Skessuhorn - 25.03.2015, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Er komið vor?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Stykkishólmi
um miðja síðustu viku)
María Jónasdóttir (með Guð-
rúnu Jónsdóttur):
Já, ég fann það í gær.
Ragnar Ragnarsson
Nei, ekki fyrr en 20. maí. Það er
mín reynsla að þá er maður orð-
inn nokkuð öruggur með vor-
komuna.
Guðmundur Björgvin Sigur-
björnsson
Það er á leiðinni, það mun vora.
Elísabet Valdimarsdóttir
Nei, ég hef ekki trú á því en það
styttist í það. Einver él á eftir að
gera áður en það kemur.
Hinrik Þór Sævarsson
Nei, það á eftir að élja og snjóa
og koma svona fimmtán lægðir.
Um helgina tóku nokkrir sund-
menn úr Sundfélagi Akraness
þátt í Actavismóti SH sem fram
fór í Ásvallalaug í Hafnarfirði en
Hafnfirðingar eru með gríðarlega
góða sundaðstöðu fyrir almenn-
ing, nemendur og sundíþrótta-
fólk. Sundmennirnir á Skaganum
eru nú á miðju æfingatímabili þar
sem æfingar eru nokkuð erfiðar
enda stutt í Íslandsmeistaramótið
hjá flestum þeirra og því kannski
ekki hægt að búast við miklum
bætingum. Þar fyrir utan hefur
veðrið verið okkur sem æfum í úti-
laug einkar óhagstætt og oft hef-
ur þurft að fella niður sundæfing-
ar vegna veðurs. Það varð nú samt
úr að sundmennirnir voru í flest-
um tilfellum ýmist að bæta sig eða
nálægt sínum besta árangri.
Helstu afrek helgarinnar voru
þau að Ágúst Júlíusson, Íþrótta-
maður Akraness 2014, vann gull
í 50 og 100m flugsundi. Atli Vik-
ar Ingimundarson vann silfur í
100m skriðsundi og 100m bringu-
sundi og brons í 100m flugsundi.
Brynhildur Traustadóttir vann
brons í 200m fjórsundi. Enri-
que Snær Llorens vann brons í
100m baksundi. Erlend Magnús-
son vann brons í 200m bringu-
sundi og 100m flugsundi. Leon-
ardo Þór Williamsson vann silfur
í 100m skriðsundi og brons í 200m
skriðsundi. Sindri Andreas Bjarna-
son vann silfur í 200m baksundi.
Sólrún Sigþórsdóttir vann brons
í 1500m skriðsundi en hún bætti
einnig Akranesmetið í kvenna-
flokki. Sævar Berg Sigurðsson
vann silfur í 200m bringusundi og
bætti Akranesmetið í 800m skrið-
sundi í karlaflokki.
Einnig voru sett þrjú Akranes-
met í blönduðum boðsundum en
þá keppa tveir af hvoru kyni sam-
an. Í 4x50m fjórsundi bættu Una
Lára Lárusdóttir, Sævar Berg Sig-
urðsson, Atli Vikar Ingimundar-
son og Sólrún Sigþórsdóttir Akra-
nesmetið í kvenna- og karlaflokki
en þau Sindri Andreas Bjarna-
son, Eyrún Sigþórsdóttir, Bryn-
hildur Traustadóttir og Leonardo
Þór Williamsson bættu Akranes-
metið í drengja- og telpnaflokki. Í
4x50m skriðsundi settu Brynhild-
ur Traustadóttir, Erlend Magnús-
son, Leonardo Þór Williamsson
og Eyrún Sigþórsdóttir Akranes-
met í drengja- og telpnaflokki.
hf
Skagafólk í góðum gír á Actavismóti SH
Ágúst Júlíusson á verðlaunapalli.Akranesmeistarar í fjórum sinnum 50 metra fjórsundi.
