Skessuhorn - 25.03.2015, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Fiskur og
franskar verða í
boði
STYKKISH: Skipulags- og
bygginganefnd Stykkishólms
hefur samþykkt stöðuleyfi fyr-
ir söluvagn sem komið verð-
ur fyrir á hafnarsvæði Stykkis-
hólms. Í vagninum á að selja
svokallað „fish and chips.“
Það er djúpsteiktur fisk-
ur með frönskum kartöflum.
Þessi réttur hefur um áratuga-
skeið notið mikilla vinsælda
víða um heim. Það er Bjarki
Hjörleifsson sem sótt hefur
um og fengið leyfi fyrir þess-
um vagni. Skipulags- og bygg-
inganefnd leggur til að vagn-
inum verði fundinn staður
vestan við brúna út í Stykkið.
Bæjarráð Stykkishólms sam-
þykkti þessa afgreiðslu nefnd-
arinnar á fundi sínum í síðustu
viku.
–mþh
Ungt fólk og
lýðræði
STYKKISH: Ráðstefna Ung-
mennaráðs Ungmennafélags
Íslands sem nefnist „Ungt
fólk og lýðræði 2015“ fer fram
dagana 25.- 27. mars á Hótel
Stykkishólmi. Yfirskrift ráð-
stefnunnar er „margur verð-
ur af aurum api – réttindi og
skyldur ungs fólks á vinnu-
markaði.“ Ráðstefnan er ætl-
uð fólki á aldrinum 16-25 ára
sem starfar innan ungmenna-
félagshreyfingarinnar.
–eha
Aflatölur fyrir
Vesturland
14. - 20. mars.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 15 bátar.
Heildarlöndun: 1.143.598 kg.
Mestur afli: Lundey NS:
1.105.696 kg í einni löndun.
Engin löndun á Arnarstapa
í vikunni.
Grundarfjörður 8 bátar.
Heildarlöndun: 329.282 kg.
Mestur afli: Frosti ÞH:
118.269 kg í tveimur löndun-
um.
Ólafsvík 16 bátar.
Heildarlöndun: 347.463 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
57.135 kg í sjö löndunum.
Rif 18 bátar.
Heildarlöndun: 349.453 kg.
Mestur afli: Örvar SH: 47.168
kg í einni löndun.
Stykkishólmur 8 bátar.
Heildarlöndun: 29.291 kg.
Mestur afli: Kári SH: 10.409
kg í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Lundey NS – AKR:
1.105.696 kg. 16. mars
2. Hringur SH – GRU:
68.025 kg. 18. mars
3. Frosti ÞH – GRU:
61.457 kg. 18. mars
4. Frosti ÞH – GRU:
56.812 kg. 16. mars
5. Örvar SH – RIF:
47.168 kg. 19. mars
mþh
Auglýsa rekstur
Kollubars
HVANNEYRI: Landbúnað-
arháskóli Íslands hefur auglýst
til umsóknar rekstur félags- og
veitingaaðstöðunnar í gömlu
vélaskemmunni á Hvanneyri,
oftast nefndur Kollubar. Opið
er fyrir umsóknum til 10. apríl
og afhendist reksturinn 1.
júní. Möguleiki er á að tengja
reksturinn ferðaþjónustu,
menningartengdri starfsemi
eða nýsköpunarstarfi. Sömu-
leiðis væri hægt að tengja ann-
að húsnæði, svo sem Skóla-
stjórahúsið, Gamla skóla og
Gamla bútæknihúsið að hluta
eða í heild rekstrinum.
–mm
Bærinn styð-
ur við byggingu
leiguíbúða
STYKKISH: Á fundi bæj-
arráðs Stykkishólms í síð-
ustu viku var kynnt viljayfir-
lýsing og samkomulag Stykk-
ishólmsbæjar og bygginga-
félagsins Snæverks ehf. sem
gert var nýlega. Þar lýsa for-
svarsmenn Snæverks yfir vilja
sínum til að standa að bygg-
ingu lítilla íbúða í Stykkis-
hólmi sem henta vel til út-
leigu. Í fyrsta áfanga fram-
kvæmdanna er gert ráð fyr-
ir byggingu átta til tíu íbúða.
Á móti veitir Stykkishólms-
bær Snæverki lán að upphæð
sem nemur gatnagerðar- og
byggingaleyfisgjöldum ásamt
áætluðum fasteignagjöldum
í fjögur ár. Viljayfirlýsingin
kveður einnig á um að Stykk-
ishólmsbær geri leigusamn-
ing samkvæmt nánara sam-
komulagi við Snæverk eða
óstofnað leigufélag sem kaup-
ir eignirnar og annast útleigu
þeirra. Stykkishólmsbær leig-
ir þrjár íbúðir af þeim íbúðum
sem byggingarfélagið hyggst
byggja. Samkomulag um
leigutíma, leiguverð og leigu-
samning skal liggja fyrir þeg-
ar byggingaleyfi verður veitt.
