Skessuhorn


Skessuhorn - 25.03.2015, Síða 17

Skessuhorn - 25.03.2015, Síða 17
17MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015 S K E S S U H O R N 2 01 5 Sumarstarf hjá Upplýsingarmiðstöð Vesturlands Laust er til umsóknar starf í Upplýsingarmiðstöð Vesturlands. Hlutverk er að veita upplýsingar til ferðamanna. Starfsstöð er í Borgarnesi, vinnutími er 10:00-18:00, unnið aðra hverja helgi. Starfssvið -Móttaka og upplýsingagjöf til ferðamanna -Vinna sjálfstætt að verkefnum Hæfniskröfur -Góð tök á ensku og íslensku -Þekking á Vesturlandi -Stundvísi og góð þjónustulund Starfstími er frá 1. júní – 31. ágúst. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní 2015. Umsóknir ásamt ferilskrá berist eigi síðar en 9. apríl. Nánari upplýsingar og móttöku umsókna veitir Kristján Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vesturlands kristjang@vesturlands.is Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Á næstu dögum verður opnuð ný verslun á Reykhólum. Sú hefur fengið nafnið Hólabúð og eru það hjónin Ása Fossdal og Reynir Þór Róbertsson sem munu reka versl- unina. Í samtali við blaðamann á mánudaginn sagði Reynir þau hjón stefna að opnun í dag, miðviku- daginn 25. mars, eða á fimmtudag. „Við höfum unnið myrkranna á milli undanfarna daga við að koma búðinni upp. Það hefur geng- ið vel. Við fáum mikið af vörum næstu daga og svo kemur ferskv- aran á miðvikudaginn. Við viljum hafa allt sem nýjast,“ sagði Reyn- ir. „Það er enn ekki búið að festa opnunardaginn en mér sýnist að það verði frekar fimmtudagurinn 26. mars, svona eins og þetta lít- ur út núna.“ Reynir hvetur heima- menn til að fylgjast með facebook- síðu verslunarinnar. Þar verður til- kynnt um nákvæma tímasetningu opnunar. Þau hjónin eru engir nýgræð- ingar í verslunarrekstri. Ráku saman húsgagnaverslun í fjölda- mörg ár auk þess sem Ása rak eigin snyrtivöruverslun. Aðspurður seg- ir Reynir rekstur Hólabúðar verða með svipuðu sniði og var með síð- ustu verslun á Reykhólum. „Það verður svona kaupfélagsbragur á þessu. Hér verður allt það helsta til og ef eitthvað vantar þá verður það bara pantað. Þetta leggst mjög vel í okkur. Við erum búin að taka hús- næðið aðeins í gegn, fá ný húsgögn í kaffihornið og svona. Það vera ýmis opnunartilboð og svo hvetj- um við fólk til að láta vita ef því finnst eitthvað vanta, við munum reyna að útvega þær vörur sem fólk vill,“ segir Reynir að lokum. kgk Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóðu fyrir kynningarfundi um sóknaráætlun Vesturlands miðviku- daginn 18. mars síðastliðinn. Fund- urinn var haldinn í sal Fjölbrauta- skóla Snæfellinga í Grundarfirði en sambærilegir fundir voru haldnir víðar á Vesturlandi. Þar bar helst á góma stofnun Uppbyggingarsjóðs Vesturlands en hann kemur í stað- inn fyrir Vaxtarsamning Vestur- lands og Menningarsamning Vest- urlands. Nýi sjóðurinn mun úthluta styrkjum til nýsköpunar í atvinnu- lífi og til menningarmála. tfk Kynntu Uppbyggingarsjóð Vesturlands Hjónin Ása Fossdal og Reynir Þór Róbertsson, nýir verslunareigendur á Reykhólum. Hólabúð opnuð á Reykhólum í vikunni Tillögur sendist á Starfsendurhæfingu Vesturlands, Suðurgötu 57, 300 Akranes eða á thelma@starfvest.is Skila skal hugmyndum fyrir 15. apríl 2015 Starfsendurhæfing Vesturlands var stofnuð 11. desember 2015 og starfar á Vesturlandsvísu. Markmið starfseminnar er að styðja við og aðstoða einstaklinga við að komast aftur á vinnumarkaðinn eftir veikindi, áföll, slys eða aðra erfiðleika sem hindra atvinnuþátttöku. Vinningshafi hlýtur gjafabréf á Hótel Glym í Hvalfjarðarsveit. Krydd og kossar: Gisting fyrir tvo í fallegu herbergi, glæsilegur 3ja rétta kvöldverður og morgunverðarhlaðborð daginn eftir. Sjá nánar á hotelglymur.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.