Skessuhorn - 25.03.2015, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Íbúar sem búa í næsta nágrenni við
Brákarsund í Borgarnesi söfnuðu í
liðinni viku undirskriftum 47 íbúa
sem búa næst torginu. Þar er mót-
mælt tillögu að nýju deiliskipulagi
Brákarsunds, en frestur til að gera
athugasemdir við það rann út síð-
astliðinn mánudag. Voru undir-
skriftirnar afhentar í Ráðhúsi Borg-
arbyggðar á föstudaginn. Skipulag-
ið var kynnt á íbúafundi 11. mars
síðastliðinn. Breytingarnar snúa
einkum að því að minnka bygg-
ingamagnið á reitnum. Sigursteinn
Sigurðsson arkitekt sagði í samtali
við Skessuhorn í síðustu viku að
tillögurnar snúist um þann hluta
svæðisins við Brákarsund sem nú
er óbyggður. „Fyrra deiliskipu-
lag gerði ráð fyrir fimm fjölbýlis-
húsum á reitnum en vegna mikill-
ar andstöðu við þau áform var deili-
skipulagið fellt úr gildi. Ég hef svo
verið í samstarfi við þverpólitískan
samstarfshóp og unnið að því að ná
sátt um þetta svæði. Ég vinn mikið
í samstarfi við fólk og hef gengið á
milli hagsmunaaðila. Haldnir voru
nokkrir íbúafundir og kallað eftir
áliti íbúa og fyrirtækja á svæðinu.
Mín þekking í hönnun á skipulagi
og arkitektúr kemur svo þar ofan á
og niðurstaðan er reitur með mjög
minnkuðu byggingamagni og gert
ráð fyrir torgi,“ sagði Sigursteinn.
Þrátt fyrir tillögur að minna
byggingarmagni og lágreistari
byggð telja íbúar í næsta nágrenni
Brákarsunds að nýjar tillögur gangi
ekki nógu langt í lækkun og fækk-
un bygginga. Útsýni muni skerð-
ast nái tillagan fram að ganga. Þor-
björg Þórðardóttir og María Guð-
mundsdóttir voru í hópi þeirra sem
stóðu að söfnun undirskriftanna í
liðinni viku. Ákveðið hafi verið að
safna einungis mótmælum þeirra
sem næst torginu búa. „Við fund-
um fyrir gríðarlega miklum með-
byr með því að mótmæla þessum
tillögum og það skrifuðu allir und-
ir sem náðist í. Þessar fimmtíu und-
irskriftir söfnuðust á fjórum tím-
um á fimmtudaginn. Þá voru marg-
ir fleiri úr efri byggðum Borgar-
ness sem vildu sýna hug sinn með
okkur. Við ákváðum hins vegar að
þetta yrði einungis mótmæli þeirra
sem mestra hagsmuna hafa að gæta
að hér rísi ekki of þétt og háreist
byggð. Þetta er fólk sem býr við
Egilsgötu, Skúlagötu og Brákar-
sund,“ sagði Þorbjörg, oftast kölluð
Dista, í samtali við Skessuhorn.
Jónína Erna Arnardóttir formað-
ur umhverfis- og skipulagsnefndar
sagði, þegar hún tók við mótmæl-
um nágranna Brákarsunds, að at-
hugasemdir þeirra færu sína lög-
formlegu leið, fyrir nefndina ásamt
öðrum athugasemdum.
mm
Unnið er að endurbótum á nýj-
um björgunarbáti Björgunarfélags
Akraness í húsakynnum félagsins á
Akranesi. Báturinn var keyptur af
breska sjóhernum á síðasta ári sem
notaði hann til sjómælinga. Hann
var smíðaður 1995. Báturinn hef-
ur staðið við húsakynni Björgunar-
félagsins frá því hann kom til lands-
ins í nóvember. Að sögn Guðna
Haraldssonar formanns sjóflokks
BA hefur komið í ljós að breytingar
á bátnum verði nokkuð viðameiri
en áætlað var í upphafi. Stefnt er að
því að báturinn verði afar vel útbú-
inn, meðal annars með fullkomn-
um hitamyndavélum. Til að koma
nýjum rafbúnaði fyrir þarf að vinna
þónokkrar endurbætur á rafkerfinu
um borð. Báturinn er þó að öðru
leyti í afar góðu ásigkomulagi.