Eins og fram hefur komið í
fréttum Skessuhorns, og með-
al annars í viðtali við Sturlu
Böðvarsson bæjarstjóra, þá
hefur húsnæðisekla verið mik-
il í Stykkishólmi í talverðan
tíma og sérstaklega hafi vant-
að minni og meðalstórar íbúð-
ir á markaðinn.
–þá
Handtekinn í
strætó
HOLTAV.H: Lögreglan fór
um miðjan dag síðastliðinn
fimmtudag í útkall á Holta-
vörðuheiði. Handtaka þurfti
farþega í strætisvagni sem var
á leið frá Akureyri til Reykja-
víkur. Maðurinn var í annar-
legu ástandi og hafði ógnað
fólki með skrúfjárni í Stað-
arskála. Kallað var eftir að-
stoð lögreglu og fór bíll frá
embætti lögreglunnar á Vest-
urlandi til móts við Strætó á
heiðina ásamt mönnum frá
sérsveit ríkislögreglustjóra.
Engum varð meint af og ekki
kom til átaka, að sögn lög-
reglu. Maðurinn var færður á
lögreglustöð þar sem hann var
yfirheyrður þegar víman rann
af honum.
–mm
„Þeir róa nú flestallir frá Grinda-
vík og gott ef ekki allir. Það var
ekkert að hafa á línuna hérna fyr-
ir vestan. Þorskurinn liggur bara
í loðnuáti. Ég veit þeir voru að
fá ágætis afla þarna fyrir sunnan
núna um helgina. Tryggvi Eð-
varðs SH var með um 15 tonn í
róðri og Særif SH svipað. Nú síð-
ast fór svo Brynja SH suður. Það
er nýjasti báturinn í flotanum
hér í Snæfellsbæ. Heiðar Magn-
ússon er búinn að festa kaup á
15 tonna bát af Cleopötru-gerð
sem kemur í staðinn fyrir eldri
bát sem einnig hét Brynja SH.
Þessi Cleopatra er smíðuð 2010
og hét áður Steinunn HF,“ seg-
ir Pétur Bogason hafnarvörður í
Ólafsvík.
Að sögn Péturs er þó ágætt
að hafa í netin hjá þeim sem róa
með þau frá höfnunum í Snæ-
fellsbæ. „Það lönduðu þrír neta-
bátar í gær, sunnudag, að jafnaði
um 20 tonnum hver. Þeir fóru út
í gærmorgun og voru komnir aft-
ur inn um fjögur – fimm leytið.
Einn bátur, Arnar SH, réri tvisv-
ar í gær og var kominn úr seinni
róðrinum um áttaleytið. hann
var alls með 25 tonn eftir dag-
inn. Það virðist vera alveg nóg af
fiski,“ sagði Pétur. mþh
„Síðasta árið hef ég að megninu til
verið að bora hérna á Vesturlandi.
Mest hefur það verið eftir neyslu-
vatni fyrir bændur og sumarbú-
staðaeigendur,“ sagði Sveinn Andri
Sigurðsson þegar hann var að
koma bornum fyrir í landi Hraun-
háls í Helgafellssveit í síðustu viku.
Hann var þá að byrja á borun eft-
ir vatni til að nýta við varmadælu
sem Jóhannes Eyberg bóndi hefur
hug á að koma upp, en sem kunn-
ugt er gefa varmadælur möguleika
á að nýta orku mjög vel, jafnvel
þótt vatnið sem þær nýta sé ekki
verulega heitt. Þegar blaðamað-
ur Skessuhorns hafði samband við
Svein Andra á mánudagsmorgun-
inn var hann kominn þrjátíu metra
niður með borinn en bjóst við að
þurfa að bora dýpra til að komast
niður á heitara vatn. Til stendur að
bora tvær hitastigulsholur á Hraun-
hálsi.
Sveinn Andri hefur verið búsett-
ur á Hvanneyri síðustu tvö árin en
borinn sem hann vinnur á er frá
fyrirtækinu Alvarr; bor- og verk-
fræðiþjónusta í Reykjavík, sem er
í eigu Friðfinns K Daníelssonar.
