Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2015, Síða 43

Skessuhorn - 11.11.2015, Síða 43
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2015 43 var hann hafður til sölu hér í Ferju- koti með laxinum. Það er ekki hægt að reykja álinn nema hann hafi náð vissri stærð. Rita hefur gert það og reyktur áll er algert sælgæti,“ segir Heba Magnúsdóttir. Tómlegra án Kela Guðrún Fjeldsted mágkona Hebu þekkir vel til vatnaveiða í Borgar- firði. „Það er áll víða um héraðið, oft langt inni í landi. Til að mynda hef- ur orðið vart við hann í grennd við Varmaland. Ég var oft uppi í Grímsá á morgnana og sá þá iðulega hvern- ig klappirnar í ánni iðuðu af glerál. Í fyrrasumar árla morguns sá ég svo heilmikið af glerálum í Gufuá sem fellur í Borgarfjörð hér skammt utan við mynni Hvítár. Þá voru glerálarn- ir að fara þar upp,“ segir hún. Állinn er því hvergi nærri horfinn úr vatnakerfum Borgarfjarðar og vísast mun unga fólkið í álaveislunni, þau afkomendur Þorkels og Hebu, nýta þennan merka en óvenjulega fisk í framtíðinni. Páll Jensson er og í fullu fjöri og kann að miðla af reynslu sinni. Hann minnist Þor- kels vinar síns. „Það var alltaf mik- ið um að vera þegar við stunduðum álaveiðarnar með Kela. Nú í haust var ég einn um að veiða og ég sakn- aði hans. Þetta var ekki eins gam- an án hans, vantaði allt umstangið og fjörið sem fylgdi honum. Þorkell átti allan heiðurinn af veiðiskapn- um. Hann skipaði fyrir og sagði til,“ rifjar Páll upp. Alltaf fjör á álaveiðum Páll segir að þeir félagar hafi skipt með sér svæðum við álaveiðarnar. „Veiðistaðurinn minn er í Ferju- bakkaflóanum norðan við brýrnar yfir Ferjukotssíkin. Þorkell veiddi hins vegar neðan við Ferjukotsbæ- inn, nær Hvítá. Vatnsstraumurinn lá náttúrulega um Ferjukotssíkin og niður til þar sem hann var með sínar gildrur. Einn daginn voru þrír dauð- ir minkar í gildrum hjá mér. Ég skar skottin af þeim því þetta var þegar enn var greitt þokkalega fyrir þau. Svo henti ég minkahræjunum út í vatnið aftur. Þau bárust niður með ánni. Þegar Þorkell var búinn að fá skottlausa minka í gildruna hjá sér þrjá daga í röð áminnti hann mig því hann grunaði hvað hafði gerst ofar í síkjunum. „Svona gerir maður ekki Páll,“ sagði hann.“ Páll hlær þeg- ar hann rifjar upp þessa veiðisögur þeirra félaganna. Álarnir sem veiddust voru geymd- ir lifandi í þar til gerðum kassa sem hafður var í ánni og streymdi vatn í gegnum. „Það var Þorkels verk að sjá um að kassinn væri vel bundinn við tvo girðingarstaura sem festir voru í botninn á ánni. Það var ótrú- leg hvað þessi kassi átti auðvelt með að losna þegar gerði einhver veð- ur. Álakassinn var stöðugt áhyggju- efni hjá honum. Það gekk á ýmsu. Eitt sinn varð hann að leggja á hjóla- bát út á Hvítá til að bjarga kassan- um. Annað skipti þurfti hann að rífa sig á fætur um miðja nótt og vaða út í vatn upp í klof til að binda kass- ann betur,“ segir Páll. „Álaveislun- um fylgja alltaf ný ævintýri á hverju ári.