Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2015, Blaðsíða 34

Skessuhorn - 18.03.2015, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Hvers vegna ætlar þú að fermast? (Spurt í Grundaskóla á Akranesi) Aþena Ósk Eiríksdóttir. Til að staðfesta trú mína á Jesú. Eva María Jónsdóttir. Til að staðfesta trú mína. Haukur Stefán Jakobsson. Það er gaman að fá gjafir. Brynjar Már Ellertsson. Til að ganga í fullorðinna manna tölu. Hafsteinn Orri Hilmarsson. Til að staðfesta trú mína og til að geta keypt mér eitthvað seinna fyrir fermingarpeningana. Spurningin Hvers vegna ætlar þú að fermast? (Spurt í Snæfellsbæ) Stefanía Bláfeld Viðarsdóttir. Ég elska að fá pakka og kök­ ur og það er líka gaman að fá góða gesti í veisluna. Svo hafa líka allir í fjölskyldunni fermst. Mikael Atli Óskarsson. Út af gjöfunum og veislunni og smá út af trúnni, svo verður gaman að hitta ættingja og vini. Elín Dögg Þráinsdóttir. Til þess að hitta ættingja og vini, það er gaman að fá góða veislu. Svo verður líka gaman að fá gjafir og líka út af trúnni, ég trúi alveg á Guð. Bjarni Arason. Ég vil fermast út af gjöfunum og veislunni. Svo verður gaman að fá ættingja og vini í veisluna og svo ég vona bara að það verði gott veður á fermingardaginn. Arnheiður Guðmundsdóttir. Ég vil fermast af því að allir í fjölskyldunni hafa fermst. Svo er líka gaman að hitta ættingja og vini í fermingarveislunni, og svo finnst mömmu svo gaman að elda góðan mat. Spurningin Fermingartískan 2015 Hvíti liturinn er vinsælastur hjá fermingarstúlkunum í ár. Ljósm. ntc.is Rósbleikur litur kemur sterkur inn í fermingarkjólum, ásamt blómakrönsum til að setja á höfuðið. Ljósm. ntc.is Fermingarföt piltanna eru gjarnan þröngar, dökkar gallabuxur, skyrta og stakur jakki. Ljósm. ntc.is Fermingartískan er breytileg á milli ára líkt og aðrir tískustraum­ ar. Í gegnum tíðina hefur ferming­ artískan farið í marga hringi og oft­ ar en ekki hefur verið al­ gengt að stúlkur hafi keypt fermingarkjóla fyrir til­ efnið sem aðeins var not­ aður einu sinni. Í dag er algengara að fermingar­ stúlkur velji sér fatnað sem þeim finnst flottur og nýtist við önnur til­ efni seinna meir. Líkt og undanfarin ár eru stuttir kjólar vinsæl­ ir meðal stúlknanna. „Liturinn í ár er hvítur. Við erum með nokkra liti af kjólum en hvítur er lang­ vinsælastur,“ segir Ragnheiður Ísdal aðstoðarverslunarstjóri hjá Gallerí Sautján í Kringlunni. Hún segir þó að rósableikur njóti tölu­ verðra vinsælda og komi næstur á eftir hvíta litnum. „Algengast er að stelpurnar velji sér kjóla til að vera í á fermingardaginn. Þeir eru með svokölluðu „skater­sniði,“ eru þröngir að ofan og svo er pilsið að­ eins víðara. Sá kjóll sem er lang­ vinsælastur hjá okkur í ár er með blúndutopp að ofan og svona ska­ ter sniði að neðan. Þetta eru fínleg­ ir kjólar en það er vel hægt að nota þá áfram.“ Ragnheiður segir sum­ ar stelpur taka jakka við kjólinn. „Þeir eru stuttir og opnir að fram­ an, þannig að kjóllinn nær að njóta sín vel. Svo velja þær ballerínuskó við, eða sandala með fylltum botni. Þær geta þá notað þá áfram og vin­ sælasti liturinn í skónum er svart­ ur,“ útskýrir Ragnheiður. Aðspurð um fylgihluti segir hún að margar fermingarstúlkur vilji hafa blóma­ krans á höfðinu. „Við seljum hárbönd m e ð þremur rósum og spangir með rós­ um og svo kransa. Þessir aukahlutir eru mjög vinsælir í ár.“ Stakir jakkar vinsælli en jakkaföt Drengir hafa oftar en ekki verið hefðbundnari í klæðaburði á ferm­ ingardaginn en stúlkurnar. Jakka­ fötin hafa í gegnum tíðina verið fyrsta val fermingardrengja en tísk­ an á þeim breytist þó á milli ára, bæði varðandi snið og liti. Í ár eru jakkafötin þó ekki vinsælasti klæða­ burður fermingardrengja. „Það er mjög mikið um staka jakka í ár, það er helsta breytingin frá því í fyrra. Þó að jakkafötin séu alltaf í boði og margir vilji bara þau, þá hafa stöku jakkarnir aðeins tekið völdin núna. Við jakkafötin vilja strákarnir vera í þröngum, dökkum gallabuxum, annað hvort svörtum eða dökk­ bláum,“ segir Bjartur Snorrason verslunarstjóri herradeildar í Gall­ erí Sautján Kringlunni. Hann segir að undanfarin ár hafi ýmsir aukahlutir sett svip á klæðn­ að ferming­ ardrengja. „Það hef­ ur aukist enn meira. Strákarnir eru að nota slaufur, bindi og vasaklúta. Þetta er til í allskon­ ar litum og allskonar efnum, svo sem prjónaefni og gallaefni og með ýmsum mynstrum,“ segir Bjartur og segir þverslaufuna enn vera vin­ sælli en hálsbindi, þó það sé aðeins að jafnast út. Skyrturnar eru vin­ sælastar í hvítum lit og ljósbláum en Bjartur segir að einnig séu til fleiri útgáfur, svo sem köflóttar og út í vínrauðan lit sem sé líka mjög vinsæll. Skótískan hefur breyst lít­ ið undanfarin ár. „Það er mest tek­ ið af strigaskóm sem við erum að selja, helst Converse. Þeir eru líka fínir við jakkafötin og flottir í sum­ ar. Einstaka sinnum seljum við þó leðurskó en það er mun minna um það, enda minna úrval í þeim í minni stærðum.“ grþ Þverslaufan er enn vinsælasta hálstauið hjá drengjunum þó að bindin komi sterk inn. Hægt er að fá slaufur úr ýmsum efnum og litum. Vinsældir Converse skónna hafa ekki dalað undanfarin ár hjá fermingar- drengjum. Opnir og stuttir jakkar tilheyra fermingartískunni 2015. Ljósm. ntc.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.