Skessuhorn - 25.03.2015, Side 31
31MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að
leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/
in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan
15 á mánudögum. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu-
pósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (at-
hugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstu-
degi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum
og fær vinningshafinn bókagjöf frá Skessuhorni.
45 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnarorðið var: „Vinskapur“. Vinningshafi er:
Fjóla Runólfsdóttir, Eyrarflöt 6, íbúð 102, 300 Akra-
nesi. mm
Brúður
Dæld
Grugg
Lausn
Sérhlj.
Mið-
depill
Ber
Epjast
Áhald
Brögð
Röst
Leiða
Hraði
Vís
Niður
Högg
Vesæl
Lærðu
Skjól
Þar til
Titill
Höll
Lát-
laus
Arða
Sk.st.
Harður
Sorp
Feima
Sniðug-
ur
Flakk
Sýl
Játun
Grugg-
ast
Afkoma
21 22
Nóa
Bor
Tók
Drekka
4 12
Magn
Fjöldi
Reifi
Fæddi
Samhlj.
Skýr
Tætla
Síðan
Eldstó
9
Heppni
Líkt
Háhýsi
14 Brall
Goð
Sverta
Úrgang-
ur
7 Gort
Sukk
1
Fúsk
Tví-
bökur
17 Þreyta
Skjögra
Stríta
Trjónur
Ávítur
2 19 5
Við-
kvæm
Alls
Rót
Svall
Hleypur
Gallar
1000
Versnar
8 100
Vit
Lána
Rola
Fæði
6
Iðkar
Hús-
freyja
10 Kostur
Kássa
Art
13
Tölur
Gal-
gopi
Tvíhlj.
Meiður
Sérhlj.
Trjóna
15 Ókunn
Óð
Leit
Skass
11
Væta
Tútta
Sk.st.
20
Ás
16
Mjór
Afar
Sérhlj.
18 3
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20 21 22
Minjastofnun úthlutaði á dögunum
styrkjum úr Fornminjasjóði. Lilja
Björk Pálsdóttir sem stýrt hefur
fornleifauppgreftri og –rannsóknum
á Gufuskálum á Snæfellsnesi fékk
úthlutað fjórum milljónum króna til
björgunarrannsóknar á verminjum
Gufuskála. Þar hafa fornleifarann-
sóknir verið stundaðar í kapp við
tímann þar sem sjór brýtur stöðugt
meira af því landi þar sem minjarn-
ar er að finna. Er þar einkum um að
ræða leifar gamalla verbúða.
„Fyrir þessa fjárveitingu er ætlun-
in að ljúka við uppgröft á því svæði
sem unnið hefur verið á síðastlið-
in ár. Þetta er þar sem verbúðin er
sem við höfum verið að rannsaka.
Minjastofnun Íslands er að gera út-
tekt á ástandi minjanna og svæðis-
ins í heild. Hún mun meta hvernig
best sé að vernda minjarnar. Áfram-
haldandi rannsóknir á svæðinu fara
eftir niðurstöðunni frá Minjastofn-
un. Þau mannvistarlög og bygg-
ingar sem eru á uppgraftarsvæðinu
verða grafin upp. Að því loknu verð-
ur gengið endanlega frá svæðinu,“
segir Lilja Björk Pálsdóttir.
Auk þessa hefur Lilja Björk feng-
ið úthlutað 400 þúsund krónur til
að skanna veggjaristur í Sönghelli
á Jökulhálsi norðan Stapa. Þessar
veggjaristur liggja undir skemmd-
um vegna átroðnings. „Í Sönghelli
er mikið af veggjaristum sem draga
að fjölda ferðamanna á hverju ári.
Margar þeirra eru mjög gamlar.
Aðallega virðast þær vera ártöl og
fangamörk en einnig eru þó nokkr-
ir krossar sjáanlegir. Með styrknum
sem fékkst úr Fornminjasjóði verð-
ur búið til þrívíddarlíkan af hell-
inum og ristum sem í honum eru.
