Skessuhorn - 27.01.2016, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2016 5
Bakaríið Brauðval • Skólabraut 12 – 14 • Akranesi • Sími 434-1413
Fylgstu með okkur á
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Opnum aftur eftir hlé
Afgreiðslutími: Virka daga kl. 12.00 – 18.00
Kökur og rúnstykki • Bara ódýrt
Kökur í úrvali
Gjafavöruverslunin @home
Erum á Facebook:
15% afsláttur
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Nýr plöntusjúkdómur hefur
greinst á Íslandi. Skaðvaldurinn er
baktería sem barst til landsins frá
Hollandi með innflutningi á ró-
sagræðlingum sem notaðir voru í
garðyrkjustöð á Suðurlandi. Bakt-
erían herjar á ýmsar plöntutegund-
ir og getur valdið miklum afföllum
í m.a. kartöflu- og tómatarækt. „Í
kjölfar greiningarinnar greip Mat-
vælastofnun til varúðarráðstafana,
í samráði við ræktanda og Ráð-
gjafarmiðstöð landbúnaðarins, til
að hefta útbreiðslu smits og standa
vonir til þess að tekist hafi að upp-
ræta sjúkdóminn,“ segir í tilkynn-
ingu frá Mast.
Bakteríutegundin nefnist Ral-
stonia solanacerum (Pseudomo-
nas solanacerum). Þessi bakter-
íutegund er skilgreind í reglu-
gerð 189/1990 sem skaðvaldur
sem bannað er að flytja til lands-
ins. Kartafla er helsti hýsill bakt-
eríunnar en hún getur einnig sýkt
aðrar plöntur. Sýkingin lýsir sér
þannig að leiðslukerfi plöntunn-
ar stíflast af bakteríunum og lauf-
blöð byrja að visna neðst á sýkt-
um plöntum og færist sýking-
in svo ofar með þeim afleiðingum
að plantan veslast upp. Matvæla-
stofnun greip til varúðarráðstaf-
ana og lagði fram áætlun, í samráði
við ræktanda og Ráðgjafarmið-
stöð landbúnaðarins, til að upp-
ræta sjúkar plöntur og hindra frek-
ari dreifingu. Plöntum hafði ekki
verið dreift frá gróðrarstöðinni frá
því að innflutningur átti sér stað,
aðrar en sótthreinsaðar rósir til
verslana. Bakterían hefur ekki
greinst í sýnum sem hafa verið
tekin eftir að sýktum plöntum var
eytt. Stofnunin telur líklegt að tek-
ist hafi að uppræta sjúkdóminn að
fullu þótt ekki sé hægt að fullyrða
um það á þessu stigi málsins.
mm
Nýr plöntusjúk-
dómur greinist
hér á landi
Rósa Björk Halldórsdóttir fyrr-
um framkvæmdastjóri Markaðs-
stofu Vesturlands átt fund með
Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Ís-
lands á mánudag. „Fundur okk-
ar var í tengslum við Norðurslóð-
aráðstefnuna sem forsetinn hefur
staðið fyrir árlega undanfarin ár í
Hörpu í Reykjavík. Ólafur Ragnar
mun halda þeim störfum áfram eft-
ir að hann lætur af störfum sem for-
seti. Ég er sjálf tekin við sem verk-
efnisstjóri yfir Circum Arctic Art
Show-viðburðinum sem haldinn
var í tengslum við Norðurslóðaráð-
stefnuna síðastliðið haust,“ segir
Rósa Björk. „Þessi sýning er listavið-
burður þar sem frumbyggjar norð-
ursins koma saman og sýna listir
sínar og menningu. Í fyrrahaust var
þessi viðburður í Gamla Bíó en ég
sækist nú eftir að hann verði í Hörp-
unni þegar ráðstefnan verður hald-
in á þessu ári dagana 7.- 9. október.“
Eins og fram kom í ítarlegu viðtali
við Rósu í Skessuhorni í nóvember
síðastliðinn þá hefur hún unnið að
ýmsum verkefnum síðan hún lét af
störfum við að markaðssetja ferða-
þjónstuna á Vesturlandi sem fram-
kvæmdastjóri Markaðsstofunnar.
Þar á meðal hefur hún sinnt málefn-
um norðurslóða og eflt tengsl bæði
við Grænland og Jakútíu í Síberíu.
„Ég stefni á að fara til Jakútíu nú í
mars en mér er boðið að halda erindi
um Ísland, hvað við eigum sameig-
inlegt og hvað við gætum lært hvort
af öðru. Ég mun einnig segja frá því
hvernig við höfum markaðssett Ís-
land og Vesturland fyrst og fremst,“
segir hún. mþh
Átti fund með
forseta Íslands
Rósa Björk Halldórsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands áttu fund um
málefni Norðurslóða á mánudaginn.
Umhverfisvaktin við Hvalfjörð hef-
ur sent kæru til Úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála vegna
starfsleyfis sem Umhverfisstofnun
gaf út 16. desember síðastliðinn til
Norðuráls á Grundartanga. Kært
er að Umhverfisstofnun skuli hafa
veitt leyfi fyrir um 50 þúsund tonna
framleiðsluaukingu á ári.
Segir í kærunni að með þessu
sé Norðuráli veittar losunarheim-
ildir fyrir flúor sem geri fyrirtæk-
inu kleift að sleppa langtum meira
flúori út í andrúmsloftið en var árið
2014. Umhverfisvaktin færir í kær-
unni rök fyrir kröfu um að nýja
starfsleyfið fyrir Norðurál verði
fellt úr gildi. Það verði ekki end-
urnýjað fyrr en flúormengun hafi
verið mæld utan þynningarsvæð-
is í minnst tvö ár, vísindarannsókn-
ir fari fram á áhrifum langtíma flú-
ormengunar á íslenskt búfé, staða
flúormengunar verði gefin upp á
rauntíma, gerð verði haldgóð við-
bragðsáætlun fyrir mengunarslys,
umhverfisvöktun á eigin mengun
verði tekin úr höndum Norðuráls
og færð til opinberra aðila og að
Norðurál sýni fram á að álver þess á
Grundartanga starfi eftir sambæri-
legum viðmiðun um losun flúors
og Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði. Sjá
má kæruna í heild á vef Umhverfis-
vaktarinnar við Hvalfjörð.
mþh
Umhverfisvaktin kærir
leyfi til stækkunar álvers
Álver Norðuráls á Grundartanga.