Skessuhorn - 25.03.2015, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er
til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.573 krónur með vsk. á mánuði. Elli og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.230. Rafræn áskrift kostar 2.023 kr. Rafræn áskrift til elli og örorkulífeyrisþega er 1.867
kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Eva Hlín Albertsdóttir evahlin@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is
Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen, markaðsstjóri emilia@skessuhorn.is
Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Tinna Ósk Grímarsdóttir (vefauglýsingar) tinna@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Iðn- og tæknimenntað
fólk óskast!
Í lok síðasta árs beittu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sér fyrir gerð
könnunar á þörf fyrirtækja í landshlutanum fyrir fólki til starfa. Leitast var
eftir að finna út hvaða menntun og eiginleika vantaði helst til að fyrirtæk-
in næðu að vaxa og dafna. Niðurstöður þessarar könnunar þyrftu ekki að
koma á óvart. Menntakerfi okkar er byggt þannig upp að ótrúlega lítið er
gert til að beina ungu fólki til menntunar sem fyrirsjáanleg þörf er fyrir á
meðan of margir afla sér menntunar sem nýtist seint eða jafnvel aldrei. Ég
kýs að nefna ekki dæmi um slíkt af virðingu fyrir fólki sem lagt hefur sig
fram við nám sitt í góðri trú um eftirspurn eftir því og kostað miklu til. Þá
má ekki gleyma því að við skattgreiðendur erum í flestum tilfellum að kosta
þessa menntun.
Langmest þörf er nú fyrir fólk í ýmsar starfsgreinar. Iðn- og tæknimennt-
að fólk. Þá vantar fólk með þekkingu á tölvum og búnaði, enda byggja nán-
ast allar atvinnugreinar á tækni sem kallar á slíka menntun eða/og reynslu.
Einstaklingar, sem ekki eru þokkalega tölvufærir og ég tala nú ekki um þeir
sem ekki skilja og tala ensku, sitja eftir. Þetta á við allar atvinnugreinar.
Bóndinn þarf að kunna á tæki sín enda leiðbeiningarnar á ensku. Ef hann
skilur ekki ensku og þorir ekki að eiga við tölvuna getur hann ekki stillt
rúllupökkunarvélina til að hún vefji hæfilega fast, marga hringi og skammti
plastið rétt. Sjómaður sem ekki kann á siglinga- og fiskileitartækin er í
tómu tjóni svo ég tali nú ekki um geislafræðinginn sem stýrir sneiðmynda-
vélinni. Reyndar getur það þá verið sjúklingurinn sem verður fyrir mesta
tjóninu. Allar atvinnugreinar eru því háðar þekkingu á tækni. Öll iðnvædd
og þróuð samfélög byggja á henni. Þá kom fram í könnun SSV að talsvert
vantar af starfsfólki með aðra menntun en iðn- og tæknigreinar. Það vantar
fólk á sviði kennslufræða, veitingareksturs og annarrar ferðaþjónustu, jafn-
vel vantar búfræðinga. Það er frábært að þetta sé kannað og enn betra ef
skólakerfið beindi fólki í þær greinar sem fyrirsjáanlega vantar fólk í.
Svo virðist sem þetta vandamál, að nú vanti verk- og tæknimenntað fólk
á Vesturlandi, sé ekki nýtt af nálinni og alls ekki bundið við okkar lands-
hluta. Nýverið var haldinn kynningardagur á Suðurlandi þar sem fram kom
að þörfin væri svipuð. Sama er hvar drepið er niður fæti hvað þetta varðar.
Allsstaðar kemur fram að skortur er á verk- og tæknimenntuðu fólki. Fæð-
ingarárið mitt fyrir rúmlega hálfri öld var samþykkt þingsályktunartillaga á
Alþingi þess efnis að fela þáverandi ríkisstjórn að gera nákvæma athugun á
þörf atvinnuvega landsins fyrir tækimenntað fólk og áætlun þar sem kæmi
meðal annars fram þörf atvinnuvega landsins fyrir raunvísindamenn, verk-
fræðinga, tæknifræðinga og iðnfræðinga á næstu tíu árum. Svo virðist sem
sama orðalag mætti nota nánast óbreytt væri einhver áhugi fyrir málinu á
þingi. Enn er þjóðfélagið í sömu sporum rúmlega hálfri öld síðar. Okkur
vantar fólk í starfsgreinarnar.
Á forsíðu Skessuhorns í dag er sagt frá undirritun samnings um búnaðar-
kaup fyrir væntanlega kísilverksmiðju á Grundartanga. Framkvæmdir hefj-
ast strax í sumar og af krafti á nýju ári. Hér erum við líklega að segja eina
stærstu frétt í Skessuhorni í atvinnulegu tilliti á þessari öld. Nú hillir undir
að búið sé að semja um orku og fjármögnun þessara framkvæmda. Til verð-
ur umhverfisvænn iðnaður, eitthvað sem kallað er eftir. Bein störf við þessa
verksmiðju verða a.m.k. 450. Reynslan sýnir að til viðbótar því megi reikna
með um þrjú hundruð afleiddum störfum. Þannig eru að verða til 750 ný
störf á Vesturlandi og er þá einungis verið að tala um eitt þeirra fyrirtækja
sem væntanleg eru. Mörg starfanna í Silicor kalla á menntun og þess vegna
verður þetta gríðarlega dýrmætur vinnustaður fyrir Vesturland. Enn meira
mun því vanta af iðn- og tæknimenntuðu fólki.
Magnús Magnússon.