Nýi báturinn er 10,5 metr-
ar á lengd og rúmir þrír metrar á
breidd. Í honum eru tvær 215 hest-
afla vélar og tvær skrúfur. Drægni
bátsins er 300 sjómílur. Stefnt er
að því að báturinn verði tilbúinn og
þá vígður á sjómannadaginn sem er
samkvæmt venju fyrstu helgi júní-
mánðar. Í ár ber þann dag upp á 7.
júní.
mþh
Skessuhorn greindi frá því í síð-
ustu viku að búið sé að segja upp
starfsmönnum Fiskmarkaðs Íslands
á Akranesi og í Stykkishólmi. Að
óbreyttu stefnir í að markaðir loki á
báðum stöðum. Ástæða þessa er sú
að of lítið af fiski berst inn á mark-
aðina. Fregnir af þessu hafa vald-
ið nokkrum áhyggjum meðal smá-
bátasjómanna. Loki markaðirn-
ir skerðast möguleikar þeirra til að
selja afla sinn. Nú eru fyrirhugað-
ar viðræður þar sem bæjaryfirvöld
á báðum stöðum og stjórnend-
ur Fiskmarkaðar Íslands koma að
borðinu. Á Akranesi munu fulltrú-
ar Faxaflóahafna einnig taka þátt.
„Þetta er mjög mikilvægt mál.
Við frá Akranesbæ höfum þegar hitt
fulltrúa Fiskmarkaðarins á einum
fundi. Þar var einnig Gísli Gíslason
hafnarstjóri Faxaflóahafna en fyrir-
tækið á það húsnæði sem Fiskmark-
aðurinn notar á Akranesi. Það er
vilji til að leysa þetta mál á farsæl-
an hátt en ég get á þessari stundu
ekki upplýst nánar um hvað fælist
í þeirri lausn,“ segir Ólafur Adolfs-
son formaður bæjarráðs Akraness.
Svipað er uppi á teningnum í
Stykkishólmi. „Við erum að und-
irbúa fund með forsvarsmönnum
Fiskmarkaðs Íslands. Þeir hafa sent
okkur bréf þar sem þeir óska fundar
með bæjaryfirvöldum hér í Stykkis-
hólmi. Við erum að reyna að finna
tíma fyrir hann. Ég reikna með að
af því geti orðið í vikunni. Það er of
snemmt að segja nokkuð um mál-
ið fyrr en að þeim fundi er lokið,“
segir Sturla Böðvarsson bæjarstjóri
Stykkishólms. mþh
Verslunin Allra manna hagur var
opnuð síðastliðinn laugardag í rúm-
góðum húsakynnum að Innnesvegi
1 á Akranesi. Það er í sama húsi
og Bílver er með sína bílasölu og
–verkstæði. Verslunin mun bjóða
upp á verkfæri, vinnufatnað, veiði-
vörur, byggingavörur, gæludýra-
vörur, bílavörur og fleira. „Það var
opið frá klukkan 10 til 14 fyrsta dag-
inn og það kom fjölmargt fólk. Það
hefði hæglega verið hægt að halda
opnu allan þann dag. Við verðum
vör við mikinn áhuga fyrir versl-
uninni. Hér er búinn að vera stöð-
ugur straumur viðskiptavina frá því
við opnuðum,“ sagði María Þórunn
Friðriksdóttir verslunarstjóri í sam-
tali við Skessuhorn á mánudaginn.
Allra manna hagur verður opin frá
kl. 8 til 18 alla virka daga. Auk þess
verður opið bæði laugardaga og
sunnudaga frá kl. 10 til 14.
mþh
Frá afhendingu undirskriftalista gegn skipulaginu við Brákarsund í Ráðhúsinu
síðastliðinn föstudag. F.v. Kolfinna Jóhannesdóttir sveitarstjóri, María Guð-
mundsdóttir, Þorbjörg Þórðardóttir og Jónína Erna Arnardóttir formaður um-
hverfis- og skipulagsnefndar. Ljósm. eha.
Mótmæltu tillögu að deiliskipu-
lagi við Brákarsund
Tillaga Gjafa að breyttu skipulagi við Brákarsund.
Handfæraþorski landað á Akranesi fyrr í þessum mánuði.
Rætt um framtíð fiskmarkaða á
Akranesi og í Stykkishólmi
Báturinn þegar komið var með hann til landsins. Ljósm. þá.
Nýr björgunarbátur tilbú-
inn fyrir sjómannadaginn
María Þórunn Friðriksdóttir er verslunarstjóri í Allra manna hagur á Akranesi.
Ný verslun opnuð
á Akranesi