Skessuhorn - 25.03.2015, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Sigmundur Benediktsson, vélvirki
á Akranesi, gaf nýverið út kvæða-
bókina Úr viðjum vitundar. Er það
hans þriðja bók. Fyrri tvær bæk-
ur Sigmundar voru vísnabækurn-
ar Þegar vísan verður til og Með-
an stakan mótast létt og er þar um
að ræða bækur þar sem umfjöllun-
arefnin eru af ýmsum toga og höf-
undur á létt með að skipta á milli
hinna ýmsu bragarhátta, en er ætíð
trúr hefðbundu kveðskaparformi
með stuðlum og rími.
Kvæðabókin sem nú er kom-
in út á það sameiginlegt með fyrri
bókum að þar ríkja kunnuleg form
kveðskapar og ljóðahátta, sem fylgt
hafa þjóðinni gegnum aldir og
taldist löngum til andans íþrótta að
geta tjáð sig á þennan hátt. Kvæði
Sigmundar eru fjölbreytt bæði að
efni og formi, hann bregður jafn-
vel fyrir sig að yrkja eftir fornyrð-
islagi. Bókinni er skipt í kafla og
er þægilegt fyrir lesandann að leita
uppi það efni sem helst höfðar til
hans, hvort sem það eru trúarljóð,
léttari kvæði, hugleiðingar um
andleg efni eða aðdáun á lífskrafti
náttúrunnar. Í bókinni eru einnig
nokkur tækifæriskvæði ort til vina
á merkum tímamótum í lífi þeirra
og í þeim kafla er einmitt Brúð-
kaupsljóð sem ort er undir forn-
yrðislagi og hefst svo:
Gefist brúðgumi,
gefist brúður.
Heitfest í heillum
hollra vætta.
Metist mannhelgi
mundum bundin.
Blessist blíðvegur
baugum festur.
Sigmundur er fæddur árið 1936
í Eyjafirði og var bóndi í nokkur ár
í sinni fæðingarsveit áður en hann
flutti á suðvesturhornið, þar sem
hann hefur unnið lengst af sínum
starfsaldri og flest árin sem vél-
virki í Sementsverksmiðjunni. Á
langri ævi hafa stundum verið erf-
iðar brekkur að sigrast á, stundum
verið dökkt yfir og þá er gott að
geta ort og létt með því byrði hug-
ans eins og greina má í þessu síð-
asta erindi í kvæðinu Ok:
Hvar ert þú reisn sem ryður frá
raunum og sálardofa?
Komdu nú fljótt með bros á brá
sem breyta leiða í gleði má
svo lífið ég megi lofa.
Því fegurðarskynið innra á
ef að til nær að rofa.
Eyjaförður hefur alla tíð verið
Sigmundi kær og þar er ,,heima,‘‘
í hans huga. Þangað hefur hann
oft lagt leið sína til að taka þátt í
kunnuglegum sveitastörfum þar
sem hann kann vel til verka og oft
verða þá til lítil ævintýri í hversdag-
leikanum, það þarf bara að kunna
að uppgötva þau, eins og kvæðið
Naglastuldurinn ber með sér. Til-
efnið var að þegar Sigmundur var
komin suður á Akranes eftir sauð-
burðarstúss í sveitinni fann hann í
vasa sínum nokkra nagla sem til-
heyrðu eyfirsku búi og það varð
tilefni til að senda bóndanum af-
látsbeiðni í bundnu máli. Hér er
fyrsta erindið:
Þó ég hafi villur varast
varð mér skyssa á.
Að dró ég mér af birgðum búsins
bágt þér mun að sjá.
Að það hafi óvart verið
ekki rýrir tap.
Sjálfsagt hefur raunin ramma
runnið þér í skap.
Þessi kvæðabrot gefa að nokkru
hugmyndir um hversu fjölbreytt
efnistök eru í bókinni og einnig
má ljóst vera að hin ýmsu kvæða-
form eru léttleikandi skýr og vel
með þau farið hvort sem verið er
að fjalla um erfiðar hugsanir eða
spaugsamara efni.
Bókina er hægt að panta hjá höf-
undi í síma 431-4335 og 845-9535
og sigmben@simnet.is
mm
Úr viðjum vitundar - ný kvæðabók Sigmundar
Sigmundur með bækurnar sínar þrjár; Þegar vísan verður til (2012), Meðan
stakan mótast létt (2013) og Úr viðjum vitundar (2015).
Pennagrein
Hamingjuóskir til fermingarbarna á vori 2015
Sjá,
hér er
krikja.
Já,
hún vill
styrkja
þig
í lífi þínu
með orði sínu.
Þegar ég fletti síðasta tölublaði
Skessuhorns, blaðinu sem helg-
að er fermingu og undirbúningi
hennar, gladdist ég óumræðilega.
Fjöldi fermingarbarna var spurður
hvers vegna þau ætluðu að fermast.
Svörin voru nær öll á einn veg. Þau
sögðust trúa á Guð, þau langaði að
staðfesta skírnarheitið og hafa Guð
að leiðtoga lífsins.
