Skessuhorn - 25.03.2015, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Nýverið fór fram í Laugardals-
höllinni í Reykjavík úrslitakeppni
í söngkeppni Samfés. Þar kepptu
fulltrúar félagsmiðstöðva á land-
inu. Sigurvegari varð Jóhanna Ruth
Luna Jose úr félagsmiðstöðinni
Fjörheimum í Reykjavík. Í öðru
sæti hafnaði hins vegar Skagamað-
urinn Símon Orri Jóhannsson úr
félagsmiðstöðinni Arnardal. Sím-
on söng lagið La donna è mobile
úr óperunni Rigoletto eftir Verdi.
Það var Halla Margrét Jónsdóttir
sem lék undir á píanó. Símon er ný-
byrjaður að syngja og hefur aldrei
stundað söngnám.
„Ég tók fyrst þátt í Hátónsbark-
anum í Grundaskóla með vinum
mínum, bara svona upp á grínið.
Þegar ég vann í þeirri keppni ákvað
ég að taka þátt í SamVest í Búðar-
dal, undankeppninni fyrir söng-
keppni Samfés hér á Vesturlandi
og vann þar einnig,“ segir Símon.
Halla Margrét sá einnig um und-
irleik á keppninni í Búðardal. Þeg-
ar blaðamaður spyr hvers vegna
Símon Orri hafi valið að syngja La
donna è mobile, svarar hann því
til að Flosi Einarsson tónmennta-
kennari hafa bent honum á lagið.
„Svo er það náttúrulega í Ristor-
ante pítsuauglýsingunum,“ segir
Símon. kgk
Símon Orri í öðru sæti í
söngkeppni Samfés
Símon Orri og Halla Margrét að keppni lokinni. Ljósm. Sigríður Kr. Valdimars-
dóttir.
Á síðustu árum hafa verið stofnuð
fjölmörg fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Forsvarsmenn margra þeirra tak-
ast nú á við það að fylgja eftir mik-
illi aukningu í komu ferðamanna
til landsins. Eitt þeirra er Snæfells-
nes Excursions en eigandi þess er
Hjalti Allan Sverrisson í Grundar-
firði. Hjalti hefur verið að færa út
kvíarnar með sitt fyrirtæki síðustu
árin og á þessu ári ætlar hann að
bjóða upp á fleiri ferðir fyrir ferða-
menn og verður meðal annars í sam-
starfi við Sæferðir í Stykkishólmi.
Það var einmitt í bækistöðvum Sæ-
ferða sem blaðamaður Skessuhorns
hitti Hjalta að máli í liðinni viku.
Hann var þá nýkominn af samráðs-
fundi fólks frá rúmlega 15 fyrirtækj-
um í ferðaþjónustunni við Breiða-
fjörð og Vestfirði sem standa að baki
heimasíðunni vinterbrake.is. „Það
hafa verið mikil fundahöld hjá okk-
ur að undanförnu. Í gær vorum við
til dæmis að funda aðilar sem eru í
samvinnu um Svæðisgarð Snæfells-
ness,“ sagði Hjalti. Þessa dagana er
að byrja mikil vertíð hjá honum.
Fyrsta skemmtiferðaskip ársins er
væntanlegt til Grundarfjarðar og
önnur 29 skip í sumar, sem er mik-
il aukning frá síðustu árum. Hjalti
hefur leyst þörf fyrir hópferðabíla
við komu skemmtiferðaskipanna
með góðu samstarfi við Hópferða-
bíla Akureyrar. Einnig hefur hann
leigt bíla í fleiri ferðir. Nú er Hjalti
að skoða kaup á tveimur fimmtíu
manna rútum. „Það verður að stíga
varlega til jarðar og ekki ætla sér að
gleypa allan heiminn. Það er nú ekki
ennþá tryggt að þessi ferðamanna-
straumur til landsins haldist, þótt
vissulega sé full ástæða til bjartsýni,“
segir hann.
Strætóferðirnar
uppistaðan
Hjalti er Grindvíkingur að upp-
runa en kona hans Lísa Ásgeirsdótt-
ir er frá Grundarfirði. Þau fluttu í
Grundarfjörð fyrir fimm árum.
Hjalti segist lengi hafa starfað við
ferðaþjónustuna og meðal annars
á árum áður keyrt fyrir fyrirtæk-
ið Hópbíla. Hann stofnaði fyrir-
tækið Snæfellsnes Excursions árið
2012 og frá upphafi hefur uppi-
staðan í starfseminni verið að gera
út bíla til strætisvagnaferða á Snæ-
fellsnesi. Árið 2012 voru það ein-
göngu ferðir milli Hellissands og
Stykkishólms. Ári seinna var síðan
gerður samningur í gegnum Strætó
bs, við Samtök sveitarfélaga á Vet-
urlandi um aksturinn og þá bættist
við leiðin Stykkishólmur-Borgar-
nes-Stykkishólmur og ferðum var
um leið fjölgað. Yfir sumarið eru
tvær ferðir á dag á þessum leiðum
flesta daga vikunnar. Hjalti segir að
fólk nýti sér í æ ríkara mæli strætó-
ferðirnar. Einkum séu það erlend-
ir ferðamenn sem fylli vagnana yfir
sumarið en Íslendingar eru enn sem
komið er í meirihluta í vetrarferð-
um. Kannski á það eftir að breytast
með fjölgun ferðamanna til lands-
ins, einnig yfir vetrartímann. „Það
er að sjá ótrúlega fjölgun útlend-
inga að vetrinum. Maður verður til
dæmis var við miklu fleiri bílaleigu-
bíla en áður,“ segir Hjalti.
