Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2015, Síða 14

Skessuhorn - 11.11.2015, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 201514 „Það gekk mjög vel í sumar. Okk- ur tókst að ljúka við að grafa niður á klöpp á uppgraftarsvæðinu þann- ig að við erum komin í gegnum allar mannvistarleifar á þessum stað. Hins vegar er alveg greinilegt að leifar þeirra húsa sem við fundum í fyrra- sumar og héldum áfram að rann- saka í sumar eru hluti af miklu stærra mannvirki eða húsakjarna. Það nær út fyrir það uppgraftarsvæði sem við höfum unnið á til þessa. Það er bæði mjög sérstakt og afar spennandi,“ segir Lilja Björk Pálsdóttir fornleifa- fræðingur hjá Fornleifastofnun Ís- lands. Undanfarin ár hefur hún stýrt fornleifarannsóknum í gömlum ver- búðum á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Rannsóknir í sumar skiluðu mörgum áhugaverðum gripum. Margir gripir fundust Lilja Björk segir að rannsóknir sum- arsins staðfesti að á Gufuskálum hafi frá upphafi einkum verið árs- tíðabundin búseta og þá tengd ver- tíðum við sjóróðra og fiskvinnslu. Þarna hafi því verið ekta verbúðir. „Þetta má lesa úr minjum sem við höfum fundið. Húsin sem við höfum nú lokið við að grafa út eru sérstök að því leyti að þau minna á gangabæ. Þetta eru herbergi eða rými og síð- an göng á milli þeirra. Þetta er allt öðruvísi en ég hafði ímyndað mér. Við erum nú að bíða eftir aldurs- greiningum á minjum sem við höf- um fundið en sennilega eru elstu hlutar þessara húsa frá því um 1400, eða um 600 ára gamlir.“ Í sumar fannst mikið af ýmsum gripum sem fólk hefur skilið eft- ir sig og vitna um daglegt líf í ver- búðunum. Nú er verið að hreinsa þá, greina, skrá og forverja. Í þessu verður unnið nú í vetur. „Taflmenn voru áberandi nú í sumar eins og í fyrra. Þeir voru aðallega skornir úr klumbubeinum úr ýsu en við höfum einnig fundið taflmann úr hvalbeini og rostungstönn. Hann er mjög fal- legur. Samsetning gripanna breytt- ist þó ekki í sumar samanborið við 2014. Við fundum leifar af leir- kerjum og marga hnífa, sem sum- ir eru með fallega skreyttum skeft- um. Tveir þeirra eru með útskorn- um dýrshausum, hugsanlega af hval. Aðrir eru með mynstrum. Falleg- asti eða kannski sá merkilegasti kom fram í sumar. Það er stór og alveg heill hnífdólgur.“ Langar til að skrifa bók Í fyrravetur vakti mikla athygli þeg- ar sjór gekk á land á Gufuskálum í ofsaveðri og miklu brimi. Fornminj- ar spilltust og í kjölfarið varð nokk- ur umræða um að minjum við sjáv- arsíðuna á Íslandi standi víða ógn af ágangi sjávar. Eigi fornleifarann- sóknir að fara fram á þessum stöð- um þá sé það oft í kappi við tímann. „Já, það skemmdist því miður mikið í vetur sem leið en ekki samt þann- ig að allt hafi eyðilagst. Mig lang- ar til að halda þessum rannsókn- um áfram næsta sumar. Við fengum styrk til rannsóknanna í sumar úr Fornminjasjóði en stærstu styrkirn- ir hafa hingað til komið frá Banda- ríkjunum. Þaðan hafa líka komið fornleifafræðingar og fornleifafræði- nemar og unnið með okkur. Nú þeg- ar við höfum lokið við það svæði sem byrjað var að rannsaka árið 2012 er næsta skref að sækja um leyfi fyrir frekari rannsóknir þarna á Gufuskál- um því svæðið er friðlýst. Auk þess munum við sækja um styrki til rann- sókna næsta sumar. Þarna eru mikl- ar upplýsingar að hverfa vegna land- brots og tíminn er ekki að vinna með okkur. Lilja Björk og samstarfsfólk henn- ar hafa gefið út áfangaskýrslur um gang rannsóknanna á Gufuskálum. „Draumurinn er að gefa út bók um þessar rannsóknir. Efnið er svo sann- arlega til staðar en það er spurning um fjármagn. Ég stefni þó að því. Ef allt gengur eftir og við fáum bæði fjármagn til áframhaldandi rann- sókna og leyfi þá erum við að tala um að þetta verkefni á Gufuskálum nái yfir tíu til fimmtán ár. Það er margt ókannað enn. Verbúðin sem við erum búin að kanna núna dygði þó alveg ein og sér til að