-
ingar uppskáru 116 stig, einu fleira
en Ingi Steinar Gunnlaugsson og
félagar sem urðu þriðju. Með Inga
Steinari í sveit voru Ólafur Grét-
ar Ólafsson og bræðurnir Þorvald-
ur og Guðjón Guðmundssynir. Að
sögn Einars Guðmundssonar for-
mann BA verðu nú á fimmtudags-
kvöld stakt tvímenningskvöld áður
en Akranesmótið í tvímenningi
hefst í næstu viku. Spilað er í sal
FEBAN að Kirkjubraut 40.
mm
Samið hefur verið um tólf stóðhesta
Hrossaræktarsamband Vesturlands
hefur gert samninga um tólf stóð-
hesta sem verða til afnota á starfs-
svæði sambandsins á komandi
sumri. Samningarnir eru allir gerð-
ir með þeim fyrirvara að hestarn-
ir náir lágmarksnotkun. Folatollur
kostar frá 75 til 184 þúsund krónur
fyrir hryssuna, eins og lesa má um í
auglýsingu í Skessuhorni.
Stóðhestarnir sem um ræðir eru:
Farsæll frá Litlagarði -
Tímabil 20.06 til 25.07
Brennir frá Efri-Fitjum -
Tímabil 20.06 til 25.08
Eldjárn frá Tjaldhólum -
Tímabil 20.06 til 25.07
Jarl frá Árbæjarhjáleigu -
Tímabil 20.06 til 25.07
Hrafn frá Efri-Rauðalæk -
Tímabil 20.06 til 25.08
Hvinur frá Vorsabæ -
Tímabil 20.06 til 25.07
Þorlákur frá Prestsbæ -
Tímabil 20.06 til 25.07
Snillingur frá Íbishóli -
Tímabil 20.06 til 25.08
Loki frá Selfossi -
Tímabil 15.07 til 25.08
Skýr frá Skálakoti. -
Tímabil 20.06 til 25.07
Steggur frá Hrísdal -
Tímabil 20.06 til 25.08
Æsir frá Efri-Hrepp. -
Tímabil 20.06 til 25.08.
mm/Heimild: hrossvest.is
Stóðhesturinn Loki frá Selfossi verður til afnota á vegum HrossVest í sumar. Hann
er jafnframt dýrasti stóðhesturinn sem sambandið býður að þessu sinni.
Morgan og Megan við undirritun samninga.
Skagakonur fá erlendan liðsstyrk
Kvennalið ÍA í knattspyrnu hef-
ur fengið liðsstyrk fyrir komandi
sumar í fyrstu deildinni. Það eru
bandarísku leikmennirnir Morg-
an Glick og Megan Dunnigan sem
munu koma til liðsins í maímánuði.
Morgan er samkvæmt því sem fram
kemur á vef Knattspyrnufélags
ÍA sterkur markmaður og Megan
fjölhæfur varnarmaður. Þær koma
báðar úr bandaríska háskólaliðinu
Stephen F Austin State University
og munu án efa styrkja leikmanna-
hópinn hjá ungu liði ÍA. þá
Versnandi staða Vesturlands-
liðanna í körfu
Bæði Vesturlandsliðin
í Dominosdeild karla í
körfubolta töpuðu leikj-
um sínum á fimmtudags-
kvöldið síðasta. Skallagrímur lá fyr-
ir Íslandsmeisturum KR í Frosta-
skjólinu 96:86 og Snæfell tapaði
fyrir ÍR í Breiðholtinu 88:82. Þessi
úrslit þýða að ÍR steig stórt skref í
að bjarga sér frá falli úr deildinni en
að sama skapi versnaði staða Skalla-
gríms og Fjölnis.
Skallagrímsmenn áttu engu að
síður þokkalegan leik gegn KR
en Vesturbæingarnir voru þó með
öruggt forskot allan tímann. Þeir
höfðu átta stiga forskot í hálfleik
41:33. Stigahæstir hjá Skallagrími
voru Tracy Smith með 27 stig og 16
fráköst, Sigtryggur Arnar Björns-
son með 21 stig og 8 stoðsendingar,
Páll Axel Vilbergsson með 16 stig
og Magnús Þór Gunnarsson 14.
ÍR-ingar voru líka með góð tök
mest allan tímann í leiknum gegn
Snæfelli. Fimm stigum munaði á
liðunum í hálfleik 46:41 og einu
sinni náðu Snæfellingar að minnka
muninn í fjögur stig í seinni hálf-
leiknum. Stigahæstir í liði Snæfells
voru Chris Woods með 35 stig og
18 fráköst, Austin Bracey 13 stig,
Sigurður Á Þorvaldsson 10, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 9 og Sveinn
Arnar Davíðsson 8.
Í næstu umferð sem fram fer nk.
fimmtudagskvöld fær Skallagrímur
Njarðvíkinga í heimsókn og Snæ-
fell Tindastól.
þá
Skagamenn með fullt hús stiga
Að loknum þrem-
ur umferðum í
Lengjubikarkeppni
karla í knattspyrnu,
eru Skagamenn með
fullt hús stiga, eða níu
stig, og efstir í sínum riðli. Þeir
fóru norður til Akureyrar síðast-
liðinn fimmtudag og mættu Þór
í Boganum. ÍA sigraði í leiknum,
2:1. Garðar Gunnlaugsson skoraði
um miðjan fyrri hálfleik og Arnar
Már Guðjónsson bætti við marki í
seinni hálfleiknum áður en Þórsar-
ar minnkuðu muninn. Næsti leik-
ur Skagamanna í Lengjubikar verð-
ur í Akraneshöllinni laugardaginn
7. mars þegar Grindvíkingar koma
í heimsókn.
þá
Úrslit kynnt í Lífshlaupinu
Verðlaun fyrir þátt-
töku í Lífshlaupinu,
heilsu- og hvatning-
arverkefni Íþrótta- og
Ólympíusambands
Íslands, voru veitt á
föstudaginn í Reykja-
vík. Í átakinu taka þátt grunnskól-
ar, framhaldsskólar og vinnustað-
ir og eru landsmenn hvattir í Lífs-
hlaupinu til að huga að sinni dag-
legu hreyfingu og auka hana eins og
kostur er. „Góð þátttaka var í verk-
efninu í ár en um 21.000 einstak-
lingar voru skráðir til leiks. Alls voru
406 vinnustaðir skráð með 12.073
liðsmenn til leiks, 34 grunnskól-
ar skráðir með 7.539 nemendur til
leiks og 13 framhaldsskólar með 662
einstaklinga,“ segir í tilkynningu.
Þegar úrslit voru kynnt kom í ljós
að í flokki grunnskóla
með 90-299 nemend-
ur var Heiðarskóli í
Hvalfjarðarsveit í sjö-
unda sæti yfir þátt-
töku. Grundaskóli
varð í sjötta sæti af
skólum með yfir 500 nemendur.
Fjölbrautaskóli Vesturlands varð í
öðru sæti framhaldsskóla. Talsvert
virkari þátttaka var í fyrirtækjum og
þar komu vinnustaðir á Vesturlandi
vel við sögu. Af litlum vinnustöðum
með 3-9 starfsmenn var Vinnumála-
stofnun á Vesturlandi í fyrsta sæti
ásamt tveimur öðrum og UMÍS í
Borgarnesi í fjórða sæti, með örlítið
færri hlaupastundir eða líkamsrækt
af einhverjum toga, en Vesturlands-
skógar sem voru í fimmta sæti.
mm