Sveinn Andri segir að verkefnin
séu næg á Vesturlandi. Í vetur hef-
ur hann verið að bora hitastiguls-
holur á eyðibýlinu Hrauni, næsta
bæ við Hraunháls, en Hraun er í
eigu fólks í Stykkishólmi. Þar áður
var hann að bora eftir neysluvatni
hjá Snæbirni á Neðra-Hóli í Stað-
arsveit. Frá Hraunhálsi fer Sveinn
Andri með borinn að Lýsudal í
Staðarsveit þar sem starfrækt er
ferðaþjónusta og þar verða borað-
ar hitastigulsholur. „Síðasta sum-
ar var ég mest í Skorradalnum að
bora eftir neysluvatni, hjá Bjarna
og Karólínu á Mófellsstöðum og á
Hálsum hjá Tryggva og Pálma. Ég
á von á því að fara þangað aftur og
bora meira,“ segir Sveinn Andri.
Með bornum sem hann vinnur á frá
Alvari er hægt að bora allt að 350
metra djúpar holur, hvort heldur
sem er eftir heitu eða köldu vatni.
þá
Sveinn Andri Sigurðsson að byrja að koma bornum fyrir í landi Hraunháls.
Segir næg borverkefni á Vesturlandi
Særif SH er einn þeirra línubáta frá
Snæfellsbæ sem nú róa frá Grindavík.
Hér er Særifið vel hlaðið af góðum
þorskafla að leggjast upp að bryggju á
Arnarstapa í fyrravetur.
Línubátar úr Snæfellsbæ
róa nú frá Suðurnesjum
Síðdegis í gær var staðfest
með undirskrift heimamanna
og fulltrúa Skipulagsstofnun-
ar svæðisskipulag Snæfellsness
fyrir tímabilið 2014-2026. Í
svæðisskipulaginu, sem ber yf-
irskriftina „Andi Snæfellsness
- Auðlind til sóknar” er sett
fram stefna um byggðar- og
atvinnuþróun á Snæfellsnesi.
Hún miðar að því að atvinnu-
lífið, þekkingargeirinn og sam-
félagið nýti sér í auknum mæli
náttúru og menningarauð
Snæfellsness og að skipulag og
mótun byggðar og umhverf-
is taki mið af honum. Svæð-
isskipulagsnefnd fimm sveit-
arfélaga á Snæfellsnesi, bæj-
arstjórar og oddvitar auk full-
trúa Skipulagsstofnunar skrif-
uðu undir við hátíðlega athöfn
í Norska húsinu. Á eftir var skálað á
táknrænan hátt í ölkelduvatni sem er
eitt af sérkennum svæðisins.
Meðal þeirra sem komið hafa að
gerð svæðisskipulagsins er Ragn-
hildur Sigurðardóttir framkvæmda-
stjóri Svæðisgarðsins Snæfellsnes.
Hún segir Snæfellinga oft hafa átt
frumkvæði svo eftir er tekið og vitn-
ar þar meðal annars til þess að Snæ-
fellsnes sé umhverfisvottað svæði.
Nú sýni þeir það fordæmi að tengja
gerð svæðisskipulagsins stofnun
Svæðisgarðsins en hann var form-
lega stofnaður á síðasta ári. Ragn-
hildur sagði í samtali við Skessu-
horn Svæðisgarðurinn væri vettvang
margvíslegs samstarfs og miðlunar
á forsendum heimamanna. Svæðis-
skipulag sé verkfæri sem hægt er að
nýta í þessum tilgangi. Sveitarstjór-
nir á svæðinu ákváðu í mars 2012 að
vinna svæðisskipulag fyrir Snæfells-
nes, í nánu samstarfi við atvinnulíf-
ið, félagasamtök og íbúa.
„Samstarfið byggist á sameigin-
legri sýn um sérstöðu svæðisins og
samtakamætti við að hagnýta sér-
stöðuna og vernda hana. Við mót-
un svæðisgarðs eru sérstaða og gæði
í náttúru og samfélagi dregin fram
og skýrð. Snæfellingar fóru þá leið
að tengja skipulagsmálin beint inn í
þessa vinnu með gerð svæðisskipu-
lags. Afraksturinn er gerður að-
gengilegur og settur fram á nota-
drjúgan hátt. Þannig geta fyrirtæki
sótt þangað efnivið í hugmyndir,
kynningargögn og vöruþróun eða
komið auga á tækifæri til samstarfs,“
segir Ragnhildur. Það var ráðgjafa-
fyrirtækið Alta sem stýrði vinnu við
gerð svæðisskipulagsins. Það má
skoða á vefnum snaefellsnes.is en
þess má geta að svæðisskipulag Snæ-
fellsness hlaut skipulagsverðalaunin
2014. þá
Svæðisskipulag Snæfellsness 2014-2026 var staðfest í gær. Ljósm. Eyþór Ben.
Svæðisskipulag fyrir Snæfellsnes staðfest