Skessuhorn - 18.03.2015, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Aðalfundir deilda
Stéttarfélags Vesturlands verða haldnir
fimmtudaginn 19. mars kl. 20.00
í Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2a.
Deildirnar eru: Iðnsveinadeild, Iðnaðar-
mannvirkja- og stóriðjudeild, Matvæla –
flutninga- og þjónustudeild,
Deild verslunar- og skrifstofufólks og
Deild starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum.
Dagskrá:
Lifðu núna1.
Ásdís Ólsen frá Hamingjuhúsinu fjallar
um núvitund (mindfulness) á vinnustað
Kaffihlé2.
Venjuleg aðalfundarstörf deildanna3.
Önnur mál4.
Stéttarfélag Vesturlands
Aðalfundur Björgunarsveitarinnar
Lífsbjargar í Snæfellsbæ var hald
inn á sunnudaginn í Björgunar
stöðinni Von í Rifi. Á dagskrá voru
hefðbundin aðalfundarstörf. Á síð
asta starfsári var ekki farið í fjár
festingar eða endurnýjun á tækjum
sveitarinnar heldur var stefnan tek
in á að ljúka við að greiða lokaaf
borgun af björgunarstöðinni. Sæv
ar Sveinbjörnsson varaformaður gaf
ekki kost á sér í stjórn en í hans stað
var kosinn Hafþór Svanur Svans
son. Páll Stefánsson gaf heldur ekki
kost á sér í stjórn og var í hans stað
kosinn Patryk Zolobow. Fram kom
að nú í vikunni er von á björgun
arskipinni Björgu eftir gagngerar
viðgerðir. Formaður sveitarinnar
er Viðar Páll Hafsteinsson. mm/þa
Næstkomandi föstudag, 20. mars,
verður Litla Listahátíðin haldin með
pompi og prakt í Tónlistarskólanum
á Akranesi. Þar munu koma saman
ólíkar listastefnur og listamenn sem
munu sýna afrakstur vinnu sinnar og
sýna þar fram á hina miklu fjölbreytni
sem ríkir í listalífinu á Akranesi.
Hátíðin hefst með súputónleikum
í hádeginu þar sem nemendur Tón
listarskólans munu leika listir sínar
og Kvennakórinn Ymur mun selja
súpu á 1000 krónur. Síðar um dag
inn verður boðið upp á fjölbreytta
dagskrá, svo sem atriði úr komandi
uppfærslu NFFA á söngleiknum
GREASE, opnuð verður myndlista
sýning og ljóðskáld munu lesa upp
ljóð sín. Hefðbundin kennsla verð
ur í húsinu en mun gestum og gang
andi verða boðið að kíkja í heimsókn
í tíma og fá að kynnast starfi skólans.
Einnig verður boðið upp á skipu
lagðar skoðunarferðir um skólann
í leiðsögn starfsmanna fyrir þá sem
vilja kynnast skólanum nánar.
Hátíðinni lýkur svo um kvöldið
með tónleikum þar sem starfsmenn
Tónlistarskólans verða í forgrunni,
en þar mun meðal annars verða
boðið upp á franska kaffihúsatón
list í boði hljómsveitarinnar Belle
ville, kraumandi jazz verður flutt
ur og tindrandi flautuleikur svo eitt
hvað sé nefnt. Hátíðin er öllum opin
og frítt inn á alla viðburði og hlökk
um við til að sjá sem flesta. Nánari
upplýsingar má finna á heimasíðu
tónlistarskólans, www.toska.is sem
og fésbókarsíðu hans.
-fréttatilkynning
Síðastliðinn mánudag mætti lið
Grunnskóla Borgarfjarðar liði
Grunnskólans á Seyðisfirði í 16 liða
úrslitum spurningakeppni grunn
skólanna. Eftir jafna og spenn
andi keppni fór svo að Borgfirðing
ar báru sigur úr býtum og tryggðu
sér þar með sæti í átta liða úrslitum.
