Skessuhorn - 27.01.2016, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 20162
Mörgum þykir hákarl góður og leyfa sér
að leggja kæst kjöt hans sér til munns á
þorranum. Lyktin af hákarli er mikil og
eins bragðgóður og hann kann að vera er
bragðið ekki allra. Vestlendingar eru því
beðnir um að sýna tillitsemi og skola munn-
inn áður en þeir smella kossi á náungann.
Á morgun, fimmtudag, er útlit fyrir suðvest-
læga eða breytilega átt, 8-13 m/s og él á
vestanverðu landinu. Hægari og að mestu
þurrt og bjart austan til. Frost 1 til 12 stig,
kaldast í innsveitum á Norðausturlandi.
Áfram kalt í veðri á föstudag, stíf norðaust-
læg átt og víða snjókoma eða él. Á laugar-
dag spáir norðanátt með éljum, en léttir
til sunnan heiða. Harðnandi frost. Vaxandi
austanátt á sunnudag, snjókoma eða él
sunnan til og frost 2 til 10 stig, en úrkomulít-
ið norðanlands og talsvert frost. Á mánudag
er útlit fyrir norðanátt með éljum og áfram-
haldandi kuldatíð.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hver er þinn eftirlætis þorramatur?“ Flest-
ir, eða 21%, gáfu sviðasultunni sitt atkvæði.
Næstvinsælustu réttirnir eru hákarl og súr
hvalur með 18,2% atkvæða hvor tegund.
Hrútspungar svöruðu 12,6%, hangikjöt
11,9% og harðfiskur fékk 9,8% atkvæða.
Svið sögðu 7%, en fæst atkvæði fengu mag-
áll og súrir selshreifar, eða 0,7% hvor.
Í næstu viku er spurt:
Í hvora buxnaskálmina
klæðir þú þig fyrst?
Gunnhildur Gunnarsdóttir er einn af mátt-
arstólpum Snæfellsliðsins sem varð Íslands-
meistari í körfuknattleik síðasta vor. Liðið
trónir sem stendur á toppi deildarinnar og
er komið í úrslit bikarsins. Hún var á dögun-
um kjörin Íþróttamaður Snæfells fyrir fram-
úrskarandi árangur á liðnu ári. Gunnhildur
er Vestlendingur vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Breytingar á
póstdreifingu í
dreifbýli
LANDIÐ: Að gefnu tilefni og
í framhaldi af tilkynningu um
fyrirhugaða breytingu á póst-
dreifingu í dreifbýli vill Íslands-
póstur koma eftirfarandi á
framfæri: „Fyrirhuguð breyting
á póstdreifingu í dreifbýli fel-
ur í sér að pósti verður að lág-
marki dreift heim til viðskipta-
vina annan hvern virkan dag í
stað fimm virkra daga eins og
verið hefur til þessa. Eftir sem
áður mun Pósturinn halda uppi
daglegum flutningum um allt
land og því verður áfram hægt
að nálgast sendingar alla virka
daga á næsta póstafgreiðslu-
stað. Fyrirhugaðar breytingar á
fjölda dreifingardaga í dreifbýli
segja til um lágmarksdreifingu,
en Pósturinn mun áfram leit-
ast við að veita sem besta þjón-
ustu í samræmi við óskir hvers
viðskiptavinar. Í dreifbýli jafnt
sem þéttbýli verður boðið upp
á heimsendingu gegn greiðslu
alla virka daga eftir því sem við-
skiptavinir óska.“
–mm
Fáir árekstrar í
umferðinni
VESTURLAND: Aðeins urðu
þrjú minniháttar umferðar-
óhöpp í umdæmi Lögreglunn-
ar á Vesturlandi í vikunni sem
leið. Öll voru þau á Akranesi.
Engin meiðsl urðu á fólki og
til þess að gera litlar skemmdir
á ökutækjum. Að sögn lögreglu
er þetta mjög vel sloppið mið-
að við undanfarnar vikur en þá
hafa óhöppin í umferðinni verið
að jafnaði upp undir tíu talsins
og mörg hver nokkuð harkaleg.
Hótanir og
heimilisofbeldi
AKRANES: Tilkynnt var um
heimilisofbeldi á Akranesi í vik-
unni sem leið. Lagði þolandinn
fram kæru um líkamsárás í kjöl-
farið. Málið er í rannsókn.
-mm
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar-
ins hefur birt niðurstöður skýrslu-
haldsársins í mjólkurframleiðslunni
á síðasta ári. Niðurstaðan byggir á
skýrsluhaldi 582 kúabænda. Nið-
urstöðurnar eru þær helstar að
25.609 árskýr á landsvísu skiluðu
5.851 kg meðalnyt. Það er hækk-
un um 130 kg frá árinu 2014 en
þá voru heygæði almennt mjög lé-
leg í landinu. Mestar meðalafurðir
á síðasta ári voru í Austur-Skafta-
fellssýslu; 6.138 kg eftir árskú. Árið
2014 voru meðalafurðirnar einn-
ig mestar þar, 6.302 kg eftir árskú.
Meðalbústærð reiknaðist 44,0 árs-
kýr á árinu 2015 en sambærileg
tala var 41,2 árið á undan. Með-
albústærð reiknuð í skýrslufærðum
kúm var nú 56,8 kýr en 2014 reikn-
uðust þær 54,2.
