Skessuhorn - 25.03.2015, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Vertíð vetrarins á loðnu virðist nú
á enda. Enn voru þó mörg skip á
miðunum á Breiðafirði og und-
ir Jökli í byrjun vikunnar í veikri
von um að eitthvað fyndist af veið-
anlegri loðnu. „Þetta er að fjara
út. Það hefur eitthvað lítið verið
í gangi hjá þeim á skipunum síð-
ustu daga,“ segir Almar Sigurjóns-
son rekstrarstjóri fiskimjölsverk-
smiðja HB Granda. Eina höfnin á
Vesturlandi sem tekur á móti loðnu
er á Akranesi þar sem HB Grandi
er með fiskimjölsverksmiðju og
loðnuhrognavinnslu.
Almar segir að vinnslan hafi
gengið prýðilega. „Þetta hefur
unnist hratt og vel. Fiskimjölsverk-
smiðjan hefur tekið á móti 23.600
tonnum það sem af er. Heildin
fer kannski í um eða rétt upp fyrir
24.000 tonn þegar upp verður stað-
ið að því gefnu að HB Granda skip-
in sem enn eru úti komi með ein-
hverja slatta úr þeim túrum sem
þau eru í nú. Þetta er umtalsvert
meira hráefni en á loðnuvertíðinni
í fyrra. Þá tók verksmiðjan á Akra-
nesi við 9.380 tonnum af loðnu og
loðnuhrati í heildina.“ Að sögn Al-
mars hefur loðnuhrognavinnslu
vertíðarinnar á Akranesi nú verið
hætt. „Þar eru menn bara að taka
niður búnað og þrífa núna. Það er
búinn að vera fínn gangur í hrogna-
vinnslunni.“
Nú tekur við hlé á móttöku hrá-
efnis hjá fiskimjölsverksmiðju HB
Granda að því undanskildu að unn-
ið er úr karfaafskurði frá fiskiðju-
veri fyrirtækisins í Reykjavík. „Það
gæti svo verið að einhverju yrði
landað hér af kolmunna seinna í
vor en tíminn mun leiða það í ljós,“
segir Almar.
Einhver loðnukvóti virðist
brenna inni þó að ótrúlega hafi ræst
úr vertíðinni miðað við veður og
önnur skilyrði. Samkvæmt stöðul-
ista Fiskistofu í gær var þann dag
alls búið að landa 344.000 tonn-
um úr íslenskum skipum en 49.000
tonn stóðu óveidd af heildarkvóta
þeirra. mþh
Bæjarráð Stykkishólms samþykkti
á fundi sínum á mánudaginn, með
tveimur atkvæðum gegn einu, að selja
húseignina Hafnargötu 7 í Stykkis-
hólmi. Kaupandi er Marz-sjávaraf-
urðir ehf. Fyrirtækið hyggst rífa hús-
ið og láta byggja þar nýtt. Salan á
húsinu hefur verið umdeild í Stykk-
ishólmi. Forsaga þess er sú að Stykk-
ishólmsbær auglýsti í október á síð-
asta ári húseignir í sinni eigu til sölu.
Þetta voru gamla barnaskólahúsið við
Skólabraut sem hefur verið nýtt fyr-
ir tónlistarskólann og húsnæði Amt-
bókasafnsins við Hafnargötu.
Selja til að hagræða
Nota á söluandvirði húsanna til að
stækka grunnskólahúsið í Stykkis-
hólmi þannig að það nýtist einn-
ig fyrir tónlistarskólann og Amts-
bókasafnið. Með þessu er vonast
til að ná fram hagræðingu í rekstri
Stykkishólmsbæjar sem er í þröngri
stöðu. Það er húsnæði Amtsbóka-
safnsins sem er að Hafnargötu 7
sem nú er selt. Þetta hús var um
árabil byggingavörudeild Kaup-
félags Stykkishólms og sker sig að
útliti til nokkuð úr þeim gömlu
húsum sem eru í kring.
Þrjú tilboð bárust í Hafnargötu
7. Tvö þeirra voru frá Bókaverzlun
Breiðafjarðar og hljóðuðu samtals
upp á 50.955.000 og 52.430.000.
Þriðja tilboðið var svo frá Marz-
sjávarafurðum upp á 53.265.000.
