Skessuhorn - 25.03.2015, Side 11
11MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
www.skessuhorn.is
Fylgist þú með? S: 433 5500
Tæplega sextugur maður sem um
tíma var verktaki á Akranesi og
nágrenni en nú með lögheimili á
Hvammstanga, er í nýlegum dómi
Héraðsdóms Veturlands sakfelld-
ur fyrir stórfellt brot gegn skatta-
lögum. Maðurinn er dæmdur í
tíu mánaða skilorðsbundið fang-
elsi og gert að greiða 58 milljónir
króna í sekt til ríkissjóðs innan fjög-
urra vikna frá uppkvaðningu dóms-
ins, en sæti ella fangelsi í 12 mán-
uði. Málið höfðaði sérstakur sak-
sóknari með ákæru 20. septem-
ber 2013. Það er rakið til þess að
embætti skattrannsóknastjóra hóf
rannsókn á bókhaldi og skattskilum
Leiksopps Akraneskaupstaðar ehf.,
áður Verkfells ehf., fyrir rekstrar-
árin 2005 til og með 2009. Leiddi
rannsóknin m.a. í ljós meint brot
ákærða, þar sem ákærði var grun-
aður um að hafa staðið skil á röng-
um virðisaukaskattsskýrslum fyr-
ir hönd félagsins, vegna allra upp-
gjörstímabila 2005 til 2008 og van-
rækslu á skilum á virðisaukaskatts-
sskýrslum vegna uppgjörstímabil-
anna janúar og febrúar rekstararár-
ið 2009. Rannsóknin leiddi í ljós að
vanframtalinn útskattur hefði num-
ið 17,3 milljónum króna og mögu-
legur innskattur hefði numið 2,3
milljónum. Þá hefðu bókhaldsgögn
ekki verið afhent.
Ákærði fór fram á sýknu í mál-
inu. Hann byggði sýknukröfu á
þeim grunni að þó svo að hann
hafi verið skráður stjórnarmað-
ur félagsins hafi hann ekki kom-
ið að fjármálum þess eða skattskil-
um. Héraðsdómur féllst ekki á að
þau rök. Í niðurstöðum dómsins
segir að ágreiningslaust sé í mál-
inu að ákærði var stjórnarformað-
ur einkahlutafélagsins á þeim tíma
sem um ræðir og það hafði verið
tilkynnt hlutafélagaskrá. Ákærði
hafi jafnframt fyrir dómi borið að
hann hafi séð um þær framkvæmd-
ir sem þurfti að gera og því hefði
ekki verið ráðinn framkvæmda-
stjóri.
þá
Ferðaþjónustuaðilar á Snæfells-
nesi komu saman í Grundarfirði
á þriðjudaginn í liðinni viku til að
stilla saman strengi sína fyrir kom-
andi vertíð. Fundurinn var um
stefnumótun og framtíðarsýn í ís-
lenskri ferðaþjónustu. Markmið-
ið var að kynna þá vinnu sem unn-
in hefur verið varðandi stefnumót-
un í þessum málaflokki á Snæfells-
nesi auk þess að kalla fram umræð-
ur um framtíðarsýn í greininni. Það
voru Svæðisgarðurinn Snæfells-
nes, Þjóðgarðurinn Snæfellsnes og
markaðs- og kynningarfulltrúar á
Snæfellsnesi sem stóðu fyrir fund-
inum. Þokkalegasta mæting var á
fundinn enda er þetta stækkandi at-
vinnugrein á landinu öllu. tfk
Dæmdur til hárrar fjársektar og
fangelsisvistar fyrir skattsvik
Ferðaþjónustufólk á
Snæfellsnesi kom saman
Leikdeild Umf. Skallagríms kynnir gamanleik með söngvum:
Barið í brestina
Höfundur: Guðmundur Ólafsson - Leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson
Bráðfyndinn gamanleikur sýndur í Lyngbrekku
6. sýning miðvikudaginn 18. mars kl. 20:30
7. sýning laugardaginn 21. mars kl. 20:30
8. sýning sunnudaginn 22. mars kl. 20:30
9. sýning miðvikudaginn 25. mars kl. 20:30
10. sýning mmtudaginn 26. mars kl. 20:30
11. sýning föstudaginn 27. mars kl. 20:30
LOKASÝNING laugardaginn 4. apríl kl. 20:30
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðapantanir í síma 846 2293 og á midi.is
Veitingasala á sýningum - enginn posi á staðnum
UPPSE
LT!
UPPSE
LT!
UPPSE
LT!
Umsagnir áhorfenda:
„Ég hló stanslaust allan tímann!“
„Ég held ég ha aldrei hlegið svona
mikið á leiksýningu!“
Miðaverð kr. 2.500
Börn & eldri borgarar kr. 2.000
Verslunarstjóri
Vínbúðin Búðardal
Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is.
Umsóknarfrestur er til og með 7.apríl.2015
Starfshlutfall er 42,5 - 45% eftir árstíma.
Ráðið verður í stöðuna sem fyrst og mikilvægt
að viðkomandi geti byrjað fljótlega.
Nánari upplýsingar veitir Emma Ásudóttir Árnadóttir
(emma@vinbudin.is / 560 7700).
ÁTVR rekur 49 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eitt af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins
og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og
skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og þjónusta við viðskiptavini
- Fylgja eftir gæða- og þjónustustefnu fyrirtækisins
- Dagleg stjórnun
- Birgðahald og umhirða búðar
Hæfniskröfur
- Jákvæðni og rík þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Reynsla af verslunarstörfum nauðsynleg
- Tölvukunnátta nauðsynleg
(þekking á Navision er kostur)
Starf verslunarstjóra í Vínbúðinni Búðardal er laust til umsóknar.
Gildi Vínbúðanna eru LIPURÐ - ÞEKKING - ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu munu taka mið
af þessum gildum