Skessuhorn - 25.03.2015, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Stjórnsýslukæra
lögð fram
BORGARBYGGÐ: Á fundi
byggðarráðs Borgarfjarðar síð-
astliðinn fimmtudag var lögð
fram tilkynning frá innanrík-
isráðuneytinu um stjórnsýslu-
kæru Sæmundar Sigmunds-
sonar á hendur Borgarbyggð.
Kæran lýtur að meintu ólög-
mætu sérákvæði í reglum sem
sveitarstjórn Borgarbyggðar
setti 13. júní 2013 um skóla-
akstur í Borgarbyggð og sam-
þykkt byggðarráðs á útboðs-
gögnum vegna aksturs í skóla
og tómstundastarf frá 22.
maí 2014. Einnig ákvörðun
sveitarstjórnar Borgarbyggð-
ar frá 26. júní 2014 að semja
við lægstbjóðendur um fjór-
ar ökuleiðir á forsendum fyrr-
nefndra skilmála í útboði frá
23. maí 2014. Á fund byggð-
arráðs kom Ingi Tryggvason
lögfræðingur og fór yfir mál-
ið. Byggðarráð fól Inga að
svara ráðuneytinu.
–þá
Bílslys í
glærahálku
STYKKISH: Bíll hafnaði
utan vegar og í skurði við
Stykkishólm á ellefta tímanum
síðastliðið sunnudagskvöld.
Ökumaðurinn var ung kona
og var hún ein í bílnum. Hún
var flutt með þyrlu á slysadeild
Landsspítalans vegna ótta um
innvortis áverka. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu á
mánu dagsmorguninn reynd-
ust áverkarnir ekki alvarlegir
og var líðan konunnar þá eft-
ir atvikum. Orsök óhappsins
er rakin til launhálku sem víða
höfðu myndast á vegum þetta
kvöld.
-þá
Bílvelta
á Kaldadal
BORGARFJ: Síðastlið-
inn fimmtudag varð bílvelta
á Kaldadal þar sem breyttri
jeppabifreið var ekið út af
vegi. Tvennt var í bifreiðinni
en sluppu með minnihátt-
ar áverka og eymsli. Bifreiðin
var óökufær eftir óhappið. Fé-
lagar í Björgunarsveitinni Ok
fór fólkinu til aðstoðar. Í dag-
bók lögreglunnar á Vestur-
landi segir að tveir ökumenn
hafi verið teknir undir áhrif-
um kannabisefna við akstur
í vikunni og fjórir vegna ölv-
unar við akstur. Alls voru 323
ökumenn myndaðir í hraða-
myndavélar embættisins í lið-
inni viku.
–þá
Borgarverk býð-
ur í yfirlagnir
BORGARNES: Tilboð voru
opnuð 17. mars síðastliðinn
hjá Vegagerðinni í yfirlagnir
á suður- og austursvæði lands-
ins. Borgarverk var með eina
tilboðið í suðursvæði upp á
rúmlega 72 milljónir króna
sem er 60% yfir kostnaðar-
áætlun. Í yfirlagnir á austur-
svæði bauð Borgarverk 66,5
milljónir eða 93,2% af kostn-
aðaráætlun. Annað tilboð barst
frá Bikun ehf. í Kópavogi upp
á 73,2 milljónir sem var 2,6%
yfir kostnaðaráætlun. –þá
Aðalfundur SSV
BORGARNES: Í dag, mið-
vikudaginn 25 mars klukkan
14:30, hefst aðalfundur Sam-
taka sveitarfélaga á Vesturlandi.
Fer hann að þessu sinni fram
á Hótel Hamri við Borgarnes.
Klukkan 10 hefjast aðalfundir
Símenntunarmiðstöðvar Vest-
urlands, Heilbrigðisnefndar
Vesturlands, Sorpurðunar Vest-
urlands og Vesturlandsstofu,
en þeir eru gjarnan haldnir í
tengslum við fund SSV.
-eha
Kjaftað um kynlíf
BORGARBYGGÐ: Í kvöld,
miðvikudagskvöld, verður
fræðslu kvöld fyrir fullorðna í
Borgarbyggð. Til umfjöllunar
verður hvernig ræða megi um
kynlíf við unglinga. Yfirskrift
kvöldsins er „Kjaftað um kyn-
líf.“ Það er Sigga Dögg kyn-
fræðingur sem ræðir við gesti.
Fræðslan er samstarf Sam-
starfshóps um forvarnir í Borg-
arbyggð og grunnskólanna í
Borgarbyggð. Í tilkynningu frá
Borgarbyggð kemur fram að
allir séu velkomnir og hvattir til
að mæta. Sjá nánar auglýsingu í
Skessuhorni í dag.
