Skessuhorn - 25.03.2015, Blaðsíða 29
29MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Vélbáturinn Kári AK-033 slitn-
aði af festum sínum í óveðrinu
sem gekk yfir landið laugardaginn
14. mars síðastliðinn og rak á land
við Hvammsvík í sunnanverðum
Hvalfirði. Báturinn var dreginn af
strandstað um nónbil á þriðjudag-
inn. Í tilkynningu frá Landhelgis-
gæslunnar segir að aðgerðir hafi
gengið vel og báturinn dreginn til
hafnar þar sem gera þurfti við stýr-
isblað og skrúfu. Það voru áhafnir
á dráttarbátnum Magna frá Reykja-
vík og varðskipinu Þór sem komu
að björgun Kára.
mm/ Ljósm. Landhelgisgæslan.
Kári komst á flot að nýju
Áhöfn Ingunnar AK sú eina sem tekur bókakassa
Skipverjar á uppsjávarveiðiskipinu
Ingunni AK eru eina áhöfnin sem enn
biður um bókakassa um borð af þeim
skipum sem gerð eru út frá Akranesi.
Fyrir nokkrum árum voru sex bóka-
kassar í gangi við Bókasafn Akraness.
Þessi mynd var tekin á bókasafninu
þar sem þær Halldóra Jónsdóttir
forstöðumaður og Ásta Björnsdótt-
ir bókavörður voru að afgreiða bæk-
urnar í kassann fyrir áhöfn Ingunn-
ar. Þær sögðu að þeir á Ingunni bæðu
um að fá ævisögur, sagnfræðibæk-
ur og glæpasögur í kassann. Að öðru
leyti er valið fyrir þá úr hillum bóka-
safnsins en reynt að sjá til þess að þeir
fái ekki bækur sem þeir hafa fengið
áður. Aðrir bókakassar sem áður voru
notaðir fyrir skip á Akranesi eru nú
notaðir undir bækur sem sendar eru
á leikskóla bæjarins.
mþh
Halldóra Jónsdóttir og Ásta Björnsdóttir á Bókasafni Akraness. Hjá þeim er kass-
inn og bækurnar sem áttu að fara um borð í Ingunni AK 150.
Fjölmenni fylgdist með sólmyrkvanum
Það er ekki nema örsjaldan í lífi
hvers manns sem þess gefst kost-
ur að fylgjast með sólmyrkva,
þegar tunglið á sporbaug sínum
fer fyrir sólina. Þessar aðstæður
urðu hér á landi að morgni síð-
astliðins föstudags. Svo skemmti-
lega vildi til að víða um land var
hægt að fylgjast með sólmyrkv-
anum, eins og æðri máttarvöld
hafi gripið í taumana og í boði
var blíðskaparveður og víðast
voru lítil eða engin ský á himni.
Fólk í skóla sem vinnu tók sér
frí frá störfum á tíundanda tím-
anum um morguninn til að fylgj-
ast með. Myrkvinn náði hámarki
klukkan 9:37 og fylgdi honum
undarlega lítil birta og þá hríðféll
hitastig um stund.
mm
Tómas Freyr Kristjánsson ljósmyndari í Grundar-
firði tók þessa skemmtilegu mynd.
Pétur Davíðsson á Grund í Skorradal tók
skemmtilega myndaseríu af birtubreytingum á
Skarðsheiðinni frá því klukkan 8:40 til 10:10 um
morguninn. „Magnað hvað allt dofnaði,“ sagði
Pétur. Hér er ein af myndum hans sem sýnir sjálft
Skessuhornið í hálfrökkrinu.
Nokkuð skýjað var í Búðardal þegar sólmyrkvinn stóð sem hæst en nemendum Auðarskóla og öðrum
áhugasömum til mikillar ánægju náði þessi gjörningur þó að birtast af og til milli skýja. Þessa mynd tók
Steina Matt við gömlu mylluna.
Á Akranesi er fjöldi fólks á ferð og hópaðist saman á nokkrum stöðum, meðal
annars við Langasand. Fólk hafði sérstök gleraugu, filmur og filtera af mynda-
vélum til að koma í veg fyrir augnskaða. Sigmundur Benediktsson var vopnaður
myndavél og þrífæti og með rafsuðuhjálm á höfði og var við öllu búinn þegar
tunglið tók að skyggja á sólina.
Eyþór Benediktsson ljósmyndari í Stykkishólmi tók þessa mynd af nemendum og
starfsfólki grunnskólans sem fóru að fylgjast með sólmyrkvanum við Vatnsásinn
ofan við skólahúsið. Kennarar höfðu fjallað um sólmyrkvann dagana áður og voru
nemendur fullir eftirvæntingar. Sumir lögðust útaf og fylgdust þöglir með ferð
sólarinnar allan tímann og svo voru aðrir sem litu öðru hverju á sólina en vildu líka
ræða málin við samnemendur sína og starfsfólkið.
Á Varmalandi í Borgarfirði fylgdust nemendur GBF með frá klettunum ofan við
skólann.
Ljósm. Jósef Rafnsson.
Fylgst með í Fjölbrautaskóla Grundarfjarðar. Nokkrir rafsuðuhjálmar komu að
góðum notum. Ljósm. tfk.
Um það leyti sem myrkvinn náði hámarki þagnaði skvaldrið í fólkinu á Vatnsásnum ofan við grunnskólann í Stykkishólmi.
Undrunarkliður fór um hópinn. Þótt ekki skylli á niðamyrkur hafði birtan breyst og litbrigðin voru einhvern veginn öðruvísi
en venjulega. Einhver tók eftir að það hafði kviknað á ljósastaurunum aftur og tveir spekingslegir drengir úr eldri bekkjunum
höfðu orð á því að merkilegt væri hvað 2% af sólinni næðu þó að lýsa mikið! Ljósm. Eyþór Ben.