Risturnar eru margar hverjar orðn-
ar ansi máðar. Með nýjustu tækni er
hins vegar hægt að skanna yfirborð
hellisins með slíkri nákvæmni að
minnstu misfellur verða sjáanlegar.
Þar með koma í ljós ristur sem varla
eða ekki sjást með berum augum.
Með þessari aðferð verður hægt að
rannsaka risturnar án álags á mjúka
og viðkvæma veggi hellisins, “ segir
Lilja Björk.
Styrkurinn sem fékkst til björg-
unarrannsókna á Gufuskálum er
meðal tveggja hæstu styrkja sem út-
hlutað er úr Fornminjasjóði á þessu
ári. Hinn styrkurinn sem einnig er
upp á fjórar milljónir króna renn-
ur til fornleifauppgraftar í kirkju-
garðinum á Hofsstöðum í Mývatns-
sveit. Fjöldi verkefna fékk styrki úr
Forminjasjóði í ár. Þar má nefna 1,3
milljónir til rannsókna á hvalveið-
um Norðmanna á Vestfjörðum á 19.
öld og einnar miljónar króna styrk
til Félags áhugamanna um Báta-
safn Breiðafjarðar sem ætlar að nota
peningana til skráningar minja. Sjá
má listann yfir styrkveitingar á vef
Minjastofnunar. mþh
Fornminjasjóður styrkir verkefni á Snæfellsnesi
Lilja Björk Pálsdóttir við störf á Gufuskálum.
Bandarískir fornleifafræðingar sem
unnu að rannsóknunum á Gufuskálum
í fyrrasumar.
Mikið kapp var í síðustu viku lagt
á loðnuveiðarnarveiðarnar þegar
sjófært varð loks fyrir óveðri. Þrátt
fyrir frátafir var þá búið að veiða
um 80% af íslenska kvótanum sam-
kvæmt upplýsingum á vef Fiskistofu
í dag, um 80 þúsund tonn voru
þennan dag eftir af kvótanum.
Meðfylgjandi mynd tók Sumar-
liði Ásgeirsson ljósmyndari í Stykk-
ishólmi á þriðjudagskvöldið. Sýnir
hún norðurljósafans á stjörnubjört-
um næturhimni þar sem horft er
út Breiðafjörð. Við sjónarrönd má
eygja að minnsta kosti tíu loðnu-
skip sem voru við veiðar í nætur-
húminu.
mm
Loðnuveiðar undir stjörnu-
og norðurljósafans
Fjölmargir lögðu leið sína í Geira-
bakarí í Borgarnesi síðastliðinn
þriðjudag til að smakka á dýrindis
kökum. „Þetta er nýjung í kynning-
arstarfi bakarísins og allir í köku-
hugleiðingum voru boðnir vel-
komnir að koma og smakka,“ seg-
ir Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir
um uppákomuna. „Það komu um
fimmtíu manns og við buðum upp
á heitt kakó og kökuhlaðboð, en við
hefðum getað gefið um 200 manns
kökusmakk,“ segir Sigríður Dóra.
„Við buðum 15% aflátt af öllum
pöntunum þennan dag og höld-
um áfram að bjóða þann afslátt af
fermingartertunum. Það var nokk-
uð um pantanir og vonandi verður
þetta að árlegum viðburði,“ segir
Sigríður Dóra og finnst viðbrögð-
in hafa verið jákvæð og að allmennt
hefði fólk verið ánægt með þessa
nýbreytni.
eha
Kökusmakk í Geirabakaríi
Mikið úrval var á boðstólnum og terturnar hver annarri glæsilegri. Hér er Geiri
sjálfur að skera væna sneið af fermingartertu.
Þessi fallega terta er dæmi um skírnartertuskreytingar sem eru fáanlegar í
bakaríinu.
Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir bauð einnig upp á fjölmargar bragðtegundir af
frómas.