‘-mm
Skipa nefnd
um siðareglur
STYKKISH: Bæjarráð Stykk-
ishólms hefur samþykkt tillögu
Sturlu Böðvarssonar bæjarstjóra
um að kjósa þrjá bæjarfulltrúa í
nefnd sem á að setja saman siða-
reglur fyrir Stykkishólmsbæ. Í
tillögu Sturlu, sem birt er í fund-
argerð bæjarráðs, segir eftirfar-
andi um þetta mál: „Þær reglur
sem Samband íslenskra sveitar-
félaga hefur kynnt til viðmiðun-
ar verði hafðar til hliðsjónar og
felldar að þeim aðstæðum sem
hér eru og þeim áherslum sem
bæjarfulltrúar vilja hafa í slíkum
reglum.“
–mþh
Stefnt að flutningi Hnoðrabóls
að Kleppjárnsreykjum
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hef-
ur samþykkt samhljóða tillögu
byggðarráðs þess efnis að leitað
verði leiða til að leysa húsnæðis-
skort leikskólans Hnoðrabóls í
Reykholtsdal tímabundið fyrir
næsta haust. Vinnuhópur um hús-
næðismál leikskólans hefur verið
að störfum og skilað af sér skýrslu.
Þá hefur sveitarstjórn ákveðið að
framtíðar staðsetning leikskólans
verði á Kleppjárnsreykjum og að
hann verði því færður frá Gríms-
stöðum. Eins og fram hefur komið
í fréttum Skessuhorns hefur fæð-
ingum fjölgað umtalsvert í upp-
sveitum Borgarfjarðar og met síð-
ari ára var slegið í fyrra. Séra Geir
Waage sóknarprestur í Reyk-
holti gat þess nýverið í viðtali við
Skessuhorn að hann hafi skírt 15
börn á síðasta ári. Engin dæmi
væru um slíkan fjölda fæðinga frá
því hann kom til starfa í Reykholti
fyrir 36 árum.
mm
Hér er hluti hópsins sem kom í heiminn á síðasta ári og er vísir að fjölgun íbúa í
uppsveitum Borgarfjarðar. Ljósm. Kristrún Snorradóttir.
Samið um 300 þúsund króna eingreiðslu
og vísitölubindingu við Norðurál
Samningar náðust á þriðjudaginn
í liðinni viku um launakjör starfs-
manna Norðuráls á Grundartanga.
Flestir starfsmanna Norðuráls eru
félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akra-
ness, en auk þess komu að samn-
ingsgerðinni Stéttarfélag Vestur-
lands, VR, RSÍ og Félag iðn- og
tæknigreina. Vilhjálmur Birgis-
son formaður VLFA segir að sam-
ið hafi verið um 300 þúsund króna
eingreiðslu í kjarasamningnum sem
gildir til fimm ára frá 1. janúar síð-
astliðnum. Vilhjálmur segir að um
tímamótasamning sé að ræða varð-
andi kaup og kjör verka- og iðnað-
armanna á Íslandi að því leyti að
hann sé bundinn við launavísitölu
og allar hækkanir og þar með launa-
skrið mælist. Fyrsta árið verði þær
hækkanir teknar inn tvisvar sinn-
um, það er 1. júlí næstkomandi og
svo 1. janúar 2016, en síðan árlega
eftir það. Þá hækki orlofs- og des-
emberuppbót í 340.000 úr 311.000
krónum fyrir utan vísitöluhækkan-
ir. Þess má geta að ef samningur-
inn hefði verið gerður fyrir ári síð-
an, þá hefði launaliður hans hækk-
að um 6,4% á tímabilinu miðað við
hækkun launavísitölu síðustu tólf
mánuði, frá febrúar 2014 til febrú-
ar 2015.
Ragnar Guðmundsson for-
stjóri Norðuráls sagði í samtali
við Skessuhorn að fyrirtækið vildi
ekki tjá sig um hinn nýja samning
en fagnar því að stífri samninga-
lotu væri lokið. „Ég vil sem minnst
fara í einstök efnisatriði samnings-
ins, en fagna því að samningur hafi
náðst. Það er hins vegar eðlilegt að
segja sem minnst þar til starfsmenn
hafa greitt atkvæði um samninginn
næstkomandi fimmtudag,“ sagði
Ragnar.
Vilhjálmur kvaðst í samtali við
Skessuhorn vera ánægður með
að samningur væri í höfn. Skýr-
asta niðurstaðan í samningnum
sé kannski sú að nú sé venjuleg-
ur vaktmaður hjá Norðuráli með
um 580.000 krónur í heildarlaun á
mánuði. Að öðru leyti sé erfitt að
kostnaðarmeta þennan samning,
tíminn muni leiða launaþróunina
á Íslandi í ljós en hún mun mælast
hjá starfsmönnum Norðuráls eft-
ir þessa samninga. Vilhjálmur seg-
ir að ef þróun launavísitölunnar sé
skoðuð fimm ár aftur í tímann komi
í ljós að hún hafi verið að hækka um
8% á ári eða mun meira en launa-
hækkanir hafi orðið á því tíma-
bili. Vilhjálmur sagði að því miður
hefði ekki náðst í þessum samning-
um breytingar á vaktafyrirkomu-
lagi úr tólf tímum í átta tíma. Bók-
un hafi verið gerð í lok samninga-
gerðarinnar um að skipaður yrði
átta manna starfhópur skipaður jafn
mörgum úr hópi starfsmanna og
stjórnenda fyrirtækisins. Hópurinn
hefði það verkefni að meta kosti og
galla vaktafyrirkomulags og skila
tillögum sínum fyrir lok ársins.
Byrjað var strax í síðustu viku að
kynna samninginn og á kosningu
um hann að vera lokið á morgun,
fimmtudaginn 26. mars. þá