Kristen McCarthy er 25 ára körfu-
boltakona. Hún kemur frá San Di-
mas í Kaliforníufylki í Bandaríkj-
unum, um 40 mínútna akstur aust-
ur af Los Angeles. Undanfarið ár
hefur hún leikið með Snæfelli í úr-
valsdeild kvenna og verið einn besti
leikmaður liðsins. Í síðasta leik Snæ-
fells á móti Keflavík og náði Krist-
en til að mynda þrefaldri tvennu í
leik sem hún skoraði 40 stig, tók 25
fráköst og gaf tíu stoðsendingar. Líf
hennar hefur snúist um körfubolta
frá unga aldri.
„Ég var fimm ára þegar ég keppti
fyrst í körfubolta. Ég man að bún-
ingarnir voru appelsínugulir og við
fengum okkar eigin númer,“ seg-
ir Kristen og brosir. „Móðir mín
leyfði mér að reyna fyrir mér í
hvaða íþróttagrein sem mér sýnd-
ist. Ég prófaði hafnabolta, frjáls-
ar íþróttir og auðvitað körfubolta.
Mér þótti hann skemmtilegastur
og hef því spilað hann síðan,“ bæt-
ir hún við.
Körfuboltinn tryggði Kristen
námsstyrk við Temple háskólann í
Philadelphia þar sem hún lék með
liði skólans í fjögur ár, frá 2008 til
2012. Þaðan lá leiðin til Ítalíu í hálft
tímabil og síðan Frakklands. Árið
2014 kom hún svo til Stykkishólms
og hóf að leika með Snæfelli. „Um-
boðsmaðurinn minn tilkynnti mér
að ég gæti farið til Íslands. Í hrein-
skilni sagt var það eina tilboðið á
þeim tíma og ég vildi ekki sleppa
því. Ég vissi ekki við hverju ég átti
að búast, en er ánægð að hafa slegið
til, þetta hefur verið frábær tími,“
segir Kristen.
Umhverfið vinalegt
Kristen telur körfuboltann í stærri
deildum í Evrópu á hærra plani en
hér heima. Þar séu margir leikmenn
sem hafi leikið á hærra stigi í lang-
an tíma, til dæmis í WNBA deild-
inni bandarísku. Þrátt fyrir það ber
hún liðinu og liðsfélögum sínum í
Hólminum vel söguna. „Við erum
með mjög gott lið fyrir þessa deild.
Höfum hraða, góða skotmenn og
spilum góða vörn. Liðið hefur á að
skipa reynslumiklum leikmönnum í
bland við yngri. Auk þess er þetta
gott fólk utan vallar. Þeim hefur
tekist að láta mér líða eins og heima
hjá mér og það þykir mér vænt um.
Það er stundum erfitt að vera svona
langt að heiman. Ég hef spilað með
betri körfuboltakonum, en liðs-
félagar mínir í Snæfelli eru besta
fólkið sem ég hef spilað með,“ segir
Kristen. „Stykkishólmur er líka lít-
ill bær, hér heilsa ég öllum og all-
ir heilsa mér. Umhverfið er mjög
vinalegt,“ bætir hún við.
Stefnir á WNBA
Aðspurð um hvort hún hyggist
leika með Snæfelli á næsta tímabili
telur hún það ólíklegt. „Mig langar
að prófa að spila í öðrum deildum
og halda áfram að bæta sjálfa mig
sem leikmann. Ég stefni enn að því
að spila í WNBA deildinni. Til þess
verð ég að mæta stelpum sem hafa
spilað þar áður svo ég sjái hvar ég
stend. Það gæti ég til dæmis gert á
Spáni, Frakklandi eða í Ísrael,“ seg-
ir Kristen. „Engu að síður þætti mér
mjög gaman að koma aftur seinna
meir. Veran mín hér hefur verið
frábær upplifun og hefur breytt sýn
minni og fjölskyldu minnar á land-
inu. Þau héldu í alvöru að ég byggi
bara í snjóhúsi,“ segir hún og hlær.
„Þetta er búinn að vera frábær tími
og ég kem örugglega aftur til Ís-
lands einhvern tímann í framtíð-
inni,“ segir hún að endingu.
kgk
Lífið hefur alltaf snúist um körfubolta
Snæfellkonur urðu síðasta haust meistarar meistaranna, skömmu eftir að Kirstein byrjaði að æfa og leika með liðinu.
Ljósm. þe.
Kristen McCarthy unir hag sínum vel í Stykkishólmi.