Skessuhorn - 18.03.2015, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Hvers vegna ætlar
þú að fermast?
(Spurt í Borgarnesi)
Ólafur Kristján Fjeldsted.
Trú á minn mann og svolítið
vegna pakkanna.
Sölvi Freyr Björnsson.
Gaman að sýna að maður trú
ir á Guð, en ég hef alltaf trúað
á Guð. Svo er gaman að hitta
ættingjana og að fá gjafir.
Daníel Victor Hewigsson.
Vegna þess að ég er Kristinnar
trúar og ég sé enga ástæðu til
að fermast ekki.
Lára Sif Jóhannesdóttir.
Af því að ég trúi á Jesú.
Bára Sara Guðfinnsdóttir.
Ég ætla að fermast vegna þess
að ég trúi að það sé eitthvað
æðra og trúi að það sé Guð.
Spurningin
„Hugsaði fermingardaginn sem minn eigin prinsessudag“
„Ég greiddi mér sjálf en fyrir ferm
inguna fór ég til Reykjavíkur á hár
greiðslustofuna Kristu í Kringl
unni og fékk permanent. Ferming
argreiðslan var því ekki mikið ann
að en að setja ægifagran og íburðar
mikinn blómakrans á höfuðið,“ út
skýrir Sonja. Það má segja að íburð
ur hafi verið fermingarþema Sonju,
en hún hafði ákveðið að eftir ferm
inguna myndi hún sætta sig við að
vera venjuleg alþýðustúlka en ekki
af konungsættum líkt og hún hafði
gælt við um langa hríð. „Ég hugsaði
mér því fermingardaginn sem minn
eigin prinsessudag og fékk frjálsar
hendur til þess, enda minn dagur.“
Konunglegar kenndir
Til að rekja forsögu málsins þá er
þannig mál með vexti að langa
langafi Sonju er óþekktur, en langa
langamma hennar hafði unnið fyr
ir dönsku hirðina um hríð og snéri
þaðan með barni. Eftir að barnið
var fætt bárust dýrindis kjólar og fá
dæma gjafir og gaf það sögum byr að
barnið væri í raun konungborið. Sé
þetta raunin þá er Sonja með sanni
frænka Þórhildar Danadrottningar
og því ekki langsótt að hún hafi haft
konunglegar kenndir. „Þær lýstu
sér meðal annars með þeim hætti
að mér þótti með öllu óskiljanlegt
að ekki væri hægt að nota jólastell
ið hversdags né fá nýja kjóla á hverj
um degi. Var því fermingardagur
inn ákveðið uppgjör og fékk ég al
geran prinsessudag. Ég valdi mér
kjól í Brúðarkjólaleigu Dóru, en það
mátti ekki minnast á hvaðan kjóll
inn var fenginn því mömmu þótti
það helst til vandræðalegt. Það var
hinn veglegi undirkjóll sem heillaði
svo mjög og þó kjóllinn væri heldur
síður var það leyst með því að ferm
ingarskórnir voru svokallaðir hippa
skór, með fylltum sóla og hækkaði
ég nægilega við að vera í þeim og þá
gilti einu þó þeir væru eldrauðir á
litinn,“ segir Sonja.
Eftir mínu höfði
Aðspurð út í veisluna þá var hún
haldin í Golfskálanum á Hamri og
komu um 70 manns. Skreytingarn
ar voru í hóflegri kantinum enda
tíðkaðist ekki að skreyta salinn eftir
þema, eins og þekkist í dag. „Ég var
þó með gylltar áletraðar fermingar
servéttur. Boðið var uppá lambalæri
með hefðbundnu meðlæti og svo
var kransakaka í eftirrétt frá Fríðu,
æskuvinkonu mömmu.“ Sonja fékk
töluvert af skartgripum úr Kristý í
fermingargjöf og einnig ríkisskulda
bréf sem kom sér vel tíu árum síðar
þegar hún var blankur námsmaður
í Reykjavík. „Eftirminnilegasta gjöf
in var þó þriggja geisladiska hljóm
flutningsgræjur ásamt geisladiskn
um Fire on Babylon með Sinéad
O’Connor sem mamma gaf mér. En
ég stóð í þeirri trú að brúðarkjóla
leigukjóllinn hefði verið ferming
argjöfin frá henni. Ég er sömuleið
is þakklát og fegin að hafa fengið að
hafa þennan dag nákvæmlega eft
ir mínu höfði en ekki þurft að lúta
skoðunum eða vilja mömmu minn
ar eða annarra þegar kom að ferm
ingarundirbúningnum.“ Það verð
ur að segjast að líklega er Sonja eitt
eftirminnilegasta fermingarbarnið á
þessum tíma, þegar haft er í huga að
fermingartískan ´95 voru neonlitað
ir stuttir kjólar úr sundbolaefnum,
en alls ekki íburðarmiklir (brúðar)
kjólar. eha
Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir fermdist árið 1995:
Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir er fædd 1981 og fermdist
á skírdag 12. apríl 1995 í Borgarnesi ásamt 15 bekkjarfélögum
sínum. Það var séra Árni Pálsson sem fermdi árganginn í
Borgarnesi í tveimur athöfnum en alls voru 34 börn fermd
þennan dag. Sonja rifjar upp að dagurinn hafi verið bjartur
og fínn.
Sonja fagnar í ár tuttugu ára
fermingarafmæli.
Sonja fermdist í íburðarmiklum brúðarkjól enda taldi hún sig konungborna.
Fermingarbörn liðinna áratuga í
máli og myndum. Framhald
Rammar og Myndir
Skólabraut 27
431-1313akrafjall@simnet.is
Fermingar boðskort
Útprentun-stækkun mynda
Strigaprentun
Skrautskrifum
í gestabækur
og á plögg
Falleg plaköt
Stækkum & prentum
fermingarmyndir
Passamyndir