“ mþh Þorkell Fjeldsted bóndi í Ferjukoti var fæddur 28. ágúst 1947 en lést 18. nóvember í fyrra, 67 ára að aldri. Heba Magnúsdóttir húsfreyja í Ferjukoti heldur stutta tölu áður en sest er að borðum. Guðrún Fjeldsted, Elísabet Fjeldsted bróðurdóttir Guðrúnar og Daníel sonur Elísabetar. Guðrún Hauksdóttir gæðir sér á álnum. Rita Bach sýnir hvernig það er til siðs í Danmörku að raða beinagörðum álsins í hring meðfram börmum disksins þegar álinn er snæddur. Yngsta kynslóð Fjeldsted-ættarinnar við borðhald í Ferjukoti. Þorkell Fjeldsted yngri með ál milli fingra sinna ásamt Axel Frey Eiríkssyni föður sínum. Fyrr á þessu ári tók verslana- keðjan Nettó upp átakið „Minni Sóun- Allt nýtt,“ en með átakinu er ætlað að kynna fyrir við- skiptavinum og starfsfólki hvað unnt sé að gera til að stuðla að minni sóun, flokkun úr- gangs og ýmiss konar orkusparnaði. Í síðustu viku hratt Nettó af stað átaki í tveimur verslunum sínum á höfuð- borgarsvæðinu og munu fleiri versl- anir fylgja í kjölfarið. „Því miður hendum við gríðarlega miklu magni af matvöru og sorpi í okkar nútíma- samfélagi. Við ákváðum að sporna við þessu og höfum nú þegar unnið að því að minnka sorp um 100 tonn á ári í verslunum okkar. Við höfum unnið að alls kyns orkusparnaði á síð- ustu árum með sérstökum lokum á allar frystikystur í verslunum okkar. Nú bætist við Minni Sóun - Allt nýtt átakið þar sem áherslan er á aukna flokkun og minni sóun matvæla,“ segir Hallur Geir Heiðarsson, rekstr- arstjóri Nettó. Nettó býður nú stigvaxandi afslátt af vörum sem nálgast síðasta sölu- dag. Vöruverð lækkar eftir því sem líftími vöru styttist og stuðlar þetta að minni sóun matvöru. 20% afsláttur er veittur af þurrvöru sem er á dagsetningu eftir 30 daga og fersk- vöru sem á tvo daga í síðasta söludag. 30% afsláttur er af þurrvöru sem er á dagsetningu eftir 15 daga og fersk- vöru sem á einn dag í síðasta söludag. 50% afsláttur er af þurrvöru sem er á dagsetningu eftir sjö daga og fersk- vöru sem er komin á síðasta söludag. Allt þetta undir slagorðinu Keyptu í dag – notaðu í dag! „Ef við nýtum allt þá spörum við umhverfi okkar og minni sóun á sér stað. Einfalt er að temja sér innkaup þannig að þú kaup- ir matvöru og notar hana t.a.m. sam- dægurs. Ef við leggjumst öll á eitt þá hlúum við að jörðinni - við eigum jú bara eina“ segir Hallur enn fremur. mm Nettó kynnir átakið „Minni sóun - Allt nýtt“ Hinn árlegi Malaví markaður var haldinn í Grundaskóla á Akranes síðastliðinn fimmtudag. Fjöldi fólks lagði leið sína á markaðinn þar sem hægt var að kaupa ýmsar vörur sem yngri nemendur skólans hafa unn- ið undir leiðsögn kennara á liðn- um vikum. Unglingadeildin hélt úti kaffihúsi í sal skólans, þar sem með- al annars var boðið upp á nýbakað- ar vöfflur og tónlistaratriði. Að venju seldist vel og að sögn Hrannar Rík- harðsdóttur skólastjóra Grundaskóla safnaðist á fimmta hundruð þús- und króna. Í áraraðir hefur það ver- ið til siðs hjá Grundaskóla að nem- endur og starfsmenn gefi ekki hvort öðru jólagjafir. Þess í stað sameinast þeir um stóra jólagjöf til Malaví, sem er eitt af fátækustu ríkjum verald- ar. Grundaskóli hefur undanfarin ár verið í samstarfi við Rauða krossinn að umfangsmikilli uppbyggingu á skólastarfi þar fyrir fátæk börn. „Við erum bæði ánægð og þakklát fyrir þær undirtektir sem Malaví markað- urinn og þar með söfnunin fær. Það eru í mínum huga góð skilaboð til barna og unglinga að gera eitthvað fyrir aðra án þess að ætlast til ein- hvers í staðinn,“ sagði Hrönn Rík- harðsdóttir skólastjóri. grþ Fjölmenni á Malaví markaði í Grundaskóla Skólinn var fullur af fólki sem gerði góð kaup og styrkti gott málefni í leiðinni. Nemendur seldu meðal annars jólakort.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.