Mig langar að óska þeim öllum
til hamingju með ákvörðun sína og
áform. Það er gleðiefni að verða
þess áskynja að kirkjan á sér unga
fylgjendur. Börn sem hafa ákveð-
ið að treysta kirkju sína, og um leið
kirkju okkar. Og þó svo fari að þið
gleymið af og til, á ungdómsár-
um ykkar að sækja kirkjuna, að þið
ræktið trúna án þess í önn æskuár-
anna og ærslum, þá er hún og verð-
ur söm og þið munið þekkja hana
þegar þar að kemur.
Ég minnist kvölds eins eftir að
ég hafði fermst hjá séra Þorsteini
Björnssyni í Fríkirkjunni í Reykja-
vík. Hann bjó í Garðastræti og gekk
ætíð í hempunni og frakka með
svartan hatt á höfði niður í kirkjuna
við Tjörnina. Við hliðina á kirkj-
unni var Glaumbær, eitt af vinsæl-
ustu danshúsum höfuðborgarinn-
ar á sínum tíma, og þangað lá leið
ungmennanna. Eitt sinn hittumst
við séra Þorsteinn framan við Mið-
bæjarskólann og gengum saman út
að kirkjunni, hann á leið til aftan-
söngs á föstu og ég á leið á dansleik.
Við kirkjutröppurnar snéri hann sér
að mér og sagði: „Góða skemmtun
á dansleiknum í kvöld og ég veit að
þú kemur með mér í kirkjuna þegar
þú hefur fengið nóg af því að dansa.
Hún verður hér“. Við kvöddumst
með handabandi og ég man að mér
þótti sérstaklega gaman að dansa
það kvöld.
Síðar og æ síðan hefur trú mín
kallað mig til kirkju, og ég veit að
þannig verður það líka hjá ykk-
ur kæru fermingarbörn þessa vors.
Ég gleðst vegna birtunnar í svörum
ykkar og óska ykkur velfarnaðar á
lífsins leið. Myndina, sem fylgir og
ljóðið, er varð til eftir lestur svara
ykkar, tileinka ég ykkur og einlægri
trú okkar.
Reykholti á boðunardegi Maríu
Guðsmóður, Guðlaugur Óskarsson
Háskólalestin mætti með allt sitt
hafurtask í tvö framhaldsskóla á
Vesturlandi síðstliðinn fimmtudag.
Lestin hefur flakkað um landið auk
stórra kynninga sem fóru fram á
höfuðborgarsvæðinu. Í Mennta-
skóla Borgarfjarðar voru gestirn-
ir á ferð fyrir hádegi á fimmtudag-
inn en eftir hádegið voru nemend-
ur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
sóttir heim. Auk þess voru nem-
endur á Patreksfirði tengdir kynn-
ingunni með fjarfundabúnaði með
aðstoð Lofts Árna Björgvinssonar
kennara. Háskólalestin kynnir fyr-
ir framhaldsskólanemendum náms-
efni háskólanna og önnur freistandi
tilboð. mm/tfk
Kynntu námsframboð háskólanna
Hjördís Vilhjálmsdóttir í Grundar-
firði hélt upp á sextugs afmælið sitt
í maí 2014. Ætlun hennar hafði ver-
ið að fara hljótt með það, halda ekki
veislu né þiggja gjafir. En börnin
hennar og eiginmaður voru á öðru
máli og vildu halda henni veglega
veislu. Eftir að það var samþykkt
var vandamálið hvað gera skyldi
ef einhverjir vildu færa henni gjaf-
ir. Þá fékk hún þá hugmynd að láta
gamlan draum rætast, en hann var
að færa Vökudeild Landspítalans
gjöf sem þakklætisvott fyrir umönn-
un fimm af sjö barnabarna hennar,
en þau voru lögð þar inn við fæð-
ingu. Þurftu þau að dvelja frá einum
degi og upp í þrjá mánuði, það sem
lengst þurfti að dvelja. Var veislu-
gestum tilkynnt þetta og óskað eftir
að þeir sem vildu færa henni afmæl-
isgjöf myndu í stað þess hjálpa henni
að láta þennan draum rætast með því
að setja pening í þessa söfnun.
Fyrir afrakstur söfnunar Hjördísar
voru keyptir þrír hægindastólar fyr-
ir foreldra barna á Vökudeildinni,
þar sem þeir geta setið með börn
sín langtímum saman í umönnun.
Það var svo 2. mars síðastliðinn sem
Hjördís mætti á Vökudeildina með
elsta barnabarni sínu, Andra Má, en
hann var við fæðingu aðeins fjór-
ar merkur og 41 cm. Hann fæddist
eftir 28 vikna meðgöngu og dvaldi
á Vökudeildinni í þrjá mánuði. Þessi
stóri og myndarlegi herramað-
ur í dag afhenti ásamt ömmu sinni
Margréti Ó. Torlacius deildarstjóra
Vökudeildar söfnunarfé að upphæð
360.000 krónur. Hjördís þakkar öll-
um sem lögðu þessu verkefni lið, og
létu draum hennar þar með rætast.
tfk
Safnaði vegna afmælis síns fyrir
gjöf til Vökudeildar Landspítalans