skrifa um hana heila bók. Hún gæti orðið sú fyrsta í bókaflokknum um verðbúðirnar á Gufuskálum,“ segir Lilja og hlær. Efnilegir fornleifa- fræðingar undir Jökli Hvað sem bókaskrifum líður þá eru rannsóknirnar á Gufuskálum þegar orðnar tilefni til fræðslu um lífshætti forfeðranna. Lilja segir frá ánægju- legu dæmi um þetta sem hafi komið henni skemmtilega á óvart og verið gleðiefni. „Þau höfðu samband við mig frá Grunnskóla Snæfellsbæjar og spurðu hvort ég gæti komið og sagt krökkunum frá rannsókninni á Gufuskálum og hugsanlega farið með þau í vettvangsferð á uppgraft- arsvæðið. Þetta væri þá í tengslum við átthagakennsluna hjá þeim. Ég fór og þetta var afskaplega gaman. Ég sagði þeim almennt frá fornleifa- fræðinni. Þau voru ótrúlega stillt og prúð að sitja undir þeim fyrirlestri í tvo tíma. Svo fórum við í vettvangs- ferðina og það var alveg frábær upp- lifun. Þau voru svo áhugasöm. Það var greinilegt að þau höfðu ver- ið að hlusta á það sem ég hafði sagt þeim.“ Lilja segir að hún hafi svo veitt nemendunum úr Snæfellsbæ stutta leiðsögn um svæðið. Síðan lagði hún fyrir þau verkefni þar sem þau voru beðin um að skipta sér upp í hópa og hefja rannsóknir. „Þau vildu ekki frekari leiðbeiningar heldur fara sjálf og kanna svæðið frekar. Svo tvístrað- ist hópurinn og þau ruku af stað. Ég var svo ánægð með niðurstöðurn- ar úr þessu. Þau dreifðu sér um allt minjasvæðið og teiknuðu upp það sem þau fundu og sáu. Sum teiknuðu beinadreif og húsaleifar. Önnur fóru beint í sniðin eða rofsárin og teikn- uðu það sem þau sáu og túlkuðu það. Þau voru alveg ótrúlega flink. Það eru greinilega margir efnilegir forn- leifafræðingar í Snæfellsbæ,“ segir hún og brosir. Leyndardómar Sönghellis afhjúpaðir Lilja og félagar hennar við forn- leifarannsóknirnar stunduðu fleiri rannsóknir á Snæfellsnesi í sumar. „Við fengum styrk úr Fornminja- sjóði til að þvívíddarskanna Söng- helli norðan við Stapafell í samvinnu við pólska fornleifafræðinga. Hellir- inn er bæði þekktur fyrir hljómburð sinn en líka fyrir það að í honum er að finna ógrynni áletrana sem fólk hefur krotað á veggi hans í aldanna rás. Þrívíddarskönnun er sérstök tækni með háþróuðum búnaði sem nær að greina það sem skrifað hefur verið á veggina. Næsta skref er svo að fá styrk til að vinna úr gögnunum og teikna upp risturnar sem koma fram. Það er miklu meira þarna sem sést með þrívíddarskanna heldur en við sjáum með berum augum. Þarna eru ótal áletranir, þær elstu sem við getum greint eru með ártalinu 1515. Svo er ein sem virðist frá 1346. Fólk hefur rissað inn ártöl og oftast upp- hafsstafi með. Þetta er mjög spenn- andi verkefni,“ segir Lilja Björk Páls- dóttir. mþh Árangursríkar fornleifarannsóknir á Gufuskálum Lilja Pálsdóttir þar sem blaðamaður Skessuhorns hitti hana í síðustu viku. Þá var hún við fornleifagröft í gömlum prestsbústað við Ánanaust í Reykjavík. Lilja situr á gamalli vegghleðslu og sjá má aðra að baki henni. Taflmaður úr rostungstannbeini sem kom upp í sumar. Hnífdólgurinn góði sem fannst stráheill. Hér er hann nýafhjúpaður úr jarðveginum. Hópur stúlkna úr Grunnskóla Snæfellsbæjar í vettvangsferð á Gufuskálum. Þær eins og aðrir nemendur sýndu fornleifasvæðinu þar mikinn áhuga. Nemendur úr Grunnskóla Snæfellsbæjar við rannsóknir í verbúðarrústunum í sjávarbakkanum á Gufuskálum. Hluti af veggristunum sem komu greinilega fram þegar leyndardómar Sönghellis við Stapafell voru kannaðir með þvívíddarskanna nú í sumar. Skoða má mynd- band af skönnunini á youtube-myndbandavefnum með því að nota leitarorðin „cave, songhellir, snaefellsnes, iceland.“ Tveir efnilegir og upprennandi fornleifafræðingar úr Snæfellsbæ líta yfir vett- vang rannsóknarinnar. Forleifafræðingur heldur hér á milli fingra sinna aftasta hluti á því sem virðist útskorið hnífskefti með dýrshaus, hugsanlega á hval.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.