Spennandi samstarf
við Sæferðir
Yfir vetrartímann frá desember og
fram í mars er Hjalti að keyra með
hópa ferðafólks fyrir ferðaskrifstofu-
rnar. Þetta hafa verið frá tíu upp í
sextán ferðir á þessu tímabili. Hann
segir mikla aukningu í ferðunum á
Snæfellsnes en veðrið í vetur hafi þó
sett strik í reikninginn. „Stundum
höfum við verið veðurteppt í Reykja-
vík og ekki komist á Snæfellsnesið.
Síðan hefur hvorki hvalurinn eða
síldin sýnt sig en reyndar hefur ver-
ið mikið um stórhveli út af loðnunni
síðustu vikurnar. Við höfum komið
til móts við þá ferðalanga með því
að fara í skoðunarferðir í Kolgrafa-
fjörð, Berserkjahraun og dagsferð-
ir til Stykkishólms. Síðan hafa ver-
ið margar ferðir með fólk sem vill
njóta norðurljósanna. Sem betur fer
hafa um 90% þess ferðafólks upplif-
að norðurljósin í vetur og verið mjög
ánægt,“ segir Hjalti. Síðustu sumur
hefur hann efnt til skoðanaferða um
Snæfellsnesið. Hann segir að aukn-
ing hafi verið í þessar ferðir síðasta
sumar. Næsta sumar er hugmyndin
að tengja ferðirnar samstarfinu við
Sæferðir. „Ég tek þá við hópum í
Reykjavík og þar verða meðal annars
þeir sem fara í Viking-sushi ferðirn-
ar með Sæferðum sem og þeir sem
fara í skoðunarferðir um Snæfells-
nesið. Þetta verður spennandi sam-
starf við Sæferðir og gaman að sjá
hvað kemur út úr því. Yfir sumarið
erum við svo líka með reglubundnar
ferðir frá Arnarstapa upp að sporði
Snæfellsjökuls.“
Markaðsstarfið
að skila sér
Hjalti hefur verið að bæta bílakost-
inn jafnt og þétt, enda hefur ekki
veitt ekki af því við fjölgun ferða og
aukna þjónustu. „Svo er að sjá sem
markaðsstarfið þessi þrjú ár sem við
höfum verið í rekstri sé að skila sér.
Við erum orðin vel sýnileg á mark-
aðinum. Fyrirtækið á orðið fjóra
fólksflutningabíla af minni stærð-
inni og við erum núna að skoða kaup
á einum eða tveimur 50 manna bíl-
um sem myndu þá koma til okkar á
næstu vikum. Þetta eru svona þrjátíu
skipti á ári sem við höfum þurft að
bæta við bílum og yfirleitt þar not-
ið góðs af samstafi við Hópferðabíla
Akureyrar. Við höfum kosið að fara
varlega í fjárfestingar meðan traust-
ur grunnur undir reksturinn er að
byggjast upp. Fastir starfsmenn hafa
verið þrír til fjórir yfir vetrartímann
og þeim fjölgar talsvert yfir sumarið
á aðalvertíðinni. Við erum þó mik-
ið með lausráðna bílstjóra og viljum
gjarnan fá fleiri á skrá sem og leið-
sögumenn sem oft virðist vera mikil
vöntun á,“ segir Hjalti Allan Sverris-
son hjá Snæfellsnes Excursions.
þá
Færir út kvíarnar en ætlar ekki að gleypa heiminn
Spjallað við Hjalta Allan í Snæfellsnes Excursions í Grundarfirði
Hjalti Allan Sverrisson hjá Snæfellsnes Excursions.
Styrkjum úthlutað úr húsafriðunarsjóði
Nú liggur fyrir úthlutun styrkja Minja-
stofnunar Íslands úr húsafriðunarsjóði
fyrir árið 2015. Tilgangur styrkveit-
inga úr sjóðnum er að tryggja viðhald
og endurbætur á friðlýstum og friðuð-
um húsum og mannvirkjum. Einnig er
heimilt að veita úr sjóðnum styrki til
viðhalds eða endurbóta annarra mann-
virkja að því gefnu að þau hafi menn-
ingarsögulegt, vísindalegt eða listrænt
gildi.
Heildarverðmæti styrkja sem
renna til mannvirkja á Vesturlandi er
7,2 milljónir króna og skiptast þann-
ig:
Hreppslaug í Efri-Hrepp í Skorradal,
900 þúsund kr.
Íþróttahúsið á Hvanneyri,
900 þúsund kr.
Gamla húsið á Sauðafelli í Dölum,
700 þúsund kr.
Samkomuhúsið Aðalgötu 6 í Stykkis-
hólmi, 700 þúsund kr.
Norska húsið, Stykkishólmi,
700 þúsund kr.
Stafholtskirkja í Stafholtstungum,
600 þúsund kr.
Skólahúsið í Ólafsdal við Gilsfjörð,
600 þúsund kr.
Bjarnarhafnarkirkja í Helgafellssveit,
500 þúsund kr.
Búðakirkja á Búðum á Snæfellsnesi,
500 þúsund kr.
Gamla húsið að Ferjukoti í Borgarfirði,
500 þúsund kr.
Leifsbúð í Búðardal, 500 þúsund kr.
Mjólkurhúsið í Ólafsdal við Gilsfjörð,
500 þúsund kr.
Strýta í Flatey á Breiðafirði,
400 þúsund kr.
Brautarholt I í Haukadalshreppi í Döl-
um, 300 þúsund kr.
Þverá í Eyja- og Miklaholtshreppi,
300 þúsund kr.
Bakkakot í Skorradal, 200 þúsund kr.
kgk
Gamla íþróttahúsið á Hvanneyri.
Gamli bærinn á Ferjukoti.
Hreppslaug í Skorradal.