Það er þessu síðastnefnda tilboði
sem meirihluti bæjarráðs Stykkis-
hólms ákvað að taka á fundi sínum
á mánudag.
Hafa áform um
uppbyggingu
Með tilboði sínu hafa Marz-sjávaraf-
urðir kynnt bæjarstjórn Stykkishólms
bréflega áform um uppbygginu á lóð-
inni. Í þeim felst að rífa núverandi
hús. Í staðinn verði byggð tvö ný hús
í gömlum stíl. Á suðurhluta lóðarinn-
ar yrði íbúðarhús sem yrði selt þeg-
ar byggingu þess væri lokið. Húsið á
norðurhluta lóðarinnar gæti á hinn
bóginn nýst sem verslunar- og/eða
skrifstofuhúsnæði, kaffihús og jafnvel
að hluta til íbúðarhús. Þessar bygg-
ingar yrðu þannig bæjarprýði, féllu
vel að gamla miðbænum í Stykk-
ishólmi og yrðu til þess fallnar að
glæða hann lífi. Hugsunin yrði ekki
ólík þeirri sem er á bak við hús Æð-
arseturs Íslands sem nú er verið að
ljúka við á lóð skammt frá. „Metnað-
ur okkar stendur til þess að gera þetta
eins vel og hægt er og kalla til sam-
starfs færustu arkitekta landsins, sem
hafa sérhæft sig í uppbygginu gamalla
húsa,“ stendur orðrétt í bréfinu sem
er undirritað af Erlu Björgu Guðrún-
ardóttur hjá Marz-sjávarafurðum.
Bókaði á móti
Lárus Ástmar Hannesson fulltrúi
minnihlutans í bæjarráði greiddi at-
kvæði gegn þessu og lagði inn bókun
um málið. Í henni segir meðal ann-
ars að hann telji það mistök að ekki
hafi verið gengið til viðræðna við
fulltrúa Bókaverzlunar Breiðafjarðar
um samstarf. „Ég tel að í samkomu-
lagi við áðurnefnda aðila hefði ver-
ið mögulegt að setja saman verulega
góða einingu þar sem saman yrðu
rekin verslun, bókasafn, bókakaffi og
e.t.v. upplýsingamiðstöð. Með áður-
nefndum samrekstri hefði að öllum
líkindum náðst hagræði í rekstri og til
hefði orðið lífleg og skemmtileg ein-
ing í miðbænum okkar, Hólminum
til heilla enda hugðust tilboðsgjaf-
ar nýta sér byggingarréttinn,“ segir
meðal annars í bókun Lárusar.
mþh
Sjö konur hafa í síðan í janúar sótt
námskeið í Grundaskóla á Akranesi
þar sem þær hafa saumað sér þjóð-
búninga undir handleiðslu Hild-
ar Rósenkjær, kjóla- og klæðskera-
meistara. Námskeiðið er tengt verk-
efninu HÚFA, handbragð úr fornri
aðferð, sem haldið hefur verið úti á
Safnasvæðinu á Akranesi. Þar hafa
þessar sömu konur kynnt fornt
handbragð. Síðasti námskeiðsdagur-
inn var síðastliðinn mánudag. kgk
Námskeið í þjóðbúningasaumi
Þjóðbúningarnir tilbúnir. Frá vinstri: Ásta Jenný, Vigdís, María Lúísa, Hjördís, Ingunn Guðbjörg og Gíslína.
Ókláraður 19. aldar upphlutur.
Fyrir einskæra tilviljun var æfing hjá Harmonikkufélagi Akraness í næstu stofu.
Konurnar gripu tækifærið og stigu léttan vals að námskeiði loknu við ljúfan undir-
leik.
Bakhlið þjóðbúninganna.
Vestmannaeyjaskipið Kap VE landaði loðnu á Akranesi um síðustu helgi. Skipið
kom með um 560 tonn sem það hafði veitt úr kvóta HB Granda.
Loðnuvertíð á
síðustu metrunum
Horft yfir hluta gamla miðbæjarins í Stykkishólmi. Gamla Amtsbókasafnshúsið
er hægra megin fyrir miðri mynd. Það stefnir nú í að verða rifið og tvö ný hús í
gömlum stíl byggð á lóðinni í staðinn. Ljósm. Þorkell Þorkelsson.
Marz-sjávarafurðir kaupa
gamalt bókasafnshús
Verið að leggja lokahönd á búningana.