Búið er að loka hluta göngustígar-
ins meðfram Langasandi á Akra-
nesi fyrir almennri umferð þar sem
unnið er að lagfæringum á sjóv-
arnargarði. Lokaða svæðið nær frá
Akraneshöll að Sólmundarhöfða.
Reiknað er með að framkvæmd-
in taki um þrjár vikur. Þar inni í er
páskafrí þannig að lokunin stend-
ur frá 20. mars til 15. apríl. Mynd-
in er tekin frá Sólmundarhöfða í átt
að Akraneshöll og sýnir þann hluta
stígsins sem lokaður er.
mþh
Vinsælum göngustíg lokað vegna framkvæmda
Mennta- og menningarmálaráð-
herra hefur að fenginni umsögn
safnaráðs úthlutað úr safnasjóði
fyrir þetta ár 108,6 milljónum
króna. Af þeirri upphæð renna tæp-
lega 70 milljónir til einstakra verk-
efna en 39 milljónir í rekstrarstyrki
til viðurkenndra safna um land allt.
Af þessari upphæð renna 9.650.000
krónur til safna á Vesturlandi.
Styrkir til safna á Vesturlandi
skiptast þannig að Byggðasafn
Dalamanna fær alls 800 þúsund
krónur til verkefnisstyrkja vegna
fugla- og steinasafns annars veg-
ar og hins vegar vegna dagbóka af
Skarðsströnd. Auk þess fá Dala-
menn eina milljón í rekstrarstyrk,
alls 1,8 milljón króna.
Byggðasafnið í Görðum á Akra-
nesi fær verkefnisstyrki vegna
myndunar og skráningar í Sarp og
vegna skráningar steinasafns sam-
tals 1,8 milljón króna auk einnar
milljónar í rekstrarstyrk, eða sam-
tals stuðning upp á 2,8 milljónir
króna.
Landbúnaðarsafn Íslands á
Hvanneyri fær 400 þúsund króna
verkefnastyrk vegna skráningar ís-
lenskrar sláttusögu auk rekstrar-
styrks að upphæð ein milljón króna,
alls 1,4 milljón kr.
Norska húsið og Byggðasafn
Snæfellinga og Hnappdæla fær
verkefnisstyrk vegna Miðstöðvar og
mangara við Breiðafjörð 1300-1700
krónur 450.000 auk einnar milljón-
ar í rekstrarstyrk, eða alls stuðning
upp á 1.450.000 kr.
Loks fær Safnahús Borgarfjarð-
ar í Borgarnesi 1,2 milljón í styrk
vegna yfirfærslu skráninga í Sarp
auk einnar milljónar í rekstrarstyrk,
eða 2,2 milljónir króna.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að alls hafi borist að þessu
sinni umsóknir um styrki í 130
verkefni. Styrkjum er úthlutað til
86 verkefna og eru þeir frá 250.000
krónum upp í tvær milljónir króna.
Rekstrarfélag Sarps hlaut hæsta
einstaka verkefnastyrkinn að þessu
sinni í verkefnið „Notendavænni
Sarpur“ en flest viðurkennd söfn
á Íslandi nota Sarp sem skráning-
arkerfi fyrir safnkost sinn og til að
miðla upplýsingum um hann til al-
mennings. mm
Innan við tíu milljónir til safna á Vesturlandi
Svipmynd úr Byggðasafninu í Görðum á Akranesi.
Nefnd sú um framtíðarskipulag
og -rekstur Landbúnaðarháskóla
Íslands og háskólanna á Hólum
og Bifröst, sem Illugi Gunnars-
son menntamálaráðherra skipaði
nýverið, hefur haldið sinn fyrsta
fund. Hann fór fram að Gauks-
mýri í Húnvatnssýslu þriðjudaginn
17. mars í vikunni sem leið. „Við
erum bara rétt að komast af stað og
ómögulegt að segja fyrir um það
nú hvenær störfum nefndarinnar
lýkur,“ segir Haraldur Benedikts-
son þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðvesturkjördæmi í sam-
tali við Skessuhorn. Auk hans eiga
sæti í nefndinni Ásmundur Einar
Daðason þingmaður Framsókn-
arflokksins í kjördæminu, rektor-
ar skólanna þriggja, sveitarstjórar
Borgarbyggðar og Skagafjarðar og
tveir fulltrúar ráðuneytanna. Har-
aldur og Ásmundur Einar skipta
með sér formennsku í nefndinni.
Einar Karl Haraldsson hefur verið
ráðinn sem verkefnisstjóri nefnd-
arinnar. Hlutverk hans er að boða
fundi, halda utan um upplýsinga-
flæði, skrifa fundargerðir og skjöl
sem og annað sem tilheyrir starfi
nefndarinnar.
mþh
Nefnd um framtíð landsbyggðar-
háskóla hefur komið saman
Starfsmenn Áhaldahúss Akranes-
kaupstaðar nota nú tækifærið milli
lægða til að huga að viðgerðum á
götum bæjarins. Holur hafa mynd-
ast í slitlag eftir veturinn. Þessi
mynd var tekin af Magnúsi Sig-
urðssyni þar sem hann var að moka
malbiki ofan í holur á Faxabraut við
Akraneshöfn. „Það eru skemmdir
víða en þó einkum á Faxabrautinni
og Vesturgötu. Það verður að moka
í þessar skemmdir sem fyrst eftir að
þær myndast því þær stækka fljótt,“
sagði hann.
mþh
Kíttað í holur eftir erfiðan vetur