Mest meðalnyt eftir árskú á ný-
liðnu ári var á búi Péturs Friðriks-
sonar á Gautsstöðum á Svalbarðs-
strönd. Þar skilaði árskúin 8.308 kg
að meðaltali. Þetta bú var fjórða af-
urðahæsta búið á árinu 2014. Ann-
að búið í röðinni árið 2015 var bú
Pálma Ragnarssonar í Garðakoti
í Hjaltadal en þar var nytin 7.994
kg eftir árskú. Þriðja í röðinni við
uppgjörið nú var bú Stóru-Tjarna
ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatns-
skarði, S-Þing. en þar var nytin
7.860 kg eftir árskú. Númer sex á
listanum yfir afurðahæstu búin var
bú Sigurðar og Báru í Lyngbrekku
á Fellsströnd í Dölum. Meðalnyt
þeirra var 7.757 kg. Í tíunda sæti
á lista var loks Hvanneyrarbúið í
Borgarfirði þar sem hver árskýr
skilaði 7.593 kg á nýliðnu ári.
Nythæsta kýr landsins á síðasta
ári var Milla frá Hvammi á Barða-
strönd sem er undan Hersi 97033.
Milla mjólkaði 12.511 kg með
3,54% fitu og 3,22% prótein. Milla
er mikil mjólkurkýr, fór hæst í 47,3
kg dagsnyt á liðnu ári og skráðar
æviafurðir hennar voru 54.976 kg
um síðustu áramót en sinn fyrsta
kálf átti hún 27. janúar 2008, þá
29 mánaða að aldri. Önnur í röð-
inni árið 2015 var Urður á Hvann-
eyri í Borgarfirði, undan Laska
00010, en hún mjólkaði 12.489 kg
með 3,11% fitu og 2,87% prótein.
Þriðja nythæsta kýrin var Emma
738 í Keldudal í Hegranesi. „Mið-
að við heygæði veturinn 2014-2015
er þetta ágætur árangur,“ segir í til-
kynningu frá RML.
mm
Afurðahæstu bú og
kýr landsins á liðnu ári
Bændur í Lyngbrekku í Dölum hafa oft áður verið í fararbroddi með nythæstu
kýrnar, eru nú í sjötta sæti yfir landið. Á þessari ljósmynd úr safni Skessuhorns eru
f.v. Sigurður, Bára og Kristján sonur þeirra.
MMR kannaði fylgi
stjórnmálaflokka og
stuðning við ríkis-
stjórnina á tímabilinu
12. til 20. janúar síð-
astliðna. Samkvæmt
könnuninni þá jókst
fylgi Pírata um 2,6
prósentustig frá með-
altali kannana MMR í
desember síðastliðn-
um og mældist nú
37,8%. Fylgi Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar hefur farið minnkandi
síðustu tvær kannanir á sama tíma
og fylgi Samfylkingar og Bjartrar
framtíðar hefur verið sveiflukennt
og fylgi Vinstri grænna hefur þok-
ast upp á við. Breytingar á fylgi
flokka voru í öllum tilfellum innan
vikmarka frá síðustu könnun, segir
í frétt MMR.
„Þannig mældist fylgi Sjálfstæð-
isflokksins 19,5% borið saman við
20,6% í síðustu könnun (18. des-
ember) og 22,9% í könnuninni þar
áður (7. desember). Fylgi Fram-
sóknarflokksins mældist 10,0%
borið saman við 11,5% í síðustu
könnun og 12,9% í könnuninni þar
áður. Fylgi Vinstri grænna mældist
nú 12,5% borið saman við 11,4% í
síðustu könnun og 9,4% þar áður.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist
nú 10,4% borið saman við 12,9%
í síðustu könnun og 9,4% þar áður.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist
4,4% nú en 5,3% í síðustu könn-
un og 4,6% þar áður. Fylgi annarra
flokka mældist um og undir 1%.“
mm
Enn auka Píratar við fylgið
Borgfirski stjörnuleikarinn Guð-
mundur Ingi Þorvaldsson hefur ver-
ið tilnefndur af National Film Aw-
ards sem besti leikari í aðalhlutverki
fyrir hlutverk sitt í myndinni Chas-
ing Robert Barker. Myndin er fram-
leidd af íslenska fyrirtækinu Pegasus
og er myndin sjálf jafnframt tilnefnd í
flokknum besta hasarmyndin. Mynd-
Guðmundur Ingi tilnefndur
til kvikmyndaverðlauna
in Chasing Robert Barker fjallar um
38 ára myndatökumann í London
sem fær ábendingu um að stjörnu-
leikari nokkur sitji og snæði kvöld-
verð á fínum veitingastað. Ljósmynd-
irnar hans komast á forsíðu blaðsins
sem hann vinnur fyrir og fréttin slær í
gegn þannig að ritstjórinn krefst þess
að sjá meira. Upphefst þá eltingaleik-
ur við Barker í von um að ná fleiri
myndum. Þá er íslenska kvikmyndin
Hrútar jafnframt tilnefnd sem besta
erlenda myndin og þykir hún jafnvel
nokkuð sigurstrangleg í þeim flokki.
mm