Skessuhorn - 25.03.2015, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Eiríkur Blöndal frá Jaðri í Bæjar-
sveit mun að eigin ósk láta af störf-
um sem framkvæmdastjóri Bænda-
samtaka Íslands um næstu mánaða-
mót. Stjórn Bændasamtakanna hef-
ur ákveðið að ráða Sigurð Eyþórs-
son sem framkvæmdastjóra BÍ frá
1. apríl næstkomandi. Var þetta til-
kynnt á fundi með starfsmönnum
Bændasamtakanna í síðustu viku.
Eiríkur hóf störf sem framkvæmda-
stjóri BÍ í byrjun árs 2008. Næstu
mánuði mun hann sinna verkefnum
tengdum fasteignaþróun hjá Hótel
Sögu ehf. en auk þess er hann með
búskap á Jaðri í Borgarfirði sem
hann hyggst efla.
Sigurður Eyþórsson er 44 ára,
fæddur að Kaldaðarnesi í Flóa í Ár-
nessýslu. Hann hefur starfað fyr-
ir samtök bænda frá árinu 2007,
sem framkvæmdastjóri Landssam-
taka sauðfjárbænda og Markaðs-
ráðs kindakjöts, auk hlutastarfs fyr-
ir Bændasamtökin. Þar áður starf-
aði hann sem framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins. Sigurður er
kvæntur Sigríði Zoëga hjúkrunar-
fræðingi.
mm
Bæjarráð Stykkishólms samþykkti á
fundi sínum á fimmtudag í síðustu
viku að nýta forkaupsrétt bæjarins á
aflaheimildum línutrillunnar Arnars
II SH. Þær eru á þessu fiskveiðiári
tæp 57 tonn af þorski, en alls 60,95
þorskígildistonn. Útgerð Arnars II
hafði gert samning við Melnes ehf.
Rifi um sölu á bátnum ásamt afla-
heimildum þangað. Samkvæmt lög-
um um stjórn fiskveiða getur sveit-
arfélag nýtt sér forkaupsrétt á afla-
heimildum ef stefnir í að þær hverfi
úr byggðinni. Sturla Böðvarsson
bæjarstjóri í Stykkishólmi auglýsti
með stuttum fyrirvara eftir aðilum
í bænum sem kynnu að vilja nýta
sér það að kaupa bátinn ásamt afla-
heimildum ef svo færi að bærinn
nýtti sér forkaupsréttinn og gengi
inn kaupsamninginn. Frestur til að
hafa samband við bæjaryfirvöld var
gefinn til klukkan 16 þriðjudaginn
17. mars. Eftir þetta gerðust hlut-
irnir hratt. Fyrirtækið agustson ehf.
í Stykkishólmi lýsti vilja til að kaupa
bæði bát og kvóta af bænum. Bæjar-
ráð samþykkti því að nýta forkaups-
réttinn og selja síðan bát og kvóta
aftur til agustson ehf. samkvæmt
tilboði. Sturlu bæjarstjóra var falið
ganga frá málinu.
mþh
Nú er unnið að endurgerð 23 íbúða
í Gamla kaupfélagshúsinu við Eg-
ilsgötu 11 í Borgarnesi. Húsið er í
eigu Péturs Geirssonar hótelstjóra
á Hótel Borgarnesi. Pétur keypti
húsið af Íbúðalánasjóði í lok síð-
asta árs, en það hefur verið í nið-
urníðslu undandarin ár eða síðan
rekstarfélagið sem átti húsið fór í
þrot. Pétur hefur ráðið fjölmarga
iðnaðarmenn til að standsetja íbúð-
ir í húsinu og hefur verkið gengið
vel. Hluti þeirra verður svo tilbú-
inn áður en mesta törnin í ferða-
þjónustunni hefst í vor. „Ég byrj-
aði hérna í desemberbyrjun,“ seg-
ir Guðmundur Arason verkstjóri í
samtali við blaðamann. „Það þurfti
að tryggja klæðninguna að utan og
koma í veg fyrir frekari leka inn í
húsið, svo við kæmumst fyrir mygl-
una sem var í mörgum íbúðanna.“
Eina vitið að gera
þetta vel
„Það er búið að taka þetta allt
saman í gegn, öll votrými rifin út,
hreinsuð og þurrkuð,“ segir Dag-
bjartur Haraldsson smiður. „Við
erum búnir að vera hér að störf-
um undanfarna tvo mánuði fimm
smiðir, fjórir píparar, tveir raf-
virkjar, tveir málarar og flísalagn-
ingamaður. Samanlagt með yfir
200 ára starfsreynslu,“ segir Dag-
bjartur og bætir við brosandi; „og
þetta er örugglega í fyrsta skipið
sem ég er með yngstu mönnum í
hópnum.“ Margir iðnaðarmenn-
irnir eru af Vesturlandi. Dag-
bjartur er nýfluttur frá Grundar-
firði eftir að hafa búið þar í 17 ár.
