Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2015, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 18.03.2015, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Y�jaðu þér VIÐ AÐ BÓKA FERÐ Úrval Útsýn |  Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi SÓLARDAGAR ÚRVALS ÚTSÝNAR 18.–22. MARS BETRA VERÐ Á VALIN HÓTEL Á TENERIFE OG COSTA BRAVA STRÖNDINNI RÉTT VIÐ BARCELONA Það var í nógu að snúast hjá björg­ unarsveitum á Snæfellsnesi á þriðju­ daginn í síðustu viku þegar ein af óveðurslægðunum fór yfir. Með­ al verkefna hjá Lífsbjörgu í Snæ­ fellsbæ var að draga upp bíla og að­ stoða við allmenna umferð í óveðr­ inu sem þá gekk yfir. Einnig fylgdu björgunarsveitarmenn sjúkrabíl eftir sem þurfti að fara suður yfir Vatnaleið. Nánast allir vegir á Snæ­ fellsnesi voru síðan lokaðir fram eftir degi og allur akstur bannað­ ur um suma þeirra. Þurfti sveitin að manna lokunarpósta á þeim stöð­ um sem allur akstur var bannaður, í samstarfi við lögreglu og Vegagerð. Það sló aðeins á veðurofsann seinni hluta dags en um kvöldmatarleytið rauk hann upp aftur og fór vindur þegar mest var upp í 56 m/s á Fróð­ árheiði. Á þeim tíma kom beiðni um að athuga með þak sem var að fjúka af gömlu húsi inni í Bug, sem er rétt austur við Ólafsvík, en með­ al annars var talin hætta á að þakið gæti lent á rafmagnslínum. Björgunarsveitin Klakkur í Grund­ arfirði stóð einnig í ströngu þenn­ an dag. Þurfti sveitin að koma til hjálpar 14 ökumönnum og losa ökutæki þeirra. Flest voru útköll­ in við útsýnispallinn í Kolgrafafirði og við brúna. Einnig þurfti að rýma brúna í miklum flýti til að greiða götu fyrir sjúkrabifreið í forgang­ sakstri. Um kvöldið voru svo nokk­ ur útköll og var meðal annars fiski­ kar og ruslatunna sem sveitin sá um að sækja og koma í skjól. Svo var sveitin einnig með bifreið við Kirkjufellsfoss þar sem að vegur­ inn til Ólafsvíkur var lokaður vegna óverðursins. þa/tfk Að undanförnu hefur á vegum Íþróttabandslags Akraness ver­ ið unnið að því að bæta búnað og breyta skipulagi í þrekaðstöðunni að Jaðarsbökkum. Fjárfest hefur verið í nýjum tækjum og tæknibúnaði sem á að bæta aðstöðu í salnum verulega. Endurnýjunin hefur aðallega falist í því að sjö nýleg hlaupabretti með tölvuskjám voru keypt í stöðina og einnig tvö tæki sem kölluð eru fjöl­ þjálfar. Von er á fleiri tækjum á næst­ unni og einnig verður aðstaða bætt í kjallara íþróttahússins við Vestur­ götu, að sögn Sigurðar Arnars Sig­ urðssonar stjórnarformanns ÍA. Alls er áætlað að endurbæturnar kosti um sjö milljónir króna og eru þessar fjárfestingar þær mestu á vegum ÍA í líkamsræktarstöðinni í mörg ár. „Við erum í miklu endurbóta­ ferli og hefur skipulagi talvert ver­ Nýju hlaupabrettin með tölvuskjánum flutt í þrekmiðstöðina. Bættur búnaður í þreksal á Jaðarsbökkum Annríki hjá björgunarfólki Bíll frá Klakki en sveitin þurfti að sinna fjölmörgum útköllum þennan dag. Ljósm. tfk. Um morguninn byrjaði veðrið að versna. Ljósm. af. Húsið inni í Bug, austan við Ólafsvík, má muna fífil sinn fegurri. Ljósm. þa. ið breytt í þrekstöðinni til að koma inn nýju tækjunum sem taka meira rými en þau sem fyrir voru. Jafn­ framt erum við að taka út tæki sem minna eru notuð. Það er von okk­ ar að allir verði sáttir við breyting­ arnar og aðstaðan nýtist sem flest­ um íþróttamönnum,“ segir Sigurð­ ur Arnar. Hann segir að með tölvu­ skjánum á hlaupabrettunum verði gestum í stöðinni veittur aðgang­ ur að miklu fleiri sjónvarpsrásum en áður. Sigurður segir að við kaup á tækjunum hafi ekki verið gerð krafa um að notendur kæmust inn á netið, á facebook og geti notað appið, eins og nú er gerð krafa um í harðri sam­ keppni líkamsræktarstöðva. þá Gufunesi gamur.is 577 5757 Við erum í rusli Um er að ræða stöðu meiraprófsbílstjóra í Borgarfirði og starfsmanni með vinnuvélaréttindi á gámaplanið á Akranesi. Umsóknir óskast á heimasíðu fyrirtækisins www.gamur.is en nánari upplýsingar veitir Guðmundur í síma 840-5854. Íslenska Gámafélagið óskar eftir reynsluboltum. Meiraprófsbílstjóri og starfsmaður með vinnuvélaréttindi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.