Þar mæta þeir Giljaskóla á Akur
eyri. Lið Grunnskóla Borgarfjarðar
skipa þau Magdalena Sigurðardótt
ir, Þórður Brynjarsson, Katrín Pét
ursdóttir og Erna Elvarsdóttir.
kgk/ Ljósm. gbf
Þakið fauk af gamla íbúðarhús
inu á Sauðafelli í Dölum í óveðr
inu síðastliðinn laugardag. Finn
bogi Harðarson bóndi og smiður
hefur verið að gera húsið upp og
meðal annars notið styrks til þess
frá Húsafriðunarnefnd. Í þessu
sögufræga húsi var fyrsta símstöð
in í sveitinni og margt merkilegra
gripa. Þeim var þó búð að koma í
örugga geymslu vegna byggingar
framkvæmdanna. bae
Ný stjórn Lífsbjargar.
Aðalfundur Lífsbjargar
Lið GBF í undanúrslit
spurningakeppni grunnskólanna
Litla Listahátíðin í Toska á föstudaginn
Björn Bjarnason byggði gamla húsið á Sauðafelli í lok
nítjándu aldarinnar. Myndin var tekin sumarið 2013.
Ljósm. þá.
Tjón á sögufrægu húsi í Dölum
Þak hússins fauk af í óveðrinu. Ljósm. bae.
Hjá Pacta Lögmönnum starfa á þriðja tug
reyndra lögmanna á 14 starfsstöðvum
víða um land. Lögmenn Pacta búa yfir
víðtækri reynslu og þekkingu á flestum
sviðum lagaumhverfis sveitarfélaga, fyrir-
tækja, stofnana og einstaklinga. Markmið
Pacta er að veita viðskiptavinum um land
allt gæða lögmannsþjónustu og ráðgjöf,
byggða á þekkingu, trausti og áreiðan-
leika sem skilar faglegum og heiðarlegum
vinnubrögðum. Með samræmdu upp-
lýsingakerfi og samskiptalausnum hafa
lögmenn Pacta einstakan aðgang að
reynslu og sérþekkingu annarra lögmanna
stofunnar, hvar sem þeir starfa á landinu.
Nánari upplýsingar veitir Benjamín Axel Árnason, verkefnastjóri Pacta, í síma 440 7900
og á netfang benjamin@pacta.is. Umsóknarfrestur er til 20. mars 2015.
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarupplýsingar.
Ráðið verður í störfin samkvæmt nánara samkomulagi.
Pacta lögmenn ı Laugavegi 99 ı 101 Reykjavík ı Sími 440 7900
Akranes og Vesturland
Við leitum að lögfræðingi til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu Pacta á Vesturlandi,
með starfsstöð á Akranesi.
Meðal verkefna eru fjölbreytt viðfangsefni á sviði lögfræðilegrar ráðgjafar og samningagerðar,
málflutningur, ábyrgð á mætingum í héraðsdóma og hjá Sýslumannsembættum. Við leitum
eftir ákveðnum og drífandi einstaklingi sem er metnaðarfullur og sjálfstæður í starfi og býr yfir
mikilli samskiptafærni. Æskilegt að viðkomandi hafi málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi.
Við viljum ráða
lögmann til starfa
Reykjavík ı Hafnarfjörður ı Akranes ı Ísafjörður ı Blönduós
Sauðárkrókur ı Siglufjörður ı Dalvík ı Akureyri ı Húsavík
Egilsstaðir ı Reyðarfjörður ı Selfoss ı Vestmannaeyjar
Selfoss
Fjallabyggð
Reykjavík
Akranes
Reyðarfjörður
Egilsstaðir
Akureyri
Húsavík
Ísafjörður
Blönduós
Dalvík
Sauðárkrókur
Vestmannaeyjar
Hafnarfjörður
LÖGMENN
ALLRA
LANDSMANNA
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is