„Það er rosalega mikilvægt fyrir
samfélagið að það sé einhver að
gera eitthvað,“ segir Dagbjart-
ur um framtak Péturs Geirsson-
ar hótelstjóra. „Húsið var búið
að vera munaðarlaust í tíu ár og
Pétur er að gera þetta almenni-
lega. Enda er það eina vitið þegar
um myglusvepp er að ræða í hús-
um.“
Lausnarmiðuð vinna
„Öll þessi vinna reynir á að við
séum lausnarmiðaðir,“ segir Guð-
mundur verkstjóri. „Til dæmis
lentum við í veseni með eitt sal-
ernið og það kostaði okkur viku-
vinnu þar sem það reyndist flókn-
ara úrlausnar en í fyrstu sýndist.
Þetta er samt allt að smella hjá
okkur.“ Nú er verið að bíða eft-
ir blikksmiðum því nýtt loftræsti-
kerfi verður sett í allt húsið. Þá
er fyrsti verkhlutinn að verða til-
búinn. „Það eru fíniseringar eft-
ir á efstu hæðinni í C-hlutanum,“
segir Dagbjartur. „Það verða um
20 rými tilbúin til útleigu í maí-
lok, en þar voru áður ellefu íbúð-
ir.“ Settar verða upp nýjar inn-
réttingar sem Pétur flytur sjálfur
inn frá Ítalíu. Framkvæmdinni er
í raun skipt í nokkra verkhluta og
sá fyrsti er á efstu hæðinni sem
fyrst verður tilbúinn. Hluti mið-
hæðarinnar Egilsgötumegin er
komin litlu styttra á veg. Aðrir
verkhlutar eru komnir skemmra.
Enn er ekki byrjað á fullum krafti
á kjallarahæðinni sem snýr að
Brákarsundi.
Starfsandinn er léttur
Karlarnir sem koma að uppbygg-
ingu Egilsgötu 11 hafa gert ým-
islegt sér til skemmtunar og eru
með það á hreinu að félagslíf-
ið verði að vera í lagi. „Við höf-
um haldið pílukvöld og borðað
saman góðan mat,“ segir Guð-
mundur Jón Amilín Sigurðsson
beikonbóndi og smiður og bætir
við; „svo vorum við með beikon-
dag, þá boðuðum við hann Ró-
bert,“ segir Guðmundur Jón og
hlær. Róbert þessi var grís sem
Guðmundur Jón ól og leyfði að
lifa yfir jólin. Svo var hann send-
ur í sláturhúsið og gerður með-
al annars að umræddu beikoni.
„Þetta var besta beikon sem ég
hef bragðað, enda var hann alinn
á negrakossum hjá honum Guð-
mundi Jóni,“ segir Dagbjartur
og skellihlær og hinir taka und-
ir.
eha
Unnið af krafti að uppbyggingu Gamla Kaupfélagshússins
Guðmundur Arason verkstjóri kemur með meira timbur til verksins. Unnsteinn Arason smiður og Dagbjartur Haraldsson smiður tóku
vel á móti blaðamanni.
Rífa þurfti öll votrými í húsunum til þess að komast fyrir myglu-
sveppinn.
Eftir að votrými voru hreinsuð og þurrkuð voru þau klædd með
viðeigandi vatnsheldum efnum til að koma í veg fyrir að myglu-
sveppurinn gæti tekið sig upp að nýju.
Stefán Sigmundsson er múrari og málari og hefur komið að verk-
efninu síðasta mánuðinn.
Guðmundur Jón Amilín Sigurðsson beikonbóndi og smiður og Dag-
bjartur deila skemmtisögum í kaffitímanum.
Kvótinn af Arnari II SH helst áfram í Stykkishólmi þar sem agustsson ehf. kaupir bæði bát og aflaheimildir eftir að
Stykkishólmsbær nýtir sér forkaupsrétt samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða. Ljósm. af
Kvóti Arnars II SH helst í heimabyggð
Eiríkur og Sigurður. Samsett ljósm. Bændasamtökin.
Framkvæmdastjóraskipti hjá
Bændasamtökunum